Alþýðublaðið - 11.03.1997, Síða 8
Miðvikudagur 11. mars 1997 32. tölublað - 78. árgangur Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
■ Eiríkur Stefánsson, verkalýösforingi á Fáskrúösfirði, segir vanta heilu kynslóöirnar vegna þess aö
fólk flytji burt:
Þetta er búið og 20 hús eru til sölu
- segir hann þegar hann ræöir um ástandið í heimabyggð sinni
“Þetta er skelfilegt ástand. Það er
ekki lengur hægt að tala um verð á
fasteignum, hér eru um tuttugu eign-
ir til sölu. Þetta er allt hrunið. Ég
held að það sé of seint að grípa til
ráðstafana, þetta er búið,” sagði Ei-
ríkur Stefánsson, formaður Verka-
lýðs- og sjómannafélags Fáskrúðs-
fjarðar, um ástandið í heimabyggð
sinni.
“íbúðir hér kosta kannski 500 þús-
und krónur og dæmi eru um góð ein-
býlishús sem hafa farið á tvær til
þrjár milljónir króna. Héðan úr
byggðarlaginu fluttu átta prósent íbú-
anna og ellefu prósent úr dreifbýlinu,
bara á síðata ári. I Búðarhreppi eru
íbúamir nú aðeins um 650, en fyrir
fáum árum vorum við tæplega 900.”
Eiríkur sagði að flestir, ef ekki all-
ir, sem flytja burt fari til Reykjavík-
ur. „Þetta er vont fyrir alla. Þjóðfé-
lagið þarf á því að halda að fólk sé til
staðar á stöðum eins Fáskrúðsfirði.
Það þarf fólk til að vinna aflann. Það
er heldur ekki gott fyrir Reykvíkinga
að fá endalaust fólk sem er í atvinnu-
leit. Nú er svo komið að hér vantar
heilu kynslóðimar. Fólk á aldrinu 16
til 25 ára er hér ekki lengur, það er
allt farið.
Þingmenn landsbyggðarinnar eiga
að skammast sín. Þeir lofa öliu fögru
til að bæta ástandið, en gleyma því
strax. Hvemig á öðm vísi að vera?
Þeir búa allir í Reykjavík og deila
ekki kjömm með okkur. Þessir sömu
þingmenn geta eytt löngum tíma á
Alþingi, til að ræða einskis nýt mál,
svo sem friðun músa, en hreyfa ekki
þeim málum sem mestu skipta fyrir
okkur sem eftir emm á landsbyggð-
inni. Hvað segir fólkið sem flytur?
Jú, að það sé betra að lifa af lágum
launum í Reykjavík. Orkukostnaður
er lægri, matvaran kostar minna,
heilbrigðiskerfi er ömggara, auð-
veldara er að mennta bömin sín og
fleira mætti taka til.”
Eiríkur er ekki ánægður með gang
mála í kjaraviðræðum. „Það var sam-
þykkt á síðasta ASÍ-þingi að berjast
■ Ingi Björn Albertsson, fyrrverandi alþingismaöur, segir grát-
andi fólk hringja þegar þaö rifjar upp deilurnar um þyrlukaupin
Davíð fyrirgaf mér aldrei
-og gerði mér ókleift að starfa innan Sjálfstæðisflokksins
Vel á fjórða tug manna hefur verið bjargað um borö í TF-LIF á aðeins fáum
dögum. Varla er nokkur ósammála lengur hversu þarft er fyrir okkur
Islendinga aö eiga slíkt björgunartæki.
“Mér er minnisstætt hvað umræð-
an um þyrlukaupin var hörð. Fólk
hefur verið að hringja í mig og rifja
upp umræðumar, nú eftir að Dísar-
fellið fórst. Fólk hefur grátið í sím-
ann, þegar það hugsar til þess að
hefðum ekki eignast stóm þyrluna,”
sagði Ingi Bjöm Albertsson, fyrrver-
andi alþingismaður og helsti baráttu-
maður á Alþingi, fyrir því að Land-
helgisgæslan eignaðist nýja þyrlu.
“Rimman um þyrlukaupin var
fyrst og fremst við Davíð Oddsson,
forsætisráðherra og formann Sjálf-
stæðisflokksins, hann gaf út loforð
sem hann stóð ekki við og fleira og
fleira. Það er ekkert launungarmál að
mér var gert ómögulegt að starfa inn-
an flokksins vegna þessa máls. Ég
tók hart á honum, í þessu máli, og
mér var ekki fyrirgefið.”
Ingi Bjöm segir, þetta hömulega
slys og strand Vikartinds, sýna hvað
þörfin fyrir þyrluna var brýn. „Vam-
arliðið komst ekki þegar Vikartindur
strandaði og vom seinir þegar Dísar-
fellið fórst. Mig hryllir við tilhugsun-
inni ef stóla hefði þurft á þá. Mér
skilst að þeir hafi verið tveimur tím-
um seinni en TF-LIF, þegar Dísar-
fellið fórst. Það er varla hægt að
hugsa til enda hvað hefði gerst ef
mennnimir hefðu þurft að vera
tveimur tímum lengur í olíumenguð-
um stórsjó. Þeir hefðu ekki geta unn-
ið þetta björgunaafrek á TF-SIF, hún
hefur ekki burðargetuna og ég efast
um flugþolið, fyrir utan stærðina,”
sagði Ingi Bjöm Albertsson.
Neyðarástand er að skapast hjá
heyrnarskertum og daufblindum
- segir Rannveig Guðmundsdóttir vegna niðurskurða Framsóknarflokksins til
daufblindra og heyrnarskertra
„Ég er kvíðin fyrir hönd þeirra
heymarskertu og daufblindu sem
þurfa á túlkunarþjónustu að halda,”
sagði Rannveig Guðmundsdóttir,
fyrrverandi félagsmálaráðherra, í til-
efni af því að eftirmaður hennar, Páll
Pétursson, hefur ákveðið að hætta að
greiða árlega tvær milljónir af fjárlið
félagsmálaráðuneytisins til þess
verks.
Rannveig tók fjárveitinguna upp
árið 1995, þegar hún var félagsmála-
ráðherra, „til að svara mjög brýnni
þörf, sem mér fannst satt að segja
stappa nærri neyð hjá sumum. Páll
hélt mínu verki á þessu sviði áfram í
eitt ár, en nú er búið að tilkynna að
þessi fjárveiting falli niður. Það hef-
ur skapað neyðarástand hjá þessum
hópi,” sagði Rannveig í viðtali við
Alþýðublaðið í gær.
Rannveig sagði að niðurskurður-
inn hefði komið mjög illa við heym-
arlaust fólk, og ekki síst þá, sem
þurfa að leita aðstoðar lækna vegna
eigin kvilla eða bama. „Sérhver
klukkustund með túlki kostar 2,300
krónur og vitanlega skapar þetta
mikið óöryggi hjá sumum, sem em
mjög háðir þessu til að geta tekið
eðlilegan þátt í lífinu á svipaðan hátt
og við hin,” sagði Rannveig.
Sjá bls. 2
fyrir jöfnun hitunarkostnaðar, sér-
staklega með tilliti til okkar sem
búum á köldu svæðunum. En hvað
gerist? Það heyrist ekki orð um þetta
nú. Formenn landssambanda ASÍ
búa allir í Reykjavík eða nágrenni og
hafa gleymt loforðum og áformum.
Þeir sjást ekki hér nema rétt þegar
sólin skín, og þá aka þeir í gegn eins
hratt og þeir komast. Þegar þessir
menn em að tala um lífskjarajöfnun
horfa þeir alltaf til þess að fólk verði
með sem líkust laun, en lífskjarajöfn-
un snýst um fleira, en hún snýst til
dæmis, og einna helst, um verðið
sem við borgum fyrir orkuna.
Eiríkur segir ástandið atvinnumál-
um vera einstakt. „Það er aðeins eft-
ir einn atvinnurekandi, sem heitið
getur, en það er Kaupfélagið.”
Aðalfundur
Islandsbanka hf.
Aðalfundur íslandsbanka hf. 1997 verður haldinn
í Súlnasal Hótel Sögu mánudaginn 17. mars 1997
og hefst kl. 14:00.
Dagskrá
1. Aðalfundarstörf í samræmi við 10. grein
samþykkta bankans.
2. Tillaga um heimild til bankaráðs til kaupa á
hlutabréfum í íslandsbanka hf.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Framboðsfrestur til bankaráðs rennur út
þriðjudaginn 11. mars n.k. kl. 17:00.
Framboðum skal skila til bankastjórnar, Kirkjusandi.
Atkvæðaseðlar og aðgöngumiðar að fundinum verða
afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra í
íslandsbanka hf., Kirkjusandi, Reykjavík, 2. hæð,
13. og 14. rnars frá kl. 9:15 - 16:00 og á fundardegi
frá kl. 9:15 - 12:00.
Dagskrá fundarins, tillögur og ársreikningur félagsins
fyrir árið 1996 verður hluthöfum til sýnis á sama stað
frá og með mánudeginum 10. mars 1997.
Illuthafar eru vinsamlegast beðnir um að vitja
aðgöngumiða og atkvæðaseðla sinna fyrir kl. 12:00
á hádegi á fundardegi.
7. mars 1997
Bankaráð íslandsbanka hf.
ISLANDSBANKI