Alþýðublaðið - 03.04.1997, Side 4

Alþýðublaðið - 03.04.1997, Side 4
ALÞYÐUBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. APRIL 1997 ú t I ö n d Hlið Himinsins urðu að dyruni Miðvikudaginn fyrir páska féllu 39 sérfræðingar í upplýsingatækni fyrir eigin hendi í Kaliforníu. Fólkið taldi sig vera á leið í geimskip handan halastjörnunr væri eina flóttaleið mannkynsins frá „þrælsoki illgjarnra geimvera.“ Heimasíða hópsins á Internetinu bar heitið Hlið Himinsins. Alþýðublaðið notar Interne morðshópsins.. Bandaríkjamennimir 39, sem fundust fallnir fyrir eigin hendi miðvikudaginn fyrir páska í íburðarmiklu einbýlishúsi efst á hæð í Rancho Santa Fe í Kalifomíu vom hluti sértrúarhóps, sem töldu sig vera á leið með geimskipi til fjarlægra hluta geimsins. Þau undirbjuggu fjölda- sjálfsmorð sitt vendilega, tóku kveðjur upp á myndband, pökkuðu niður helstu hlutum sínum í ferðatöskur, áður en var haldið í lokaferðalagið frá jörðinn. Því næst dmkku þau banvæna blöndu af vodka, hægvirkandi svefnlyfjum, - og eplasósu. Vísbendingar á Internetinu Atburðurinn var hinn síðasti í ronu hópsjálfsmorða, sem sértrúarhópar af ýmsu tagi hafa framið síðan árið 1978, einsog Alþýðublaðið rekur annars stað- ar í dag. En hópurinn í Kalífomíu var sérstakur að því leyti, að hann lifði, hrærðist - og dó að lokum - í sérstökum sýndarheimi vísindasagna og upplýs- ingatækni. Meðlimir hópsins, sem margir höfðu haldið saman í 20 ár, voro allir velþjálfaðir tölvufræðingar, sem unnu fyrir sér og hópnum með því að hanna afburða vel gerðar heimasíð- ur fyrir Intemetið. Þeir notuðu einnig Intemetið til að koma skilaboðum sín- um á framfæri, og í stíl við það leitar nú bandaríska lögreglan skýringa á at- burðinum í gögnum þeirra á Intemet- Á einni af heimasíðum hópsins, sem Alþýðublaðið birtir að hluta til í dag, er að finna snyrtilega gerðar auglýsingar fyrir starfsemi hópsins, sem auglýsir sig sem „Higher Source" eða Æðra afl Þar segir að einstakir meðlimir hópsins hafi unnið saman í 20 ár. „Á þessum tíma hefur sérhvert okkar þróað með sér mikla hæfni og þekkingu í gegnum persónulegan aga og hnitmiðun," segir á heimasíðunni. Hún er að öðru leyti ekkert frá- brogðin heimasíðum fjölda fyrirtækja, sem auglýsa þjónustu sína á netinu. I bakgronni er þó stjömubjartur himinn, fjarlægar vetrarbrautir og stjömuþokur, - og þegar stærsta myndin á heimasíð- unni er skoðuð sést, að hún á að gefa til kynna ferðalag um geiminn í átt að Æðra afli. (Slóðin er: http://www.hig-' hersource.com). 1111* Vitnað tii Waco og Masada Önnur heimasíða hópsins á intemet- inu lýsir hinsvegar átrúnaði hópsins, sem kynnir sig þar sem áhangendur Hliða Himinsins (Heavens Gate). Þar kemur fram að hópurinn telur að hann muni innan skamms yfirgefa jörðina um borð í geimskipi, sem siglir í kjöl- far halastjömunnar Hale-Bopp, sem nú er hægt að sjá með berom augum frá jörðu. „Við gleðjumst yfir því að Eldri Fé- lagar á Þróunarsviðinu ofar Manninum („kóngsríki Himnanna") hafa gert okk- ur ljóst að koma Hale-Bopp er vís- bendingin sem við höfum verið að bíða eftir...Við munum með gleði búa okkur undir að yfirgefa þennan heim og fara...“ segir á heimasíðu Hliða Him- insins. Þar var einnig vísað til Waco í Texas, þar sem 70 manns fórost í eldi og skothríð eftir 51 daga umsátur lög- reglu árið 1993, og annarra staða þar sem fjöldasjálfsmorð voru unnin í sög- unni, meðal annars harmleiksins í virk- inu á Masada fjalli árið 73, þar sem rösklega 900 gyðingar vörðust Róm- verjum, en þegar ósigur blasti við af- réðu þeir að falla allir fyrir eigin hendi, fremur en verða fómarlömb þeirra. Það er þó athyglisvert að þrátt fyrir að heimasíða Himinshliða mæli með sjálfsmorði þeirra sem tilheyra hópn- um, sem aðferðar til komast til æðri sviða geimsins, er þar einnig að finna vamaðarorð gegn sjálfsmorðum ann- arra. Slóðin var http://www.heavens- gate.com en bandaríska lögreglan hef- ur nú lokað henni. Hugmyndafræðilegur hrærigrautur Hópurinn sendi einnig tvö mynd- bönd og bréf til félaga síns, Rio D’Angelo, sem hópurinn virðist hafa sent til að koma á framfæri andlegum boðum hópsins að loknum sjálfsmorð- unum. Þar kemur fram, að fólkið Geimskip að baki halastjörnunni Firðsjáendur þóttust „sjá“ risastórt geimskip handan Hale-Bopp. Vangaveltur um þetta eru taldar eiga þátt í fjöldasjálfsmorðum hópsins sem kenndi sig við Hlið himins. Talið er, að hópurinn sem kenndi sig við Hlið himins hafi álitið að loft- skip frá vetrarbrautum í fjarlægum hluta geimsins, 3-4 sinnum stærra en jörðin, fylgi í kjölfar Hale-Bopp halastjömunnar. Á síðustu áratugum hafa komið fram margir sértrúarhóp- ar, sem tengja halastjömur við geim- skip á leið til jarðar, og slíkar hug- myndir hafa blómstrað á Intemetinu síðustu mánuði eftir að fregnum um að risastórt geimskip hafi sést handan Hale-Bopp halastjömunnar var dreift á Intemetinu og í spjallþætti, sem út- varpað var frá meira en 300 stöðvum í Bandaríkjunum. Vert er að rifja upp, að einmitt á þeim dögum sem hópurinn framdi sjálfsmorðin, var halastjaman næst jörðu. Það kann að hafa ráðið tíma- setningu sjálfsmorðanna, en hópurinn hefur í 20 ár beðið eftir geimskipi, sem forvígismenn hans töldu myndu flytja hópinn til æðri sviða í fjarlæg- um hluta alheimsins. Misskilningur stjörnu- skoöara Fyrrverandi meðlimur segir að hópurinn hafi litið á Hale-Bopp hala- stjömuna sem tákn um að tími sjálfs- morðsins væri ronninn upp, og kveð- ur félaga sína hafa sagt sér, að þeir væro um það bil að yfirgefa jörðina á geimskipi. Maðurinn, Nick Matzorkis, segir þá hafa trúað því að handan við hala- stjömuna væri geimskip, sem notaði halastjömuna sem skjöld, svo ekki væri hægt að sjá hana eða skynja frá jörðinni. Þeir töldu að þetta gæti ver- ið geimskipið, sem myndi taka þá af jörðinni. Upphafið má líklega rekja til þess að áhugamaður um stjömur, Chuck Shramek frá Houston í Texas, hringdi inn í Bell spjallþáttinn, sem frægur er fyrir að halda fram hvers kyns sam- særiskenningum og bábiljum. Fregn- imar sem Shramek hafði að færa voro vægast sagt furðulegar: Hann kvaðst hafa tekið myndir af halastjömunni, sem sýndu að gríðarlega stórt, ljós- kennt fyrirbæri fylgdi fast á eftir henni. Hann taldi, að það væri 3-4 sinnum stærra en jörðin. Á Intemet- inu var myndin sýnd, og því haldið fram að fyrirbærið væri gríðarstórt geimskip. Síðan hafa stjömufræðingar sýnt fram á, að staðhæfing Shrameks var ekki hreinn tilbúningur, heldur mis- skilningur. Það sem hann sá var stjama langt frá Hale-Bopp hala- stjömunni, sem stjömukíkirinn hans bjagaði svo hún virtist sigla í kjölfari halastjömunnar. Stjórnmálaprófessor á villigötum Mikil umræða hófst um fyrirbærið meðal hópa sem notuðu Intemetið til að ræða saman, og útvarpsþátturinn, sem hratt vitleysunni af stað, hélt henni gangandi eftir mætti á hverjum einasta degi. Kenningunni var fylgt eftir á Bell útvarpsþættinum með yfirlýsingu frá manni að nafni Courtney Brown. Hann er stjórnmálafræðiprófessor við Emory háskólann í Atlanta, en þar að auki rekur hann í frístundum sínum stofnun sem heitir hlakkar til að yfirgefa hina jarðnesku tilveru og hefja nýja á æðri stigum geimsins. Á myndbandinu virðast menn rólegir og ánægðir, og engin merki ero um menn sæti nauðung af hálfu leiðtoga hópsins. „Þegar þið lesið þetta reiknum við með að búið sé að finna líkamina, sem við notuðum," segir í kveðjuboðum hópsins. „Við komum frá sviði í fjar- lægum hluta veraldarinnar og höfum kastað líkamshamnum sem við klædd- umst meðan við unnum verkefni okk- ar á jörðinni, og snúum nú aftur til þess heims, sem við komum frá. Hinn íjar- lægi staður sem við stefnum nú á er það sem í bókmenntum ykkar kallast konungsríki Himinsins, Guðsríki...." Síðan snemma á áttunda áratugnum hefur hópurinn sent frá sér skilaboð og fréttatilkynningar, sem til skamms tíma var hægt að lesa á Internetinu. Heim- ildir um hugmyndalegan grunn hans ero því æmar. Þeir sem hafa skoðað þær, segja að hugmyndafræði Himins- hliða sé sorglegur hrærigrautur af krist- inni mýtólógíu, og órakenndum vís- indaskáldskap, þarsem geimskip og fljúgandi furðuhlutir leika stærst hlut- verk. Þetta er sett á Intemetið og kom- ið á framfæri við heiminn. Þegar Hale- Bopp halastjaman var uppgötvuð árið 1995 varð hún dropinn sem fyllti mæli óranna, og leiddi til sjálfsmorðanna fyrir páska, þegar stjaman var næst jörðu. Hlið Himinsins, líkt og margir aðrir hálfkristnir hópar af svipaðri tegund, sem nú blómstra í Bandaríkjunum, sækir sér einnig hugmyndir í Opinber- unarbók Biblíunna, en slíkir hópar tengja gjaman halastjömur við stjöm- una, sem í Opinberon Jóhannesar táknar endalok jarðarinnar. Stofnandi Himinshliða, Marshall Herff App- lewhite (sjá annars staðar í Alþýðu- blaðinu) hefur raunar líkt sér og fylgi- konu sinni, Bonnie Lu Trosdale Nett- les, sem lést líklega árið 1994, við spá- mennina tvo sem Jóhannes segir að verði drepnir, rísi svo upp að nýju og að lokum sóttir til að ganga inn í Himnaríki. Eitraður eplabúöingur Þegar líkin voro skoðuð, og skilríki fólksins fundin, kom í ljós að meðal þeirra voro 21 kona og 18 karlar. Flest voro á á fimmtugsaldri; hinn yngsti var aðeins 20 en sá elsti var 72 ára. Fyrri upplýsingar höfðu gefíð til kynna, að allir sem tóku líf sitt í húsinu væro karlar. Ástæðan var sú, að fómar- lömbin voru öll klædd eins, í svartar buxur, treyjur og svarta strigaskó, og öll stuttklippt. Þetta staðlaða, kyndaufa útlit olli misskilningi lögreglunnar. Þeir sem tóku líf sitt dóu í þremur hópum, yfir þijá daga, og að lokum voro aðeins eftir tveir, sem kæfðu sig

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.