Alþýðublaðið - 03.04.1997, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 03.04.1997, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1997 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 im til Heljar íar Hale-Bopp, sem bæri það til fjarlægra vetrarbrauta, er tið til að kanna atburðinn og birtir hluta af heimasíðu sjálfs- með því að setja plastpoka yfir höfuð sín. Lögreglan hefur einnig fundið kassa með mörgum plastpokum utan við húsið, og vera má að þeir hafi ver- ið líka notaðir við sjálfsmorðin, en fjar- lægð af þeim tveimur sem síðast féllu. Sjálfsmorðin voru að öllu leyti vand- lega framkvæmd. Handskrifaðir seðl- ar, með uppskrift að eitri sem var blandað við eplabúðing, fundust við líkin: „Taktu litla pakkann með búð- ingnum og borðaðu fyrst eina eða tvær teskeiðar. Helltu lyfinu í og hrærðu. Borðaðu það nokkuð hratt, og drekktu svo vodkablönduna. Síðan skaltu leggjast aftur og hvfla þig hljóðlega....“ Einsog áður segir var það Rio D'Angelo, félagi í hópnum, sem fékk myndböndin og bréfið. Hann sýndi það þegar í stað vinnuveitenda sínum, Nick Matzorkis, og kvaðst jafnframt hafa verið valinn til að koma boðum Him- inshliða á framfæri. Matzorkis gat þess, að það hefði ekki komið D'Ang- elo á óvart þegar þeir lásu saman í bréf- inu eftirfarand orð: „Þegar þið lesið þetta, þá munum við hafa varpað lflc- amshamnum. „Þeir óku þegar í stað til Rancho Santa Fe á miðvikudaginn, fundu lflcin, og kvöddu til lögreglu. Lögreglan sagði eftir skoðun, að herbergin í húsinu hefðu virst lflct og sótthreinsuð, og afar lítið af persónu- legum munum hefði sést, fyrir utan það sem var pakkað í ferðatöskur, sem lágu snyrtilega til fóta í rúmunum, sem fólk- ið lá í. í þeim voru einkum föt, en það kom lögreglunni á óvart, að í vösum sérhvers hinna látnu var einnig að finna fimm dollara seðil. Staðurinn orkaði þannig á lögreglu- mennina að þeim datt bæði í hug klaustur og hátæknifangelsi. Allsstaðar voru mjög öflugar tölvur, en einsog áður er komið fram framfleyttu félagar í Hliðum Himinsins sér af því að búa til háþróaðar heimasíður fyrir fyrir- tæki. Einsog áður sagði virðist fólkið hafa dáið í þremur hópum. I fyrsta hópnum voru fimmtán manns, og miðhópurinn lagði til lflcin úr fyrsta hópnum, og þakti andlit þeirra með appelsínurauð- um, þríhymdum klút. Þriðji hópurinn gerði hið sama fyrir miðhópinn, og að lokum voru eftir tveir menn á fimm- tugsaldri, sem gengu frá hinum látnu, og tóku að síðustu banablönduna, smeygðu plastpokum yfir höfuð sér, og lögðust til hinsta svefnsins. Tveir hinna látnu vom blökkumenn, nokkrir vora af suðuramerískum upp- mna, en hinir vom hvítir menn. Aðdáendur vísinda- skáldskapar Ef frá em taldar yfirlýsingar hópsins sem áður var að finna á Intemetinu er Nick Matzorkis lfldega besta heimildin Mjúkur Messías með tómleg augu Afneitun kynlífs og efnislegra gæða var forsenda ferðar- innar út í geiminn. Líkaminn er aðeins hamur, sem þarf að skipta út, - sagði forsprakkinn Árið 1975 handtóku yfirvöld í Oregon í Bandaríkjunum mann og konu, með „mjúklynt yfirbragð og tómleg augu“ einsog sagði í lög- regluskýrslu frá þeim tíma. Þar er þess getið að parið hafi ferðast um vesturríkin til að safna félögum í „ferðalag til æðri heima" í geim- skipi, sem þau sögðu að myndi í fyllingu tímans koma og flytja burt þá jarðarbúa, sem máttarvöld geimsins teldu hæfa til slíkrar ferðar. Þetta vom Marshall Herff App- lewhite, 44 ára, og Bonnie Lu Tr- usdale Nettles, 48 ára, bæði upp- haflega frá Houston. Marshall var sonur prests, og var upphaflega í metum sem tónlistarprófessor við sveitaháskóla, og hafði að sögn þeirra sem kynntust honum mikla persónutöfra. Bonnie var hjúkran- arkona, sem snérist til mikils áhuga á stjömum og nýaldarfræðum sem þeim tengdust, og fór frá manni og fjóram bömum til að boða fagnað- arerindið sem hún meðtók upphaf- lega frá Marshall. Saman stofnuðu þau hópinn, sem kenndi sig við Hlið Himinsins, og framdi að lokum sjálfsmorð saman miðvikudaginn fyrir páska. Stundum kölluðu þau sig Bo og Peep, og örðum stundum Tiddly og Wink, og stundum sendu þau slcila- boð sín til umheimsins undir nöfn- unum Ti og Wi. Árið 1974 komust þau raunar fyrst undir manna hendur, er þau vora handtekin nálægt landamær- um Mexflcó, þegar ævareiður sjón- varpsfréttamaður kom á blaða- mannafund sem þau höfðu boðað til á hótelherbergi og komst þá að því, að þau höfðu leigt herbergið í hans nafni. En eftirgrennslan lög- reglunnar leiddi þá jafnframt í ljóst, að þau voru eftirlýst fyrir að taka bíl traustataki og misnota kreditkort. Skýrslur sýna, að þau játuðu greiðlega á sig sakimar, og eyddu fjóram mánuðum í fangelsi. Á hinum fyrstu áram sínum náði parið að Iaða til fylgis við sig tugi einstaklinga, sem yfirgáfu fjöl- skyldur til að undirbúa sig með þeim fyrir ferðina með geimskip- inu til æðri heima. Þau kölluðu sig stundum ýmsum nöfnum. Þau kváðust ekki gift og þó þau byggju saman hefðu þau eigi að síður af- neitað sér um allt kynlíf, enda væri það nauðsynlegur undirbúningur fararinnar út í geiminn. Þau kenndu einnig, að auk þess þyrftu menn að varpa frá sér öllum jarðneskum þægindum og efnisleg- um gæðum, - einungis þannig væri hægt að undirbúa sig fyrir ferðina miklu. Veralegur hluti af boðun þeirra fólst í því sem þau kölluðu mynd- breytingu mannsins, eða Human Individual Metamorphosis (HIM) Þegar þau skýrðu þetta notuðu þau oft líkinguna af fiðrildinu, sem verður að myndbreytast og kasta af sér ham púpunnar áður en það get- ur flogið og orðið fullskapað, fal- legt fiðrildi. Á myndbandi, sem hópurinn skildi eftir við sjálfsmorðin, er einmitt talað um líkamann sem „hylki“ eða „ham“ sem þau séu að kasta af sér með sjálfsvígunum, til að geta komist til æðri heima. ú t I ö n d Fjöldasjálfsmorð síðustu áratuga Síðan 1978 hafa ellefu hópar, yfirleitt sértrúarsöfnuðir, tekið líf sitt sameiginlega. Það er ekki langt síðan brannin lík þriggja kvenna og tveggja manna fundust í húsi í Saint Casimir í Quebec í Kanada. Öll vora meðlimir í Hofi Sólarinnar, alþjóðlegum sér- trúarhópi, sem telur að trúarleg sjálfs- morð leiði til endurfæðingar á reiki- stjömunni Síríus. Innan hópsins er talið farsælast, ef hægt er að koma því svo fyrir að lflcin brenni. I desember árið 1995, fundust einnig sextán félagar í Hofi Sólarinn- ar látin í brunarústum húss fyrir utan Grenoble, í frönsku Ölpunum. Fjölmennustu sjálfsmorð þessa hóps áttu sér þó stað ári áður, í októ- ber 1994. Þá fundust 48 brannin lflc félaga úr Hofi Sólarinnar á bænda- býli og þremur fjallakofum í Sviss. Sama dag fundust einnig fimm brannin Iflc, þar af eitt af ungbami, í kofa fyrir norðan Montreal í Kanada, sem einnig voru af meðlimum safn- aðarins. Þann 19. apríl árið 1993, dóu í Waco í Texas að minnsta kosti 70 fé- lagar í sértrúahóp er kallaði sig söfn- uð Davíðs, eftir skotbardaga við lög- reglu sem lyktaði með því að hópur- inn kveikti í húsinu, sem hann var í. Með því endaði umsátur lögreglu um húsið, sem hafði þá staðið í 51 dag. Leiðtogi hópsins var Davíð Kóresh, sem boðaði fagnaðarerindi af messíönskum toga, þar sem lögð var áhersla á kynlíf, frelsi og byltingu. Kóresh sagði jafnframt fylgismönn- um sínum, að hann væri Jesús Kristur. í október 1993 féllu 53 Víetnamar úr afskekktu fjallahéraði fyrir eigin hendi. Þeir notuðu framstæð skot- vopn við verknaðinn, og töldu að þeir færa eftir dauðann beint til himna. Embættismenn í Víetnam sögðu að hinir látnu hefðu verið fómalömb loddara, sem lofaði öraggri leið til Paradísar, gegn dijúgri greiðslu. I desember árið 1991 dó mexflc- anski presturinn Ramon Morales Al- mazan með 29 fylgismönnum sínum, eftir að eldur var lagður í kirkjuna þar sem söfnuðurinn var á bæn. Prestur skipaði söfnuðinum að skeyta engu um reyk og eld, heldur halda áfram að biðja. Að lokum kafnaði söfnuður- inn ásamt prestinum. Tólf manns dóu einnig í Mexflcó þann 13. desember, 1990, eftir að hafa drakkið eitrað áfengi við trúa- lega athöfn. í ágúst árið 1987 fundust 32 með- limir í sértrúarhópi látnir í Seoul í S- kóreu. Hópurinn laut forystu kven- prests, Park Soon Ja, sem hélt því fram að hún væri guð. Flest fómar- lambanna tóku líf sitt með því að drekka eitur. Þann 1. nóvember 1986 fundust brannin lflc sjö japanskra kvenna á ströndinni í Wakayam í vesturhluta Japan. Þær tilheyrðu kirkju sannleik- ans, og skildu eftir bréf, þar sem þær útskýrðu að þær vildu ekki lifa áfram eftir að andlegur leiðtogi þeirra, Ki- yoharu Miyamoto, lést. Þann 19. september 1985 frömdu um 60 meðlimir Ata ættbálksins á eyjunni Mindanaó á Filippseyjum sjálfsmorð með því að taka inn eitur að fyrirskipan leiðtoga síns, Datu Mangayanon. Mestu sjálfsmorð sög- unnar, og hið mesta sem sögur fóra af frá því um það bil 900 gyðingar tóku líf sitt á fjallinu Masada árið 73 eftir Krist, meðan stóð á umsátri Róm- vetja, er þó þau sem kennd era við Jonestown í Guyana. Leiðtoginn Jim Jones fyrirskipaði þá 912 félögum í samfélagi sínu að drekka eitur. Þeir sem ekki gerðu það sjálfviljugir, vora neyddir til þess, eða skotnir. Frá þessu er skýrt annars staðar í þessari umfjöllun. um félaga hópsins. Hann rekur fyrir- tæki í Hollywood, Entertainment Inter- active Group, sem Hlið Himinsins vann mikið fyrir. Hann sagði fjölmiðl- um í Bandaríkjunum fyrir páska að síð- ustu níu mánuðina hefði hann haft mikið samband við um það bil fimmt- án manns úr hópnum. Þeir hefðu verið á milli tvítugs og fertugs, allir virst há- menntaðir og allir verið ógiftir. Hann kvað þá heita aðdáendur sjón- varpsþátta sem byggðu á vísindaskáld- skap, einsog „Star Trek“ og „X-Files“ - sem hér á íslandi era sýndir undir heit- inu Ráðgátur - og orðið furðu lostin, þegar Matzorkis sagðist ekki hafa neinn áhuga á slflcum þáttum. Eitt atvik situr sérstaklega í huga Matzorkis. Síðastliðinn nóvember átti hann afmæli, og nokkrir úr hópnum komu á skrifstofu hans í Beverly Hills með afmælistertu. Ein stúlkan í hópn- urn sagði þá við hann hálfkæruleysis- lega, að margir karlmannann í hópnum hefði gengist undir skurðaðgerð til að láta fjarlægja úr sér eistun. Félagar í Himnahliðum sögðu honum lflca að þeir lifðu án kynlífs, og Matzorkis fannst þeir nánast kynlausir: Bæði kon- ur og kailar skára hár sitt mjög snöggt, og klæddust i dökkar skyrtur og buxur, yfirleitt í svörtum strigaskóm. Ur ný- legu myndbandi, sem Himnahliða hóp- urinn gerði, má sjá þann kvíðboga sem hann bar fyrir framtíð jarðarinnar, og hversvegna hann taldi sér ríða á að flýja jörðina. Myndbandið bar titilinn: „Reikistjama sem innan skarnms verð- ur endurannin, - eina von þín til að lifa af er að hverfa burt með okkur.“ Á kápu þess var lítill texti þar sem sagði: „Hugsaðu um okkur sem könnunarlið utan úr geimnum (skipstjóra og áhöfn), sem í aðdraganda endanlegrar brottfar- ar frá jörðinni er að gera síðustu tilraun til að upplýsa íbúa jarðarinnar um einu flóttaleiðina frá þeim örlögum sem annars bíða, - að verða seld undir þrælsok illgjamra geimvera... Hvað leiðir til fjöldasjálfsmorða? Sterkir, litríkir leiðtogar verða föð- urímynd veiklynds ungs fólks sem hefur gefist upp á lífsbaráttunni. Hvað gerist í mannshuganum, sem leiðir tugi, jafnvel hundruð manna til að taka líf sitt í sameiningu? Spum- ingar af þessu tagi hafa eðlilega verið ofarlega á baugi eftir atburðina í San Diego, þar sem 39 manns frörndu sjálfsvíg saman. En fjölmörg dæmi era um atburði af svipuðu tagi, einsog Alþýðublaðið rekur annars staðar hér á opnunni í dag. Sérfræðingar segja, að sammerkt þeim öllum séu sterkir leiðtogar með messíasaryfirbragð, sem nái ofurvaldi á einstaklingum, sem eru veiklyndir og hafa veika sjálfsmynd. Áður en kemur að atburðinum eru aðrir, sem ef til vill hafa vott af gagnrýni, annað- hvort famir á burt af eigin hvötum, eða reknir af leiðtogum, sem þola ekki múður og mas. Yfirleitt séu áhangendumir í ágætu jafnvægi, og ekki haldnir örvæntingu einsog þeirri, sem oft leiðir einstaklinga til sjálfs- morðs. John Hochman er sálfræðingur við háskólann í Kalifomíu, og hefur rann- sakað sálarlíf þeirra sérstaklega, sem verða bráð öfgahópa af þessu tagi. Hann segir að það séu sérstakar mann- gerðir, sem dragist að mönnum einsog David Koresh, sem leiddi tugi rnanna til sameiginlegra sjálfsvíga í Waco í Texas fyrir nokkrum árum, og Jim Jo- nes, sem fékk næstum þúsund manns til hins sama í Guyana árið 1978. Þessar manngerðir, segir Hochman og aðrir sérfræðingar, era yfirleitt veiklynt ungt fólk, sem hefur gefist upp í lífsbaráttunni og er reiðubúið til að selja sjálfstæði eigin hugsunar undir vald litríks leiðtoga, sem verð- ur oft einskonar föðurímynd, sem þau treysta fullkomlega og í blindni. Sjálfsmorð hópa af þessu tagi er ekki hefðbundið sjálfsmorð, lflct og þegar einstaklingar taka sitt eigið líf í ör- væntingu til að enda líf sem þeir líta á sem vonlaust. Þvert á móti hlakka meðlimir hópsins oft til þess, því þeir trúa að með sjálfsmorðinu séu þeir einungis að flytja sig til æðri staða al- heimsins.Viðhorf af þessu tagi kom til dæmis glöggt fram meðal meðlima Hofs Sólarinnar, trúarhóps með aðset- ur í Kanada og Sviss, sem hafa á síð- ustu þrernur árum framið ijöldasjálfs- morð.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.