Alþýðublaðið - 24.04.1997, Page 5
FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 1997
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
5
ú t I ö n d
■ Margrét Elísabet Ólafsdóttir skrifar frá París
Catherine Mégret -
Leppstjórinn i Vitrolles
Vitrolles er fjórða borgin í Frakk-
landi sem „fellur í hendur“ Þjóðem-
isfylkingarinnar, flokks öfgasinnaðra
hægrimanna, svo notað sé orðalag
franskra fjölmiðla. Ibúar þessa
39.000 manna svefnbæjar skammt
frá Marseille greiddu lista Þjóðemis-
fylkingarinnar nflegan meirihluta at-
kvæða sinna í aukakosningum til
bæjarstjómar 9. febrúar síðastliði.in
og felldu þar með sósíalistann Jean-
Jaques Anglade, sem fyrir löngu var
búinn að tapa trausti bæjarbúa sökum
ásakana um spillingu og fjársvik.
Það merkilegasta við þennan kosn-
ingasigur er ekki að bæjarbúar skuli
hafa kosið yfir sig Þjóðemisfylking-
una, sigrað, heldur það að efsti mað-
ur á lista flokksins, Catherine Mé-
gret, núverandi borgarstjóri, var svo
greinilega í framboði í umboði eigin-
manns síns, Bmno Mégret, að þáð
þýddi ekki einu sinni fyrir Mégret
hjónin sjálf að reyna að breiða yfir þá
staðreynd. Og kvöldið sem sigurinn
var í höfn gat frúin ekki stillt sig um
að beinlínis eigna hann eiginmannin-
um.
Borgarstjórinn er
fasisti
Catherine Mégret er því enginn
venjulegur borgarstjóri. f fyrsta lagi
tilheyrir hún Þjóðernisfylkingunni,
flokki sem byggir kenningar sínar
leynt og ljóst á fasískri hugmynda-
fræði og vekur ugg hjá meirihluta
frönsku þjóðarinnar. í öðm lagi hafði
hún aldrei komið nálægt stjómmál-
um áður en hún fór út í þetta fram-
boð. Astæðan fyrir því að Catherine
Mégret var allt í einu komin í efsta
sæti framboðslista í bæjarstjómar-
kosningum er í beinu sambandi við
hjúskaparstöðu hennar. Eiginmanni
hennar var á síðasta ári meinað tíma-
bundið að fara í framboð, en í síðustu
bæjarstjómarkosningum tapaði hann
naumlega fyrir Anglade, ífáfarandi
borgarstjóra. Hann gat því ekki horft
aðgerðarlaus á kosningar í Vitrolles
og látið tækifærið renna sér úr greip-
um einmitt núna, ári fyrir þingkosn-
ingar.
Komandi þingkosningar eru þó
ekki nema ein ástæðan fyrir því að
Mégret eiginmaður ákvað að taka til
sinna ráða. Flokkur hans, Þjóðemis-
fylkingin, hefur sjaldan verið jafn
mikið til umræðu í Frakklandi og
einmitt í vetur. Skoðanakannanir síð-
ustu tólf mánuði, eða allt þar til í
mars síðastliðnum, hafa sýnt að
flokkurinn freistar ótrúlega margra
Frakka. Mégret hefur kunnað að nýta
sér meðbyrinn og er framboð eigin-
konunnar aðeins einn liður í úthugs-
uðum leik sem lætur ekki tilviljanir
ráða ferðinni. Það er því nokkuð ör-
uggt að eiginkonan, í hlutverki ný-
kjörins borgarstjóra í viðtali við
þýska blaðið Berliner Zeitung, hafi
ekki sagt neitt sem hann hefði talið
óskynsamlegt að segja. í umræddu
viðtali lét Catherine Mégret hafa eft-
ir sér að hún tryði á „ójafnrétti kyn-
þátta“, en fyrir þá skoðun mun hún
verða að svara fyrir rétti í lok apríl,
þar sem hún hefur verið ákærð fyrir
orð sín af 70 einstaklingum á gmnd-
velli franskra laga sem telja slík um-
mæli á opinberum vettvangi sakhæf.
„Mismæli" af þessu tagi era algeng
meðal háttsettra innan fylkingarinn-
ar, þótt þau komi oftast frá formanni
hennar, Jean-Marie Le Pen, á opin-
bemm vettvangi. Bmno Mégret er
varkárari í orðavali, en finnst greini-
lega ekki til skaða að láta eiginkon-
una sjá um „mismælin" í skjóli
reynsluleysis hennar, því frú Mégret
er alger nýgræðingur í pólitík. Ólíkt
eiginkonum borgarstjóra Þjóðemis-
fylkingarinnar í Orange, Toulon og
Marginane, sem er nágrannabær
Vitrolles, hefur Catherine aldrei ver-
ið virkur þátttakandi í stjómmálum
og ekki einu sinni látið í ljós löngun
til að skipta sér af framapoti eigin-
mannsins. Það er að segja ekki fyrr
en hún samþykkti að fara fyrir hann í
framboð í Vitrolles.
Bruno ætlar á þing
Bmno Métret hefur eflaust þótt
vænlegri kostur að tefla fram eigin-
konunni en fá einhvem flokksfélag-
ann til að taka við fyrsta sætinu. Þar
með var hann ömggur um að tapa
ekki borginni ef til sigurs kæmi. Það
sýndi sig líka á landsfundi Þjóðemis-
fylkingarinnar um páskana í Strasbo-
urg, að leikurinn borgaði sig. Sigur-
inn í Vitrolles hefur aðeins styrkt
stöðu Mégret innan flokksins. Á
Sigurinn í Vitrolles
hefur aðeins styrkt
stöðu Mégret innan
flokksins. Á fundinum
fékk hann langflest at-
kvæði fulltrúa í mið-
stjórn og er þar með
ótvírætt orðinn annar
áhrifamesti maður
flokksins.
fundinum fékk hann langflest at-
kvæði fulltrúa í miðstjóm og er þar
með ótvírætt orðinn annar áhrifa-
mesti maður flokksins. Le Pen, sem
hefur hikað við að útnefna Bruno
Mégret sem varamann sinn frá því
embættið losnaði fyrir tæpum tveim-
ur ámm, á orðið erfitt með að líta
framhjá honum þótt sambandið á
milli þeirra sé stirt. Le Pen hefur
ifestað að útnefna varamann því
hann kærir sig lítið um að deila völd-
um með öðmm og Mégret er of
hættulegur til að Le Pen geti með
góðri samvisku rýmt til fyrir honum
og þar með leyft honum að ógna eig-
in einveldi. Hann getur hins vegar
ekki horft framhjá sigri hans í
Vitrolles sem um leið eykur líkumar
á því að Mégret komist á þing að ári,
en þá er framboðsbann hans mnnið
út. Vitrolles er í sama landshluta og
hinar borgimar þijár sem þjóðemis-
fylkingin stjómar, nokkuð sem vart
getur talist tilviljun; Þjóðemisfylk-
ingin vill auka völd sín og Bmno
Mégret ætlar að komast á þing á
næsta ári fyrir atkvæði kjósenda í
Provence Cóte d’Azur héraði.
Taka fasistar völdin?
Kuldi Le Pens í garð Mégret bygg-
ist ekki aðeins á ótta um eigin hag.
Bruno Mégret kemur úr allt öðm um-
hverfi en Jean-Marie Le Pen sem á
miklu meira sameiginlegt með
keppinauti Mégret og nafna, Bmno
Gollnisch.
Mégret kemur úr efri borgarastétt
og skemmtir sér ekki við að syngja
hersöngva. Hann er sonur ríkisráðs-
manns og hefur gengið í bestu og
virtustu skóla Frakklands. Það em
ekki háskólar, heldur hinir svoköll-
uðu Grandes Ecoles sem mennta el-
ítu landsins. Próf úr sumum þeirra,
eins og Polytechnique (Fjöltækni-
skólinn), sem Mégret gekk fyrst í, er
eins og ávísun á stjómunarstöðu í
ríkisfyrirtæki eða góða stöðu í ein-
hvetju ráðuneytanna. En þar fyrir
utan er Mégret með verkfræðipróf
frá ögn minna fínum skóla, vega-
verkfræðiskólanum Ponts et chaus-
se'es og háskólapróf frá Berkley í
Kalifomíu, USA. Frakki úr góðri
fjölskyldu með slíkan námsferil að
baki þarf yfirleitt ekki að hafa
áhyggjur af framtíðinni, til þess hef-
ur hann of mörg og of góð sambönd
á æðstu stöðum. Bruno Mégret hefði
því átt að eiga greiðan aðgang að
völdum og frama eftir hefðbundnum
leiðum. En það nægði honum greini-
lega ekki.
f fyrstu hélt hann sig þó á brautinni
og gekk í flokk gaullista, þar sem
hann tók sæti í miðstjóm árið 1979.
Hann virðist hins vegar hafa hallast
til meiri harðlínu en sá flokkur leyfir,
því hann var meðlimur og síðar for-
maður í hinum svokallaða Klukku-
klúbbi (Club de l’Horologue), fé-
lagsskap sem myndar brú á milli
/hefðbundinna hægri manna og öfga-
manna. Eftir ósigur hægri manna í
þingkosningunum 1982 byijar Mé-
gret því að mjaka sér lengra í átt til
hægri þótt hann hafi ekki gengið í
Þjóðemisfylkinguna fyrr en árið
1985. Hann stýrði kosningabaráttu
Le Pens í forsetakosningunum 1988
og bjóst við að vera skipaður vara-
formaður þegar embættið losnaði
árið 1995. Þegar ekkert varð úr slík-
um embættisveitingum tók Mégret til
sinna ráða og hefur unnið ötullega að
því síðan að sjálfskipa sig í embætt-
ið, með góðum árangri.
Hann greip tækifærið sem bauðst í
verkföllunum í desember 1995, eftir
að Le Pen hafði fordæmt þau, og út-
skýrði þau sem tjáningu þjóðarinnar
á eigin vanlíðan og óánægju með
ástandið í landinu. Það var góður
leikur, því verkföllin nutu ákveðins
stuðnings hjá þjóðinni. Hann gerði
flokknum um leið ljóst að hann gæti
ekki haldið áfram að láta sér iynda að
hafa helst á stefnuskrá sinni mál inn-
flytjenda og öryggismál, heldur yrði
hann að sýna efnahags- og félags-
málum meiri áhuga. Þetta hefur hon-
um tekist og því getur Þjóðemisfylk-
ingin nú litið á sig sem alvöru flokk
sem skiptir sér af alvöru málum. Mé-
gret getur því þakkað sér að vonir
flokks hans um að ná einn daginn
völdum hafa glæðst svo um munar. Á
landsfundinum kom fram von
flokksmanna um árangur ( komandi
þingkosningum, en sigurinn í
Vitrolles hefur gert sitt til að styrkja
lepenista í þeirri trú að morgundag-
urinn sé þeirra. Eitt er víst að Mégret
mun leggja sitt af mörkum til að láta
drauminn rætast. Hann er þegar byrj-
aður að undirbúa kosningabaráttuna
næsta vor með fundahöldum um allt
Frakkland, um leið og hann stjómar
Vitrolles í gegnum eiginkonuna, því
hann er jú ráðgjafi borgarstjórans.
Það var hann sem kynnti fjárhagsá-
ætlun nýja meirihlutans á borgar-
stjómarfundi 2. apríl síðastliðinn.
Ekki Catherin^ Mégret.
Le Pen hefur frestað að útnefna varamann því hann kærir sig lítið um að deila völdum með öðrum og Mégret er
of hættulegur til að Le Pen geti meö góðri samvisku rýmt til fyrir honum og þar með leyft honum að ógna eigin
einveldi.
Alþingismenn
Alþýðuflokksins
VUTALS-
TÍMAR
Mánudaginn
28. apríl,
verður
Sighvatur
Björgvinsson,
formaður Al-
þýðuflokksins
- Jafnaðar-
mannaflokks
íslands oig
alþingismað-
ur, með við-
talstíma á
skrifstofum
fiokksins,
Hverfisgötu
" 8-10, frá
klukkan 17:00
til 19:00.
Þeir sem vilja
panta viðtals-
tíma, hafi
samband við
skrifstofuna í
síma 552-
9244.