Alþýðublaðið - 27.06.1997, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1997
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
5
hann um og reyndi að aðvara sem
flesta við hættunni. Mortin fór með
lestinni til Chiefland þar sem upp-
komin systir hennar bjó, en þar
heyrði hún fyrst hvað hafði komið
fyrir Sam Carter. Hún frétti um at-
burðinn í smáaatriðum. „Mig langaði
að deyja þegar ég frétti að Sam hefði
verið hengdur, hann var mér allt,“
segir hún.
Eldri systir hennar fylgdist með at-
burðum í fjölmiðlum þá daga sem nú
fóru í hönd. Á fimmtudeginum fékk
hvíta mafían veður af því að Sylvest-
er, annar meðlimur Carrier fjölskyld-
unnar, hefði safnað í kringum sig hóp
af svörtu fólki undir einu þaki. Sylv-
ester var hreinskiptin og sjálfstæður
og það gerði hann óvinsælan í hvíta
samfélaginu. Eftir að Sam Carter var
drepinn hafði hann gert það Ijóst að
hann myndi ekki hika við að verja
fjölskyldu sína fyrir árásum. Margir
hvítir þurftu ekki meira en það. Hóp-
ur manna fór heim til Söruh Carrier,
móður Sylvester þar sem þeir sáu að
heimilið var varið. Þegar þeir reyndu
að komast inn kváðu við skothvellir.
Tveir hvítir menn féllu. Sarah Carri-
er sem var vel þekkt kona, bæði í
samfélögum hvítra og svartra, birtist
í glugganum og bað hvítu mennina
að snúa til sinna heima. Hún var
skotin og drepin. Umsátrið varði í
marga tíma og um nóttina tókst sum-
um í húsinu, mestmegnis konum og
bömum að flýja. Þegar hvítu menn-
imir náðu loks inn í húsið fundu þeir
þar aðeins fyrir lík Sylvester og
Sömh. I reiði sinni brenndu þeir hús-
ið til granna. Sfðan brenndu þeir
fimm önnur hús og kirkju. Fimmtug
kona, Lexie Gordon, var í felum und-
ir húsi sínu þegar þeir kveiktu í því.
Hún var skotin þegar hún reyndi að
flýja. Aðrir íbúar flúðu út í nóttina,
inn í skógana eða freðnar mýramar
allt um kring.
Þrátt fyrir að ríkisstjórinn í Flórída
hefði heyrt af atburðunum í Ros-
ewood og hefði vald til að senda
þjóðvarðliðið til að skakka leikinn,
kaus hann fremur að halda á veiðar.
Eyðileggingin hélt þvf áfram og
James Carrier, bróðir Sylvester var
eltur uppi og skotinn. Á sunnudegin-
um, þann sjöunda janúar, stóðu um
hundrað og fimmtíu manns og fylgd-
ust með þegar síðustu hús svartra í
Rosewood voru eyðilögð.
En það tóku ekki allir hvítir þátt í
herferðinni. John Wright var eini
hvíti maðurinn sem bjó í Rosewood,
hann faldi konu sína og böm í húsinu
og bræður hans sem bjuggu hjá þeim
og unnu við jámbrautirinar reyndu
að útvega flóttamönnum lestarvagn
sem gæti flutt þau til Gainesville.
Það verður aldrei ljóst hversu
margir féllu í Rosewood. Einungis
era til heimildir um sex svarta og tvo
hvíta, en eftirlifendur segja að þeir
hafi verið miklu fleiri. „Það voru
heilu fjölskyldumar sem ég þekkti
vel sem ég heyrði aldrei um aftur,“
segir Robie. Jesse Hunter fannst
aldrei og enginn íbúa þorpsins sneri
aftur og gerði tilkall til landeigna
sinna. Það var líkt og þorpið hefði
verið þurrkað út af landakortinu.
Seinna varð það altalað að Fanny
Taylor hefði logið sögunni um svarta
nauðgarann til að breiða yfir bar-
smíðar kærasta síns sem var hvítur.
Rosewood - atburðanna er minnst
fyrir margar sakir. Á þessum tíma var
Flórída þekkt af ofbeldi gegn svörtu
fólki. Fyrir heimsstyrjöldina fyrri
hafði fylkið hæstu morðtíðni í
Bandaríkjunum. Svartir menn voru
hengdir fyrir minnstu ögran og oftar
en ekki var það tengt á vafasaman
hátt við hvítar konur, en slíkt var
mjög álgeng orsök ofbeldis svartra
gegn hvítum. Þetta vora gósentímar
fyrir Ku Klux Klan. Árið 1920 réðust
þeir að svörtu fólki sem reyndi að
nýta sér kosningarétt sinn í bænum
Ocoee í Flórída. I bænum Perry voru
heimili jöfnuð við jörðu og kirkjur
brenndar tveimur árum síðar.
I Rosewood gegndi dálítið öðru
máli, ekki síst vegna þess að það var
í fyrsta skipti sem svartir gripu til
vopna og vörðust gegn ofsækjendum
sinum. Sylvester Carrier er enn
minnst af mörgum fyrir hetjuskap
enda hafði hann hugrekki til að
standa fast á sínu. I öðra lagi era enn
eftirlifandi vitni frá atburðunum,
ólíkt því sem gerist um marga aðra
kynþáttaglæpi frá þessum tíma.
I þriðja lagi vegna algers aðgerðar-
leysis yfirvalda sem stóðu hjá og
gerðu ekki neitt.
Og þau héldu áfram að sitja með
hendur í skauti. Þegar hörmungunum
létti loksins sjö dögum síðar gerðu
yfirvöld enga tilraun til þess að koma
íbúunum til baka til þorpsins og eng-
in viðleitni var til að framfylgja
neinu réttlæti. Það var þögn sem varð
að lokum kannski enn ámælisverðari
en glæpurinn sjálfur. í millitíðinni
breiddi þögnin sig einnig yfir eftirlif-
“Það er merkilegt að þau skyldu
ekki vilja minnast atburðanna. Það
kallaði fram slíkan hrylling í hugum
þeirra að þau vildu ekki að bömin
þeirra þyrftu að upplifa það.“
Önnur ástæða þess að geymd at-
burðanna varð einungis í munnmæl-
um er sú að fólkið upplifði tilgangs-
leysi. „Þau vissu að fjölmiðlar höfðu
fjallað um atburðina út um allt land-
ið en þrátt fyrir það var ekkert gert,“
segir Amett Doctor en móðir hennar
var ellefu ára gömul þegar þetta
gerðist og var eitt þeirra bama sem
var í húsi Sylvester Carrier í umsátr-
inu mikla. „Þegar þú verður fómar-
lamb í slíku umhverfi, hverjum
ætlarðu þá að segja frá? Hversvegna
ættirðu einu sinni að hugsa til þess að
gera tilkall til lands þíns?
Það var einnig óttinn. Tilfinning
sem átti eftir að elta þá sem sluppu
on Carrier sem var drepin í Ros-
ewood. „Hún dó þegar ég var tíu ára
gömul en ég man eftir sérkennilegum
siðum hennar. Hún sat alltaf næst
glugganum og ef hún heyrði í bíl
færði hún til gluggatjöldin og leit út.
Ef hún þekkti ekki bflinn þá stóð hún
upp og gekk út úr herberginu. Eg
vissi ekki hversvegna fyrr en móðir
mín sagði mér söguna af Rosewood.
í fyrsta skipti sem ég heyrði um at-
burðina í Rosewood var ég tíu ára
gömul,“ segir Jenkins. „Ég var svo
lítil að það fyrsta sem kom upp í hug-
ann var tré, fyllt með rósum. Mamma
sagði mér að þeir hefðu náð frænku
minni og nauðgað henni, og þá
meina ég hópnauðgun. Mamma
sagði mér söguna af Rosewood aftur
og aftur vegna þess að ég þrábað
hana um það. f langan tíma hataði ég
alla hvíta menn. Rosewood hefur
enn frekar bilið milli hvítra og
svartra. Það er staðreynd að Flórída
dagsins í dag, með öllum ferðamönn-
unum, er einnig staður þar sem tveir
hvítir helltu bensíni yfir svartan
mann og kveiktu í árið 1993. Sól-
skinsfylkið er enn staður kynþátta-
haturs. Flórída ásamt Tennessee er sá
staður þar sem flestar kirkjur svartra
hafa verið brenndar á undanfömum
áram og Ku Klux Klan hefur enn
hreðjatak á samfélaginu."
ÞKÁ stytti og stældi úr
The Sunday Times.
Robie Mortin sem lifði hörmung-
arnar segir heilu fjölskyldurnar
hafa horfið af sjónarsviðinu með-
an hörmungarnar dundu yfir.
verið mér ofarlega í huga allt mitt líf
og er enn.“
Rosewood öðlaðist nýtt líf í hug-
um almennings eftir að Gary Moore,
frá St Petersburg Times heyrði sög-
una og ákvað að gera um hana sjón-
varpsþátt. Afkomendur Philomena
Doctor, sérlega Amett sonur hennar
urðu helteknir af áhuga á sögu fólks-
ins síns og brátt varð Amett leiðtogi
fólksins í baráttunni við að koma
Rosewood aftur á kortið.
Árið 1992 samþykkti lögfræði-
stofa í Flórída að taka að sér mál eft-
irlifenda Rosewood án þess að taka
fyrir neina þóknun. Baráttan sýndist
vonlaus í fyrstu en leiddi loks til þess
að sjötíu árum eftir morðin og of-
beldið, eyðileggingu og hrylling,
fengu eftirlifendumir tvær milljónir
dollara sem áttu að skiptast milli eft-
irlifenda og afkomenda þeirra. Það er
í fyrsta og eina skiptið sem að yfir-
völd í Bandaríkjunum hafa dregið
tjöldin frá og horfst í augu við kyn-
þáttaglæpi fortíðarinnar og greitt
bætur til fómarlambanna. Margir
hafa hugsað til þess fordæmis sem
dómurinn gefur, hvemig ættu hvítir
nokkru sinni að geta bætt fyrir alla
glæpi sína gegn svörtum? Það er af
nógu að taka.
“Þetta er erfið spurning," segir
David Colbum prófessor. „Ég held
að það sé rnjög erfitt að láta kynslóð-
imar núna borga brúsann fyrir for-
feður sína. Ég tala fremur sem borg-
ari en sagnfræðingur, en talandi um
skaðabætur, þá værum við að víkka
endur atburðanna. „Rosewood fólkið
talaði varla um atburðina við bömin
sín,“ segir David Colbum sagnfræð-
ingur við Flórídaháskóla, og einn
höfundur greinargerðarinnar frá
1993 um Rosewood.
lifandi ævina á enda. Liz Jenkins er
roskin skólakennari sem býr í Archer
rétt fyrir norðan Rosewood, og ólst
upp með vitneskjunni um að eitthvað
hroðalegt hefði komið fyrir frænku
sína Gussie Brown sem var gift Aar-
Bob Walker lögreglu-
stjóri skömmu eftir
óeiröirnar. Hann held-
ur á byssu Sylvester
Carrier, svarta
mannsins sem var
ákærður fyrir að hafa
myrt tvo hvíta menn.
Sylvester er hetja í
hugum margra svartra
fyrir að rísa upp gegn
hvíta glæpalýðnum.