Alþýðublaðið - 16.12.1997, Side 3

Alþýðublaðið - 16.12.1997, Side 3
Desember 1997 AIÞYÐUB LAÐ IÐ 3 Bjartsýni og kraftur Nú er komin liðlega ársreynsla af því samstarfi sem hleypt var af stokkunum með sameiningu þingflokka Alþýðuflokks og Þjóðvaka í einn þingflokk, þingflokk jafnaðarmanna. A þessu ári hefur umræðan um sameiginlegt framboð jafnaðar- manna fengið mikinn hljómgrunn og þingflokkurinn hefur gegnt veigamiklu hlutverki í þeirri þróun. Alþýðublaðið átti stutt spjall við Rannveigu Guðmundsdóttur um samstarfið í þingflokknum, áhersl- ur hans og framtíðarsýn. Hvernig hefur samstarfið verið í þingflokki jafnaðarmanna? Ég er mjög ánægð með þingflokkinn. Það ríkir einhugur í okkar röðum, samstarfið er gott og umræða einlæg. Það var rétt ákvörðun að sameinast í einum þingflokki og þeim forystumönn- um til sóma sem hlut áttu að máli. Þama var lagt upp með nýja framtíðarsýn sem að mínu mati á eftir að gjörbreyta landslagi ísl- enskra stjómmála. Sameiningin leiddi til þess að þingflokkurinn fékk aukin áhrif, hann varð forystuafl í stjómarand- stöðu og sú forysta birtist bæði í nefndarstarfi og umræðu á Alþingi. Á þessu hausti höfum við reyndar lagt áherslu á aukna samvinnu stjómarandstöðu og sú samvinna gerir það að verkum að stjómarandstöðuflokkamir leitast fremur við að vera með sameigin- legan málflutning og samhljóm í sinni afstöðu en að sérgreina sig á flokkslegum línum. Hver hafa helstu málin ykkar verið í haust? Þingflokkurinn hefur flutt veigamikil og stefnumarkandi mál saman auk þess sem þingmenn hafa flutt mjög mörg þingmann- amál og fengið til liðs við sig meðflutnings- menn frá hinum stjómarandstöðu- flokkunum. Við höfum þannig flutt mun fleiri mál þvert á flokksböndin á þessu hausti en í fyrra. Af þeim málum sem við í þingflokknum höfum flutt saman ber hæst fmmvarp okkar um veiðileyfa- gjald en ásamt því höfum við flutt tillögur um allan fisk á fiskmarkað, takmörkun á framsali kvóta og fleira er varðar sameigin- lega auðlind landsmanna. Önnur þingmál okkar er varða sameigin- lega auðlind snúa að hálendinu, virkjun fjallvatna, auðlindir í jörðu og almannahag. Auk þessa höfum við flutt mörg mál sem varða hag fjölskyldnanna auk þess sem við höfum leitað upplýsinga með skýrslubeiðnum til að móta frekar stefnu okkar í málefnum fjölskyld- unnar. Þá vil ég nefna fmmvarp þar sem lögð verður aukin ábyrgð á bankana við útlán og bannað verður að gera fjámám í eignum ábyrgðarmanns vegna kröfu sem rakin verður til ábyrgðar. Mál af svipuðum toga er fmmvarp um greiðsluaðlögun sem miðar að auknum stuðningi við fjölskyldur sem komnar em í fjárhagsþrot og ég nefni stefnumörkun á málefnum aldraðra og fjölmörg mál sem snúa að félagslegum réttindum eða aðgerðum í málefnum bama. Ef ég á að lýsa þingflokknum myndi ég segja að í honum ríki bjartsýni og kraftur. Nú var hörð umræða á dögunum um stjórnsýslu á hálendinu. Já við leggjumst gegn hugmynd- um félagsmálaráðherra um að framlengja sveitarfélögin sem liggja að hálend- inu upp til jökla. Það er fráleitt að deila hálendinu upp á milli sveitarfélaganna með þessum hætti, hinsvegar kemur fljótlega til umræðu á Alþingi fmm- varp forsætis- ráðherra um þjóðlendur og það fjallar um eignarétt þar sem gerð em glögg skil á milli eignarréttar ein- staklinga og almannahagsmuna. Það fmmvarp er í anda okkar jaf- naðarmanna en fyrir 30 ámm lagði Bragi Sigurjónsson, þingmaður Alþýðuflokksins, fram frumvarp um þetta efni. Frá þeim tíma hefur "landið þjóðareign" verið með helstu baráttumálum jafnaðarman- na og birst í þingmálum og málflut- ningi. Ég vek athygli á því hlutver- ki sem Alþýðuflokkurinn hefur haft í íslenskri pólitík að vera oft fyrstur með mikilvægar hugmyndir og leita stuðnings við þær ámm og áratugum saman, þó við jafnaðar- menn uppskerum ekki alltaf þegar árangur næst. Nú verða þáttaskil í þingflokknum þegar Jón Baldvin hverfur til trúnaðarstaifa erlendis. Já sæti Jóns Baldvins verður vandfyllt og það verður mikill sjónarsviptir að honum úr íslenskri pólitík. Én þáttaskil skapa oftast nýja stöðu og það sem einkennt hefur þingflokk jafnaðarmanna er hátt hlutfall kvenna. Nú eflumst við konur enn því á nýju ári verðum við 5 af 11 þingmönnum þingflokksins - þetta er glæsileg staða. Það em margir öflugir þátt- takendur í stjómmálum en það em ekki inargir sem skapa stjómmál eins og Jón Baldvin hefur gert og ég spái að eftirmæli um hann verði glæstari en umsagnimar sem hann fékk meðan hann var á vettvangi. Slík em örlög atkvæðamikilla stjómmálaforingja. Jón hefur valið að víkja nú. Hann hefur verið ötull brautryðjandi í sameiningarmálum og ég met það svo að með brott- hvarfi sínu hafi hann viljað skapa svigrúm fyrir nýtt fólk til að skapa og fylgja eftir stjómmálum morgundagsins. Sighvatur hefur nú tekið við boðkeflinu, hann hefur verið afdráttarlaus í baráttunni fyrir sameiginlegu framboði. Sú afstaða hefur haft mikið að segja fyrir hið góða samstarf í þingflokknum. Og á vettvangi sameiningar er mikið að gerast. Unt leið og við í þingflokki jafn- aðarmanna þökkum Jóni farsælt samstarf, óskum við þeim hjónum ánægjulegrar dvalar í nýjum heimkynnum og megi gæfan fylgja þeim í nýjum störfum sem þau hafa kosið að hverfa til. Sameiningin leiddi til þess að þing- flokkurinn fékk aukin áhrif, hann varð forystuafl í stjórnarandstöðu og sú forysta birtist bæði í nefndarstarfi og umræðu á Alþingi. Barátta Reykjavikurlistans gegn atvinnuleysi skilar árangri Atvinnuleysi hefur ekki verið minna í Reykjavík á þessum árstíma síðan 1992. Á árunum 1991 - 1993 jókst atvinnuleysi um 400%. D-listinn hafði það eina úrræði í atvin- numálum að setja á fót átaksverkefni. Átaksverkefni sem fólk vann við í nokkra mánuði og var svo jafn atvinnulaust eftir sem áður. Seinasta árið eyddi hann 500.000.000,- í þessi verkefni, sem engu skiluðu. Eftir kosningasigurinn 1994 var ljóst að breyta þurfti áherslum borgarinnar í atvinnuuppbyggingu og aðstoð við atvinnulausa. Starf atvinnumálanefndar var eflt og gert markvissara - styrkir til atvinnu-uppbyggingar voru aug- lýstir. Stofnun sérstakrar Atvinnu og ferðamálastofu var undirbúin og tók hún til starfa í ágúst 1995. Byrjað hafði verið á ýmsum verkefnum hennar mun fyrr eða á árinu 1994. Verkefnum var skipt milli þess- arar nýju Atvinnu- og ferða- málastofn og Aflvaka hf. Atvinnulausum snarfækkaði í Reykjavík Fleiri nefndir á vegum borgarinnar vinna og hafa unnið að atvinnu- uppbyggingu með góðum árangri. T.d. beittu Veitustofnanimar sér fyrir byggingu raforkuvers á Nesjavöllum sem kom á stað átaki í stóriðju. Bæði ísal og Jámblendiverksmiðjan tóku við sér þegar ljóst var að nýir aðilar komu inn á orkumarkaðinn, þ.e. Norðurál í Hvalfirði. Af verkefnum stofunnar má nefna sem dæmi. Viðskiptaráðgjöf við nývirkja verkmiðstöð í Reykjavík (í Þingholtsstræti). Job-Club verkefnið sem hjálpar atvinnu- lausum út í vinnumarkað á ný. Brautargengi, nám fyrir konur, sem byrja í eigin rekstri. Gangskör, nám og starf, ætlað atvinnulausum. Nefna má einnig ýmis sam- starfsverkefni við ÍTR. Styrkir Atvinnumálanefndar skiluðu sér. Dæmi um slíkt er styrkur til prófunar harðkoma- dekkja, sem em að verða vinsæl í vetur og einnig má nefna framlag til stofnunar undirbúningsfélags til byggingar sérstakrar Vetnisperoxið verksmiðju sem getur risið í Gufunesi og nýtt hluta aðstöðu Áburðarverksmiðjunnar (vetnisperoxið er vistvænt bleikiefni sem notað er í staðinn fyrir klór). Fólk getur haft ýmsar skoðanir á stóriðju - en ég tel að þessi stóriðjuáform hafi þurft að verða að veruleika núna - þó full ástæða sé til að fara varlega í framtíðinni. Ennþá er atvinnuleysi í Reykjavík en það er stefnt markvisst að því að það minnki enn á næstu misserum. 1 fjárhagsáætlun borgarinnar er ætlað sérstökum fjármunum til að hjálpa atvinnulausum á vinnu- markaðinn á ný. Stöðugt atvinnulíf sem getur boðið góð lífskjör er nauðsyn til að hér geti þróast það mannlíf sem við viljurn hafa hér á landi og fólk þurfi að leita mannsæmandi lífs- kjara í útlöndum. Þannig getum við búið ungu fólki bjarta framtíð við nám og störf á Islandi. Pétur Jónsson.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.