Alþýðublaðið - 10.03.1995, Page 2
I
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
HELGIN 10.-13. MARS 1995
1
i
MMDUBIMD
20886. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 625566
Útgefandi Alprent
Ritstjórar Hrafn Jökulsson
SigurðurTómas Björgvinsson
Fréttastjóri Stefán Hrafn Hagalín
Umbrot Gagarín hf.
Prentun Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 625566
Fax 629244
Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Rándýr ráðherra
Alþýðublaðið vitnaði í gær í norska Fiskeribladet þarsem
sagt er að Smuguveiðar íslendinga hætti eftir alþingiskosning-
amar 8. apríl. Norska blaðið segir stjómvöld í Noregi binda
miklar vonir við að Alþýðuflokkurinn og Jón Baldvin Hanni-
balsson bíði ósigur í kosningunum - en það telja Norðmenn
ávísun á sigur í deilunum við fslendinga um veiðar í Smugunni
og Barentshafi. Orðrétt segir norska blaðið: „Það lítur út fyrir
að utanríkisráðherra íslands, Jón Baldvin Hannibalsson, sé á
leið út úr íslenskum stjómmálum eftir kosningamar 8. apríl.
Það getur þýtt að fallið verði frá hinni herskáu stefnu íslands
varðandi Barentshaf sem hefur verið á línu Jóns Baldvins
Hannibalssonar og gengur gegn vilja bæði Davíðs Oddssonar
forsætisráðherra og Þorsteins Pálssonar sjávarútvegsráðherra.“
Það er ekki skrýtið þótt norsk stjómvöld telji það þjóna hags-
munum sínum að skipt verði um utanríkisráðherra á íslandi.
Jón Baldvin hefur haldið fram málstað íslands af mikilli einurð
gagnvart Norðmönnum. Hann studdi frá öndverðu fmmkvæði
þeirra útgerðarmanna sem fyrstir sóttu í Smuguna og norður-
höf.
Öðm máli gegnir um Þorstein Pálsson. Jón Baldvin Hanni-
balsson skýrði frá því í Alþýðublaðinu í gær, að það væri „op-
inbert leyndarmál“ að Þorsteinn hefði ætlað að banna Smugu-
veiðamar með reglugerð. Með ákveðnum viðbrögðum for-
manna stjórnarflokkanna var komið í veg fyrir undanlátssemi
Þorsteins Pálssonar. Þetta staðfestir Jóhann A. Jónsson fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystistöðvar Þórshafnar, sem var brautryðj-
andi úthafsveiðanna, í samtali við Alþýðublaðið í dag. Jóhann
segir: „Það fór allt upp í.loft í sjávarútvegsráðuneytinu þegar
það spurðist að við ætluðum til veiða í Barentshafi. Ráðuneyt-
ið ákvað að setja reglugerð sem bannaði okkur þessar veiðar.
Við fómm með málið í Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráð-
herra og Davíð Oddsson forsætisráðherra með þeim árangri að
þeir óskuðu eftir frestun á reglugerðinni. Við fómm þá strax á
stað með skipin norður í höf og eftir það gat ráðuneytið ekki
stoppað okkur.“
Linkind Þorsteins Pálssonar hefði getað orðið íslendingum
dýr. Smuguveiðamar, sem hann ætlaði að banna, hafa nú skilað
tæpum þremur milljörðum í þjóðarbúið. Það jafngildir 55 þús-
und krónum á hverja fjögurra manna fjölskyldu í landinu. Hafa
Islendingar efni á sjávarútvegsráðherranum Þorsteini Pálssyni?
Skoðanir, áhrif
og ungt fólk
Stjómmálafræðinemar við Háskóla íslands hafa efnt til sér-
staks átaks til að hvetja ungt fólk til að hafa skoðanir. Af þessu
tilefni hafa þeir meðal annars gefíð út afar veglegt og fróðlegt
tímarit, sem að mestu leyti snýst um alþingiskosningamar og
stefnu stjómmálaflokkanna.
Um nokkurt skeið hefur ekki verið í tísku meðal ungs fólks að
hafa skoðanir. Pólitík hefur þannig lítt eða ekki verið til um-
ræðu, og ungt fólk hefur einatt vikið sér undan því að taka af-
stöðu til þeirra mála sem hæst ber hveiju sinni. Ymis teikn em
á lofti um að þetta sé að breytast, og er ástæða til að þakka sér-
staklega fyrir framtak stjómmálafræðinema. Ungt fólk á að
taka þátt í því að móta samfélagið. Það á ekki að vera í auka-
hlutverki.
Það er sérstök ástæða til að hvetja ungt fólk til að kynna sér til
hlítar stefnu stjómmálaflokkanna sem bjóða fram í alþingis-
kosningunum. Og líka ættu menn að kanna vandlega hvaða
flokkar tefla fram ungu fólki ofarlega á framboðslistum. Það er
eini marktæki mælikvarðinn á það, hvort ungt fólk hefur áhrif
innan flokkanna.
Ungt fólk á nefnilega ekki bara að hafa skoðanir - ungt fólk á
líka að hafa áhrif.
S k o ð a n
í tilefni 100 ára afmælis kvikmyndarinnar langar mig til að segja:
Kieslowski er
Kvikmyndin á afmæli um þessar
mundir og því fagna Frakkar eins og
þeir geta. 100 ár em liðin ffá því að
Lumiére-bræður (þvílíkt nafn fyrir
fyrstu kvikmyndagerðarmenn sög-
unnar) tóku fýrstu hreyfimyndimar.
Og þó hundrað ár séu liðin er París
enn höfuðborg kvikmyndarinnar
(þrátt fyrir allt Hollywood). Hér er
mesta bíóúrval heimsins, hér er hægt
að sjá allt frá Demi Moore og yfir í
Pasolini, allan ársins hring.
Stuttmyndir Ljós-bræðra em nú
sýndar á undan auglýsingum í flest-
um bíóum borgarinnar og em ffóðleg
sjón - þrátt fyrir nýrri tfma meðhöndl-
un með klós-öppum og klippingum
eins og tilgerðarlegum Frökkum ein-
um er lagið - og minna mann á hve
margar ræmur hafa rúllað í gegnum
sýningarvélar frá því að ljósmyndin
fór að hreyfast og þar til að Scwarz-
enegger varð óléttur.
Lumiére-myndimar minna mann
einnig á þá staðreynd hve saga kvik-
myndarinnar er í raun stutt. Hómer
var uppi fyrir rúmum 2000 ámm.
Shakespeare kom 1600 ámm síðarog
nú loks em Islend-
ingar famir að
yrkja hækur. Þetta
kemur allt með
hægðinni. I kvik-
myndunumerFell-
ini þegar kominn
og nú bíðum við
róleg í 1500 ár eftir
Shakespeare film-
unnar. A meðan
dundum við okkur
við að horfa á forgengilegt og óskars-
verðlaunað drasl sem eingöngu hefur
þann tilgang að drepa tímann fyrir
manni og afþreyta mann, þó maður sé
nú orðinn nokkuð þreyttur á allri
þessari afþreytingu. Forest Pmmp.
Það er hátíð að maður sjá i góða
kvikmynd. Þær em annað hvort: Evr-
ópskar eða Amerískar. Ameríska
formúlan er löngu orðin svo fúllkom-
in að hún er nú orðin forskrúfuð; um
leið em áhorfendur orðnir svo mennt-
aðir, vita orðið aflt um handritagerð,
uppbyggingu og plott, að eina ununin
sem eftir er, er sú að dást að góðu
handverki. Ameríska kvikmyndin er
komin á sama stig og rímumar fs-
lensku vom þegar Jónas kom og drap
þær. I Evrópu em menn svo að gera
myndir sem eiga að vera góðar af því
að þœr eru ekki amerískar. En and-
formúlan er orðin jafn klén og form-
úlan sjálf.
I gærkvöldi v;tr fmmsýnd í París
nýjasta mynd hins költ- kunna Jean-
Lucs Godards. Hún heitir
,JL.G/JL.G“ en er (gat nú verið) þó
ekki sjálfsmynd, en fjallar þó (að vísu)
að einhveiju leyti um viðbrögð við
síðustu mynd leikstjórans „Hélas pur
moi“ „...mynd sem engin sá“ segir
JL.G. sjálfur. Ég segi það ekki, það
getur oft verið gaman að intellektúal
sukki, en samt...
Vonin kemur annars staðar frá: Ein
besta myndin og allavega sú frumleg-
asta sem nú er sýnd í París er nýjasta
afurð íranska leikstjórans Kirostamis
„Au travers des oliviers" sem maður
gæti þýtt „Undir ólífutijám". Þetta er
skemmtilega ódýr og einföld mynd
sem tekin er „útá landi“ í íran (það eitt
nægir nú til að heilla mann í bíó) og
blandar saman raunvemleika og kvik-
mynd á einkar magnaðan hátt. Kirost-
ami byijaði sem myndlistarmaður en
heillaðist af Fellini útí bíógerð og
neitar öllum formúlum; gengur sjálf-
ur út af myndum sem halda manni „í
gíslingu" með spennufaktomm, og
dásamar fremur þær myndir sem
hann sofnar á: Þær virði rétt einstak-
lingsins (til svefns) og séu þannig
,Jiúmanískar“. Eftir að hafa lesið
þetta í viðtali við ieikstjórann losnaði
maður að sönnu við samviskubit yfir
því að hafa sofnað í fimm mínútur
„Undir ólífutrjám".
Kirostami er af mörgum (Kurosa-
wa) talinn hinn nýi Ray og kannski
kemur kvikmyndaljósið frá „nýjum
og ferskum" íieimsálfúm. Á heima-
slóðum virðist amerísk-evrópskur
bræðingur skapa bestu verkin. Maður
fær „best of both sides“.
Andrei Konchalovsky var á sínum
tíma efnilegur
kvikmyndari í Sov-
ét en plataðist svo
til Hollywood þar
sem hann var í tutt-
ugu ár án þess að
gera svo mikið
meira en tvær
myndir sem maður
man eftir; Marias
Lovers með Nas-
tössju Kinski. Nú
er hann kominn heim í sinn heiðardal
og búinn að gera mynd um núverandi
ástand í Rússlandi sem er hreint út
sagt algjört meistaraverk: „Riaba ma
poute“ heitir hún á frönsku og mætti
þýða sem „Hænan mín Hrafnhildur"
eðajafnvel „Litla gula hænan“.
Þetta er „tour de force“ um lítið
gaddffeðið þorp utan við Moskvu og
það bijálæði og þann tiylling sem ný-
ir tímar valda í iífi þess sem haldist
hefur fábreytt og óbreytt í fimm þús-
und ár. Söguþráðurinn er snilldarlega
spunninn, hraður og þéttur, fáránlegur
og farsakenndur og þó raunsær og
nakinn, og svó víðfeðmur að hann
iúmar allt ffá kapítalísku dæmisög-
unni um þá litlu gulu yfír á þjóðsög-
una um gulleggið; allt frá Marx til
Gorbasjoffs; allt frá Miðöldum til
Mafíunnar; og allt skreytt með heima-
bmggi og Absolut-vodka, samóvör-
um og örbylgjuofnum. (Þetta er mynd
sem Arni Bergmann þarf að sjá sem
fyrst og á örugglega eftir að ffla vel og
í raun væri gaman að horfa á hana
með honum og láta hann svo segja sér
nokkrar skemmtilegar sovétsögur í
umræðunum á eftir.) f stuttu máli:
Besta kvikmynd sem gerð hefur verið
síðan ... já, besta kvikmynd sem gerð
hefur verið síðan... já, síðan hvað?
Konchalovsky er kominn heim úr
útlegð og hefur greinilega lært allt
sem gott má læra í Hollywood og nýt-
ir það allt á langþráðum heimavelli
þar sem menn eru jú alltaf sterkastir
fyrir.
Vikupiltar |
Hallgrímur
Helgason
skrifar
D a 9 a t a 1 1 10. m a r s
Atburðir dagsins
1910 Leikstjórinn D.W. Griffith tek-
ur upp mynd í Hollywood, óþekktu
útkjálkahéraði í Kalifomíu. 1934
Dregið í fyrsta skipti í Happdrætti
Háskólans. 10 þúsund króna vinn-
ingur kom á miða númer 15857.
1988 Karl Bretaprins sleppur naum-
lega undan snjóflóði í Sviss. 1988
Andy Gibb, einn af meðlimum
hljómsveitarinnar Bee Gees deyr úr
ofneyslu eiturlyfja, þrítugur að aldri.
1990 Fréttaritari breska blaðsins
Observer dæmdur til dauða í írak
fyrir njósnir. 1991 Davíð Oddsson
veltir Þorsteini Pálssyni úr for-
mannssessi á landsfundi Sjálfstæðis-
flokksins. Davíð fékk 733 atkvæði
en Þorsteinn 651.
Afmælisböm dagsins
Tamara Karsavina rússnesk ball-
ettdansmær, 1885. Arthur Hon-
egger franskur tónsmiður, 1892.
Játvarður Bretaprins, 1964.
Annálsbrot dagsins
2. Febr. varð úti Jón Þórisson á
Grund, fáráðlingur, gekk út í hríð
mót allri venju berhentur og ber á
bijósti, fannst hjá Miðgerði dauður,
og höfðu hrafnar þá kroppað úr hon-
um augað annað.
Hrafnagilsannáll, 1745.
Málsháttur dagsins
Launvígs skal hefna sá er sverð úr
sári dregur.
Málkennd dagsins
Viðkvæmni hans fyrir máli og stíl
minnti helst á prinsessuna á bauninni
í ævintýri Andersens. Hann kenndi
strax til, hvað lítið sem ekki var með
felldu. Svipurinn breyttist snögg-
lega, varð vandræðalegur, áhyggju-
fullur eða háðskur, þegar hann kom
að óheppilegu orði, stirðlegu málfari
eða leiðinlegu.
Kristján Albertsson um
Jón Sigurðsson frá Kaldaðarnesi.
væminn kjói
„Kieslowski er væminn kjói...l\lú þegar hann er búinn með boðorðin
og franska fánann, Þá getur hann kannski tekið allar stjörnurnar í Evr-
ópusambandsfánanum næst."
Öfúga leið fer Robert Altman; Am-
eríkani sem afneitar Ameríku og gerir
nú mynd í Evrópu um Evrópu. I París
um París: „Pret- a-porter“ („Beint af
herðatrjánum'j. Islendingar eru nú að
horfa á „Short Cuts“ eftir sama mann,
og Egill Helgason er réttilega búinn
að gefa átta stjömur. „Pret-a-porter“
er svipuð í uppbyggingu nema hvað
hér gengur meistarinn lengra: 500
persónur og jafnmörg plott og allt
gengur upp. Irónísk mynd um tísku-
bransann sem Parísingar eiga skiljan-
lega erfitt með að kyngja. Der Alte
Mann er - eins og góðir málarar á átt-
ræðisaldri - kominn á æðra plan og
hefúr náð Valasquez- stigi í léttleika;
hann veit að það þarf ekki alveg nýja
tækni til að gera bíómyndir. í hveijum
ramma eru sjö sögur í gangi. Myndin
umhverfir mann eins og kokteilboð
sem maður getur farið í aftur og aftur.
Kvikmyndagagnrýnendur kvik-
myndaborgarinnar hafa hins vegar
flaskað jafn illa á mynd Altmans og
meistaraverki Konchalovskys. Enda
eru þeir ekki, fremur en Islendingar,
búnir að jafna sig á Kieslowski-æð-
inu.
Fólk hefur alltaf þörf fyrir einhvem
til að dýrka. Ég man þá tíð þegar ekki
var talað um aðra leikstjóra en Fass-
binder. Enginn var maður með mönn-
um nema hann gengi í síðrassa galla-
buxum, hermannaskóm og leður-
jakka, reykti hass og sæti d gólfmu í
Fjalakettinum eða J-sal í Regnbogan-
um og fflaði Fassbinder í ræmur. Síð-
an kom eitthvað tómarúm í æðis-sál-
inni sem þó var sæmilega brúað af
hinum ofmetna Tarkowski og nú hef-
ur Kieslowski leyst þetta allt á farsæl-
an hátt. Nú svalar hann þörf hins eilífa
menntskælings fyrir erfitt og öðmvísi
goð.
Kieslowski kom eins og spámaður
frá Austur-Evrópu, djúpur og spakvit-
ur, yfir alla velmegun hafinn, færandi
spámannsbíðandi Vesturlandabúum
- sem fyrirlíta í sífellu sína eigin
menningu sem yfirborðslegt neyslu-
jukk - lágværa og hógværa, hæga og
djúpa list sem var „urnffam allt mann-
leg“. Hin leyndu vonbrigði yfir falli
kommúnismans, tíu ára gamalt snobb
fyrir Solidamos og fyrirlitningin á
eigin þjóðfélögum: Allt þetta hjálpaði
til að taka Kieslowski opnum örmum.
Kommúnisminn hmndi kannski en
hann gaf okkur þó Kieslowski sem
aldrei hefði getað sprottið uppúr kap-
ítalísku þjóðfélagi.
Þetta var alvöru maður. Hann gerði
„Boðorðin ú'u“. Hvorki meira né
minna. Og síðan alla litina í franska
fánanum. „Blár“ var lítið fallegt ljóð
með efni sem nægt hefði í snotra
stuttmynd. Ég sá ekki „Hvítarí' (af
því að það er ekki litur). „Rauður" var
síðastur og stjömum hlaðinn af öllum
spekúlöntum kvikmyndapressunnar
en var, þegar maður sá hana loks á
dögunum, í raun óttalega litlaus mynd
um lítið annað en rauðar peysur, úlp-
ur, veggi og umferðarljós. Víst var allt
voða vel og vandlega uppbyggt og
allt rímaði þetta svona óskaplega fal-
lega en einmitt það var veikleiki
myndarinnar. Þetta var rím rímsins
vegna. Óskhyggja leikstjórans bar
söguna ofurliði. Einhvem veginn
langaði hann bara til að allar persónur
myndarinnar tækju feiju yfir Erma-
sund. Og þá passaði alveg mjög vel
að láta hana farast en láta síðan „sitt
fólk“ bjargast. Vonda fólkið (sem hélt
framhjá og svona) það fórst hins veg-
ar, fékk makleg málagjöld. Hér er
ekki bara um að ræða mjög ódýra og í
raun (gagnvart okkur áhorfendunt)
dónalega móralíseríngu heldur einnig
hreina væmni fólgna í dásamlega
fallegri kvikmyndatöku þar sem allt
rennur inn og út í blóð- (að sjálf-
sögðu)-rauðum fókus. Og allt er þetta
með yndislega austur-evrópskri hægð
og þögn; eftir að maður hefur eytt 15
mínútum í inú'm samræðum með að-
alpersónum við borðstofuborðið fer
maður, jú... jú... ég neita því ekki...,
að trúa á „hið góða í manninurrí*. Þá
er líka farið að rökkva og þá kemur
einn af dramaúskum hápunktum
myndarinnar; sá gamh ætlar að
kveikja ljósið en peran springur.
Hann nær í nýja, setur hana í og mik-
ið er það falleg stund þegar nýja per-
an ljómar upp andlitið á hinni ofur-
sjarmerandi Irene Jakob. Kieslowski
er væminn kjói.
Nú þegar hann er búinn með boð-
orðin og franska fánann, Þá getur
hann kannski tekið allar stjömumar í
Evrópusambandsfánanum næst.
Lokaorð dagsins
Hvað á nú þetta að þýða?
Hinstu orð Frederick Douglas
(1817-95), baráttumanns fyrir
réttindum svertingja.
Orð dagsins
Stefhi að þér darra dríf,
duga er bezt og þegja.
Annað hvort er þér ætlað líf
eða þá að deyja.
Fornólfur.
Skák dagsins
Davíð Bronstein er einn litríkasti
skákmaður aldarinnar, nýsestur í
helgan stein á áttræðisaldri eftir
glæstan feril. Hann tefldi heims-
meistaraeinvígi við Mikael
Botvinnik fyrir ríflega 40 ámm en
tapaði á jöínu. í skák dagsins lýtur
hann hinsvegar í lægra haldi fyrir
herskáum Jakowitsch sem hefur
hvítt og á leik. Hvað gerir hvítur?
1. Rxe6! fxe6 2. Bxe6+ Kf8? Enda-
lokin em skammt undan en Brons-
tein flýtir þeim með þessum leik. 3.
Dxh6 Bronstein gafst upp.
Fax-mynd: HH