Alþýðublaðið - 22.09.1998, Síða 4
4- ÞRIDJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1998
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ost®
* ; ^ó\a«OW
i'Am
Ostur = gott nesti
Ostur er góðurjyrir einbeitinguna, hann hjálpar til við að halda
jafnri og óskertri orku yfir daginn og er eitt það besta sem þú getur
fengið þér milli mála.
Margir tannlæknar mæla líka með osti í
lok máltíðar til að vinna gegn sýrum sem
skemma tennurnar.
Úr sumrinu fyrir sunnan norður í svalan blæinn. Þessar þingkonur sóttu
Norðurland heim og kunnu vel að meta samveruna við samherja úr öðrum
landshornum.
Þing Alþýðuflokkskvenna
Fagna sameiningar-
áformum - vilja
styrkja hlut kvenna
Áfongum í sameiningarferlinu
var fagnað á þingi sambands al-
þýðuflokkskvenna sem haldið var
á Akureyri 12-13. september síð-
Hlustað á
konur
„Hlustað á konur“ var yfir-
skriftin á fundaherferð nokkurra
forystukvenna úr hreyfingu
jafnaðarmanna; Alþýðuflokki,
Alþýðubandalagi, Þjóðvaka og
Kvennalista síðastliðið vor.
Haldnir voru einir 15 fundir og
hundruð kvenna komu að þessu
verkefni með margvíslegum
hætti.
Hugmyndin var sú að þing-
konurnar héldu fund með
heimakonum til að heyra það
sem á þeim brennur. Allt var ná-
kvæmlega skráð og er áformað
að vinna úr því sem fram kom á
fundunum á sérstakri ráðstefnu
sem ætlunin er að halda innan
skamms, að sögn skipuleggj-
enda. Með þessu gefst íækifæri
til að koma sjónarmiðum
kvenna að við stefnumótun
stjórnmálaflokkanna.
astliðinn. Þingið var haldið í
Menntasmiðju kvenna þar nyrðra.
Fyrri daginn voru fluttir þrír fyrir-
lestrar: Karólína Stefánsdóttir sagði
frá Nýja baminu - verkefni sem hún
hefur unnið að í samvinnu við
Heilsugæslustöðina á Akureyri, Ingi
Rúnar Eðvarðsson frá Háskólanum
nyrðra um fjamám og í þriðja lagi
flutti Þórgnýr Dýrfjörð erindi um
reynslusveitarfélagsverkefni Akur-
eyrarbæjar.
Mikil umræða spannst um þessi
erindi, en seinni daginn voru hefð-
bundin aðalfundarstörf. Bryndís
Kristjánsdóttir var endurkjörin sem
formaður sambandsins, en aðrar í
framkvæmdaráð Sambandsins voru
kosnar: Guðfinna Emma Sveinsdótt-
ir, Katrín Theódórsdóttir, Kolbrún
Oddbergsdóttir og Áslaug Jónsdóttir.
I sambandsstjóm vom svo kosnar:
Aðalheiður Alfreðsdóttir, Kristín
Jónsdóttir, Ásta Ragnheiður Jóhann-
esdóttir, Stefanía Aradóttir og Þóra
Guðmundsdóttir. Fleiri konur verða
tilnefndar síðar í sambandsstjóm.
Á þingi Alþýðuflokkskvenna var
fagnað sameiningaráformum og
áréttað að nauðsynlegt væri að
tryggja hlut kvenna sem allra best; í
málefnaskrá, við ákvarðanatöku og
við skipan framboðslista á samein-
ingarlistum um land allt.
Ungir jafnaðarmenn
Auk þess er ostur einn besti kalkgjafi
sém til er en kalk er lífsnauðsynlegt
byggingarefni beina og tanna. Það
hefur mikið að segja alla ævi að
neysla kalks hafi verið nægilegjýrstu
árin. Ostur er ómissandi þáttur
í heilnæmu mutaræði.
Þess vegna er gott að
borða ost í skólanum.
□ Ákjósanlegt sýrustig í munni
Sýrustig munnsins □ Eðlilegt sýrustig í munni
pH
Línuritið sýnir jákvæð áhrif ostneyslu
í lok máltíðar á sýrustig í munni.
ÍSLENSKIR tJJT
OSTAR, -
^3
19$H-1998
www.ostur.is
Styðja Öryrkja-
bandalagið
Koibeinn nýr formaður SUJ
Á sambandsstjórnarfundi SUJ
var lýst sérstaklega yfir stuðningi
við réttindabaráttu Öryrkja-
bandalags íslands og þar var ný
forysta kosin fyrir SUJ.
Sambandsstjórnarfundur Sam-
bands ungra jafnaðarmanna var hald-
inn sunnudaginn 13. september.
Fundarstjóri var Hrafnkell Tjörvi
Stefánsson og fundarritari Brynjólfur
Þ. Guðmundsson, formaður FUJR.
Á fundinum var kosið til embætta.
Formaður var kjörinn Kolbeinn
Hólmar Stefánsson, bókmennta-
fræðinemi; 1. varaformaður Hrafn-
kell Tjörvi Stefánsson, stjómmála-
fræðinemi. Alþjóðafulltrúi: Gestur
Páll Reynisson. Ritari: Magnea Mar-
inósdóttir. Gjaldkeri: Pétur Óli Jóns-
son. Meðstjómendur: Einar Einars-
son og Guðrún Halla Sveinsdóttir.
Forseti málstofu um atvinnu og
efnahagsmál: Jón Ragnars. Forseti
málstofu um menningarmál: Jens
Ivar Albertsson, Forseti málstofu um
menntamál: Sigurður Hólm Gunn-
arsson. Forseti málstofu um um-
hverfismál: Aðalheiður Steindórs-
dóttir. Forseti málstofu um utanríkis-
mál: Kristbjörn Bjömsson.
Eftirfarandi ályktun var samþykkt:
Um leið og Samband ungra jafii-
aðarmanna lýsir yfir stuðningi við
Öryrkjabandalag Islands í réttlátri
baráttu þess fyrir bœttum lífsskilyrð-
um, fordcemum við þá meðferð sem
(slenskir öryrkjar þurfa að þola.
Þœr bœtur sem örorkubótaþegar
fá, nœgja ekki til framfærslu. Það,
að uppliœð þessara bóta sé ákveðin
af ríkisvaldinu og fylgi ekki þróun
lœgstu launa skapar það ástand sem
nú er, að öryrkjar sitja eftir undir
niðurskurðarhníf tryggingaráðu-
neytisins og geta hvergi sótt rétt sinn.
Sú staðreynd að tekjutrygging ör-
yrkja skerðist sem nenutr þeirri upp-
hæð tekna maka sem fer umfram
40.000 krónur á mánuði, veldur því
að öryrkjar eiga þess vart kost að
hefja sambúð, nema þá að verða
fjárhagslega Itáðir maka.
Þœr aðstœður sem (slenskir ör-
yrkjar þurfa að búa við eru ekki
bjóðandi og til þess fallnar að
hneppa þetta fólk í ánauð fátœktar,
auk þess sem þetta er slcýlaust brot á
bœði landslögum og mannréttinda-
sáttmálum.