Vísir - 07.01.1976, Síða 10
■■■■
GerÖu ekki tilraun
til aöslást viö mig _ £g <
oi STOK fvrir bie!
Viö þurfum"^
ekki aö slást út afGalt
''iökeyptum hann hingaö
til aö íeika knattspyrnu.
Miðvikudagur 7. janúar 1976. VISIB
VISIR Miövikudagur 7. janúar 1976.
Umsjón: Kjartan L. Pálsson og Björn Blöndal.
Tveir frœgir
ungverjor
flýja land!
Tveii- ungverskir iandsliösmenn i
knattspyrnu, þeir Laszlo Harsanyiog
Jozsef íiorvath, liafa sótt um hæli
sem pólitiskir fióttamenn i Sviss, að
sögn talsmans dómsmála-
ráðuneytisins i Sviss i gærkvöidi.
Þeir voru báöir á ferðalagi í Sviss
ásamt eiginkonum sinum og börnum
— höföu fengið leyfi til að fara úr
landi i 30 daga — en sneru sér til lög-
reglunnar I Sviss og báðu um hæli
sem pólitiskir flóttamenn.
llorvath, sem er 27 ára gamall og
Harsanyi, sem er 25 ára gamall,
léku báðir meö ungversku
meisturunum Ujpest Dozsa, og hafa
einnig leikiö i landsliöi Ungverja-
lands. Þar af hcfur Horvath verið
tvisvar fyrirliði iandsliðsins.
Ekki er vitað, hvað vakið fyrir
þeim félögum, cn trúlega stefna þeir
á að komast i eitthvert lið i
Vestur-Evrópu. Ilaft er eftir einum
ungverskum íþróttafréttamanni,
sem spurður var um þá, að hann
tryði þvi ekki að neitt félag i
Vestur-Evrópu byði stórar upphæðir
i þá. ,,,Þeir eru góðir leikmenn en
ekki iheimsklassa”, sagði hann.-klp-
McTear fer
í fótboltann!
Ein helsta von bandarikjamanna i
100 og 200 m spretthlaupum á
Ólympiuleikunum i Kanada i sumar,
llouston McTear, hefur nú gert
samning við bandariskt knatt-
spyrnulið (Rugby) Bakers i Flórida
og mun hann þvi leggja gaddaskóna
á hiiluna i náinni framtið.
Houston McTear kom fram í sviðs-
ljósið i fyrra, þá aðeins 17 ára gam-
all, og jafnaði þá heimsmetið i 100
yarda hlaupi, sem er 9.0 sekúndur.
Þótti McTear eitt mesta sprett-
hlauparaefni sem fram hefur komið
og er hann kallaður „svarta-elding-
in”.
Fjölskylda McTear er mjög fátæk
og h.ann sagði að tilboð Bakers væri
það gott, að hann gæti ekki hafnað
þvi og vonaðist nú til að geta hjálpað
foreldrum sinum og sjö systkinum
upp úr fátæktinni.
Mikiö er um meiðsli i bandariska
fótboltanum og veröur McTear lát-
inn leika þar sem minnst hættan er —
og mun hann lcika stöðu — „vide
ricever”. —
Houston McTear jafnaði heims-
metið í lOOyarda hlaupi á s.l. sumri
og sést hér koma i markið i met-
hlaupinu. Timinn 9.0 sekúndur!
"CSWSJBWWPy-Wf'-T?’” - jrwsv’wn5*1
OLEG BLOCHIN:
„KNATTSPYRNU-
MAÐUR EVRÓPU/#
Hlaut 80 atkvœðum meir en Franz Beckenbauer í atkvœða-
greiðslu franska blaðsins „France Footbair
\n
Viö sögöum frá því fyrir nokkr-
um dögum að hinn frábæri
miðherji Dynamo Kiev og
sovéska landsliösins — Oleg
Blochin — hafi verið kjörinn
„knattspyrnumaður ársins” i
Sovétrikjunum i þriðja sinn i röð.
t vikunni bætti hann enn einni
rós i hnappagatiö, en þá voru
kunngerð úrslit i atkvæðagreiðslu
franska blaðsins „France Foot-
ball”semer eitt stærsta og virt-
asta knattspyrnublað i heimin-
um. Hlaut Blochin langflest stig
af öllum og þar með
„Gullknöttinn”, sem fylgir
sæmdarheitinu „Knattspyrnu-
maður Evrópu 1^75”...
Þeir
hafa
fengið
gull-
knöttinn
Frá þvi að „Gullknötturinn”
var fyrst afhentur árið 1956 hafa
þessir knattspyrnukappar hlotið
hann:
1956: Stanley Matthews, Eng-
landi.
1957: Alfredo dc Stefano, Spáni.
1958: Raymond Kopa, Frakk-
landi.
1959: Alfrcdo de Stefano, Spáni,
1960: Luis Surez, Spáni.
1961: Omar Sivori, ttaiiu.
1962: Josef Masopust, Tékkósl.
1963: Lew Jaschin, Sovétr.
1964: Denis Law, Englandi.
1965: Eusebio, Portúgal.
1966: Bobby Charlton, Englandi.
1967: Florian Albert, Ungverjal.
1968: George Best, Englandi.
1969: Gianni Rivera, ttallu.
1970: Gerd Muller, V-Þýskal.
1971: Johan Cruyff, Hoílandi.
1972: Franz Beckenbauer,
V-Þýskl.
1973: Johan Cruyff, Hollandi.
1974: Johan Cruyff, Hollandi
1975: Oleg Blochin, Sovétr.
— kip —
Það er stór hópur knattspyrnu-
sérfræðinga frá flestum löndum
Evrópu, sem falið er að velja
„Knattspyrnumann Evrópu” ár
hvert fyrir blaðið, en það er talinn
einhver mesti heiður, sem knatt-
spyrnumanni getur fallið i skaut
að hljóta þetta sæmdarheiti.
Það fór ekkert á milli mála,
hvern sérfræðingarnir — sem
flestir eru iþróttafréttamenn að
atvinnu — töldu bestan i Evrópu
að þessu sinni. Oleg Blochin fékk
122 stig, eða 80 stigum meir en
næsti maður, sem var fyrirliði
Bayern Munchen og vestur-þýska
landsliðsins, Franz Beckenbauer,
en hann hlaut 42 stig.
Þriðji maður á listanum var
Johan Cruyff, Hollandi með 27
stig, en siðan komu þeir Vogs,
Vestur-Þýskalandi, 25, Maier,
Vestur-Þýzkalandi, 20, Geels,
Hollandi 18 og Haynckes, Vestur-
Þýskalandi með 17 stig.
Það vakti athygli hvað
þjóðverjar áttu marga menn i
efstu sætunum, og sýnir það hvað
þeir eru hátt skrifaðir á knatt-
spyrnusviðinu, en aðeins einn
þýskur blaðamaður var samt i
hinum útvalda hópi, sem kaus, og
hafði hann Blochin i fyrsta sæti
eins og flestir hinna .
Þetta er í annað sinn, sem
sovétmaður er kjörinn „Knatt-
spyrnumaður ársins” I Evrópu.
Hinn frægi markvörður Sovét-
rikjanna og Dynamo Moskva Lew
Jaschin varð fyrir valinu árið
1963, en hann stóð þá á hátindi
frægðar sinnar.
Oleg Blochin, sem er 23 ára
gamall, lék sinn fyrsta leik með
aðalliði Dynamo Kiev árið 1971.
Árið eftir var hann markhæsti
leikmaðurinn i 1. deildar-
keppninni i Sovétrikjunum og
sama ár var hann kjörinn i fyrsta
sinn „Knattspyrnumaður
ársins” i Sovétrikjunum. Þeim
titli hefur hann haldið siðan og
einnig titlinum „Markakóngur
Sovétrikjanna.”
Árið 1975 er tvimælalaust
stærsta ár i sögu sovéskrar knatt-
spyrnu. Olympiulið þeirra
tryggði sér örugglega farseðlinn
til Montreal með þvi að sigra
Júgóslaviu, Noreg og ísland. og
aðallandsliðiö, sem er raunar
lið Dynamo Kiev — eins og það
leggur sig, komst auðveldlega i 8-
liða úrslitin i Evrópukeppninni.
Þá sigraði Dynamov Kiév i
Evrópukeppni bikarmeistara á
siðasta ári og siðan i hinni
svonefndu „Super Cup” keppni,
þar sem liðiö lék við Evrópu-
meistarana Bayern Múnchen, og
Þu getur unnið 5 solar-
landaferðir á einn miða
hjá Happdrætti Blak-
samb. islands.
Dregið hefur veriö i 1. drætti
og eftirtalin númer komu upp.
7158, 10840, 18030, 16945, 16344.
sigraði bæöi heima og heiman.
Stærstan þátt i þessum sigrum
átti Oleg Blochin — skoraði t.d.
öll mörkin i 2:0 og 1:0 sigri Dyna-
mo Kiev i „Super Cup” og einnig i
öðrum mikilvægum leikjum.
Islenskir knattspyrnuunnendur
fengu að sjá hartn hér i leik Akra-
ness og Dynamo Kiev á gamla
Melavellinum i haust. Þar náöi
vörn skagamanna að halda hon-
um niðri — hann skoraði ekkert
mark i leiknum — en það var ekki
vörn margra félaga sem gat
státaðsig afþviá siðasta ári...
klp-
Oleg Blochin ,,Knattspyrnumaður ársins 1975 í Evrópu
Verðum að nó 6. sœtinu til
að teljast með þeim stóru
Nœsta stórverkefni landsliðsins í handknattleik er B-heimsmeistarakeppnin í Hollandi
verði erfiðar viðureignar i þess-
ari B-heimsmeistarakeppni,—klp
Þótt þátttöku okkar i undan-
keppni Ólympiuleikanna i hand-
knattleik sé enn ekki lokið — eftir
eru siðari leikirnir viö Júgóslaviu
og Luxemborg — getum við vfst
hæglega strikað yfir þann mögu-
ieika, að komast með liðið til
Montreal næsta sumar. Til aö svo
megi verða, verðum við að sigra i
báðum þessum leikjum með
miklum mun, en hætt er við að
ekki verði hlaupið aö þvi — sér-
staklega I Júgóslaviu.
En við eigum samt enn mögu-
leika á að komast inn i hóp þeirra
bestu, en það getum við samt ekki
gert fyrr en á næsta ári. Þá fer
fram svokölluð B-heims-
meistarakeppni i Hollandi, og sex
bestu úr þeirri keppni komast i
sjálfa heimsmeistarakeppnina,
sem fram fer i Danmörku árið
1978.
ísland hefur svo gott sem þegar
tryggt sér sæti I þessari B-heims-
meistarakeppni, sem 16 þjóðir
taka þátt i. Þar verða þær þjóðir
sem hafna i öðru sæti i Evrópu-
riðlunum i undankeppni
Ölympiuleikanna — og nægir okk-
ur að sigra- Luxemborg i siðari
leiknum til að ná þvi sæti. Auk
þess keppa þar þær þjóöir, sem
verða i sex siðustu sætunum á
Ólympiuleikunum i Montreal i
sumar, svo og lið frá Asiu, Afriku
og Amerfku.
Þær þjóðir sem verða i átta
fyrstu sætunum á OL i sumar fara
beint i HM-keppnina i Danmörku
1978, og þurfa þvi ekki aö keppa i
B-keppninni, sem verður i mars á
næsta ári. I HM-keppninni i Dan-
mörku verða 16 þjóðir, og að
henni lokinni verður tekið upp
nýtt fyrirkomulag á heims-
meistarkeppninni.
Er það sama fyrirkomulag og
er nú haft i heimsmeistarakeppn-
inni i ishokkey. Þær þjóðir sem
verða i fyrstu sætunum i keppn-
inni i Danmörku mynda þá svo-
nefndan A-riðil, og keppa þær um
heimsmeistaratitilinn ár hvert úr
þvi. Hinar lenda i B-riðli, en siöan
mynda þjóðirnar sem ekki kom-
ast á HM i Danmörku i C eða D
riðil og verður sérstök keppni háð
um þá röð.
I raun og veru má likja þessu
við deildaskiptingu. A-riðillinn
verður eins konar 1. deild —
sigurvegarinn verður heims-
meistari — en neðstu liðin tvö
fallá i B-riðil, eða 2. deild. Efstu
liðin i B-riðli flytjast upp i A-riðil-
inn og leika þar árið eftir, og
Viðar Simonarson fær vonandi
góðan frið og nægan tíma til að
þjálfa landsliöið fyrir B-heims-
meistarakeppnina i Hollandi.
Ekki veitir af þvi að þetta er
mikilvægt mót fyrir islenskan
handknattleik.
sama verður það i C-riðlinum.
Þetta fyrirkomulag er farið að
nota i mörgum greinum, og hefur
þótt gefast vel — eins og t.d. i is-
hokkey, þar sem þetta fyrir-
komulag hefur verið notað i mörg
ár.
Það má þvi segja að Island hafi
að miklu að stefna i sambandi við
B-keppnina á næsta ári. Eitt af
sex sætunum þar gefur rétt til
þátttöku i HM i Danmörku og um
leið þýðir það sæti I A eða B-
riðlinum þegar þetta nýja fyrir-
komulag verður tekið upp. Ef Is-
land nær ekki i eitt af þessum sex
sætum i B-heimsmeistarakeppn-
inni á næsta ári blasir C-riöillinn
við, og þá getur það tekið langan
tima að komast meðal þeirra
bestu.
Róðurinn verður sjálfsagt
erfiður i B-heimsmeistarakeppn-
inni. Þar má búast við að verði
margar góðar handknattleiks-
þjóðir, og nægir þar að benda á
Noreg, Sviþjóð, Frakkland, Spán,
Búlgariu, Vestur- eða Austur-
Þýskaland og jafnvel Tékkd-
slóvakiu, svo að einhverjar þjóðir
séu nefndar.
Þessar þjóðir berjast allar um
fyrsta sætið i sinum riðlum i
undankeppni ólympiuleikanna,
sem nú stendur yfir, og einnig má
búast við að þær þjóðir, sem ekki
ná i átta fyrstu sætin á OL i sum-
ar, kunni ýmislegt fyrir sér o&
Enska bikarkeppnin:
Tvö stórlið
eru úr leik
Tvö lið úr 1. deild voru óvænt
slegin út i ensku bikarkeppninni i
gærkvöidi af liðum úr lægri deild-
um. Middlesbrough tapaði fyrir
Bury úr 3. deild og Birmingham
fyrir neðsta liðinu i 2. deild,
Portsmouth. Þá komst Tooting &
Mitcham áfram i keppninni, vann
góðan sigur gegn 3. deildarliði
Swindon. Tooting & Mitcham
leikur utan deilda og eru leik-
menn iiðsins allir áhugamenn.
Sex leikir voru endurteknir i
bikarkeppninni i gærkvöldi og
urðu úrslit þeirra þessi:
Birmingham-Portsmouth 0:1
Bolton-Brentford 2:0
Bury-Middlesbrough 3:2
Plymouth-Hull 1:4
Rochdale-Norwich 0:0
Tooting-Swindon 2;1
3. deild
C. Palace-Walshall 0:1
í leikbann!
Þrir leikmenn voru dæmdir
i þriggja leikja bann i Eng-
landi i gær, Peter Storey,
Arsenal, Mike Summerbee,
Burnley og Keith Robson,
West Ham. Allir höfðu þeir
hlotið 20 vitastig fyrir grófan
leik og samkvæmt nýja fyrir-
komulaginu sem englendingar
tóku upp i haust — fá þeir
þriggja leikja bann og hefst
það á laugardaginn.
— BB
Middlesbrough fékk óska-
byrjun i leiknum gegn 3. deildar-
liðinu Bury og skoruðu leikmenn
„Boro” tvivegis á fyrstu átta
minútunum. En þessi tvö mörk
urðu samt ekki til að brjóta niður
baráttuvilja leikmanna Bury----
Jim Mcllwraith, John Hulme og
Andy Rowland skoruðu allír fyrir
Bury sem vann eftirminnilegan
sigur.
Fyrirliði Birmingham, Ken
Burns, átti alla sök á marki
Portsmouth. Hann ætlaði að
spyrna boltanum frá marki
Birmingham eftir meinleysislega
sókn Portsmouth, en tókst ekki
betur en svo, að hann sendi beint
til Bobby McGuinness sem var i
góðu færi — og hann var að sjálf-
sögðu fljótur að þakka gott boð.
Leikmenn Tooting & Mitcham
skoruðu öll mörkin i leiknum við
Swindon — tvö réttum megin og
eitt öfugu megin. Fyrsta markið
skoraði sölumaðurinn Dave June-
man i fyrri hálfleik En i upphafi
siðari hálfleiks skoraði Bobby
Green, sem vinnur við afgreiðslu
skipa, sjálfsmark. Þannig stóðu
leikar þar til átta minútur voru
til leiksloka að Alan Ives tókst að
skora sigurmark Tooting
Rochdale sem leikur i 4. deild
barðist vel gegn Norwich, sem
leikur i 1. deild — og aftur skildu
liðin jöfn —núeftir framlengingu
— og verða þvi að leika þriðja
leikinn.
Portsmouth mætir Charlton á
útivelli i næstu umferð sem leikin
verður 24. janúar, Bolton mætir
Huddersfield á útivelli, Bury
mætir Leicester á útivelli, Hull
mætir Sunderland á útivelli,
Tooting mætir Bradford a útivelli
og Rochdale eða Norwich leikur
gegn Luton á heimavelli. -BB
Myndin er frá leik Englandsmeistaranna Derby og Everton á laugardaginn i bikarkeppninni. Derby
sigraði i leiknum 2:1 og á myndinni er Charlie George — sem skoraði bæði mörk Derby — að skora
fyrra markið. Þá átti Roger Davis skot I stöngina, boltinn hrökk til George, sem skoraði. Það er
Dcrby mætir Liverpoll i næstu umferð.
Gulldrengurinn
Enn einu sinni lendir Tommy Galt 1
útistöfium.vift einhvern i Milford KC —
eftir aö hann hefur náö aö semja friö
viö biálfarannog framkvæmda
stjörann.) betta sinn er baö
maöurklubbsins, sem heimtar aö
sé settur út og á sölulista fyrir
en framkvæmdastjórinn stendur
hinum skapmikla
skil þetta — en
vona bara þin vegna
aö hann eigi
góöan leik á
s
Björgvin Björgvinsson leikur ekki
nteð sinu nýja félagi, Vikingi, i kvöld
eins og búist hafði verið viö.
Björgvin
ekki með
Keppnin í 1. deild
í handknattleik
hefst aftur í kvöld
með leikjum
Fram • Hauka og
Vikings • Þróttar
isiandsmótiö I handknattleik 1.
deildar heldur áfram i kvöld
eftir rúmlega mánaöar hlé og þá
verða leiknir tveir leikir i Laugar-
dalshöllinni. Vikingur leikur við
Þrótt og Fram viö Hauka. Fyrri
ieikurinn hefst kl. 20:15.
Björgvin Björgvinsson leikur ekki
nteð Vikingi í kvöld, en hann sagði i
viðtalivið VIsií morgun að hann yröi
að öliunt likindunt með i leiknum á
nióti Val 18. janúar.
Framarar verða með nýjan leik-
ntann i liði sinu í kvöld, Magnús
Sigurðsson sent áður lék með Vik-
ingi. Magnús er vinstrihandar skvtta
sent kentur örugglega til nteö að
styrkja Frant-liöið sent enn á mögu-
leika á að hljóta eitt af efstu sætun-
unt i niótinu.
— BB
Adamson
hœttir
hjó Burnley
Jimmy Adamson, framkvæntda-
stjóri Burnley, lét af þvi starfi i gær.
Ekki var nein ástæða gefin upp
vegna hvers Adantson hætti, en hægt
er að leiða getum að þvi. Burnley á
nú I harðri fallbaráttu i 1. deild og
hefur liðið aðeins unnið fjóra leiki i
deildarkeppninni.
Jininty Adamson hefur verið hjá
Burnley i næstum 30 ár, hann hóf að
leika með liöinu 1947 og leiddi það til
sigurs í deildarkcppninni 1960 sem
fyrirliði og lék auk þess með liðinu i
úrslitum bikarkeppninnar 1962 á
Wembley, en þá tapaði liðið fyrir
Tottenham 3:1. Adamson hefur verið
framkvæmdastjóri hjá Burnley s.l.
sex ár — hann er 47 ára.
— BB