Vísir - 29.03.1976, Side 11

Vísir - 29.03.1976, Side 11
vísm ci Viðavangshlaup islands fór fram i Vatnsmýrinni i gær og að venju var þátttakan mjög góð og liátt á annað hundrað keppendur mættu til leiks. FH-ingar voru sigursæiir að venju, þeir áttu fyrsta mann i karla- og drengja- hlaupinu og auk þess fjórar sveitir sem sigruðu i sveitar- keppninni. Verðlaun voru veitt til elsta keppandans og þau hlaut að þessu sinni sá landsfrægi bóndi frá Vorsabæ, Stefán Jasonarson sem er 62 ára. Stefán var ekki meðal fyrstu manna i hlaupinu, en hann var heldur ekki siðastur og hljóp léttilega i markið. Sigurður P. Sigmundsson FH sigraði örugglega i karlahlaup- inu. Hann hljóp á 17:05.7 min- útum og kom það mönnum mjög á óvart, hversu langt hann var á undan Jóni Diðrikssyni UMSB sem varð i öðru sæti. Kann að vera að fótabúnaður Jóns hafi átt þar einhverja sök, en hann hljóp á strigaskóm og átti greinilega i erfiðleikum með að fóta sig. Timi hans var 17:12.6 min. Þriðji varð Ágúst Þorsteinsson UMSB á 17:29.9 min. Ragnhildur Pálsdóttir KR sigraði örugglega i kvennahlaup- inu, hljóp á 6:34,4 minútum, önnur varð Lilja Steingrimsdóttir USVS á 6:40,4 minútum og Anna Haraldsdóttir FH varð þriðja á 6:48.0 minútum. 1 piltaflokki 14 ára og yngri sigraði Árni Arnórsson 1R, hann hljóp á 6.23.6 min, annar varð Friðgeir Jónsson, Leikni á 6:29.0 min og Guðmundur Sigurjónsson, Breiðabliki, varð þriðji, hljóp á 6:30.7 min. Slavar og danir í úrslit! Júgóslavneska liðið Borac Banja Luka, tryggði sér réttinn til að leikai úrslitum Evrópukeppn- innari handknattleik á föstudags- kvöldið með þvi að sigra vest- ur-þýsku meistarana Gummers- bach 15:13, i Júgóslavfu. Fyrri leiknum I Vestur-Þýskalandi lauk með jafntefli 16:16 Popovic var markahæstur fliði Banja Luka með 5 mörk, en Dekarm i liði Gummersbach með 6 mörk. Hansi Schmidt skoraði 4 mörk. Borac Banja Luka leikur gegn dönsku meisturunúm KFUM Frederica, sem sigraði norska liðið Fredensborg f hinum undan- úrslitaleiknum. Árni Arnórsson Irt kemur i mark- ið sem sigurvegari f piltaflokki 14 ára og yngri. Ragnhildur Pálsdóttir KR sigraði örugglega f flokki kvenna. Ljós- mynd Einar. Einar P. Guðmundsson FH sigraði í flokki drengja 14 til 18 ára, hljóp á 9:52.1 min, Hafsteinn Óskarsson 1R varð annar á 9:53.9 og þriðji varð Guðmundur Geir- dal, Breiðabliki á 9:59,7 min- útum. HSK sigraði i þriggja, fimm og tiu manna sveitum i kvenna- keppninni, FH-ingar sigruðu i öllum sveitunum i drengja- keppninni, Leiknir i þriggja og fimm manna sveitunum i pilta- flokki, en FH-ingar i tiu manna sveitinni — og i karlaflokknum sigruðu IR-ingar i þriggja manna sveitarkeppninni HSK i fimm manna sveitinni en ekkert lið fyllti tiu manna sveitina. — BB Tilátta stórborga vetursem sumar Félög sem sjá um föst tengsl viö umheiminn Þess vegna gerir vetraráætlun okkar ráö fyrir tíðum áætlunarferöum til átta stórborga í Evrópu og Bandaríkjunum. Þjóöin þarf að geta reitt sig á fastar öruggar áætlunarferðir til utlanda jafnt vetur sem sumar, þaö er henni lífsnauðsyn. Það er okkar hlutverk að sjá um aó svo megi verða áfram - sém hingað til. kvgfelac LOFTLEIDIR ISLANDS Sumarið er sá tími ársins, sem íslendingar nota mest til ferðalaga, þá koma einnig flestir erlendir ferðamenn til landsins. Þess vegna er sumar- áætlun okkar víðtækari, við fljúgum til fleiri staða og fjöldi áætlunarferða okkar er meiri en venjulega. En ferðalög landsmanna og samskipti við umheim- inn eru ekki bundin við sumarið eingöngu- þau eiga sér stað allan ársins hring. Só elsti var 62 ára! og hljóp léttilega í Víðavangshlaupi íslands, sem háð var í gœr Borusssa áfrýjar! Forráðamenn vestur-þýska knattspyrnuiiðsins Borussia Mönchengladbach mótmæltu dómí agadómstóls Evrópuknatt- spyrnusambandsins (UEFA), um að taka kæru þeirra i ieiknum gegn Real Madrid ekki til greina og hafa áfrýjað þeim dómi til áfrýjunardómstóis UEFA. Áfrý junardómstóllinn mun væntanlega fjalla um málið á morgun, en á miðvikudag á Real að leika við Bayern Munchen i undanúrslitum keppninnar. —BB

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.