Vísir - 29.03.1976, Blaðsíða 14

Vísir - 29.03.1976, Blaðsíða 14
( Mánudagur 29. mars 1976 visni ) Enska knattspyrnan: Varð aðstoð Iðgreglu! irski landsliðsmaöurinn Hon Givens skallar i mark, hann er einn af helstu driffjöðrunum í framlinunni hjá QPR sem nú á góða möguleika á að hljóta Englandsmeistaratitilinn i fyrsta skipti i sögu félagsins. Ennþá er ekki Ijóst hvaða lið þaö verður scm hlýtur Eng- landsm eistaratitilinn I ár. Fimm efstu liöin—sem berjast um meistaratiilinn — unnu i leikjum sinum á laugardaginn — og þvi er staða efstu liöanna óbreytt. QPR er i efsta sætinu meö 51 stig, þá koma Manchest- er United og Derby með 50 stig, Liverpool með 49 stig og Leeds er með 44 stig. QPR og Derby hafa leikið 37 leiki, Manchester United og Liverpool 36 leiki og Leeds hefur leikið 35 leiki. Engar breytingar urðu heldur á stöðu neðstu liöanna i 1. deild, nema að nú er ljóst, að Sheffield United fellur i 2. deild, spurn- ingin er aðeins hvaða tvö lið önnur falla lika — þar verður baráttan á milli Burnley, Wolves og Birmingham. Lögreglan skarst i leikinn Það er ekki á hverjum degi sem kalla verður á aðstoð lög- reglu til að ganga á milli leik- manna i knattspyrnuleik, en þetta átti sér stað i leik QPR og Manchester City á leikvelli QPR, Loftus Road i London á laugardaginn. Þegar 77 minútur voru liðnar af leiknum, lenti tveim leik- mönnum saman, þeim Asa Hartford úr liði City og Dave Thomas úr liði QPR. Upphófust , stympingar sem fljótlega mögnuðust og að lokum logaði völlurinn i slagsmálum milli leikmanna beggja liðanna. Dómarinn réð ekki neitt við neitt — og það var ekki fyrr en lögreglan, framkvæmdarstjór- ar liðanna og aðstoðarmenn þeirra höfðu skorist i leikinn, að stilla tókst til friðar. Hartford var visað af leikvelli og þvi urðu leikmenn City að leika einum færri það sem eftir var leiksins. Ekki tókst leikmönnum QPR að skora nema eitt mark i leikn- um þrátt fyrir mýmörg tækifæri og mikla yfirburði á flestum sviðum — markið skoraði David Webb átta minútum fyrir leiks- lok eftir aukaspyrnu frá Don Masson. En litum þá á úrslit leikj- anna: 1. deild Aston Villa — Stoke 0:0 Coventry — Newcastle 1:1 Derby — Birmingham 4:2 Ipswich — Everton 1:0 Leeds — Arsenal 3:0 Liverpool — Burnley 2:0 Manch Utd —Middlesboro 3:0 QPR —Manch City 1:0 Tottenham — Sheff. Utd 5:0 West Ham — Norwich 0:1 Wolves — Leicester 2:2 2. deild Blackburn — Notts C 2:1 Blackpool — Plymouth 0:0 Bolton — Chelsea 2:1 Bristol R — Oxford 0:1 Carlisle —Bristol C 0:1 Fulham —Oldham 1:0 Hull — York 1:1 Luton—Charlton 1:1 Notth For —Orient 1:0 Portsmouth — WBA 0:1 Sunderland — Southampton 3:0 Þrjú mörk á tiu minútum . Ekkert mark var skorað i fyrri hálfleik i leik Manchester United og Middlesbrough á Old Trafford i Manchester, en i sið- ari hálfleik gerðu leikmenn United út um leikinn með þvi að skora þrjú mörk á tiu minútum. Fyrst skoraði Gerry Daly úr vitaspyrnu — eftir að John Craggs hafði varið með höndum á marklinu, David McCreery bætti öðru markinu við og Gor- don Hill skoraði þriðja markið. Lfnuvörðurinn veifaði rang- stöðu á Hill, en dómarinn lét sem hann sæi það ekki og þrátt fyrir áköf mótmæli leikmanna Middlesbrough dæmdi hann markið gilt. Ahorfendur á Old Trafford voru 58.527. Dave Fairclough kom inná sem varamaður fyrir Steve Heighway i leik Liverpool og Burnley — og hann skoraði bæði mörk Liverpool i leiknum — sitt ihvorum hálfleik. Það fyrra eft- ir hornspyrnu frá Kevin Keegan og það siðara eftir fyrirgjöf frá Tommy Smith. John Toshack þóttist ætla að skjóta, hætti við og lét boltann halda áfram til Faierclough sem skoraði af stuttu færi. Áhorfendur á An- field voru 36.708. ...og þrjú mörk á niu minútum Meistarar Derby urðu fyrir enn einu áfallinu á laugardag- inn, fyrr i vikunni meiddist markahæsti maöur liðsins, Gharlie George — og verður hann frá keppni i þrjár vikur — og i leik-Derby og Birmingham á laugardaginn meiddist Roy McFarland, en óvist er hversu alvarleg meiðsli hans eru. Leighton James náði foryst- unni fyrir Derby i fyrri hálfleik og þannig var staðan þar til i siðari hálfleik að leikmenn Derby gerðu út um leikinn með þrem mörkum á niu minútum — Bruce Rioch, Roger Davis og David Nich. Þá meiddist McFarland og Birmingham tókst að skora tvi- vegis á siðustu minútunum, fyrst Trevor Francis og siðan Howard Kendall. Ahorfendur voru 28.161. Allan Clark fann leiðina tvi- vegis i mark Arsenal með stuttu millibili i fyrri hálfleik og voru þetta 200. og 201. deildarmök hans. Leikmenn Arsenal voru lengstum leiknir sundur og saman, en þrátt fyrir mörg tækifæri tókst Leeds aðeins að bæta einu marki við — það skor- aði Billy Bremner eftir einleik Duncan McKenzie. Áhorfendur voru 26.657. Leikmenn Tottenham voru i miklum ham gegn botnliðinu Sheffield United á leikvelli sin- um White Hart Lane i London og gerðu vonir United um að halda sæti sinu i 1. deild að engu með þvi að senda boltann fimm sinn- um i mark andstæðinga sinna. Willie Young náði forystunni fyrir Tottenham i fyrri hálfleik, en I þeim siðari urðu mörkin fjögur — John Duncan, Steve Perryman tvö og Martin Chiv- ers skoruðu þá fyrir Spurs. Áhorfendur voru 21.370. Útispilarinn fór i markið Markvörður Leicester, Mark Wallington, meiddist illa i leikn- um gegn úlfunum og varð að yfirgefa leikvöllinn, stöðu hans tók Keith Weller og hann stóð sig mjög vel — hélt hreinu marki — og Leicester náði jafn- tefli. John Sammels náði foryst- unni fyrir Leicester með marki úr vftaspyrnu, en Úlfunum tókst að jafna og komast yfir með tveim mörkum á tveim minút- um i lok fyrri hálfleiks. Fyrst skoraði John Richards og siðan Ken Hibbitt. Stuttu siðar meidd- ist Wallington og Weller varð að taka við. Jöfnunarmark Leicester skoraði Frank Worthington um miðjan siðari hálfleik og Bob Lee átti mögu- leika á að tryggja Leicester sig- ur i leiknum stuttu siðar, en hann klúðraði fyrir opnu marki. Áhorfendur voru 18.113. Litil tilþrif voru i leik Ipswich og Everton. Þar tryggði Trevor Whymark sigur Ipswich með marki úr vitaspyrnu sem dæmd var á fyrrum Ipswich leikmann Bryan Kamilton fyrir að hand- leika boltann innan vitateigs. Áhorfendur 22.368. Ted MacDougall skoraði mark Norwich i leiknum gegn West Ham með þrumuskoti af löngu færi í fyrri hálfleik og var þetta 21. deildarmark hans á keppnistimabilinu. Áhorfendur voru 20.628. Léleg aðsókn i Coventry Lélegasta aðsóknin I 1. deild var á Highfield Road i Coventry, þar komu aðeins 14.144 áhorfendur til að sjá lið sitt leika gegn Newcastle. Leikurinn þótti slakur og jafn- tefli sanngjörn úrslit. John Bird náði forystunni fyrir Newcastle seint i fyrri hálfleik og aðeins tveim minútum siðar jafnaði Donald Murphy fyrir Coventry. Efstu.liðin i 2. deild unnu öll i leikjum sinum. Mark Bristol City i Carlisle skoraði Gow úr vitaspyrnu, leikmenn Chelsea skoruðu öll mörkin i leiknum gegn Bolton — Hay og Wilkins skoruðu sjálfsmörk, e"h Britton réttu megin. Leikmenn Sunder- land náðu sér vel á strik i leikn- um gegn Southampton, Green- wood tvö og Holden skoruðu fyr- ir Sunderland og West Bromich vann i Portsmouth með marki Cantello. Mark Luton gegn Charlton skorði John Ryan og Bowyer mark Notthingham Forest gegn Orient. Flestir áhorfendur i 2. deild voru á leik Sunderland og Sout- hamton 34.946, en fæstir á leik Blackpool og Plymouth. Voru þeir aðeins 5.497. Staðan er nú þessi: 1. deild QPR 37 20 11 6 55:26 51 ManUtd 36 20 10 6 62:35 50 Derby 37 20 10 7 63:46 50 Liverpool 36 18 13 5 53:27 49 Leeds 35 18 8 9 57:37 44 ManCity 34 14 10 10 54:31 38 Ipswich 34 12 14 8 41:34 38 Tottenham 37 12 14 11 56:56 38 Leicester 36 10 17 9 40:46 37 Middlesb. 36 13 10 13 37:35 36 Stoke 35 13 10 12 42:40 36 WestHam 37 13 8 16 44:60 34 Newcastle 34 12 9 13 59:49 33 Arsenal 36 12 9 15 42:43 33 Norwich 35 12 9 14 50:52 33 Everton 35 11 11 13 49:60 33 Coventry 36 10 13 13 38:48 33 Aston Villa 36 9 14 13 43:52 32 Birmingh- 35 10 6 19 47:65 26 Wolves 36 8 9 19 42:60 25 Burnley 37 7 10 20 39:60 24 Sheff.Utd. 36 2 9 25 24:75 13 2. deild Bristol C 37 18 13 6 54:29 49 Sunderland35 19 7 9 55:33 45 Bolton 37 17 10 8 51:33 44 WBA 35 16 11 8 40:30 43 Luton 36 16 8 12 49:43 40 NottsC 35 16 7 12 49:44 39 Southampt. 35 16 7 12 56:43 39 NotthFor 36 14 10 12 47:38 38 Charlton 35 14 9 12 52:58 37 Fulham 36 13 10 13 42:38 36 Chelsea 36 12 11 13 46:45 35 Oldham 36 12 11 13 49:54 35 Hull 36 13 8 15 38:41 34 Bristol R 35 10 14 11 31:36 34 Blackpool 35 11 12 12 33:40 34 Orient 35 11 11 13 31:33 33 Plymouth 37 11 11 15 44:48 33 'Carlisle 36 10 12 14 39:51 32 Blackburn 36 9 13 14 36:45 31 Oxford 36 9 11 16 34:48 29 Portsm. 36 8 6 22 26:49 22 York 35 8 6 22 31:60 22 Staðan i 3. deild er óbreytt, efstu liðin Hereford og Brighton léku innbyrðis og skildu jöfn — bæði liðin skoruðu sitthvort markið. CrystalPalace lék gegn Bury og sigraði 1:0. Hereford er efst með 50 stig, Brighton og Cristal Palace eru með 47 stig og Walsall og Millwall eru með 45 stig. Neðst eru Southend, Sheff Wed. og Halifax með 30 stig, Colchester með 29 stig og Swin- don 28 stig. — BB

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.