Vísir - 04.05.1976, Blaðsíða 6
6
(
Connally ætlar að hjálpa gegn
Itölskum kommúnistunum.
Hjálp
gegn
komm-
únislum
John Conally, fyrrum fjár
málaráðherra Bandarikj
anna, tiikynnti i gær að hann
hefði stofnað samstarfsnefnd
til að sýnaandstöðu gegn upp
gangi kommúnista í þingkosn-
ingum á ttalfu.
Connally sagði að þessi
samstarfsnefnd almennra
borgara ætlaði að sýna itölum
aö bandarikjamenn hefðu
áhyggjur af baráttu þeirra
fyrir frelsi.
Hann sagði að hópurinn
mundi ekki skipta sér beint af
stjórnmálum á ttaliu, en
styðja við bakið á flokkum
sem ekki eru kommúnískir,
með því að senda skemmti-
krafta, stjórnmálamenn og
fleiri til að koma fram á kosn-
ingafundum.
Vikuverk-
Þriðjudagur 4. maf 1976. VISIR
Unts}ón:
Guömundur Péturssnji
Fékk Pulitzerverðlaun 60
árum eftir dauða sinn
Scott Joplin, ,,rag-
time” tónskáldið sem
_ lést áður en tónlist hans
varð fræg, fékk sérstök
Pulitzer verðlaun, þeg-
ar hin árlega
verðlaunaafhending
fór fram i New York i
gær. Joplin er einna
þekktastur fyrir lagið
„The Entertainer”,
aðallag kvikmyndar-
innar The Sting.
Pulitzer verðlaunin eru veitt
fyrir afrek á sviði blaða-
mennsku, bókmennta, leikrita-
gerðar og tónlistar.
Ópera sem Scott Joplin
samdi, „Treemonisha” var sett
upp á Broadway i fyrra. Pulitz-
er verðlaunanefndin sagði að
Joplin væru veitt verðlaunin
fyrir alla þá tónlist sem hann
samdi.
Fyrir framúrskarandi blaða-
mennsku fékk Sidney Schan-
berg blaðamaður við New York
Times verðlaunin. Hann fékk
þau fyrir fréttir um valdatöku
kommúnista i Kambódiu I
fyrra.
Pulitzer verðlaunin eru talin
mesta viöurkenning sem veitt
er- á sviði blaðamennsku.
James Risser, blaðamaður
við dagblaö I Iowa fékk verð-
laun fyrir blaöamennsku innan-
lands, fyrir skrif sta um spill-
ingu i komsöluverslun.
Á bókmenntasviðinu hlutu
R.W.B. Lewis og Saul Bellow
verðlaun, Lewis fyrir ævisög-
una „Edith Wharton”, og Bel-
low fyrir skáldsöguna „Hum-
bolt’s Gift”.
Floti Bandaríkjanna endurnýjaðar
Skipastóll breta og
bandarikjamanna,
þessara eitt sinn heims, er aumlega á sig
voldugustu flotavelda kominn, og hefur banda-
*
rikjastjórn ákveðið að
lappa upp á flota sinn. —
Fordstjórnin hefur nú
aukið skipasmiðaáætlun
flotans fyrir næstu fimm
ár um 50 skip.
Þessi ákvörðun verður lögð
fyrir hermálanefnd öldunga-
deildarinnar á morgun, þar sem
Donald Rumsfeld, varnarmála-
ráðherra, mun gera þingmönnum
grein fyrir þvi, að ætlunin er að
bæta á næstu fimm árum 160
nýjum skipum við i flotann..
Ford forseti mun hafa farið að
tillögu James Holloway, flota-
foringja, sem varaði viö þvi, að
bandariski flotinn mundi dala
niður til jafns við sovéska flotann^
ef skipastóllinn yrði ekki endur-
nýjaður alveg á næstunni.
En fréttaskýrendur vestra,
vilja telja, að gagnrýni Ronalds
Reagans, keppinautar Fords
forseta um útnefningu
Repúblikanaflokksins, hafi komið
forsetanum til þess að taka þessa
ákvörðun.
4
Eitt hinna risastóru flugmóður
skipa Bandarikjmna.
fall við
þýsku dag-
blöðin
Dagblöð i Vest-
ur-Þýskalandi koma i
fyrsta skipti út i dag i
nær heila viku, þegar
prentarar snúa aftur til
starfa úr verkfalli.
Samningar hafa ekki
tekist i launadeilu þeirra
við útgefendur, en sæst
var á að taka aftur upp
vinnu, meðan gengið
verður frá samningum.
Fulltrúar prentara hitta útgef-
endur að máli i Mainz I dag. En
takist ekki samningar þá, hafa
prentarar hótað að leggja strax
aftur niður störf. — Niðurstöður
'viðræðnanna I dag verða bomar
undir atkvæði 80.000 manna stétt-
arfélags prentara i kvöld.
Prentarar hafa farið fram á 9%
hækkun, en útgefendur hafa boðið
5,4%. Fulltrúar prentara létu á
sér skilja i gærkvöldi, að þeir
kynnu að vera tilleiðanlegir til að
lækka kröfurnar, en niður fyrir
6% myndu þeir þó aldrei fara.