Vísir - 04.05.1976, Blaðsíða 19

Vísir - 04.05.1976, Blaðsíða 19
Namib-eyðimörkin i SV Afriku. Namib-eyðimörkin. Namib er svertingjamál sem þýðir auðn. Namib-eyðmörkin er i SV Afriku sem Sb vilja kalla Namibiu, sennilega vegna sein- heppnaðra tilrauna þeirra til að siða svertingja i Kongó og Angóla. Namib er meðfram strönd Atlantshafsins mörg hundruð kilómetra og lengst inni landi. Viðbrigðin eru svo snögg.að maður stigur yfir eina sandölduna og hinumegin er is- kalt Atlantshafið með brennandi funa eyðimerkur- innar i fjöruborðinu. Þarna er Beinagrindaströnd. Þarna hefur mikill fjöldi skipa strandað og menn farist þegar þokan hefur byrgt alla útsýn og hvergi er vatn né björg að fá i neina átt. Þessi strönd lumar þó á einum auðugasta demanta- fundi i heimi og er hluti af eyði- mörkinni bannsvæði. Þar er jafnvel leitað lengst úti sjó, hlaðnir varnargarðar eins og i Sumar sandöldurnar eru hærri en Arnarfcll við Þingvallavatn. Viggó Oddsson skrifar frá Jóhannesarborg: „Þegar islendingar heyra nefnt orðið eyðimörk, dettur þeim ósjálfrátt i hug sand- breiður, glóandi sól og hiti, arabar og úlfaldar i leit að lindum með pálmatrjám. Flestir halda að eyðimörk sé al- gjör auðn og dauði. Reyndar er engin eyðimörk eins mis- munandi „dauð”. Tvö eyði- merkursvæði má nefna I suður- hluta Afriku eins og Kalahari og Namib eyðimerkurnar, sem eru ekki eins auðar og þær lita út fyrir að vera. í fyrsta sinn sem ég sá eyðimörkina Kala- hari, fyrir nokkrum árum, var þegar ég flaug frá Jóhannesar- borg til Windhoek i SV-Afriku. Eyðimörkin er að mestu i svertingjalandinu Botswana sem er stórt og hrjóstrugt, með búskmannahópum og öðrum frumstæðum svertingjum. Það tekur um 3 stundir að fljúga yfir Kalahari, samfelld slétta um 12-1500 metra yfir sjó, með rauðgulbrúnum sandi og gisnum runnum sem hindra sandfok. A stöku stað voru slóðir sem hirtir eða önnur dýr höfðu skilið eftir i leit að vatns- bólum sem þau höfðu krafsað þar sem raka var að finna i dældum. Voru það furðu stórar gryfjur sem dýrin höfðu gert, i aldagamalli baráttu við þorstann. Vfsindamaður að skoða Welwitchiaplöntu i Namibeyðimörkinni. Plantan er um 5 metrar i þvermál og mörg þúsund ára gömul. Þarna hefur rignt tvisvar siðan 1934. Næturþokan er Iffgjafi fyrir pföntur og pöddur I Namib. Hollandi og mokað meö stór- virkjum tækjum á sjávarbotni. Lif i eyðimörkinni Sumar sandöldurnar eru stærri en Arnarfell við Þing- vallavatn, þær mjakast með vindinum. A svæði hefur ekki rignt að sögn nema í ár og árið 1934. Þá skeður kraftaverkið. Skyndilega er eyðimörkin haf- sjór af fegurstu blómum sem keppast við að vaxa, bera fræ og bíða svo næstu rigningar, sem kemur eftir árat'ug eða heila öld. Þarna er ein einkenni- legasta planta i heimi: Welwitchia, sem mun vera til i um 200 eintökum og sumar plönturnar mörg þúsund ára gamlar, eins konar steinrunnar plöntur, regnið i ár gæti fengið plöntu þessa tilaðfjölga. Þarna eru einnig margar tegundir af pöddum, slöngum og jafnvel antilópur. Pöddurnar og allt annað lif þar þurrka rakann úr þokunni, sem getur teygtsig 100 km inn i land á nóttunni. Sumar pöddur standa þá á höfði og láta rakann leka af búkinum niður i munn sér. Gasloginn Þegar ég flaug frá SV-Afriku kom flugvélin við á einum flug- velli, þar sem fámennur hópur tórir við visindastörf búskap og annað. Þegar komið var út úr flugvélinni og út i sólina og skrælþurrt loftið var eins og að ganga nálægt gasloga, einn asni var að kroppa sinubrúsk fyrir utan girðingu. Við ströndina er ein góð höfn sem nefnist Walvis Bay og eru þar miklar fisk- vinnslustöðvar. Sandrok og þoka setja svip sinn á borgina og er salt-tæring mikil. En alls staðar eru mennirnir og mikið er á sig lagt til að sigrast á náttúruöflunum, hvort heldur það er Namib eða Grimsey eða Vestfirðir, þar sem and- stæðurnar eru sem mestar. EYÐIMERKURLIF Lágmarksaldur á vínveitingahúsum er f jarstœða Tvær vinkonur skrifa: „Við erum hérna tvær vin- konur, sem getum ekki orða bundist lengur, vegna þeirrar fjarstæöu að háfa lágmarks- aldur á vinveitingahús 20 ára. Hvar eiga unglingar á aldrin- um 16—20 ára aö skemmta sér? Eiga þeir að fara i Tónabæ, þar sem þeir eru taldir óæskilegir vegna hinna yngri, og sem þar að auki rúmar ekki ailan þann fjölda sem er á þessum aldri á höfuðborgarsvæðinu. Að þetta skuli þekkjast i nú- timaþjóðfélagi. Þó það hafi gengið fyrir 20 árum, þá hafa timarnir breyst. Það er stað- reynd sem ekki má loka augun- um fyrir, að unglingar eru bráð- þroskaðri en áður og fara þvi fyrr ,,út á lifið". Stærsti hópurinn i skemmtanalifinu er frá 18—20 ára, en þeir komast hvergi lög- lega inn. Nú er i lögum að 18 ára stúlk- ur megi gifta sig, en þó er ekki taiið að þær hafi nægilegan þroska til þess að fara inn á vin- veitingahús. Hverjum finnst þetta raunhæft?? Okkur finnst aö lækka ætti lágmarksaldur vinveitingahúsa niður i 18 ár og opna stað fyrir 16 ára og eldri, þvi að ekki er hægt að ætlast til þess að 16, 17 ára unglingar skemmti sér með 13 ára krökkum. Nú eru margir 16 ára og eldri sem sækja á vinveitingastaðina, en myndi ekki ásókn þeirra minnka ef opnaður væri staður fyrir þennan aldursflokk?” DAYNDIS ARFUR IIPJ.Hvg. skrifar: „Laugardaginn 10. april birt- ust á 5. siðu Morgunblaðsins upplýsingar um að: „Hver 4 manna fjölskylda skuldar 1.6 m.kr i erlendum gjaldeyri”. Heimild vinnuveitendasam- bandið. Mynd fylgir! Sama dag sjáum við i Visi á fyrstu siðu á dökkum grunni: ,,Hver fjögra manna fjölskylda skuldar 1,6 millj. kr. erlendis”. Engin mynd! Þá fylgja þessum upplýsing- um nokkrar hugrenningar og er sami rassinn undir báðum. Nú hætti ég mér ekki út á þann hála is að reifa þessar hugleiðingar blaðanna, þær eiga sjálfsagt einhverja stoð i veruleikanum, en ekki sætti ég mig við þessa fjögra manna Ijölsk. viðmiðun. þó svo ég taki hana inn i dæmið hér á eftir sem verður dægradvöl min i dag, sem nefna mætti: Leikið með tölur. Nú nálgumst viö islendingar að vera alls tæpar 220.000 (tvöhundr. tuttugu þús.) hræð- ur. Með fjögra manna fjöl- skyldu viðmiðuninni verða þetta þannig 55.000 fjölskyldur, en á henni hvila eins og fyrr segir 1.600.000 (ein milljón sex- hundruð þús.) isl. krónur i er- lendum gjaldeyri. Nú skulum við margfalda þessar tölur þannig: 55000 x 1600000, þá fáum við út tölu i isl. kr. sem þannig litur út: 88000000000 i heilum krónum, þvi nú hafa allir aurar verið afskrifaðir. Þetta verða- þvi nánar tiltekið 88.000 (áttatiu og átta þús. milljónir) = 88 mil- jarðir islenskar kr. sem hvila á 55000 fjögra manna fjölskyldum i landinu. Til þess nú að fá fram hvað hvilir á hverjum einstak- lingi í landinu. skulum við deila i alla skuldasúpuna og endur- taka kr. 88000000000 með ibúa- Ijöldanum 220.000. fáum við þannig út, að á hverjum is- lendingi hvila i erlendum gjald- evri kr. 400.000 (fjögurhundr. þús. krónur) . Nú grip ég enn til i'jögra manna fjölskyldunnar og set dæmið endanlega upp þannig: 400.000 x 4 = 1.600.000 (ein milljón sexhundruð þús. krónur). Er þá komin upp ná- kvæmlega sama tala og hjá þeim visu mönnum. hjá Morgunblaðinu og Visi. Eins og fyrr greinir eru hér allir islenskir þjóðfélagsþegnar meðtaldir. styrkþegar hvers konar sem eru ótaídir. öryrkjar og gamalmenni, öll blessuð börnin. jafnvel þó þau séu i burðarliðnum. Dávndis arfur það." DREGIÐ í 1. FLOKKI KL.5.30 í DAG. ÖRFÁIR LAUSIR MIÐAR ENN FÁANLEGIR í AÐALUMBOÐINU VESTURVERI. JMSb mogukM H \\ l| ú

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.