Vísir - 02.07.1976, Qupperneq 1
Erum við orðnir háðir varnarliðinu?
Alíka mikill gjaldeyrir
frá varnarliðinu og sjö
stœrstu frystihúsunum
Dvöl bandariska
varnarliðsins hér á
landi aflar okkur álika
mikils gjaldeyris og
þau sjö frystihús sem
sköpuðu mestan gjald-
eyri á siðasta ári.
Samkyæmt Hagtölum mánaö-
arins, sem Seðlabankinn gefur
út voru gjaldeyristekjur af
varnarliðinu á slöasta ári 4.190
milljónir. En frystihúsin sjö
fluttu út afurðir i fyrra fyrir um
4,254 milljönir króna. Þess má
og geta aö langstærsti Utflytj-
andi okkar I frystum fiskafurð-
um, Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna flutti út fyrir um 13
milljarða króna á siöasta ári.
Eins og Vfeir hefur sagt frá
eru gjaldeyristekjur af varnar-
liðinu mjög breytilegar. Náðu
þær hámarki árið 1953. En á
milli áranna 1974 og 1975 varö
mikil aukning.
Fyrra áriö voru gjaldeyris-
tekjurnar af varnarliðinu 2.205
milljónir en voru eins og fyrr
segir 4.190 milljónir króna i
fyrra.
—EKG
Ókeypis
litprentað
helgarbloð
með Vísi
ó morgun!
Islendingar
fá stórt til-
boð er-
lendis frá
Leitað hefur veriö eftir hug-
myndum héðan frá islandi I
sambandi við eflingu mat-
vælaöflunar fyrir vanþróuð
rlki. ,,Það eru ábyrgir aðilar
sem standa að þessari máia-
leitan”, sagði Jón Sveinsson,
forstjóri Stálvikur, en það er
til hans sem leitað hefur verið.
Að öðru leyti vildi hann sem
minnst um málið segja. Sagö-
ist hann á þessu stigi vita litið
um málið, þar sem sér hefði
borist fyrirspurnin nú fyrir
skömmu.
„Það var fyrst I gærkvöldi
sem leitað var til min um
reynslu og þekkingu”, sagði
Jón.
Hugmyndin mun vera sú aö
fullkomin skip fiski fyrir utan
Afrikustrendur. ,,Ég get ekk-
ert um það sagt hvort hér yröi
um að ræða kaup eða leigu”,'
sagði Jón.
Jón sagði að menn viösveg-
ar að úr heiminum stæðu að
þessari fyrirspurn. Til dæmis
frá Bandarikjunum.
„Þetta er stórt verkefni
miðað við islenska staðhætti
og einnig mjög áhugavert.
Þetta gefur Stálvik og fleiri is-
lenskum fyrirtækjum mögu-
leika á að keppa við önnur fyr-
ir tæki.” —EKG
■
"'V’
ssiyiíiii
Þessa loftmynd tók Loftur af loftbelg Holbergs Mássonar er hann flaug
honum i fyrsta skipti opinberlega hér i gær. Holberg er að eiga við hitunar-
tækin og i baksýn sést inn Hvalfjörðinn. Sjá nánar frásögn á bls. 3.