Vísir - 02.07.1976, Blaðsíða 7

Vísir - 02.07.1976, Blaðsíða 7
vism Föstudagur 2. júli 1976 3g oli Tynes Loftbelgurinn lenti í sjónum, en róssarnir björguðu œvin- týramanninum Flugkennarinn, Karl Thomas, sem ætlaði að fljúga i loftbelg yfirAtl- antshafið frá New York, er nú kominn fram. Leit var gerð að honum, þar sem ekkert hafði til hans spurst frá þvi á sunnudag. Karl Thomas er enn á leiðinni til Evrópu, en að þessu sinni sjó- leiðis. Rússneskt flutningaskip, Dekabrist, tók hann upp i fyrri- nótt, þar sem hann var á reki. t skeyti frá skipinu segir, að Karl Thomas sé við bestu heilsu og að honum verði skotið i land, þegar skipið kemur til Rotter- dam þann 8. júli. Thomas gerði sér vonir um að verða fyrsti maðurinn til þess að svifa yfir Atlantshafið i loft- belg. Hann hreppti tvivegis ofsastorm á leiðinni og hlekktist á. Óvopnaðurhandtók hann 4 byssumenn Óvopnaður bresk- ur umferðarlög- regluþjónn handtók i gær fjóra vopnaða menn, sem voru á flótta eftir mis- heppnaða ránstil- raun. Ræningjarnir reyndu að skjóta upp dyrnar á stórri fataverslun til að ná Iaunum sem átti að borga út siðar um daginn. Þaö mistókst, en þrjár starfskonur verslunar- innar meiddust litillega. Ræningjarnir flýðu þá i bifreið og mættu lögreglu- þjóninum, sem var að fylgja stórum flutningabil. Hann rétti upp höndina. Þeir stað- næmdust. Hann tók af þeim skotvopnin og fór með þá i fangelsi. Sovéskur kafbátur og austantjaldsherskip á siglingu norður af Skagen I Kattegat. Danir mótmœla, rússar storka Danska varnarmála- ráðuneytið kvaddi i gær á sinn fund varnarmála- fulltrúa rússneska sendiráðsins til að mót- mæla truflunum rúss- neskra herskipa á danskri flotaæfingu i siðustu viku. Meðan veriö var aö bera fram mótmælin sigldu tvær rússneskar korvettur á óvenjulega mikilli ferð um Eyrarsund, milli Dan- merkur og Svlþjóðar. Þau trufl- uðu ferjur og skemmtibáta með hraðsiglingu sinni. Danir voru aö mótmæla atviki sem gerðist 11. júni siðastliðinn. Þá voru nokkur dönsk skip á æf- ingu á svæði sem danski flotinn notar venjulega til slikra hluta, þegar fjögur rússnesk herskip komu blaðskellandi. Dönsku her- skipin urðu að hætta æfingunni. Tveim dögum áður reyndu austur-þýsk herskip aö stela dönsku æfingatundurskeyti sem hafði verið skotið frá kafbáti. Dönsku sjóliöarnir urðu beinlinis að togast á við þjóöverjana, áður en þeim tókst að endurheimta tundurskeytið. Danska varnar- málaráðuneytið mótmælti þessu framferði mjög harölega. Mótmælin gagnvart rússum voru mun mildilegri. En svo virð- ist sem rússar hafi gefið svar við þeim með hraðsiglingu herskipa sinna um Eyrarsund samdægurs. Lánuðu New York $500 milljónir Rikissjóður Banda- rikjanna lánaði i gær New Yorkborg fimm hundruð miiljónir doll- ara til að hjálpa henni út úr nýjustu efnahags- örðugleikunum. William Simon, fjármálaráð herra, sagði að þótt stjórnin héldi áfram að styðja við bakiö á New York, myndi hún fylgjast vand- lega með þvl að stjórn borgarinn- ar héldi sig við efnahagsáætlun- ina sem hún lagði fram i siðustu viku. Ef rikissjóður hefði ekki hlaup- ið undir bagga I gær, hefði borgin farið á hausinn, þvi aö hún á ekki fé til að greiða kennurum, lög- reglumönnum og öðrum opinber- um starfsmönnum laun sin. Skógareldar í Noregi Frændur okkar, norömenn, hafa ekki fariö varhluta af hita- bylgjunni, sem gengiö hefur yfir álfuna, eöa skaövænlegum af- & leiöingum hennar. Eldur kom upp i skógunum viö Elverum og hefur leikiö laus i nokkra daga. Geypistórt svæöi hefur eyöilagst, og hefur margt fólk oröiö aö flytja úr húsum sinum, þegar horföi til þess, aö ekki yröi unnt aö verja þau. m •+ v* mr' Sœrða hjúkrunar- konan sleppur ekki Sýrlendingar hafa tjáð svium, að þeim hafi ekki tekist að koma á vopna- hléi við flóttamannabúð- ir palestinuaraba skammt utan við Beirut, en þær hafa legið undir umsátri um hrið. Þvi hefur ekki tekist að ná það- an brott sænskri hjúkrunarkonu og tveim læknum, sem sömuleiðis eru frá Sviþjóð. Hjúkrunarkonan missti annan handlegginn, þegar handsprengja sprakk og hlaut um leið svöðusár á fæti. Nú herma fréttir, að hún gangi ekki kona einsömul, heldur sé komin fimm mánuði á leið. Sendiráð Sviþjóðar I Damaskus fór þess á leit við sýrlandsstjórn, að hún beitti sér fyrir þvi, áð sett yrðu grið við flóttamannabúðirn- ar, svo að unnt væri að flytja hina særðu brott og koma þeim undir læknishendur. En sýrlendingar hafa ekki lengur þau áhrif á libanonmenn, sem þeir höfðu. Falangistar virða ábendingar þeirra að vettugi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.