Vísir - 02.07.1976, Side 8
8
VÍSIR
Útgefandi: Heykjaprent hf.
F’ramkvæmdastjóri: Davið Guðmundsson
Hitstjórar: Dorsteinn Pálsson, ábm.
Ólafur Ilagnarsson
Hitstjórnarfulltrúi: Bragi Guðmundsson
Fréttastj. erl. frétta: Guðmundur Pétursson
Blaðamenn: Anders Hansen, Anna Heiður Oddsdóttir, Edda Andrésdóttir,
Einar K. Guðfinnsson Jón Ormur Halldórsson, Kjartan L. Pálsson, Ólafur
Hauksson, Óli Tynes, Rafn Jónsson, Sigriður Egilsdóttir, Sigurveig Jóns-
dóttir, Þrúður G. Haraldsdóttir.
íþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánsson.
útlitsteiknun: Jón Óskar Hafsteinsson, Þórarinn J. Magnússon.
Ljósmyndir: Jens Alexandersson, Loftur Ásgeirsson.
Auglýsingastjóri: Þorsteinn Fr. Sigurðsson.
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson.
Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611
Afgreiðsla: Hverfisgötu 44. Simi 86611
Hitstjórn: Siðumúla 14..Sími86611.7 linur
Askriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands.
i lausasölu 50 kr. eintakið. Blaðaprent hf.
Ferðafrelsi og
gjaldeyriseyðsla
Útþráin hefur löngum verið rik i islendingum og
enn leggja þeir mikla áherslu á ferðalög. Þeir þurfa
að ferðast vegna viðskipta við aðrar þjóðir, til þess
að kynnast umheiminum, hvíla sig frá erli dagsins
og bæta sér upp vetur og sólarlitil sumur.
Þótt ferðalög hér innan lands séu æskileg og
ástæða sé til þess að auka þau, getum við ekki hætt
að ferðast til útlanda og allar takmarkanir á slikum
ferðum eru andstæðar eðli islendingsins og þvi
frelsi, sem hann telur sig eiga að búa við.
Gjaldeyrisskammtur ferðamanna hefur verið
mjög takmarkaður um alllangt skeið, og litlar
breytingar verið gerðar þar á, þótt verðlag hafi
breyst mikið undanfarin ár. Er nú svo komið, að sú
upphæð, er gjaldeyrisyfirvöld skammta þeim, sem
til útlanda fara, dugar varla til þess að greiða hótel-
kostnað almenns ferðamanns i eina viku erlendis
hvað þá lengri tima.
Aftur á móti hafa dagpeningagreiðslur til opin-
berra starfsmanna hækkað undanfarin ár til sam-
ræmis við verðlag. Er nú svo komið, að gjaldeyris-
skammtur ferðamanns i þriggja vikna ferð til út-
landa nemur svipaðri upphæð og dagpeningar opin-
bers starfsmanns erlendis i tvo daga. Augljóst er,
að þarna er breytinga þörf til þess að komið verði i
veg fyrir þetta ósamræmi.
Eins og komið hefur fram i skrifum þessa blaðs
um gjaldeyrismál undanfarna daga, nemur gjald-
eyrisnotkun landsmanna til ferðalaga, það er við-
skipta- og skemmtiferða ásamt gjaldeyri náms-
manna aðeins um 3% af heildargjaldeyrisnotkun
þjóðarinnar.
Engu að siður virðist þetta litla brot heildargjald-
eyriseyðslunnar vera ráðamönnum gjaldeyrismála
þyrnir i augum, og er sifellt reynt að skera niður
þennan þátt í gjaldeyrisfyrirgreiðslu hins opinbera
og auka þannig brask með gjaldeyri á svörtum
markaði.
Enn einu sinni hafa gjaldeyrisyfirvöld snúið sér
að ferðamálunum, og hafa nú beinlinis lagt bánn við
þvi að islendingar fari í hópferðir með erlendum
ferðaskrifstofum. Slik skerðing á frelsi i ferða-
málum er islendingum ekki að skapi og ættu stjórn-
völd að aflétta þessum höftum sem fyrst.
Talsmaður einnar ferðaskrifstofunnar bendir á
það i viðtali við Visi i dag, að gjaldeyristekjur af
ferðaþjónustu séu meiri en gjaldeyriseyðsla sú,
sem sé henni samfara, og einnig telur hann að nú-
verandi gjaldeyrisskammtur til ferðamanna sé alls
ekki i samræmi við veruleikann.
í stað þess að reyna sífellt að takmarka þann
gjaldeyri, sem landsmönnum býðst eftir löglegum
leiðum, ættu gjaldeyrisyfirvöld að auka gjaldeyris-
skammtinn þannig að hann nægi ferðafólki til
viðurværis erlendis. Sparnaðarráðstöfunum er rétt
að beina að veigameiri þáttum gjaldeyriseyðsl-
unnar og jafnframt þarf að herða allt eftirlit með
þvi að þeir aðilar hér á landi sem afla gjaldeyris i
viðskiptum geri á honum full skil til bankanna.
Föstudagur 2. júli 1976
vism
Umsjón: 'Guömundur Pétursson
B0FAFARALDUR
TRÖLLRÍDUR
JAMAICA
Síðustu sex mánuði
hefur glæpafaraldur
tröllriðið Jamaica, uns
stjórnvöld þoldu ekki
lengur við og settu
neyðarástandslög,
þrátt fyrir að ekki er
nema eitt ár til næstu
þingkosninga.
Rammast hefur kveöið aö
þessu iKingston, höfuðborginni,
þar sem 163 hafa verið drepnir á
þessum tima. Þar af nitján lög-
reglumenn.
Glæpir i Kingston er engin ný
bóla. Þar hafa heilu bófaflokk-
arnir borist á banaspjótum i
gegnum árin. En ýmsir atburðir
hafa gerst þar að undanförnu,
sem þykja taka út yfir allan
þjófabálk. Mætti iþvi sambandi
nefna „blóðbaðið i Appelsinu-
stræti”, eins og Jamaicabúar
kalla það orðið. Einn bófaflokk-
urinn, greinilega i hefndarhug
vegna morðs á einum félagan-
um, bar þar eld I hús og lét siðan
byssukúlunum rigna yfir ibú-
ana, þegar þeir ætluðu að forða
sér úr eldhafinu, og einnig
slökkviliðsmennina. Ellefú létu
lifið, þar af átta börn. — Ekki
eru nema tvær vikur siðan am-
bassador Perú, Fernando Rod-
riguez, var myrtur á heimili
sinu. Lögreglan hefur ekki fund-
ið morðingjana, en grunar, að
innbrotsþjófar, sem ambassa-
dorinn hafi staðið að verki, séu
valdir að ódæðinu.
Alþýðuflokkurinn, sem fer
með stjórn landsins, og stjórn-
arandstaðan, verkamanna-
flokkurinn, saka hvorn annan
um að vera flæktir inn I glæpa-
samtökin. Varaformaður
verkamannaflokksins, Pearnel
Charles þingmaður, situr á bak
við las og slá, sakaður um hin og
þessi lögbrot, en mál hans kem-
ur fyrir dóm 21. júli.
Michael Manley, forsætisráð-
herra, heldur þvl fram, að þessi
glæpafaraldur sé skipulögð
spellvirki til þess að grafa und-
an efnahag landsins og rýra
traust stjórnar hans. Hann hef-
ur látið I veðri vaka, að and-
stæðingar stjórnar hans njtíti til
þess aðstoðar erlendis.
Hann vill heimfæra það með
/ • /'-.im
^ i £
Almenningur er skelfingu lost
inn yfir sumum ódæðisverkun
um, eins og „blóðbaðinu I Appel
sinustræti”, þar sem átta börn
létu iifið fyrir byssukúlum bófa
flokks.
þvi, að stefna stjórnar hans,
sem er sósialisk, og aukin tengsl
lands hans við Kúbu-stjórn
(hann studdi opinberlega af-
skipti Kúbu af borgarastyrjöld-
inni I Angóla) séu CIA, leyni-
þjónustu Bandarikjanna, mÚtill
þyrnir i augum. Embættismenn
163 hafa verið myrtir I Kingston á siðustu 6 mánubum. Þar af nitján
lögreglumenn.
hans benda á, að bófarnir noti
nýtiskulegri vopn, en þeir hafi
nokkurn tima áður haft tök á að
eignast.
I Washington hefur Henry
Kissinger utanrikisráðherra
visað öllum slikum aðdróttun-
um á bug sem algerri fjarstæðu.
I siðasta mánuði dró til tið-
inda, þegar Herb Rose, einn
framámanna I verkamanna-
flokknum sagði sig úr honum og
sakaði flokksstjórnina um að
þjálfa ungmenni til ofbeldis-
verka i þeim tilgangi að klekkja
á stjórnarflokknum fyrir næstu
kosningar.
Edward Seaga, leiðtogi
flokksins, lýsti þvi þegar I stað
yfir, að þetta „væri þáttur I
samsæritilþessað komaóorðiá
flokkinn”. — Manley forsætis-
ráðherra segir hinsvegar, að
lögreglan hafi komist á snoðir
um ráðabrugg, þar sem ætlunin
bæri að hrinda af stað nýrri of-
beldisöldu, sem bera skal upp á
Kairfesta-hátiðarhöldin i júli.
Þar með taldi Manley engin
úrræði eftir nema setja neyðar-
ástandslög, sem veittu lögregl-
unni aukið umboð til að ganga
hart fram.
Verkamannaflokkurinn hefur
ekki verið i sem bestri aðstöðu
til að gagnrýna þetta örþrifaráð
stjórnarinnar. Þegar verka-
mannaflpkkurinn var sjálfur I
stjórn, lýsti hann sömuleiðis yf-
ir neyðarástandi fyrir tiu árum,
sem mönnum er ekki enn úr
minni. Seaga segist fús til sam-
vinnu við stjórnina gegn glæpa-
öflum, en lætur i það skina, að
stjórninni gangi annað til. —
Segir hann, að lögreglan hafi
haft fyrir mjög frjálsar hendur
til áð taka ftílk fast af minnsta
tilefni og gripa til ýmissa ráða
til að vinna gegn ofbeldisverk-
unum. Neyðarástandslögin séu
þvi beinlinis sett til þess eins að
setja kosningaundirbúningi
verkamannaflokksins hömlur.
Verkamannaflokkurinn hefur
tapað þrivegis I sveitarstjórnar-
kosningum siðasta árs, en
Seaga heldur þvi samt fram, að
flokkur hans muni hljóta meiri-
hluta I næstu kosningum, 32
þingmenn gegn 21. Eins og
stendur hefur verkamanna-
flokkurinn aðeins 17, meðan
sósialistaflokkurinn hefur 39. —
Vill Seaga skýra þessa stóru
sveiflu, sem hann spáir, á þá
lund, að efnahagsvandræði
landsmanna undir stjórn Man-
ley og sósfalisk stefna stjórnar-.
innar hafi valdið hughvörfum
hjá kjósendum.
Þegar Manley kom i stjórn
fyrir fjórum árum, hófst hann
handa við aðjafnakjör ibúanna.
Stjórn hans keypti land af stóru
sykurræktendunum og deildi út
milli smábænda, eða stofnaði
samyrkjubú. Hann hækkaði lág-
marksvikulaun upp I 20 dollara,
meðan 58% verkamanna höfðu
haft um 500 dollara árslaun.
Siðan hefur þrennt hjálpast að
við að þrengja að efnahag Ja-
maica. Markaðserfiðleikar er-
lendis fyrir útflutningsvörur
þeirra. Samdráttur iframleiðsl-
unni heima fyrir. Og svo eftir-
köst oliukreppunnar, sem hafa
leitt til hærra verðs á öllum inn-
flutningsvörum.
Samskipti stjórnar Manleys
við Kúbu hafa borið hátt i blöð-
unum á Jamaica að undan-
förnu. Manley heimsótti Kúbu i
fyrrasumar og þótti mjög til um
það, sem þar bar fyrir augu,
auk þess sem með honum og
Fidel Castro tókst mikil vinátta.
— Um 300 kúbumenn eru nú á
Jamaica til aðstoðar við bygg-
ingu skóla, stíflu og samsetn-
ingar húsa.