Vísir


Vísir - 02.07.1976, Qupperneq 10

Vísir - 02.07.1976, Qupperneq 10
10 Skipholti 19 Símar 23-81 Klapparstíg Nóatún við 500 800 23 og 26 RNAR 19 800 Simi Fjórðungssjúkrahúsið á ísafirði óskar að ráða meinatækni nú þegar. Laun samkvæmt launasamþykkt rikis- starfsmanna. Nánari uppl. gefa læknar sjúkrahússins i sima 94-3020. Fjórðungssjúkrahúsið á ísafirði. Norska sendiróðið óskar eftir 2ja herbergja ibúð í ca. 1 ár, frá 15. júli 1976. Sími 13065 kl. 9-12 og 13-16. Crown segulbandstœki í sérflokki GJALD HITAVEITU MÁ HÆKKA MIKIÐ ÁN ÞESS AÐ HAG- KVÆMARA VERÐI AÐ NOTA OLÍU Nefnd til rannsóknar hitunar- mála sem skipuð var af Orku- stofnun fyrir tæpum sjö árum hefur nú skilaö áliti.Megin til- gangurinn með stofnun þessar- ar nefndar var að kanna hvaða orkugjafi væri hagkvæmastur til húsahitunar hér á landi. Megin niðurstöður nefndar- innar eru á þá leið, að hitaveita sé langódýrust, og að gjaldskrá Hitaveitu Reykjavikur megi hækka mikið, og verði samt mun hagkvæmara en hitun með oliu. Rannsakað var á vegum nefndarinnar hvað kostaði að hita upp 5000 þúsund manna byggðakjarna með þrem mis- munandi aðferöum, þ.e. me oliukyndingu, rafhitun og með hitaveitu. Einnig var tekiö inn i myndina mismunandi bygg- ingakostnaður nýrra húsa eftir þvi hvaða kyndikerfi er notaö. Rannsóknir leiddu einnig i ijós að verð frá nýjum hitaveit- um verður yfirleitt miklu hærra en er hjá Hitaveitu Reykjavik- ur. Kemur þar einkum til að viö gerðnýrra hitaveitnaþarfoft aö leggja I mikinn kostnað vegna borunaroglagningar hitaleiðslu um langan veg. Þá hafa einnig versnandi lánakjör og hækkaðir vextir gert það a verkum að kostnaöur hefur aukist. Frá dælustöð Hitaveitu Reykjavíkur við Grensásveg Ljósm. Jens. i Þar sem aðstæður eru hins- heita vatnið, ekki einu sinni raf- vegar góöar er ekki til neinn sá magn. orkugjafi san getur keppt við —AH Kennsla í sjúkraþjálfun hefst við Háskólann í haust Við byrjun haustmisseris tekur til starfa i Háskóla islands náms- braut I sjúkraþjálfun. Nám til lokaprófs, B.S.-prófs i sjúkra- þjálfun, verður fjögurra ára nám. Að sögn háskólarektors er nú verið aö semja um húsnæði fyrir námsbrautina. Námsbrautar- stjóri hefur verið ráðinn Ella Kol- brún Kristjánsdóttir. Þá er nokk- ur vissa fyrir þvi að fá i vetur sér- menntaðan erlendan kennara, sem er væntanlegur hingað I heimsókn innan fárra vikna. Fyrst um sinn veröa á hverju hausti aðeins innritaðir 18 nýir nemendur i þetta nám. Umsókn- um um innritun nú í haust skal skila i skrifstofu Háskólans á timabilinu 1. júli — 15 júli. Auk venjulegra innritunargagna skulu umsækjendur skila upplýs- ingum um fyrri störf og heilbrigð- isvottorði. Svör við umsóknum munu send umsækjendum fyrir 1. ágúst. — SJ Endurvœðing vatns og lands Hversu mikið tjón hafa vist- kerfif tempruöu beltunum beðið af óskynsamlegum aðgerðum mannsins og hvaða ráöstafanir er hægt að gera til aö vernda og lagfæra þessi vistkerfi? — Þetta er aöalumræðuefniö á alþjóöar- ráðstefnu um endurvæöingu lands og vatns sem Visinda- nefnd NATO gengst fyrir i Reykjavik I næstu viku. Ráðstefnan verður sótt af um sextiu visindamönnum, erlend- um og innlendum, og fjölda- mörg erindi veröa flutt. Augu manna viðs vegar um heim eru nú sifellt aö opnast betur og betur fyrir þeim vanda sem ill meðferð á vatni og landi geta haft i för með sér. Á ráð- stefnunni veröur leitast við aö benda á leiöir til úrbóta og til nýtingar á lifrænum auölindum á jákvæðan hátt. — AH Þriðji bankastjóri Búnaðarbank- ans ráðinn Þórhallur Tryggvason hefur veriö ráðinn þriðji bankastjóri Búnaðarbankans i samræmi við ný lög um stjórn bankans. Fyrir eru tveir bankastjórar þeir Magnús Jónsson og Stefán Hilm- arsson. Þórhallur hefur starfaö viö Búnaðarbankann allt frá árinu 1933, lengst af sem skrifstofu- stjóri og bankastjóri í forföllum Magnúsar Jónssonar er hann var fjármálaráöherra og siðar i veik- indaforföllum hans. Þórhallur er reykvikingur, fæddur 1917. Eiginkona hans er Esther Pétursdóttir. — AH * " • VÍSIR VfSAR Á VIÐSKIPTiN

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.