Vísir - 02.07.1976, Síða 11
vism Föstudagur 2. júlí 1976
II
*
Vestur-íslendingar, sem
komnir eru í heimsókn
„heim" teknir tali
l J
Þeir feðgar hafa aldrei komið
til Islands áöur, en þrátt fyrir
það talaði Helgi islenskuna
reiprennandi, og Stanley dá-
litið. Helst væru það yngri
börnin sem ekki kynnu málið,
sagði Helgi.
Að lokum tókum við tali fjórar
konur á öllum aldri, og við
nánari eftirgrennslan kom i ljós
að þarna voru á ferð þrir ætt-
liðir, Guðny Matthews dóttir
hennar, Greece og tvær dóttur-
dætur, Kristi og Colleen.
Þær eru allar búsettar i
Winnipeg.
Guðný sagðist ekki hafa
komið hingað áður, og móðir
hennar hefði aðeins verið fjögra
ára er hún fluttist með for-
eldrum sinum vestur. Hún
þekkir enga ættingja hérlendis,
en maður sinn hefði verið eitt-
hvað skyldur Jónasi Hallgrims-
syni. Eina sem hún vissu um
uppruna sinn á tslandi var að
móðir hennar hefði verið úr N-
Þingeyjarsýslu, og faðir hennar
úr Laxárdal.
Guðný sagðist vera mjög
ánægð yfir að vera nú loksins
komin heim, og hlakkaði til að
kynnast landi og þjóð.
Dóttir Guðnýjar, Greece
Willis talaði ekki góða islensku,
og dætur hennar litið sem
ekkert. Greece var hér á ferð i
fyrrasumar, og fór þá m.a. til
Akureyrar, þaöan sem faöir
hennar var, og þar á hún
frænda, Gisla Ólafsson yfirlög-
regluþjón sem hefði verið þeim
mjög elskulegur og ekið þeim
viða um Norðurland.
Kristi og Colleen eru átján og
sextán ára, og sögðust ætla að
nota þennan tima sem þær yröu
hér vel til að læra máliö.
Hópurinn verður hér i einn
mánuð, og dvelur fólkiö ýmist
hjá ættingjum og kunningjum
eða á hótelum.
—AH
„Ég kom hingað árið 1957,
og síðan hef ég alltaf
verið að hugsa um
hvenœr ég kœmist aftur"
Helgi Thompson, bóndi I Manitoba og sonur hans Stanley.
Þrjár kynslóðir: Amman Guöný Matthews, dóttir hennar Greece Willis og dótturdæturnar Kristi og
Colleen Willis, allar búsettar I Winnipeg. Ljósm: Jens.
ekki komið hingað áður,
þá heyrist hvarvetna töl-
uð íslenska er vísismenn
hittu hópinn á Umferðar-
miðstöðinni í gær.
Fyrst hittum við gamla konu
frá Winnipeg, sem kvaðst heita
Anna Halldóra Árnason. Hún
sagðist vera fædd i Kanada, en
foreldrar sinir hefðu verið ættuð
úr Borgarfirði og Skagafirði.
Anna kom hingað i heimsókn
árið 1957, og alla tið siðan
sagðist hún hafa ætlað sér að
koma aftur. Sonur hennar
ætlaði lika að koma, en hann er
tónlistarkennari, og átti ekki
heimangegnt að þessu sinni.
Varla var hægtað heyra það á
Onnu að hún væri ekki borinn og
barnfæddur islendingur, en
börn sin sagði hún að kynnu að-
eins litilsháttar islensku.
Þá hittum við feöga frá Mani-
toba, þá Helga Thompson bónda
þar, og son hans Stanley
Thompson sem starfar viö
mótel i Manitoba. Helgi kvaðst
ætla að hafa upp á einhverjum
skyldmenna sinna hér á Islandi,
en föður sinn kvað hann hafa
verið úr Arnessýslu, en móður
sina úr Skagafirði.
Anna Halldóra Arnason, frá
Winnipeg. Hún kom hingað i
heimsókn árið 1957.
Stór hópur vestur-ís-
lendinga kom til landsins
i fyrradag, bæði ungt fólk
og gamalt. Fæst hafði
það komið til islands
áður, en dreymt um það
árum saman. En þrátt
fyrir að þetta fólk hafði
Hœtt að fjalla um fortíðina og hugað að framtíðinni:
Rekstraráœtlun í undirbúningi
fyrir öll raforkuver í landinu
i undirbúningi er gerð rekstr-
aráætlunar fyrir öll raforkufyr-
irtæki I landinu. Yrði um að
ræða fimm eða jafnvel tiu ára á-
ætlun, að sögn Aöalsteins Guð-
johnsen formanns Sambands is-
lenskra rafveitna.
„Það er núna vinnuhópúr"
starfandi sem meiningin er að
vinni af krafti i sumar”, sagði
Aöalsteinn. „1 haust er ætlunin
að halda ráðstefnu á vegum
Sambands Islenskra rafveitna
og standa vonir til að þá verði til
einhvers konar rekstraráætlun
fyrir öll raforkufyrirtæki I land-
inu. Aö minnsta kosti að veru-
legum áfanga hafi þá veriö náð
við gerð hennar.”
Aðalsteinn minntist á erindi
dr. Jóahnnesar Nordals og
Glúms Björnssonar skrifstofu-
stjóra Landsvirkjunar á fund-
um Sambands islenskra raf-
veitna. En i þeim voru birtar
upplýsingar um mikla greiðslu-
byrði raforkufyrirtækja á land
inu, sem óhjákvæmilega hlýtur
að hafa áhrif á rafmagnsverðiö.
„Hingað til höfum við verið að
fjalla um fortiöina og stöðuna.
Nú verðum við aö gera áætlanir
fyrir framtiðina”, sagði Aðal-
steinn.
Aöalsteinn sagði að nú þegar
væru til rekstraráætlanir fyrir
að minnsta kosti fimm raforku-
ver. Það er Laxárvirkjun,
Landsvirkjun, Rafmagnsveitur
Reykjavikur, Rafveitu Akur-
eyrar og Skeiöfossvirkjun.
—EKG