Vísir - 02.07.1976, Blaðsíða 14
14
Föstudagur 2. júli
1976 viaui
fleyttu
H |||
■Ptfl
„Það er óhætt að segja að
Barbara hafi verið ákaflega
starfsöm. Hún hafði ekki fyrr
lokið verki en hún tók til við
annað” sagði Magnús Árnason
listamaður, er blm. Visis hitti
hann á Kjarvalsstööum, en þar
var nýlega opnuö yfirlitssýning
á verkum Barböru Arnason til
minningar um iistakonuna.
Magnús, eiginmaður Barböru,
og Vffill sonur hennar sáu um
uppsetningu sýningarinnar.
Barbara Árnason fæddist á
Suður-Englandi áriö 1911. Hún
gekk i myndlistarskóla i
Winchester og lauk síöan list-
námi sinu i Royal College of Art
ILondon. Einhverntima á þessu
timabili var hún fengin til að
gera myndskreytingar við end-
ursagnir úr Islendingasögunum
fyrir unglinga. Peningana, sem
henni áskotnaðist fyrir verkiö,
notaði hún til að kosta ferð til Is-
lands. Fljótlega eftir komuna
hingað kynntist hún manni sin-
um, ákvað að setjast að á Is-
landi og starfaði hér þangaö til
hún lést árið 1975.
„Ég vildi ekki
skrifa um nautaatið”
„Við Barbara feröuðumst
mikið saman” sagði Magnús er
viö röltum um sýningarsalinn
og horfðum á myndirnar sem
margar eru málaðar erlendis.
„Tvisvar fórum við til Mexico,
m.a. til að heimsækja Vifil sem
var þar viö nám I arkitektúr.
Þessabók unnum viö siðan ifll
þrjú I sameiningu eftir dvölina
þar” sagöi hann og benti á bók
um Mexico, fagurlega skreytta.
„Barbara gerði myndirnar, um
100 talsins, ég skrifaði meiri-
hlutann af bókinni en Vifill
skrifaði kaflann um nautaatið
þvi að ég gat ekki með nokkru
móti fengið mig til að fjalla um
þá athöfn.”
,,Til Marokko höfum við einn-
ig komið, Ceylon, Iran, Frakk-
lands og Rómar.
Aö sögn Magnúsar lagði Bar-
bara aðallega stund á grafik
framan af, og var hún einn af
brauðryðjendum I þeirri list-
grein hér á tslandi. Seinustu ár-
in byrjaði hún að fást við vatns-
litaþrykk. Einnig fékkst Bar-
bara á timabili við að gera and-
litsmyndir og sagði Magnús
okkur aö það hefði fleytt þeim
yfir kreppuárin.
A sýningunni að Kjarvals-
stöðum eru 175 verk, vatnslita-
myndir, grafikmyndir, vatns-
litaþrykk jur, teikningar,
gouachemyndir, oliumálverk,
veggteppi og skermar. Hún
verður opin til 20. júli. —AHO
Kjarvals-
sýnmgin
opnuð
aftur
Handavinna fró
Feögarnir Magnús Árnason og Vifill Magnússon viö myndina „Sof-
andi feðgar”, sem Barbara teiknaði af þeim á sinum tima.
Sýningunni á verk-
um Jóhannesar S.
Kjarvals hefur nú ver-
ið komið upp aftur að
Kjarvalsstöðum, en
gertvarhléá henni um
nokkurt skeið, m.a.
vegna Listahátiðar.
Myndirnar á sýning-
unni eru allar í eigu
Reykjavíkurborgar og
hefur hún fengið
margar þeirra að gjöf
frá ýmsum aðilum.
Þær eru 75 talsins,
flestar málaðar með
olíulitum. Sýningin
stendur fram í miðjan
ágúst og er opin alla
daga nema mánudaga
frá kl. 16.00-22.00.
— AHO.
„Sól og sumar”, eitt af verk-
um Jóhannesar Kjarvai á
sýningunni á Kjarvalsstööum,
sem nú hefur veriö opnuö aft-
ur eftir nokkurt hlé. — Ljósm.
Loftur.
Norðurlðndunum
Nú um helgina er sið-
asta tækifærið til að sjá
sýninguna i Norræna
húsinu á norrænni
skólahandavinnu, en
henni lýkur á sunnu-
daginn.
IHR
•'•SiiHr
Mörg veggteppi eru á yfirlits-
sýningunni á verkum Barböru
Arnason, mjög sérstæð og fall-
eg.
Andlit
Drifa Jónsdóttir handavinnukennari sýndi okkur m.a. verk eftir
þroskaheft börn og nemendur úr Blindraskólanum, sem eru á
sýningunni. Ljósm. Jens.
Sýningin er haldin I tenglsum
við þing norrænna handavinnu-
kennara og er þetta I fyrsta
skipti að fulltrúar frá Grænlandi
og Færeyjum koma á slikt þing.
Þarna má þvi sjá handavinnu
frá öllum noröurlöndunum.
Viö fengum Drifu Jónsdóttur
handavinnukennara til að
ganga með okkur um sýning-
una. Hún sagði að hér væri um
að ræða sýnishorn af verkum
skólansmenda á ýmsum aldri.
Veriö er að gera tilraun með að
kenna handavinnu i sjö og átta
ára bekkjum og varð ekki annað
séð en að árangurinn af þeirri
tilraun værimjög góöur. Einnig
starfa handavinnukennarar við
kennslu þroskaheftra nemenda i
öskjuhliöarskóla, Skálatúni og
Lyngási og á sýningunni getur
aö lita mörg verk eftir þessa
nemendur.
Framlag Sviþjóöar til handa-
vinnusýningarinnar er helst
fólgið i kennslutækjum ýmiss
konar. Frá Færeyjum ber mest
á heimilisiðnaði, norðmennirnir
eru iðnastir viö vefnaðinn og frá
Finnlandi eru verk eftir nem-
endur á aldrinum frá 17 ára upp
i sjötugt. Má af þessu sjá að
margra grasa kennir þarna i
kjallaranum.
Sýningin er opin um helgina
frá kl. 14.00-22.00.
—AHO
SÝNINGAR
Listasafn tslands:
Sýningin á verkum
Hundertwasser er opin
daglega frá kl. 2-10.
Kjarvalsstaðir:
Sýning á verkum Jó-
hannesar S. Kjarval. Minn-
ingarsýning um listakon-
una Barböru Arnason.
Norræna húsið:
Handavinnusýning „nor-
ræn skólahandavinna” i
kjallaranum. Hún er haldin
i tengslum viö norrænt
handavinnukennaraþing.
Forsalur Þjóðminjasafns-
ins:
Sýningin „islenskar út-
saumagerðir”.
BÖLLIN
Hótel Saga:
Hljómsveit Arna ísleifs og söng-
konan Linda Walker skemmta i
Súlnasal föstudag og laugardag,
en Lækjarhvammi og Atthafa-
sal sunnudag.
Hótel Borg:
Hljómsveit Hauks Mortens
skemmtir um helgina.
Klúbburinn:
Hljómsveit Gissurar Geirs og
Lena föstudag og laugardag.
Sunnudagur: Eik og diskótek.
Röðuli:
Stuðlatrió leikur föstudag og
laugardag.
Tjarnarbúð:
Hljómsveitin Kabarett
skemmtir á föstudag og Circus
á laugardag.
Lindarbær:
Gömlu dansarnir. Hljómsveit
Rúts Kr. Hannessonar og Jakob
Jónsson skemmta.
Skiphóll:
Hljómsveit Birgis Gunnlaugs-
sonar skemmtir.
Sigtún:
Pónik og Einar skemmta föstu-
dágs- og laugardagskvöld.
Drekar leika fyrir gömlu döns-
unum á sunnudagskvöld.
Glæsibær:
Asar leika um helgina.
Leikhúskja Ilarinn:
Skuggar skemmta um helgina.
Sesar: —Diskótek.
óöai: — Diskótek.