Vísir - 02.07.1976, Page 23
p
V
Fáum við íþróttafréttir í út-
varpinu frá ólympíuleikunum?
9556-4488 hringdi:
Ég var að heyra það i út-
varpinu áðan (fimmtudag) aö
Rikisútvarpið ætlaði að senda
fréttamann á ólýmpiuleikana I
Montreal. Mér finnst þetta
skjóta svolitiö skökku við, þar
sem ekki hafa verið iþrótta-
fréttir i langan tima og þaö af-
sakað með þvi að vegna yfir-
vinnubannsins væri það ekki
hægt.
Mér finnst það skrýtið ef hægt
er að senda fréttamanninn á
ólympiuleikana, þvi óliklegt er
að ekki verði um neina yfir-
vinnu að ræða þar.
Ekki efa ég að Jón Asgeirsson
eða annar fréttamaður iþrótta
hafi áhuga á þvi að fara á
olympiuleikana, en heldur
finnst mér lélegt ef það veröur
gert i yfirvinnubanni þannig að
maður fái eingöngu erlendar
iþróttafréttir á meöan maður er
sveltur á þeim innlendu.
tBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBB
mna
MMBBBBBBBBBBBBBBBB
Eru störf verkfrœðinga
hjá borginni þau einu
sem þeir
Hallgrimur hringdi:
Ég hef undanfarið reynt að
fylgjast með kjaramálum verk-
fræðinga hjá borginni en eins og
ljóst er af fréttum, sérstaklega
úr Visi, hafa þeir að undanförnu
verið i hverju skæruverkfallinu
af fætur öðru. Nú er meira að
segja svo komið að hugsanleg
minnkun á vinnu i byggingaiðn-
aði er fyrir dyrum ef ekki verð-
ur gripið i taumana og málin
lagfærð.
■ Undanfarið hafa tve'ir verk-
fræðingar, þeir Þráinn Karlsson
og Hallgrimur Sandholt verið i
verkfalli og jafnframt fylgst
með þvi að aðrir starfsmenn
borgarinnar vinni ekki þeirra
verk, en það er að samþykkja
teikningar.
Ekki veit ég hversu flókið
verk það er að yfirfara teikning-
ar og samþykkja þær, en flest
hús sem i smiðum eru, eru það
svipuð að einfaldur samanburð-
ur á eldri teikningum og nýjum
ætti að nægja til að sjá sæmi-
lega, hvort viðkomandi teikning
sé nægileg eða ekki. Það er hins
vegar ansi hart, ef tveir menn
geta stöðvað byggingaiðnaðinn
með verkföllum og þar með
svipt marga iðnaðarmenn at-
vinnu sinni og gjörbreytt áætl-
unum þorra þeirra sem eru að
byggja og hafa jafnvel treyst á
ákveðinn byggingahraöa.
Astæðan fyrir þessum verk-
föllum er sú að mennirnir vilja
hærra kaup, halda kaupi sinu i
sama hlutfalli við það sem verið
hefur hjá verkfræðingum á
verkfræðistofum. Þetta er e.t.v.
sanngjörn krafa, en henni verð-
ur að halda til streitu á annan
hátt.
Það eru ekki þvilik verðmæti i
húfi að þessir menn geti leyft
sér þann munað að útrýma
byggingariðnaðinum á nokkr-
um vikum.
Auk þess er ekki loku fyrir
það skotið að sumir verkfræð-
ingar innan borgarkerfisins hafi
sérstaka aðstöðu til að sinna
verkfræðistörfum fyrir einstaka
aðila úti i bæ og nota til þess
verkfæri borgarinnar og vinnu-
tima sinn hjá henni.
Áður en gleypt verður við
kröfum þessara manna væri
réttast að athugun færi fram á
þvi, hvort þeir hafi ekki ágætis
rauntekjur, án þess aö leggja
ákaflega mikið á sig utan venju-
legs vinnutima sins.
Tollskyldur
gjofopakki?
Sveinn Andrésson hringdi:
,,Ég fékk nýlega sendar þrjár
hljómplötur frá systur minni i
Sviþjóð. Þegar ég fór niður á
Toll til að leysa þær út, kom I
ljós að ég þurfti aö greiða 7000
þúsund islenskar krónur fyrir
varninginn, en andvirði hljóm-
platnanna er 150 krónur sænsk-
ar eða 6200 krónur islenskar.
Mér fannst þetta mjög hátt
gjald og benti tollmanninum á
að ég gæti fengið þessar plötur
fyrirsama verö, jafnvel ódýrari
i hljómplötuverslunum hér. Þá
sagði maðurinn mér aö það væri
i lögum að ekki mætti senda
dýrari gjafir tollfrjálsar til ís-
lands en þrjú þúsund krónu
virði, annars væru þær orðnar
tollskyldar.
Mér er spurn: Er þetta rétt?
Ef svo er, hversu lengi hefur þá
verið miðað við þrjú þúsund
króna markið?
FYLGIR BLAÐINU
ÓKEYPIS Á MORGUN
FRJÁLS VERZLUN
Kaupendur Frjálsrar verzlunar, mest lesna sérrit lands-
ins, lásu í siðasta hefti viðtal við Úlfar Jacobsen, ferða-
málaf römuð, og annað séref ni um f erðamálin. Þeir gátu
einnig valið um 40 aðrar greinar langar eða stuttar. Þær
fjölluðu m.a. um viðskipti innanlands og utan, athafna-
lifið á Sigluf irði, um ferðalög og ferðavörur, sem eru á
markaði hérlendis.
Síðast en ekki sízt var gerð grein f yrir hótelum og gisti-
aðstöðu alls staðar á landinu utan höfuðborgarinnar.
Gerist áskrifendur. Frjáls verzlun er eingöngu seld í á-
skrift.
Áskriftarverð kr. 395.- í ,
------------------rv 82300
Til Frjálsrar verzlunar, Laugavegi 178 pósthólf 1193, Rvik.
Óska eftir áskrift.
Nafn
Heimilisfang
■FRJÁLS VERZLUN.