Vísir - 15.08.1976, Page 13
VISIR Sunnudagur 15. ágúst ia76
13
(Umsjón: Helgi þ7|
Friöjónsson. J
--------y------—^
Talsvert hefur borið
á því að lesendur Visis
liti undrunaraugum
framlag einstakra
listamanna hér á sið-
unni og hefur þeim þótt
skorta upplýsingar eða
skýringar með
myndunum. Um-
sjónarmaður þáttarins
leitaði til Nielsar Haf-
steins myndlistar-
manns og gagnrýnanda
og bað hann um að
segja álit sitt á verki
dagsins, og fer það hér
á eftir:
„Mynd Birgis Andréssonar
tilheyrir þeirri myndlistar-
Bi/t6-íe WOféSSOAi /?< BÆOCh'* /955.
h/>4//v /vbwb . w/ó w ' My/fot- tsr/)
06- H/>/VOiB/9S*ós.4 TsíWOST -/‘17&) oc.
sirv/e n/ú //c/xvS/P&t/* / ffi //voy/)//s//v!/i ///u
H/9/HfV?//ií/5 /7 /f/SyW/ty//f.
Náttúruspjall
stefnu sem kallast Conceptu-
al-art e&a hugmyndafræöileg
list. Sú ste&ia byggist fyrst og
fremst á hugsuninni, einfaldri
hugmynd i einföldum lokabún-
ingi: ljósmynd eöa annarri
tækni. Til nánari skyringar skal
upplýst aö Conceptual list getur
veriö hvort tveggja: andartaks-
hugsun eöa stórvirkt sjónarspil
unniö meö þungavinnuvélum,
hugsun þvert i gegnum jöröina
eöa umbreyting náttúrunnar
(landslagslis t/Earth-W orks).
En svo aftur sé vikiö að mynd
Birgis Andréssonar og hún
skoöuö nánar, þá væri kannski
einfaldast aö nálgast hana fyrst
eftir klassiskum leiöum, huga
að byggingu hennar og niður-
rööun atriöa:
1. skipting i ljósa og dökka
fleti þ.e. himin og jörö, — en sú
skipting er nokkurn veginn I
gullinsni&i, (fagurfræ&ilegu
hlutfalli sem ekki gefst rúm til
að skýra nánar).
2. Skálína frá vinstra homi aö
ne&an upp til hægri, sem skiptir
dökka partinum í ja&iar eining-
ar.
3. Tveir bjartir fletir, annar
lárettur, hinn skáhallur.
4. Tveir áherslupunktar:
steinninn og rofabarðið.
5. Sveigð lina rofabarösins og
kúpt lina steinsins.
Þaö skal tekiö skýrt fram aö
þessi atriði hafa ekkert meö úr-
vinnslu hugmyndarinnar aö
gera þótt þau auki á þokka
verksins.
Hvaö er listamaðurinn aö
gera, spyrja menn. Hér er kom-
iö aö kjarna málsins innihaldi
myndarinnar: myndhugsun-
inni. Listamaðurinn blæs inn-
undir rofabaröiö, væntanlega á
sama hátt og vindurinn gerir.
Hann er með öörum or&um
náttúruspillir! Hugmyndafræö-
in felst i þessari einföldu athöfn:
að leika hlutverk vindsins. Auö-
vitaö er ekkert tjón unniö (þaö
þyrfti stærri fýsibelg til þess!),
en atferli listamannsins er
bending til unnenda náttúrunn-
ar og þeirra sem láta sitja viö
oröin tóm, ekki listin fyrir list-
ina, heldur pólitiskt innlegg i
mál er varöar þjó&ina alla.”
LUCKY SÓFASÉTT
VERD FRÁ: 180.000 KR.