Vísir


Vísir - 03.11.1976, Qupperneq 3

Vísir - 03.11.1976, Qupperneq 3
VISIR Miðvikudagur 3. nóvember 1976. 3 Eins og sjá má á myndinni sem tekin var á Alþingi I gær var fjöl- mennt mjög þangaö vegna afhendingar undirskriftalistanna. Auk þeirra sem voru á pöllum stóð mikill fjöldi i stigunum. Ljósmynd Vísis Loftur 12 þús. og 500 mótmœltu bráða „Það voru alls 12þúsund og 500 sem skrifuðu undir alls staðar aö af landinu. Þar af voru tvö þús- und sjómenn”, sagði Sigurpáll Einarsson skipstjóri i Grindavík og einn forystumaður þeirra sem staöið hafa að undirskriftasöfn- unum gegn bráðabirgðalögunum, þegar Vísir hitti hann i gær eftir að undirskriftalistarnir höfðu verið afhentir Asgeiri Bjarnasyni forseta Alþingis. „Þetta sýnir að þátttakan var viða mjög góð”, sagði Sigurpáll. „Við verðum að hafa i huga að viða var þátttakan ekki mjög veruleg, þar sem söfnun undir- skriftanna var ekki nógu vel skipulögð”. Sigurpáll sagði að farið hefði verið yfir listana sem borist hefðu. Voru þeir flokkaðir eftir bátum og skipum og fundið Ut hve þátttakan hefði verið mikil á hverju skipi. „A mörgum stöðum var þátt- takan 100 prósent. Til dæmis á Súgandafirði og Eskifirði”. Sigurpáll sagði að telja mætti, að núna væru um það bil 3000 sjó- menn skráðir, þar af væru kannski um eitt þúsund sem ættu i bátum. Mikill fjöldi var saman kominn á þingpöllum i gær. Að sögn Sigurpáls voru nemendur úr Stýrimannaskólanum og Vél- skólanum og fleiri. Sagði hann ekki alla sem vildu hafa komist inn. Klukkan 141 gær voru umræður utan dagskrár. Sighvatur Björg- vinsson alþingismaður hóf um- ræðurnar og fjallaði um bráða- birgðalögin. — EKG ,Ekki hugmyndin að stofna til aukakostnaðar' — segir forstöðumaður Bifreiðaeftirlitsins um hugsanlegar númerabreytingar „Þær töiur sem ég var með f ræðu minni voru gerðar eftir nákvæma athugun hag- ræðingarstofnunar”, sagði Guðni Karlsson forstöðumaður Bifreiöaeftirlitsins þegar Visir innti hann áiits á viðbrögöum FtB á ræðu þeirri sem hann flutti á þingi félagsins um sið- ustu helgi. Guöni sagði að talið væri að sparnaðurinn sem hlytist af þvi að breyta númerakerfinu yröi hjá Bifreiöaeftirlitinu einu um 30 milljónir á ári. Er þá miðaö við 22 þúsund umskráningar. „Þeir tala um að útgjalda- aukning yröi um 600 milljónir vegna nýs húsnæðis er hlytist af númerabreytingunum. í ræðu minni á landsþingi FIB sagði ég aöþað myndikosta 580 milljónir að byggja yfir stofnunina víðs- vegar um landið. Það er alveg óháð og óskylt númerabreyting- unni.” Þá sagði Guöni FtB halda þvi fram að ósamræmi væri á milli talna sem Bifreiðaeftirlitið gæfi upp. Hann benti hins vegar á að það væri ekki Bifreiðaeftirlitið sem áætlaði tekjur til fjárlaga sem til kæmu vegna umskrán- inga. Varðandi kostnað er hlytist af þvi að kaupa þyrfti ný númera- spjöld vegna breytinganna sagði Guðni, að alltaf heföi verið hugmyndin að skipta aðeins um númer þegar menn kæmu til að láta umskrá. Alls ekki hefði ver- ið ætlunin aö skipta um öll númerin i einu. Hugmyndin væri ekki sú að stofna til auka- kostnaðar. „Það verður aö fara með rétt- ar tölur”, sagði Guðni ennfrem- ur. „Burtséð frá þvi hvaða skoðanir menn hafa á númera- kerfinu”. —EKG Litas jón varpssmyglið: I i / ITl A n AA rÆ Nl Kl 1 Ákvœði i hegningarlögum gilda um refsingu þeirra, er keyptu tœkin, en ekki ný ókvœði í lögum um tollheimtu og tollgœslu Litasjónvarpssmygiið er nú að mestu fullrannsakaö og verð- ur málið á næstunni sent rikis- saksóknara til meðferðar. Tækin voru öll flutt til lands- ins i einum gámi i byrjun febrú- ar sl., en þau reyndust hafa ver- ið 29 talsins. Að sögn Þóris Oddssonar aðalfulltrúa hjá Sakadómi Reykjavikur áttu nokkurn veginn jafnmargir menn hlut að málinu og tala sjónvarpstækjanna segir til um. Aðild þessara manna hefði verið mismikil og hefðu þeir ekki allir vitað um yfirgrip málsins. Allir hefðu þeir þó lagt fram andvirði tækjanna fyrir- fram. Siðan smyglið átti sér stað hefur verið gerð sú breyting á lögunum um tollheimtu og toll- gæslu að kaup á smyglvarningi voru gerð ólögmæt. Samkvæmt lögunum, sem sett voru 31. mai sl„ er refsivert að kaupa eða veita viötöku vörum sem eru smyglaðar, enda viti viðtakandi eða megi vita aö þær séu ólög- lega innfluttar. Fram að þeim tíma var refsi- vert samkvæmt hegningarlög- um að eiga hlutdeild i smygli. Aðild taldist þar t.d. ef viðkom- andi hafði fengið hluta af varningnum. 1 áfengislögunum hefur hins vegar alltaf verið refsivert að kaupasmyglað áfengi. Lög virka ekki aftur fyrir sig og gilda þvf hegningarlögin i þessu smyglmáli. Hins vegar er ekki vist að það breyti miklu, þar sem tækin voru greidd fyrirfram. _SJ Mikill áhugi á fjölbrautaskóla á Akranesi ,,Á þessum fundi kom fram mikill áhugi á þvi að fjöl- brautarskólakerfi á vesturlandi verði settur upp, þar sem að- staða yfir sköpuð fyrir allt að 4 ára framhaldsnámi á Akranesi og möguleikar yrðu skapaðir fyrir styttri áföngum 1 öðrum byggðarlögum.” Þetta sagði Þorvaldur Þor- valdsson fræðslufulltrúi, for- maöur undir búningsnefndar fyrir fjölbrautarskóla á Akra- nesi, er við spuröum hann um niöurstöðu ráðstefnu um fjöl- brautarskóla á Akranesi, sem haldin var um siðustu heígi. Fundur þessi var i gagn- fræðaskólanum á Akranesi og sóttu hann um 80 manns Voru það skólanefndir, kennarar og áhugafólk um þetta mál viðs- vegar aö af vesturlandi — sunn- an Skarðsheiðar. Þorvaldur sagði að á fundin- um hefði ko'Kiið fram brýn þörf fyrir heimavistaraðstöðu á Akranesi i þessum tilgangi. Einnig heföi komiö fram mikill áhugi á samræmdu námi i framhaldsskólum á vesturlandi, þannig að nemendur geti auö- veldlega skipt um skóla. A ráðstefnunni fluttu ýmsir skólamenn framsöguerindi. Sið- an var þátttakendum skipt i vinnuhópa sem skiluðu áliti og báru fram fyrirspurnir. Tókst ráöstefna þessi mjög vel og var bæöi fróöleg og gagnleg fyrir alla sem hana sóttu. KLP/BP Akranesi. SKARÐSVÍK LEIGÐ TIL LOÐNULEITAR Hið landskunna afiaskip Skarðsvlk frá Rifi hefur verið leigt til ioðnuleitar. Veröur skipið I leitinni á vegum Haf- rannsóknarstofnunar fram eftir haustinu, að sögn Jóns Jónsson- ar_forstjóra Hafrannsóknarstof- unnar. Jón sagði að nauðsynlegt hefði verið að fá skip leigt til loðnuleitar. Rannsóknarskipið Arni Friðriksson er nú í slipp. Þarf að skipta um tvær eða þrjár plötur i honum. Ennfrem- ur þarf að gera eitthvað við i vél. Bjarni Sæmundsson mun einnig verða i viðgerð. Þriðja vél skipsins þarfnast viögerðar áöur en skipið heldur til tog- veiða eöa annarra veiða sem kalla á mikinn vélakraft. Andrés Finnbogason hjá loðnunefnd sagði viö Visi i morgun aö stormur væri á loðnumiðunum sem stæði. Oll loðnuskipin eru i höfn. —EKG

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.