Vísir - 03.11.1976, Page 4
^ Miðvikudagur 3. nóvember 1976. V AOAA
1
REÐUST Á SJO BÚÐ-
IR BLÖKKUMANNA
í MOZAMBIQUE
Vænst er i dag yfirlýs-
ingar ródesiustjórnar
um „eftirreið” her-
flokka Ródesiu inn i
Mozambique, þar sem
nokkur hundruð skæru-
liðar eru sagðir hafa
verið felldir.
Haft er eftir heimildum innan
öryggissveita Ródesiu, aö her-
flokkarnir hafi ráöist á sjö flótta-
mannabúöir handan landamær-
anna i hefndarskyni fyrir tiöar
árásir skæruliöa inn i Ródesiu.
Frá Mozambique berast þær
fréttir, aö bardagar standi enn
yfir og séu hinir áköfustu. Herma
þessar fréttir, aö ródesiuher-
flokkarnir beiti brynvögnum,
stórkostaliöi, riddaraliöi og her-
flugvélum.
Ródesiuyfirvökd hafa varist
allra frétta af þessari árásarferö,
en menn geta sér til um, aö fjöl-
mennt herliö hljóti aö hafa veriö
sent yfir landamærin fyrst árásir
voru gerðar á sjö flóttamanna-
búðir, þar sem skæruliðar hafa
haft bækistöðvar.
Ródesiumenn telja sig hafa
orðið vara við mannsafnað
skæruliöa viö landamæri Mozam-
bique og ráða af þvi, að skærulið-
ar hafi búið sig undir hertar að-
geröiryfir regntimann, sem er aö
fara I hönd. — Þykir sennilegt að
herinn hafi viljað höggva skörð I
raðir skæruliöa áöur en regntim-
inn hæfist.
Nýju diplómatarnir
stungu af frá árekstri
Hiti í stjórn-
málum Jamaica
Edward Seaga, leið-
togi stjórnarandstöð-
unnar i Jamaica, og
Hugh Sheares, fyrrum
forsætisráðherra, sættu
skotárás, þegar þeir óku
i bilalest framhjá aðal-
skrifstofum stjórnar-
flokksins i Kingston.
Skotið var á þá af haglabyss-
um, en meðan þeir báöir sluppu
ómeiddir, uröu tiu menn fyrir
höglum, sem stóðu þeim nær.
Fylgdarmenn þeirra flæmdu
skotmennina burt, en múgurinn,
gripinn ofsabræöi, kveikti í aðal-
skrifstofunum.
Loft er lævi blandaö á Jamaica
og hefur margsinnis komið til á-
taka á stjórnmálafundum. Búist
er við þvi, að efnt veröi til kosn-
inga 21. desember, og er kosn-
ingaskjálfti farinn að gripa um
sig, en báöir flokkar hafa byrjað
kosningaundirbúning sinn.
Skólar opnaðir í Thailandi
Stúdentar sjást hér á leiö I Chulalonkorn-háskólann I Bangkok, en skólar í Thailandi hafa loks veriö
opnaöir til kennslu aö nýju, eftir aö þeim haföi veriö lokaö í kjölfar deiröanna snemma I síöasta mán-
uöi.
Búist haföi veriö viö óeiröum á mánudaginn, þegar skólarnir voru opnaöir, og haföi lögreglan
fyrirmæli um aö gripa til skotvopna, ef til átaka kæmi. Allt fór þó friösamlega fram.
Þrir n-kóreu-dipló-
matar, sem nýlega
komu til Kaupmanna-
hafnar að leysa af
hólmi fyrirrennara
sina, sem bendlaðir
höfðu verið við smygl
og sprúttsölu, hafa nú
verið kærðir.
Miðaldra prentari segir, aö
þeir hafi ekiö á hann, þar sem
hann var á ferð á bifhjóli á miö-
vikudag I siðustu viku. Höfðu
þeir ekið yfir gatnamót gegn
rauöu ljósi.
Hann segir, að þeir hafi stigið
út úr bifreiðinni og gengið að
honum, þar sem hann var liggj-
andi I götunni. Hann segir, að
þeir hafi engu sinnt beiðni hans
um læknisaðstoð, heldur ekið
burtu og skilið hann eftir.
Maðurinn liggur á sjúkrahúsi.
Hann fékk heilahristing og er
hálflamaður á hægri fæti.
VERKFALLSOEIRÐIR i
MADRID
Fullkomin ringulreið
rikti i Madrid i gær frá
þvi snemma morguns og
fram yfir hádegi, þegar
kom til átaka milli lög-
reglu og þúsunda verk-
fallsmanna.
Þetta var sjötti verkfallsdagur-
inn hjá strætisvagnastjórum, sem
krefjast hærri launa, en i fyrsta
sinn þessa verkfallsviku sem
kemur til átaka við lögregluna.
Verkfalliö hefur breiðst út frá
aðalmiðstöö almenningsvagna I
norðurhverfunum til stóru'
verslunarhverfanna i miöborg-
inni.
Sýndu sendifulltrúa
íran banatilrœði
Hryðjuverkasamtök
marxista hafa lýst á
hendur sér banatilræði,
sem diplómat frá íran
var sýnt i Paris i gær-
kvöld. Þegar tveir
menn á bifhjóli særðu
hann þar sem hann var
að koma heim frá
vinnu.
Þetta er sjötta banatilræðið,
sem erlendum sendifulltrúa er
sýnt i Frakklandi undanfarin
tvö ár. — „Alþjóðleg samtök”
marxiskra hryðjuverkamanna,
sem kenna sig við skæruliða frá
íran, segjast bera ábyrgð á
þessum tilræðum.
Menningarfulltrúinn við
sendiráð Irans i Paris lá i nótt
þungt haldinn á sjúkrahúsi, þvi
að hann hafði orðið fyrir tveim
skotum. —Lögreglumaður, sem
reyndi að stöðva bifhjólamenn-
ina, fékk byssukúlu i mjöðmina.
Tilræðismennirnir sluppu þar
sem þeir áttu auövelt með að
smeygja sér á milli bifreiða i
umferðarösinni.
Fjölbreytt
framboð
A meðan allra augu beinast
að forsetakosningunum og
frambjóðendum flokkanna,
hverfa i skuggann ýmis spútn-
ik-framboð i þingkosningun-
um.
Þar kennir ýmissa undar-
legra grasa. Einn býður sig
fram undir merki flokks, sem
hefur fyrir slagorð: ,, Allir
pólitikusar eru glæpamenn”.
Aðrir eru til dæmis „Bann-
lagaflokkurinn”, sem vill
beita sér fyrir áfengisbanni,
, .Sameiningarflokkurinn ’ ’,
„óháðir”, sem vilja „guðlega
rikisstjórn”, „Friðar- og
frelsisflokkurinn” og „Veröir
óháðra skattgreiðenda”.... svo
að nokkrir séu nefndir.