Vísir - 03.11.1976, Síða 14

Vísir - 03.11.1976, Síða 14
14 Miövikudagur 3. nóvember 1976. HVERNIG ER DÓMSTOLA- KERFIÐ BVGGT UPP! Ilrafn Bragason borgardóm- ari hefur nýlega birf f Úlfljófi blaði laganema grein um dóm- stólaskipunina. Grein sú sem hér fer á eftir er hluti úr þessari ritsmiöog greinir frá dómstóla- kerfinu eins og þaö er nú og sögulegum aödraganda þess. Dómstóll er almennur, ef hann hefur heimild til að fara með öll mál, sem ekki eru sér- staklega skilin undan lögsögu hans. Dómstóll er sérdómstóll, ef hann hefur aðeins heimild til þess að fara með þau mál, sem sérstaklega hafa verið lögð til hans með lögum. Hér verður aðallega fjallað um almennu dómstólana, og hvernig þeim er fyrir komið i þjóðskipulaginu. Bæjarþing, manntals- þing og aukadómþing Bæjarþing eru haldin a.m.k. vikulega á ákveönum timum i öllum hinum 21 kaupstað lands- ins, sbr. 38. gr. eml., og þau eru hinn almenni dómstóll þar. Kallað er, að hver kaupstaður sé sérstök dómþinghá, sbr. 72 gr.eml. Hverhinna 205hreppa i landinu er einnig sérstök dómþinghá. 1 þeim skal eftir 38. gr. eml. halda manntalsþing til meðferðar dómsmála einu sinni á ári. I reynd eru dómsmál ekki tekin fyrir á manntalsþingum, enda eru þau nú sjaldnast til annars haldin en uppfylla i orði hin ýmsu fyrirmæli um þennan foma sið. 1 sömu gr., þ.e. 38. gr. eml., segir, að i hreppum skuli auk manntalsþinga heyja auka- dómþing, þegar þörf gerist. Aukadómþingin eru ekki kennd við hreppana heldur lögsagnar- umdæmin. Eins og sjá má á yfirlitinu hér að framan er yfirleitt talað um fógeta-, uppboðs- og skiptadóma sem almenna dómstóla, en ekki sem sérdómstóla, enda er verk- svið þeirra takmarkað af viss- um tegundum dómsathafna, en ekki af takmörkuðum flokkum mála eftir efni. Sáttanefndir hafa heimild til að úrskurða mál i vissum tilvikum og er því eðli- legt að telja þær til dómstóla, en á hinn bóginn verður að hafa i huga, að mikill hluti starfa nefndanna flokkast ekki undir dómstörf. Sakadómur Sakadómur er i öllum lög- sagnarumdæmum landsins. Verkaskipting hans og hinna al- mennu dómstóla i einkamálum fer eftir 1. og 2. gr. laga nr. 74/1974. Sakadómur fer með opinber mál, en til þeirra teljast skv. 1. gr. laganna þau mál, sem handhafar rikisvaldsins höfða til refsingar lögum samkvæmt. Skv. 2. gr. teljast ýmis tiltekin mál einnig opinber mál, þ.á.m. mál út af lögræðissviptingu og vissar rannsóknir á slysum og öðrum óförum. Hinir almennu héraðsdómar starfa i lögsagnarumdæmum landsins. Þau eru nú alls 39, þ.e. 18 sýslur, 21 kaupstaður og Keflavikurflugvöllur. Almennu héraösdómararnir eru starf- ræktir af sýslumönnum og bæjarfógetum og fulltrúum þeirra. Sama stofnun starfrækir stundum fleiri en eitt lög- s a g n a r u m d æ m i, sbr. sýslumaðurinn i Gullbringu- sýslu er jafnframt bæjarfógeti i Keflavik, Grindavik og Njarð- vik. A siðustu árum hafa verið stofnuð sérstök, sjálfstæð héraðsdómaraembætti við stærstu sýslumanns- og bæjar- fógetaembættin, á Akureyri, Hafnarfirði Keflavik og Kópa- vogi, og heimild er til stofnunar sliks embættis í Vestmannaeyj- um. Auk starfrækslu héraðs- dómsmanna hafa sýslumenn og bæjarfógetar með hóndum umfangsmikil stjórnsýsluverk- efni, svo sem lögreglustjórn, tollgæslu og innheimtu tolla og annarra gjalda til rikissjóðs, notarialgerðir, yfirfjárráð, o.fl. Þeir eru einnig umboðsmenn Tryggingarstofnunar rikisins hver i sinu umdæmi. Þá hafa embættismenn þessir með höndum viss sveitarstjórnar- málefni utan kaupstaðanna, sjá hér lög nr. 58/1961 IV. kafla. Sýslumaður er t.d. oddviti sýslunefndar. Það var svo kom- ið, að fulltrúar sýslumanna og bæjarfógeta voru orðnir aðal- héraðsdómararnir, og erfiðustu dómaraverkefnin lentu þá á elstu fulltrúunum. Með nýju dóm araem bættunum , sem stofnuð voru 1972, hefur þetta mikið breyst. Skiptin i Reykjavik I Reykjavik skiptast störf þau,sem sýslumanns- og bæjar- fógetaembættin sinna utan Reykjavikur á milli margra stofnana. Dómaraverkin eru aöailega unnin á Borgar- dómaraembættinu, Saka- dómaraembættinu og Borgar- fógetaembættinu. Borgar- dómaraembættið er nú starf- rækt af 10 borgardómurum og þremur fulltrúum, Saka- dómaraembættið af 6 saka- dómurum og fjórum fulltrúum og Borgarfógetaembættiö af sex borgarfógetum og niu fulltrú- um, að þvi er mér telst til. Sjá hér nánar 1. nr. 74/1972 um skip- an dómsvalds i héraði, lögreglu- stjórn, tollstjórn o.fl. Sérstökum sjálfstæðum dómaraembættum við hlið forsvarsmanna stofn- ana þessara var fyrst komiö á 1962, og þeim var fjölgað um leið og embætti héraðsdómara utan Reykjavikur voru stofnuð 1972. Það eru þessir embættis- dómarar, sem sinna flestum meiri háttar dómaraverkum hérlendis eins og nú er komið málum, meðan sýslumenn sinna að mestu stjórnsýsluverk- efnum. Sjálfstæði þessara dóm- ara er auðvitað óvéfengjanlegt lögum samkvæmt, en hjá almenningi og jafnvel ráðuneyt- um eimir enn eftir frá eldra skipulagi, og er þannig stundum haldið, að forstöðumaöur embættis hafi annað og meira vald yfir þessum dómurum en að skipta með þeim verkum. Umsjónarskylda yfir- dómara T.d. verður að telja, að for- stöðumaður dómaraembættis geti ekki án samþykkis dómara tekið afvhonum dómsmál, sem honum hefur verið fengið i hendur. Fari stofnun auk dóm- starfa með einhver stjórnvalds- málefni, er þó um að ræða um- sjónarskyldu forstööumanns með þeim verkum. 1 Reykjavik heyrir það til undantekninga, að embættisdómara séu falin slik störf, enda um fá slik störf að ræða við þær stofnanir, þar sem aðallega er farið með dómsvald. Sjá hér 9. gr. 1. nr. 74/1972. Sjá einnig 1. nr. 60/1972, 43. gr., en þarerekki gert ráð fyrir þvi, að borgardómarar, aðrir en yfir- borgardómari, fari með skilnaðarmál, en það eru nær einu stjórnvalsverkefnin sem Borgardómi Reykjavikur eru falin. Samkv. 18. gr. sömu laga mega borgardómarar hins veg- ar framkvæma hjónavigslur, enda má segja að slik störf sam- rýmist betur öðrum störfum þeirra. Umdæmaskipan landsins hvilir á gömlum merg. 1 öðrum sáttmála íslendinga við Hákon gamla Noregskonungfrá 1263 er sýslumanna fyrst getið hér á landi. 1 sáttmála þeim, sem gerður var árið 1264 og kallaður hefur verið Gamli sáttmáli er svohljóðandi ákvæði um sýslu- menn: „Item að islenzkir séu lögmenn og sýslumenn hér á landinu af þeirra ætt, sem að fornu hafa goðorðin uppgefið”. I fyrsta sáttmálanum frá 1262 var ákvæðið ekki. Hugsanlegt er talið, að ákvæðið hafi verið sett inn til þess aö sætta goðana við gegn loforði um sýsiumennsku eða lögmennsku. 1 Jónsbók 1 er landinu skipt niður i þing, sem i verulegum atriðum er eins og sýsluskipun sú, sem komst á i landinu siðar. Hreyfa má þeirri skoðun, að sýslu- mennirnirséu arftakar goðanna og þingin samkvæmt Jónsbók arftakar gömlu vor- og leiðar- þinganna. Við getum þvi með nokkrum rétti sagt, að lög- sagnarumdæmin séu þjóð- veldistimafyrirbrigði, og þegar skipting landsins i hreppa er það einnig. en hver hreppur er ein dómþinghá i einkamáli, má segja að umdæmaskiptin lands- ins hafi verið lifseig. Störf sýslumanna skv. Jónsbók voru i nokkru frábrugðin störfum að afhenda konungi goðorðin þeirra nú. En þeir höfðu þá sem nú á hendi löggæslustörf, dóm- störf og innheimtustörf auk þess, sem þeir höfðu afskipti af sveitarstjórnarmálum. Tvö dómstig Framan af Jónsbókartimabil- inu virðast umdæmi sýslu- manna hafa verið nokkuð á reiki. Einn sýslumaður gat haft fleiri en eina sýslu eða þing. A seinni hluta timabilsins, um miðja sautjándu öld virðist komin meiri festa á þessi efni og sýsluskipunin hefur þá færst mjög i það horf, sem nú er orðið. Eftir lögtöku Jónsbókar 1281 voru dómstig að jafnaði tvö i veraldlegum málum, héraðs- dómur og lögrétta, en málum mátti siöan skjóta til konungs. Arið 1314 var einnig heimilað að skjóta stórmálum beint til hans. Héraðsdómur var skipaður sex eða tólf mönnum, sem Sýslumaður sat ekki sjálfur i dómi, en oft er þess getið, að hann hafi samþykkt dóma. Sakamál rannsökuðu sýslu- menn, og þeir framkvæmdu ýmis störf til undirbúnings sjálfum dómstörfunum, og má ætla, að iraun hafi þeir oft ráðið mestu um úrslit dómsmála. Héraðsdómunum mátti siðan áfrýja til lögréttu. I lögréttu áttu sæti þrjátiu og sex menn, þrir úr hverju þingi, en þau voru tólf. 1 hverju máli dæmdu ýmist sex, tólf eöa tuttugu og fjórir menn. Voru þeir tilnefndir af lögmönnum úr hópi lögréttu- manna. Arið 1563 var ákveðið að stofna nýjan dómstól og skyldi mega skjóta til hans málum frá lögréttunum. Þessi dómstóll, yfirrétturinn starfaði á Alþingi eins og lögrétturnar og var æðsti umboðsmaöur konungs á landinu forseti hans. Dómendur voru i upphafi tuttugu og fjórir, en þeim fækkaði á átjándu öld. Norsku lög Kristjáns V Snemma á átjándu öld leystu réttarfarsreglur Norsku laga Kristjáns V. frá 1688 reglur Jónsbókar af hólmi. Nefndar- dómarnir, sem fyrirmæli eru um i Jónsbók, voru lagðir niður, en yfirrétturinn starfaði áfram. I héraði urðu sýslumenn einir dómarar, en i stað lögréttanna tóku lögmennirnir við dómstörf- um. Með tilskipun 11. júli 1800 var dóm askipuninni enn breytt. Yfirrétturinn var lagður niður og lögþingin, en það voru dóm- stólarnir, sem lögmennirnir sátu i á Alþingi. Þá var Alþingi lagt niður á Þingvöllum. I stað yfirréttarins og lögþinganna var stofnaður landsyfirréttur i Reykjavik. Dómum hans mátti skjóta til Hæstaréttar i Kaup- mannahöfn. Þetta skipulag hélst þar til Hæstiréttur Islands var stofnaður með lögum nr. 22/1919, sem tóku gildi 1920. Landsyfirrétturinn var þá jafn- framt afnuminn. Dómstig úrðu þannig tvö i stað þriggja áður. Eins og hér er rakið, hafa auðvitað orðið breytingar á dómstólaskipuninni, en ef nánar er að gáð, eru þær ekki veiga- miklarí héraði. Það er varðandi áfrýjunarréttina, sem breyting- ar eiga sér stað. Engin grundvallar breyting orðið Það er ekki fjarrri lagi að segja megi, að engin grund- vallarbreyting hafi orðið á embættum sýslumanna og um- dæma þeirra. Lögsgnar- umdæmum hefur að visu fjölgað sérstaklega með til- komu bæjanna og frá hafa verið teknir nokkrir mála- flokkar og nýjum verið bætt við. Hefur þetta leitt af breyttum þjóðfélagsháttum. Bylting verð- ur þetta samt ekki talin, og eins og embætti þessi eru upp- byggð i dag sinna þau bæði stjórnvaldsmálefnum og dóms- störfum. Það er þessi tvi- skinnungur þessa embættis, sem lögfræðingar hérlendis hafa gagnrýnt, enda er þessi háttur aflagður fyrir löngu i öll- um rikjum i kringum okkur. Hér nægir að nefna tvennt. I fyrsta lagi, maður sem sam- kvæmt stjórnarskrá á i störfum sinum að vera óháður stjórn- valdinu, þ.e. sýslumaður, þá er hann fer með dómstörf, fer einnig með umfangsmikil stjórnvaldsstörf og skal þá m.a.s. oft lúta fyrirmælum æðra setts stjórnvalds. Má ekki setja spurningarmerki við sjálfstæði þessa manns i dómstörfum? 1 öðru lagi hljóta mörg óskyld verkefni að gera það að verk- um, að sá, sem með þau á að fara, á erfiðara með að setja sig vel inn i þau og hljóta eins flókin störf og dómstörf að liða fyrir það, þeim seinkar og verða verr af hendi leyst. Tvö skilyrði Hér er einmitt komið að tveimur veigamestu röksemd- um fyrir breyttri dómstólaskip- un. Mikilvægast er, að ný og breytt dómstólaskipun uppfylli a.m.k. þessi tvö skilyrði: 1. Leiði til hraðvirkari meðferðar dómsmála og 2. Geri dómsvald- ið óháð framkvæmdavaldinu eftir þvi sem kostur er. Nútima þjóðfélag býður sifellt upp á flóknari dómsstörf. Mikil- vægt er, aö hæfir menn fái nægan tima, til að sinna þessum störfum og vel sé að réttindum þeirra búiö. Einfaldari mál, sem einnig aukast með hverju árinu sem liður, verða hins vegar að fá sem hraðasta meðferð. A þenn- an hátt sýnist réttindum borg- aranna best borgið. Þetta eni dómstókimir Dómstólarnir eru: 1. Afrýjunardóstólar 1.1. Hæstiréttur Islands, sbr. lög nr. 75/1973 (almennur dómstóll) 1.2. Synodalréttur, sbr. lög nr. 75/1973, 3. gr. (sérdómstóll) 2. Sérdómstólár, sem fjalla um mál sem fyrsta dómstig án þess að dóntum þeirra verði áfrýjað 2.1. Landsdómur, sbr. lög nr. 3/1963 2.2. Félagsdómur, sbr. lög nr. 80/1938 um stéttafélög og vinnu- deilur, IV. kafli. Dómum og úr- skurðum Félagsdóms um viss formsatriöi má skjóta til Hæsta- réttar, sbr. 67, gr. laga nr. 80/1938. 3. Sérdómstóll, undirréttur, fyrir landið allt. 3.1. Siglingadómur, sbr. VIII kafla laga nr. 52/1970 um eftirlit með skipum 3.2. Dómur i ávana- og fikni- efnamálum sbr. lög nr. 52/1973 4. Almennir undirréltir i cinka- málum 4.1. Bæjarþing, sbr. 38. gr. eml. 4.2. Manntalsþing, sbr. söma gr. 4.3. Aukadómþing (aukaþing) sbr. sömu gr. 4.4. Fógetadómur, sbr. einkum 2,gr. laga um aöför nr. 19/1887, 2. gr. laga um kyrrsetningu og lögbann nr. 18/1949, 29. og 223. gr. eml. 4.5. Uppboðsdómur sbr. einkum 2. gr. laga nr. 57/1949 um nauöungaruppboð sbr. einkúm 29. og 223. gr. eml. 4.6. Skiptadómur sbr. einkum 29. og 223. gr. eml. 4.7. Þinglýsingardómur sbr. Hrd. XXXIX 1136 5. Sérdómstólar i einkamálunt i Itéraði 5.1. Sjó- og verzlunardómur, sbr. XVI. kafla eml. Fer einnig með opinber mál, sbr. 8.1. 5.2. Fasteignadómar 5.2.1. Merkjadómur í Reykja- vik, merkjadómur á Akureyri, sbr. lög nr. 35/1914 og 16/1951 5.2.2. Landmerkjadómur sbr. lög nr. 41/1919 um landamerki o.fl. II. kafla og lög nr. 29/1965. 5.2.3. Vettvangsdómur sbr. sömu lög III. kafla. Nafn dóm- stólsins er ekki lögbundið og er hann stundum nefndur fast- eignamáladómur, þegar mál eru rekin i kaupstöðum sbr. Hrd. XXXIV 63, eða áreiðar- og vettvangsdómur sbr. Hrd. XXXIV 238 5.3. Stjórn Lögmannafélags Is- lands sbr. lög nr. 61/1942 um málflytjendur 1. og 8. gr. 6. Sáttanefndir, sbr. 2. og 21. — 26. gr. eml. 7. Almennir undirréttir i opin- berum málum 7.1. Sakadómur sbr. lög um meðferð opinberra mála nr. 74/1974 8. Sérdómstólar i opinberum málum i héraði 8.1. Sjó- og verzlunardómur sbr. 5.1. 8.2. Verðlagsdómur sbr. lög um verðlagsmál nr. 54/1960 11,—18. gr. 8.3. Kirkjudómur sbr. 7. gr. laga nr. 74/1974.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.