Vísir - 03.11.1976, Side 15

Vísir - 03.11.1976, Side 15
15 Fyrstur meó fréttimar vism Sinfóníuhljómsveit tslands mun í fyrsta skipti leika verk eftir Jórunni Viðar á 3. tonleik- um hljómsveitarinnar, sem haldnir veröa fimmtudags- kvöldið 4. nóvember I Háskóla- bfói kl. 20.30. Verkið heitir „Eldur” og var upphaflega flutt sem balletttón- list i Þjóðleikhúsinu. Auk þessa verks veröa á dagskránni Sin- fónia Concentrate i Es-dúr fyrir fiðlu, viólu og hljómsveit eftir Mozart og Sinfónia nr. 9 op. 70 eftir Sjostakovitsj. Stjórnandi á tónleikunum verður Karsten Andersen en einleikarar þeir Einar Grétar Sveinbjörnsson og Ingvar Jónasson, en þeir eru báðir starfandi i Sviþjóð um þessar mundir. Þeir námu báðir fiðluleik hjá Birni Ólafssyni i Tónlistarskól- anum í Reykjavik, en héldu sið- an utan til framhaldsnáms. Báðir léku þeir I Sinfóniuhljóm- sveit íslands áður en þeir flutt- ust til Sviþjóöar. Einar Grétar er fyrsti konsertmeistari við Sinfóníuhljómsveit I Malmö og hefur gegnt því starfi um árabil. Ingvar hóf fyrst starf í Svíþjóö sem fyrsti vióluleikari við sömu hljómsveit, en starfar nú sem einleikari og kennari. Báðir eru þeir eftirsóttir einleikarar, og sést þeirra viöa getið. —RJ m vism Miðvikudagur 3. nóvember 1976. Eldur Jórunnar Viðar í Háskóla- bíói Hestarnir fá góða þjónustu. Þeir eru keyröir alveg upp að landganginum og þurfa ekki aö hugsa um farangur. Visismynd — LA. Hestar eru fyrir- taks flugfarþegar „Hestar eru einkar prúðir og góðir farþegar, sagöi Lárus Gunnarsson, hjá Iscargo við Vfsi i gær. „Þeir hafa hægt um sig og kvarta aldrei,Einstaka hestur er hálf hikandi vð að fara um borð, en þegar þangaö er komið, er allt I lagi”. Iscargo flutti tvo flugvéla- farma af hestum úr landi i gær. önnur vélin fór til Alaborgar, en hin til Rotterdam. Það fer nokk- uð eftir þyngd hvað eru margir hestar i hverri ferð, en flestir verða þeir um fjörutiu. Félagið hefur haft nokkuð sæmilegt aö gera i hrossaút- flutningi það sem af er árinu. Það hefur flutt út milli 6-8 hundruð hross. — OT. Sumir eru dálitið hikandi við að fara um borð og það verður að teyma þá upp landganginn. Fyrirlestrar um nútíma stefnur í myndlist Listráð Kjarvalsstaöa hefur efnt til fyrirlestra um nútfma- stefnur í myndlist I fyrir- lestraröð sem áætlað er að halda fram yfir jól. Fyrirlestrarnir eru haldnir á fimmtudögum kl. 17:30 og sér Aðalsteinn Ingólfsson um þá alla. Þegar hafa verið haldnir tveir fyrirlestrar i þessari röð, en þeir voru um: Forvera : Van Gogh, Gauguin og Cézanne og Fauvisma: Matisse, Derain o.fl. Þeir fyrirlestrar sem eftir eru eru þessir: Expressjónismi i Þýskalandi: Kúbismi: Pikassó, Braque, Gris, o.fl.: Fúturismi og Vortex: Dada: Súrrealismi: Ný-plastik I Hollandi: Mondrian, van Doesburg o.fl.: Ameriskur Afstrakt-- Expressjónismi: Amerisk list 1950-65: Minimal og Concept: Skúlptúr á 20. öld. Stiklaö er á stóru i þessum fyrirlestrum og leitast við að gefa almenningi innsýn i eðli og þróun nútimalistar. Þeir eru haldnir i fundarsal Kjarvals- staða og er öllum heimill að- gangur meðan húsrými leyfir. —SJ ÁKLÆSI FRAMLEIÐUM SÆTAÁKLÆÐI í ALLAR TEGUNDIR BIFREIÐA, ÚRVALSEFNI. PÓSTSENDUM UM LANÐ ALLT REYNIÐ VIÐSKIPTIN. © HM - AMll HF. LÆKJARGÖTU 20. HAFNARFIRÐI - SÍMI 51511 AÐ GÖDUM VIOSKIPTUm

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.