Vísir - 03.11.1976, Page 23

Vísir - 03.11.1976, Page 23
 Þessi blóni gleöja augu sjúklinga á Kleppsspftalanum. Lesandi okk- ar þar undrast hversu lengi þau standa, þó veðriö sé ekki oröiö neitt sérlega gott. Erum stund- n um kölluð olnbogabörn Stefán ólafsson skrifar: Við sem horfum á þessi blóm erum stundum kölluð olnbogabörnin i þjóðféiaginu. En við kunn- um samt að meta það sem fagurt er. Við erum innan veggja Klpppsspitalans og vitum að sá GUÐ sem varðveitti þessi blóm mun einnig lyfta okkur og varðveita okkur gegn stormum og hausthretum. Lágkúruleg aug- lýsingabrella J.K skrifar: Ég brá mér á ball i Sigtún um helgina og er það i sjálfu sér ekki i frásögur færandi. Að venju skemmti ég mér ágæt- lega, þarna var þrumustuð og ekkert yfir þvi að kvarta. Allt i einu birtist maður einn á sviðinu og tilkynnti þeim sem voru á dansgólfinu að þeir ættu að fara þaðan brott, þar sem einhverjir dansarar ætluðu aö troða þarupp. Og hverjir haldið þið svo að þessir dansarar hafi verið? Jú.einhverjir unglingar sem umboðsmenn Winston sfga- rettanna höfðu keypt til að dansa þarna til þess aö auglýsa þessa þokkalegu vöru sigarett- una. Unglingarnir voru klæddir i fötsem áttu að minna á Winston og maðurinn sem kynnti, minnti viðstadda sífellt á þessa gæöa- vöru. Viðbrögð gestana i Sigtúni þetta kvöld voru mjög neikvæð, sem betur fer. Mönnum fannst sem þarna væri á ómerkilegan hátt verið að fara I kringum lög gegn sigarettuauglýsingum. Eftir hvern dans var púað hressilega á dansarana og greinilegt var að fólk var þeirri stundu fegnást þegar sigarettu- dansararnir fóru brott. Það er þvi miður ekki i fyrsta skipti sem svona sigarettuum- boðsmenn reyna á lævisan hátt að auglýsa vöru sina. Menn minnast þeirrar lágkúru þegar þeir geröu tilraun til þess að beita skáklistinni fyrirsig við aö auglýsa. Sú tilraun var almennt fordæmd. Ég ætla að vona að þannig verði einnig með þessa auglýs- ingabrellu. Að lokum vildi ég beina þvi til þeirra sem eiga að hafa eftirlit meö banni gegn sigarettuauglýsingum aö þeir séu betur á verði. Þaö hefur nefnilega sýnt sig að ekki nægir að banna sigarettuauglýsingar utan dyra. Einnig þarf að banna slikt innanhúss. Almenningur þarf að ýta vel á eftir og kref jast þess að svona auglýsingar séu alfarið bannaðar. ATTI VON A 20 ÞUS- UND KRÓNA REIKN- INGI FEKK YFIR 90 ÞUSUND KR. REIKN. Siguröur Valgeirsson kom aö máii viö blaöiö: Kunningi minn sem á bil með númerinu G-5386 fór meö bilinn sinn á verkstæðið Bilaborg, og baö um að skipt yröi um tima- keðju og timahjól. Búist var við að kostnaðurinn yröi um 20 þús- und krónur. En þegar kunningi minn fer siðan til þess aö ná i bQinn fær hann reikning upp á rúmar 94 þúsund i höfúðiö! Það kom i ljós aö vélin heföi verið tekin i sundur og siðan sett saman aftur. Um þetta heföi alls ekki verið beöið. Þá voru lika rendir ventlar og sæti, sem að þvi er mér skilst er aldrei gert fyrr en vélin hefur verið keyrð um 70-100 þúsund km.' Þessi er hins vegar keyrð 46 þúsund km. Sá sem tók vélina i sundur mun hafa gefiö þá skýringu aö svo hafi orðiö að gera þar sem svarf hafi komist i mótorinn. Allt tók þetta 48 tima sem mér finnst heldur langur timi. Kunningi minn gat aö sjálf- sögöu ekki greitt meira en þess- ar 20 þúsund krónur sem hann haföi átt von á og verið tilbúinn til að láta af hendi. En 94 þúsund gat hann ekki greitt, og það fór svo að hann samþykkti vixil upp á afganginn sem honum ber aö greiöa 1. desember. Of algengt að senda menn að sunnan í fyrstu sœtin Ég sem þessar linur skrifa undraöi mig á texta undir mynd á forsiöu Visis núna á dögunum, en þar er talaö um „austfirsku goðana” undir mynd af þeim Lúðviki Jósepssyni og Sverri Hermannssyni. Ég vil hér mótmæla þvi, að Sverrir sé „austfirskur goði” Sverrir er vestast af Vestfjaröa- kjálkanum. 1 þessu sambandi vil ég koma þvi hér að og veit að fleiri eru sama sinnis. En það er hvers vegna kjósendur og þá i þessu tilliti á Austurlandi, láta bjóða sér mann, sem alls ekki er úr kjördæminu, en láta flokksklik- una ráða hvern það getur kosið. Ég er ekki i neinum vafa um, að á Austurlandi er til sjálfstæö- ismaður á borð viö Sverri og efa ekki, aö fylgi flokksins yrði meira, ef i framboði i þessu sæti, væri austanmaður. Það er of algengt aö flokka- kh'kurnar i Reykjavik, komast upp með það að senda menn aö sunnan i 1. sætin i kjördæmun- um og má minna á nýjustu framboðin hjá Alþýöuflokknum, en þar á að troða þeim Vilmundi Gylfasyni og Finni Torfa upp á kiósendur. Mér er sem ég sæi svipinn á reykvikingum, ef t.d. einhver utan af landi yrði settur i öruggt sæti i Reykjavik. Með fullri virðingu þó, fyrir öllum alþingismönnum. Austfiröingur.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.