Vísir - 04.01.1977, Blaðsíða 1
Siódegisblaö fyrir
fjföiskyiduna
alla! j
Þriðjudagur 4. janúar 1977 2. tbl. 67. árg.
Ríkissjóðsdœmið '76:
Motthías segir greiðslu-
áœtlunina hafa staðist
„Greiðsluáætlun rfkissjóðs
fyrir árið 1976 stóðst. Otgjöld
rikissjóðs á siðasta ári námu
um það bil 68 milljörðum króna
eins og gert haföi verið ráð
fyrir.” Þannig svaraði Matthias
Á. Mathiesen fjármálaráðherra
fyrirspurn Visis um útgjöld
rikissjóös um áramót.
Fjármálaráðherra sagði enn-
íremur, að úrvinnsla á bók-
haldsgögnum rikissjóðs stæði
nú yfir. 1 næstu viku ætti þvi að
vera mögulegt að fá bráða-
birgðatölur um heildarstöðu
rikissjóðs viðárslok 1976. Þá gat
ráðherra þess, að unnið hefði
verið eftir greiðsluáætluninni
allt árið 1976 og greiðslur stöðv-
aðar, þegar stofnanir hafi farið
fram Ur áætlun. Loks taldi fjár-
málaráðherra liklegt, að rikis-
reikningurinn fyrir árið 1976
yrði i fyrsta skipti tilbúinn i
aprileða mai, bæði A og B hluti.
Aðspurður sagði f jármálaráð-
herra, að á þessu stigi væri ekki
unnt að segja til um hvað
ógreiddir reikningar frá siðasta
ári næmu hárri upphæð. Það
kæmi ekki i ljós fyrr en úr-
vinnslu bókhaldsgagna væri
lokið. Ráðherra sagðist þó
vænta þess að hér væri ekki um
háar tölur að ræða.
— ÞP
Þessir frísklegu krakkar hafa nú að undanförnu notið
jólaleyfis/ en nú tekur alvara lifsins við að nýju, þar
sem skólarnir eru að hef jast hver af aöðrum. Vonandi
ganga þeir jafn glaðværir til námsins og jólaskemmt-
ananna og minnast þess, að það er ieikur að læra.
Mynd: JA.
Handtökumálið:
Huldumeyjarnar fundnar
Rannsókn heldur áfram i
handtökumálinu. Stúikurnar
tvær sem eiga að koma við sögu
málsins virðast loksins vera
fundnar. Steingrimur Gautur
Kristjánsson setudómari sagði í
samtali við Visi i morgun, að
sakbending færi að likindum
fram i dag. Að öðru leyti vildi
liann ekki fremur en áður tjá sig
um þessar huldumeyjar.
Ýmis gögn i málinu hafa nú
verið send embætti saksóknara
til athugunar og á grundvelli
þeirra gagna verður tekin
ákvörðun um i hvaða átt rann-
sóknin stefnir. Steingrimur
Gautur vildi ekki segja neitt um
það i morgun hvort komið væri i
ljós hver hefði lagt gildrur fyrir
hvern i þessu máli. Eins og Visir
hefur skýrt frá er hugsanlegt að
gildra hafði verið lögð fyrir
Hauk Guðmundsson er stjórnaði
handtöku á Guðbjarti Pálssyni
og bilstjóra hans. Þeir telja sig
hins vegar hafa verið leidda i
gildru og þar hafi stúikur tvær
komið mjög við sögu.
Við sakbendinguna i dag
munu þeir er sáu þessar
umræddu stúlkur eiga að benda
á þær innan um annað kvenfólk
og munu þeir Guðbjartur og
bilstjóri hans væntanlega sitja
þar á fremsta bekk. —sg
W
GATAN
LEYSIST
í KVÖLD
Lokaþátturinn í hinum
spennandi sakamála-
myndaflokki sjónvarps-
ins um brúöuna er á
dagskrá í kvöld. Sjá
kynningu á útvarps- og
sjónvarpsdagskránni
bls. 19.
Hjón og
sonur
þeirra
fórust í
bílslysi
Hjón og sonur þeirra fórust i
bilslysi á veginum milli Hnifs-
dals ag isafjarðar i fyrrinótt.
Hjónin voru Sigurður Jónas-
son sem var á 71. aldursári og
Elisabet Jónsdóttir 65 ára.
Sonur þeirra hét Kristján H.
Sigurðsson og var hann tæp-
iega 25 ára gamall.
Kristján var yngstur barna
þeirra hjóna. Hann var
ókvæntur. Þau bjuggu á isa-
firði.
Billinn lenti fram af 40
metra hárri vegarbrún á fyrr-
nefndum vegi, og steyptist út i
sjó seint i fyrrakvöíd. Sást
billinn í sjónum skömmu fyrir
hádegi i gær. Fundust likin
rétt hjá. Þau hjón ásamt
Kristjáni voru að koma úr
heimsókn til dóttur sinnar og
tengdasonar i Hnifsdal þegar
þetta hörmulega slys varð.
Siðan árið 1974 hafa þrjú
banaslys oröið á þessum vegi.
Fimm hafa látist i þeim slys-
um. Árið 1975 urðu tvö bana-
slys, en þá varekiðá gangandi
vegfarendur.
—EA.
Eru kjarasamningarnir skrípaleikur?
— sjá bls. 2