Vísir - 04.01.1977, Side 17
Þriðjudagur 4. janúar 1977
17
Fjöldi jákvœðra
berklasýna
hefur farið
vaxandi
— bakteríufrœðideild
Rannsóknastofu háskólans
framleiðir 7 lestir af
„bakteríumat"
Á siðasta ári voru 2591 sýni
vegna gruns um berkla rann-
sökuð á vegum bakterlufræði-
deildar Ra nnsókn arstofu
háskólans, og voru 75 jákvæð
frá 25 einstaklingum. Arinbjörn
Kolbeinsson, forstöðumaður
deildarinnar, tjáði blaðinu að
fjöldi jákvæðra sýna hefði farið
vaxandi á undanförnum árum.
A vegum þessarar deildar
fara fram margs konar rann-
sóknir, m.a. almennar sýkla-
rannsóknir.
bar fara t.d. fram flokkun
heilahimnubólgusýkla, sem
gerð hefur verið hér á landi, en
þessar rannsóknir eru grund-
völlur ákvarðanatöku i sam-
bandi við bólusetningar og
faraldursfræðilegar ákvarðanir
gegn þessum sjúkdómi, Hefur
rannsóknum á þessu sviði
fjölgað gifurlega siðan á miðju
ári 1975.
7 lestir af bakteriumat.
Samsetning ætis til bakterfu
og svepparæktana er veiga-
mikill hluti af starfsemi deild-
arinnar. Arinbjörn sagði, að
aukning á þessari starfsemi
w r •
o ari
færi að sjálfsögðu samhliða
aukningu rannsókna almennt,
og væru nú framleidd um 7 tonn
árlega af „bakteriumat”. Sá
matseðill væri allfjölskrúðug-
ur, skiptist i nokkur hundruð
rétti, og væri um 70 þeirra til
reiðu daglega.
ENGIR PAKKAR
FRÁ ..
DANMORKU
Óvenjumiklir kuldar og snjó-
koma eru i Danmörku þessa
dagana, og þess vegna hafa orð-
ið nokkrar tafir á vöruaf-
greiðslu á Kastrupflugvelli. 28.
des. boðuðu starfsmenn SAS i
vöruhúsum á flugvellinum
vinnustöðvun, þar til veðrinu
slotar.
Af þessum sökum hefur SAS
nú tilkynnt að ekki verði tekið á
móti vörum á flugvellnum þar,
né vörur.sem þar eru, afgreidd-
ar til flutnings.
Þeim tilmælum er því beint til
islenskra aðila sem von eiga á
vörusendingum að utan — um
Kaupmannahöfn — að hafa sem
fyrst samband við fraktdeild
Flugleiða, eða gera eigin ráð-
stafanir til að beina vöru-
sendingum um Luxemburg, en
þaðan er flug daglega til ís-
lands. —GA
VERÐUR LEYFÐ
SALA Á BRAUÐ-
SAMLOKUM í
„SJOPPUNUM"?
Borgarlögmanni liefur verið samlokur i almennum kvöldsöl-
faliðað gefa borgarráði umsögn um, en undantekningar eru
varðandi samþykkt heilbrigðis- gerðar i svonefndum ferða-
málaráðs um að heimila kvöld- mannaverslunum, svo sem
sölu á brauðsamlokum. Nesti. Sagði borgarlögmaður,
Að sögn borgarlögmanns er Páll Lindal, að ef til þess kæmi
það einkum verkaskipting milli að leyfð yrði sala á brauðsam-
veitingastofa og kvöldsöluversl- | lokum i öllum kvöldsöluverslun-
ana sem þarna verður að hafa i um, þýddi það að auka þyrfti
huga, en hann kvað óliklegt að eftirlit með sölunni til muna,
til reglugerðarbreytinga þyrfti enda væri þarna um að ræða
að koma. vandmeðfarnar vörur.
Óheimilt er að selja brauð- —AH
Samtais voru tuttugu og tvær brennur I höfuðborginni á gamlárskvöld og tók Einar Gunnar þessa
mynd af einni þeirra þaðkvöld á móts við Ósland i Fossvogshverfi.
Lögreglan í önnum
við fólksflutninga
„Aramótin voru sérstaklega
róleg”, sagði Bjarki Eliasson
yfirlögregluþjónn i samtali við
Visi i gær. Tók hann það fram
að ölvun hefði ekki verið meiri
en um venjulega helgi, þ.e.a.s.
það sem að lögreglunni snéri, og
allt fór vel fram á samkomu-
húsum borgarinnar.
Tuttugu og tvær brennur voru
i borginni. Fólk var með færra
móti við brennurnar, og skriður
komst fyrst á umferð eftir að
áramótaskaupi lauk i útvarpi og
sjónvarpi.
En bá sDilltist færð og fylgdu
þvi ýmsir erfiðaleikar. Þurfti
lögreglan að aðstoða við flutn-
inga á fólki fram á nýársmorg-
un.
Að öðru leyti gekk hins vegar
flest rólega fyrir sig, og um 30
munu hafa gist fangageymslur
nýársnóttina. —EA
Stofna Veiðifélag
Arnarvatnsheiðar
Stofnað hefur verið Veiðifélag
Arnarvatnsheiðar, en að félag-
inu standa veiðiréttareigendur
vatnasvæðis Arnavatnsheiðar
sunnan fjalla.
Tilgangur félagsins er að við-
halda góðri fiskgengd á félags-
svæðinu, og að ráðstafa veiði á
þann hátt, sem hagkvæmast
þykir hverju sinni, að sögn for-
rnanns þess, Jóns A. Guð-
mundssonar á Kollslæk.
Stofnfundurinn var fjölsóttur
og var þar m.a. kjörin stjórn. I
stjórninni sitja auk Jóns þeir
Magnús Sigurðsson, Gilsbakka,
Ölafur Kristófersson, Kalmans-
tungu,Pétur Jónsson, Geirshliö,
og Guðmundur Kristinsson,
Grimsstöðum.
—ESJ
Opið hús hjú Heimdalli
í kjallara Sjálfstœðishóssins við Bolholt
í kvöld þriðjudaginn 4. janúar
Hósið opnað kl. 20,30
FJÖIBRÍYTT SKEMMTIATRIÐI, M.A.
ÓMAR RAGNARSSON,
HR. REYKJAVÍK,
HEIMDAILARKVARTETTINN,
DISKÓTEK OG M.FL.
HEIMDALLUR