Vísir - 04.01.1977, Side 2

Vísir - 04.01.1977, Side 2
c Hvernig fannst þéri. áramótaskaupið? ■'í ' 1 Ósk óskarsdóttir, afgreiðslu- stúlka: Að mörgu leyti ágætt. Þaö var margt gott i þvi. Lóa Hjaltesteö, afgreiðslu- stúlka: Mér fannst það frekar lélegt, of einhliöa. Stelpurnar sem léku löggur voru hins vegar mjög góöar. Sigurður Hjartarson, fram- kvæmdastjóri: Ég haföi gaman L af þvi. Mér fannst skemmtilegt H aö horfa á aöferöina viö skatT- L heimtuna. Guöný ólafsdóttir, nemi: Mér fannst þaö leiöinlegt. Mér fannst þeir koma alltof mikið inn á stjórnmál. Regina Bragadóttir, afgreiðslu- stúlka: Mér fannst þaö alls ekki gott. Atriöiö meö rangæingnum var þó ágætt. Þriðjudagur 4. janúar 1977 vism i > t ■ \’%á x -á " ; Kristján segir fulltrúa samtaka launafólks verða að hafa auga meö þvi, hvernig ástand efnahagsmála er og hvort aðstæður séu til aö launahækkanir geti oröið raunhæfar. Myndin er frá undirritun kjarasamninga. Kjarasamningor eru a verða hreinn skrípa- ieikur" „ vegno þeirra sterku taka, sem atvinnurekendur hafa í valdakerfi þjóðarinnar," segir formaður BSRB ,,Það mun skipta sköpum, livort launafólki auðnast að sameinast um kjaramálin i við- ustu merkingu, eöa hvort áfram tekst að sundra mönnum i flokkspólitiskar fylkingar at- vinnurckendum til gengis og gróða”, segir Kristján Thorlaci- us, formaður BSRB, i rit- stjórnargrein i Asgarði, blaði BSRB, sem nýkomiö er út. I greininni, sem ber yfir- skriftina „Aukin átök um skipt- ingu þjóöartekna”, segir Krist’j án m.a., að augljóst sé, aö i.kjarabaráttan á næstunnihlýt- ur aö snúast i mjög auknum mæli um, hvort þjóöartekjunum sé réttlátlega skipt”. Kristján bendir á, aö i kjara- samningum, sem gerðir hafi veriö á árabilinu 1973-1976, hafi samtök launafólks tekiö tiUit til þess timabundna kreppu- Kristján Thorlacius, formaður Bandalags starfsmanna rikis og bæja. ástands, sem skapaðist f heim- inum á árinu 1973. Nú um eins árs skeið hafi hins vegar út- flutningsverö veriö aö hækka en innflutningsverö hækkað mun minna en áður. Þjóöhagsstofn- un geri m.a. ráb fyrir aö verð- mæti heildarframleiðslu sjávarafurða hækki um 40% á árinu 1976 miöað viö 1975 og út- flutningsverölag i erlendri mynt hafi hækkaö frá 1975 um 18-19%, og hækkun á veröi erlends gjaldeyrishafiá sama tima orð- iö 14-15%. Tök atvinnurekenda I greininni segir Kristján einnig, að „þaö, sem einkennt hefur mjög aðgerðir I efnahags- málum undanfarinna ára eru gengislækkanir, vaxtahækkanir og takmarkanir á verðtrygg- ingu launa. Launþegasamtökin verða að gera sér betur ljóst hér eftir en hingað til, hvernig Alþingi, rikisstjórnir og bankavald fara að þvi að eyðileggja þá kjara- samninga, sem launþegasam- tökin gera, með svokölluöum hagstjórnartæk jum. Samtök launafólks verða vissulega að hafa auga með þvi, hvernig ástand efnahagsmála erog hvort aðstæður séu til þess að launahækkanir geti orðið raunhæfar. Hitt veröa menn nú aö gera sér ljóst, að kjara- samningar i okkar landi eru að verða hreinn skripaleikur, i mörgum tilfellum, vegna þeirra sterku taka, sem atvinnurek- endur hafa i valdakerfi þjóðar- innar”, segir Kristján. —ESJ. VERÐBOLGUTAL OG VEÐURFRÆÐI Þótt veöurfariö hafi verið gott þab sem af er vetri hefur þaö ekki veriö tiöindalaust aö sama skapi. Svo er fyrir aö þakka þeim samræöustfl fslendinga aö tala alltaf um veðrib þegar þeir hittast fleiri en tveir og fleiri en þrfr. Tal um veöur er einhver hættuminnsta umræöa, sem um getur.og veldur hvorki reiöi né pústrum. Og þar sem menn eru ekki þeim mun kunnugri kemur umræöan um ástand veöurfars- ins f veg fyrir aö þeir tali af sér. Þaö er hægt að gera sér í hugar- lund hvernig færi f þessu landi ef i staö veöurs væri almennt fariö aö tala um barneignir og framhjáhöld i ókunnugum hús- um, fjárdrátt, skattsvik og gjaldeyrisbrask. Landiö mundi fljótlega loga i slagsmálum, og þó einkum sá hluti þess sem eitt sinn var kenndur viö landnám Ingólfs en þaö verður ellefu hundruö ára einhvern tfma á vordögum 1977. Þaö er aidrei andskotalaust aö eiga áfallalitið samtal viö náungann. Jafnvel bækur eru stórhættulegt umræöuefni, einkum þær sem snerta fróöleik ýmiskonar. Menn geta staöið frammi fyrir þvi um miöja nótt i ókunnu húsi, aö húsmóðirin sleppi sér alveg af þvi einhver hefur látið þau orö falla aö til- tekin bók sé bölvaö kjuftæöi. Um þaö bil sem honum skilst aö hann heföi heldur átt aö halda sig viö faglegar vcöurlýsingar, hefur komiö i ljós aö höfundur bókarinnar er afi húsmóöurinn- ar auk þess er bókin um langafa hennar sem var á dögum nokkru fyrir Halaveöriö. Þann- ig er öll umræöa næsta ótrygg i flóknum heimi og margbrotnum nema sú ein sem segir frá vind- áttum utan dyra. Auövitaö veröur umræöa um veöur næsta einhæf og ein er sú stétt manna, sem kemst hvorki iönd né strönd á þvi tali einu. Þessi stétt hefur þvi gripiö til þess ráös aö efna til annars um- ræðuefnis sem þjónar atvinnu og framvonum innan hennar, en er þeim göldrum gædd eins og veöurumræöan, aö hún snertir svo sem ekki neinn. Hér er átt viö umræöuna um verðbólguna, sem stjórnmálamenn ástunda af sömu spávisinni og eldri kon- ur þrautæföar i samræöulist um veöurfar. Veröbólgan er aö þvi leyti gott umræöuefni, aöhún er alitaf einhver.. dag hvern sem guö gefur. Svo er einnig um veöriö. Þaö er alltaf eitthvert veöur dag hvern. Þaö væri ekki aö sökum aö spyrja ef viö yrö- um veöurlaus einhvern daginn, og aö likindum færi litlu betur fyrir okkur, yröum viö verö- bólgulaus. Þá eru þau líkindi með verðbólgu og veðri, aö stundum er ofsaveöur meö snjó- komu. Þá segja stjórnmáia- menn að bráöum muni verö- bólgunni linna, en hinar þraut- þjálluöu eldri konur eiga sam- iikingar við fyrri bylji úr byljóttri sögu þjóöarinnar á reiöum höndum. Umræöan um veröbólguvand- ann hefur veriö I algleymingi allt frá árinu 1941. Og segja má að fimmtfu prósent veröbólga hafi veriö eins konar Halaveöur efnahagslifsins. Þaö er þvi ekki undarlegt þótt hún þyki ugg- vænleg i áramótagreinum stjórnmálamanna. Hins vegar viröist hún vera þeim mun stjórnlausari sem meira er um hana talað. Þaö eru einnig helstu eiginleikar veöurfarsins. Þeim, sem spyrna vilja gegn verðbólgunni, fer eins og ev- rópskum fólkstjóra og loföung, sem drap berum fæti viö sjávar- boröi og vildi þannig stööva sjávarföllin. Honum heföi ekki oröiö skotaskuld úr þvi aö |lfma viö helstu viöfangsefnin á ts- landi í 'dag — vinda og verö- bólgu, þau náttúrulögmál sem skyldust eru sjávarföllum. Hann heföi byrjað á þvi aö fara úr skóm og sokkum eins og þeir suöurgöngumenn islenskir sem réöu ekki við vandamál Sturl- ungaaldar. Svarthöföi

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.