Vísir - 04.01.1977, Side 13
Juantorena
■ ••• • t
kjorinn i
S-Ameríku
Kúbumaðurinn Alberto Juantorena sem
sigraði bæði i 400 og 800 metra hlaupum á
Ólympiuleikunum i Montreal i sumar var i
gær kjörinn „tþróttamaöur ársins” I
S-Ameriku.
Annar i kjörinu að þessu sinni var Don
Quarrie frá Jamaica, en hann sigraði i 200
metra hlaupi i Montreal og varð i 2. sæti i 100
metra hlaupinu.
I þriðja sæti varö kúbumaöurinn Teofilo
Stefenson sem á Ólympiuleikunum i sumar
tókst að verja titil sinn i þungavigt i hnefa-
leikum á Ólympiuleikunum.
—gk—
Veggspjald
af Asgeiri
Knattspyrnufélagið Týr í Vestmannaeyj-
um hefur látið prenta veggspjald (plakat) I
litum af knattspyrnumanninum Asgeiri
Sigurvinssyni. Ef veggspjaldið 40x60 cm á
stærð og er myndin tekin i Eyjum.
Þetta mun vera fyrsta veggspjaldiö sem
gerter af islenskum iþróttamanni, en erlend-
is er mjög algengt að gera svona spjöld með
myndum af þekktum iþróttamönnum. Vegg-
spjaldið er til sölu hjá Tý i Vestmannaeyjum
og i Sportvali viö Hlemmtorg og i sportvöru-
verslunum Ingólfs Óskarssonar við Klappar-
stig og Lóuhóla.
Litmyndina af Asgeiri tók Guðmundur Sig-
fússon.Ijósmyndari Visis i Eyjum.
Framarar unnu
Val í úrslitum
Framarar urðu reykjavikurmeistarar i
knattspyrnu innanhúss þegar þeir unnu va'iá-
menn i úrslitum með 6 mörkum gegn 4. —
Kom þessi sigur Fram I úrslitaleiknum
nokkuð á óvart, þvi að i riölakeppninni tapaöi
Fram fyrir Þrótti 7:8, en það var Leikni að
þakka að Fram komst i úrslit, Leiknir sigraði
nefnilega Þrótt 8:6 og Þróttur geröi siðan
jafntefli við Armann 5:5.
Valsmenn sigldu hins vegar i úrslitin á
mjög sanngærandi hátt, en I úrslitunum var
það hin mikla keppnisgleði framara og
barátta sem færði þeim sigur.
i kvennaflokki sigraði Fram einnig Val i
úrslitum 5:4 eftir framlengingu. i 3. fl. sigr-
aði Vikingur KR i úrslitum 7:2, í 3 fl. sigraði
KR i 4. fl. Valur og i 2. fl. Valur.
gk-.
Brooking
ekki til sölu
John Lyall, framkvæmdastjóri West Ham
sagði i gærkvöldi að félag hans hefði fengið
tilboð frá FC Zurich i Sviss i hinn snjalla leik-
mann liðsins, Trevor Brooking.
Brooking hefur verið á sölulista að undan-
förnu, og hefur lýst þvi yfir aö hann vildi
gjarnan komast til meginlandsins.
„Við höfum hafnað þessu tilboði”, sagöi
John Lyall I gærkvöldi, ,,og þetta er endirinn
á þessu i bili. Brooking er ekki lengur til
sölu.”
gk-.
ólafur Jónsson var mættur á landsliösæfingu í gærkvöldi og sést hér á myndinnihafa gætur á ÞórarniRagnarssyni f vörninni. Þeir Ólafur og
Axcl Axelsson munu nú æfa með iiðinu af og til þar til B-keppnin hefst I Austurriki i febrúar. Ljósmynd Einar.
Það verður ekkert
/f
sparað úr þessu
— segir Gunnlaugur Hjálmarsson sem er bjartsýn á að íslenska
landsliðinu takist að komast í úrslit HM
,,Við erum nú að fara með allt á
fulla ferð, og þessi æfing var
svona i og meö til þess að „hrista
úr mönnum hrollinn” cftir jólin
og áramótin” sagði Gunnlaugur
Hjálmarsson i Landsliösnefnd
HSÍ þegar við ræddum við hann I
morgun.
„Það fer ekki hjá þvi að maöur
liti bjartari augum á þetta eftir að
vera búinn að fá þá Ólaf Jónsson
og Axel Axelsson báða hingaö til
lands til að æfa með liðinu, en þeir
eru báðir i fullu fjöri. Nú verður
þetta keyrt á fullu, æft á hverjum
degi fram að landsleikjunum við
pólverja i lok þessa mánaðar og
stúndum oftar en einu sinni á dag.
Þeir Axel og Ólafur veröa með
liðinu meira og minna fram að B-
keppninni i Austurriki, en þurfa
að bregða sér utan við og við til að
leika með Dankersen.
Við höfðumnokkrar æfingar
yfir hátiöirnar, og æfðum þá eftir
„programi” sem Januz skyldi
eftir, en það er aðallega verð að
horfa á vörnina þessa dagána,
auk þess að bæta við hraðaupp-
hlaupin sem hann leggur geysi-
lega mikla áherslu á. Januz var
næntaníegur til landsins i gær, en
kom ekki, kemur væntanlega i
dag.
Það er ákveðið að Januz fari og
liti á lið portugala en þeir verða
andstæðingar okkar i B-keppn-
inni. Einnig er ákveðið að hann
fari og hugsanlega einhverjir
með honum á „Baltica Cup” en
þar verður hægt að njósna um
bæði a—þjóðverja og norömenn
sem þá verða með HM-lið sin i
lokaundirbúningi. Þá er ætlunin
að taka leiki þessara liða upp á
myndsegulband og með þvi ætti
að vera hægt að læra mikið”.
— Það verður sem sagt .ekkert
til sparað.
„Nei það þýöir ekkert að vera
að horfa i smáaurana núna þegar
svo mikið hefur veriö lagt i þetta
sem raun ber vitni. Við gerum allt
fyrir strákana sem okkur reynist
unnt, og það liggur enginn á liði
sinu til þess að fyrsta áfanganum
verði náð — aö komast með
islenska landsliðið i úrslitakeppni
HM i Danmörku”. gk-.
Ipswich sœkir stöðugt
ó meistara Liverpool
Ipiswich sigraði Manchester
United 2:1 i ensku 1. deildar-
keppninni á Portman Road i
Ipswich i gærkvöldi og er nú að-
eins með tveim stigum minna
en meistarar Liverpool sem eru
i efsta sætinu með 32 stig. Liver-
pool hefur leikið 23 leiki, en
Ipswich hefur aðeins leikiö 20
leiki og á þvi þrjá leiki til góða.
Skammt undan er svo
Manchester City, sem er með 28
stig að loknum 21 leik.
Manchester United byrjaöi
vel i leiknum i gærkvöldi og eftir
aðeins 23 sekúndur haföi Stuart
Person náð forystunni fyrir
United — hansþriöja marká ár-
inu. En i siðari hálfleik seig á
ógæfuhliðina — Brian Greenhoff
skoraði sjálfsmark og þegar sex
minútur voru til leiksloka
skoraöi Clive Woods sigurmark
Ipswich.
En þá eru það úrslit leikjanna
i gærkvöldi:
1. deild
Arsenal — Leeds 1:1
Ipswich — Man.Utd. 2:1
Sunderland —Coventry 0:1
WestHam—WBA 0:0
2. deild
Burnley —Plymouth 0:2
Carlisle —NottsC 0:2
Charlton —BristolR. 4:3
Fulham — Bolton 0:2
Skotiand úrvalsdeild
Aberdeen — Hearts 4:1
Kilmarnock — Motherwell 2:2
Leika átti marga leiki, en
vegna slæmra veðurskilyröa
varð að fresta 34 af 59 leikjum
ogeinum var aflýst i miöju kafi.
Það var leikur Luton og Black-
burn — og þá var staðaan 2:0
fyrir Luton.
Enn gengur allt á afturfótun-
um hjá Sunderland sem nú tap-
aði sinum áttunda leik i röð og
liðið hefur nú ekki skoraö mark i
sjö leikjum. Donald Murphy
skoraði sigurmark Coventry
þegar aöeins 35 sekúndur voru
til leiksloka.
Allan Clark náði forystunni
fyrir Leeds i leiknum gegn
Arsenal á Highburj^ London, en
Malcolm Macdonald jafnaði
metin með þrumuskoti af löngu
færi.
Bolton er nú með aöeins tveim
stigum minna en Chelsea i 2.
deild eftir sigurinn gegn Ful-
ham. Chelsea er með 32 stig að
loknum 23 leikjum en Bolton er
með 30 stig að loknum 22
leikjum. Steve Taylor og Neil
Whatmore skoruðu mörk
Bolton. —BB
Alli sér
hvað fram fer..
Ég veit ekki hvað
- milli ykkar tveggja
þið látið það ekki koma fram
á vellinum.------------^nI ^Galt’s út.
Mér þykir þetta
leitt, Aili, en hann
i taugarnar''
Ég heyrði hvað skeðif Ví^cínáltum
Alli. Blackmore bauðN SISCjVlð>, ' tilkynnt.... i
einni af vinkonum / V vandræöum ----------—
----- nuna, Bob,
Er Stenmark að
ná sér á strik?
NÁMSKEIÐ í meóferó og vióhaldi á CATERPILLAR
bátavélum veróur haldió dagana 5-7janúar 1977.
Þeir aóilar sem áhuga hafa á þátttöku láti skrá
sig sem fyrst.
AUKIN ÞEKKING -
AUKIÐ ÖRYGGI
Rúnar Gislason Fram og Kristinn Björnsson Val berjast um boltann i
úrslitaleik Reykjavikurmótsins I knattspyrnu innanhúss. Fram sigraði
ileiknum með 6 mörkum gegn 4. Ljósmynd Einar.
sætinu.
Það kom i hlut Walters Tresch
að halda uppi heiðri heimamanna
i Sviss i gær, og með þvi að ná
sinu besta i langan tima tókst
honum að tryggja sér 3. sætið.
Þrátt fyrir að italir séu með
mikið og sterkt lið i keppninni
tókst þeim ekki að komast ofar en
i 4. sætið, það varð Gustavo
Thoeni sem náði þvi
Piero Gros frá Italiu sem hefur
forystuna i keppninni um heims-
bikarinn náöi næstbesta tima i
fyrri umferðinni en i þeirri siðari
fór hann sér hægt og var 2,9 sek. á
eftir Stenmark og náði aðeins 8.
sætinu.'
„Siðari umferðin i stórsviginu i
gær þegar ég náði bestum tima
allra gaf mér aukið traust á
sjálfan mig” sagði Stenmark
eftir keppnina i gær, „og áhor-
fendurir voru einnig mjög vin-
samlegir.”
Við sigurinn i gær færðist Inge-
mar Stenmark upp i 2. sætið i
keppninni um heimsbikarinn, en
italinn Piero Gros hefur enn
forystu i keppninni. gk-.
Ingemar Stenmark virðist nú vera aö komast vel á strik f heimsbikar-
keppninni eftir fremur slaka byrjun. Myndin er tekin af honum fyrir ári
siðan, en þá var hann nánast ósigrandi i heimsbikarkeppninni og
sigraði reyndar örugglega.
„Ég vona að ég sé nú að komast
vel á stað aftur” sagði lngema-r
Stenmark, heim sbikarhafi á
skiðum eftir að hann hefði borið
sigur úr býtum i svigkeppninni i
Laax i Sviss i gær.
Þessi sigur kemur á góðum
tima fyrir Stenmark sem hefur
átt i miklum erfiðleikum að
undanförnu, ^en eftir að hafa eytt
jólunum heima i Sviþjóð með fjöl-
skyldu sinni virðist sem hann
komi tviefldur til keppni á ný, og
verður fróðlegt að sjá hvort hann
nær að fylgja þessum sigri eftir.
19 ára gamall Lichthensteinbúi
kom mjög á óvart i fyrri umferð-
inni i gær og hafði forystu að
.henni lokinni, en i siðari umferð
keyrði Stanmark sem hafði verið
i 5. sæti eftir fyrri umferðina
mjög vel i þeirri siðari og var
rúmlega sekundu betri en næsti
maður — og sigri hans varð þvi
ekki ógnað. Hinn 19 ára Paul Fro-
mellt frá Cichthenstein náði öðru
Hörð keppni
hjó konunum
Lise-Maric Morerod frá Sviss
sýndi það enn i svigkeppninni i
Oberstaufen i V-Þýskalandi i gær
að hún er iikleg til þess aö hreppa
Heimsbikartitilinn að þessu sinni,
þrátt fyrir að nú sé mjög jafnt á
milli þeirra efstu i keppninni og
allt geti skeð enn.
En i keppninni i gær fór það
ekkert á milli mála hver var
sterkust keppenda. Morerod hafði
umtalsverða yfirburði i báðum
umferðunum, og varð yfirburða-
sigurvegari.
1 öðru sæti varð Hanni Wewnzel
frá Lichthenstein og Patricia
Emonet frá Frakklandi varð
þriðja.
Þótt Austurriki ætti engan
keppenda sem blandaði sér
alvarlega i baráttuna i gær eru
þær austurrisku mjög sterkar i
keppninni um Heimsbikarinn, og
eru fjórar þeirra meðal 10 efstu i
stigakeppninni, þeirra á meðal er
Annemarie Moser sem varð 8. i
gær. En staða þeirra efstu i
keppninni er nú þessi:
1. Lise-Marie Morerod Sviss 95
2. Birgitte Habersatter Austurr.
93
3. Annemarie Moser Austurr. 92
4. Hanni Wenzel Sviss 75
5. Nicola Spiess Austurr. 46
6. Cindy Nelson USA 41
7. Claudia Giordani Italia 34
8. Elena Matous Iran 32
9. Monika Kaserer Austurr. 32
10. Birgitte Kerscher Austurr. 25
gk-.
— Hann var yfirburðasigurvegari í svigkeppninni í Sviss
í gœr og er nú í 2. sœti í heimsbikarkeppninni
... ...... .. ...
CATERPILLAR
vélstjórar
*■ —'‘“nn
HEKLA hf
Coterpillar, Cat.og CB eru skrásett vörumerki
Laugavegi 170-172, — Sími 21240