Vísir - 07.01.1977, Blaðsíða 9

Vísir - 07.01.1977, Blaðsíða 9
9 vísm Föstudagur 7. janúar 1977 Hvers vegna þarf að skrifa sðgu íslands erlendis? Þór Whitehead hefur birt nokkrar ritgerðir um viðskipti bandariskra og breskra stjórn- valda við islensk á styrjaldar- árunum og árunum þar á eftir. Helstu heimildir Þórs eru skjöl breska og bandariska utanrfkis- ráðuneytisins. Siðasta ritgerð Þórs birtist i Skirni 1976, — og er sú ritgerð um Keflavikur- samninginn. Þessar ritgerðir Þórs eru mjög merkilegar á margan hátt. Hins vegar er ljóst við lest- ur þeirrar siðustu, að skortur is- lenskra heimilda er honum Þrándur i Götu. Hin íslenska þögn. Það er löngu viðurkennt, að bandarikjamenn veita almenn- ingi bestar upplýsingar um stjórnsýslu sina, og birta skjöl ráðuneyta mjög skömmu eftir að atburðir gerast. Oft hafa þessar birtingar valdið fjaðra- foki og þá ekki siður erlendis, þegar birtar eru skýrslur um einkafundi bandariskra sendi- herra við útlenda menn. Þessi siður bandarikjamanna er ólikur islenskum venjum. Hér fara fáir eftir reglum um birtingu skjala (raunar er hér átt við, að almenningi gefist kosturá aðsjá skjölin á söfnum frekar en að þau séu gefin út), og fer það eftir duttlungum við- komandi ráðuneytis eða stofn- unar, hvort og hvernig almenn- ingur fær aðgang að skjölum. Gilda þó um þetta ákveönar reglur, settar þegar á árinu 1916, með reglugerð um Þjóð- skjalasafn Islands. Skjöl heimil almenningi eftir 35 ár Samkvæmt þessari reglugerö skal afhenda Þjóðskjalasafni öll opinber skjöl er þau eru tuttugu ára, þ.m.t. skjalasöfn stjórnar- ráðs. Almenningi er siðan heimill aðgangur að skjölunum er þau eru þrjátiu og fimm ára, en þjóðskjalavörður getur þó veitt undanþágur, enda verði skjölin ekki notuð manni til niðs. Samkvæmt þessu eru nú al- menningi heimil öll skjöl, fram til ársins 1942. óvíst hvort framkvæmt er Ekki þori ég að fullyrða, hvort hægt er að fá skjöl landsins fram til ársins 1942 i Þjóðskjala- safni. Ekki er það þó vegna óvilja skjalavarða safnsins, heldur vegna hins, að misbrest- ur er á, hvenær opinberar stofnanir skila skjölum sinum til safnsins. Og svo er það auð- vitað Alþingi. Aö vilja lýöræði Upplýsingarskylda stjórn- valda er nauðsynleg i lýðræöis- riki. Aðgangur að opinberum skjölum er eitt veigamesta atriði til þess almenningi gefist kostur á að sjá raunverulega stjórnarframkvæmd. Eins og f Haraldur Blöndal ^ fyrr segir, gefst almenningi i orði kostur á að sjá opinber skjöl eftir 35 ár. Alþingi hefur hins vegar i raun torveldað efndir þess með fjárveitingum. Svo er búið að Þjóöskjalasafn- inu að þaö hefur ekkert húsnæði til þess að varðveita skjöl, — það hefur ekki næga fjárveit- ingu til þess að launa starfsfólk til að annast þessi skjöl og skrá þau. Ástæðan fyrir sinnuleysi Al- þingis i þessu efni er fyrst og fremst, að þeir eru fáir starfs- menn Þjóðskjalasafns og eftir litlu að slægjast i atkvæðum. Kjósendur fagna ekki manni, sem leggur fyrir sig varðveislu skjala i landinu,— eða svo telja alþingismenn. Óttinn við kjósendur verður þannig til þess að þeir gleyma skyldum sinum við lýðræðið. Sambandslögin í rusla- kompu En fleira kemur til. Islending- ar eru einkennilega sinnulausir um varðveislu skjala, þegar þau eru gerð. Ég minnist þess, að fyrir nokkrum árum var stór frétt um það i Mbl., að Sam- bandslagasáttmálinn hafi fund- ist! Þá voru liðin rétt fimmtiu t)r lesstofu Landsbókasafnsins ár frá undirskrift hans og tekið örfá ár að týna honum. Siðan er verið að taka til i kjallara Arnarhvols minnirmig og finnst þá ekki gamalt skjal og þjóö- réttindi islendinga. Og annað er eftir þessu. Dómabækur með ósýni- legu bleki Erlendis eru settar reglur um hvaða blek megi nota á opinber skjöl. Blek máist misjafnlega. Hjá þjóðum, sem taka skjöl alvarlega, er bannað að nota kúlupenna. Astæðan er sú, aö blekið úr pennanum sest ekki i pappirinn heldur á hann. Með timanum máist blekið af. Islendingar nota hins vegar svo til eingöngu kúlupenna til þess að skrifa opinber skjöl. Ég held að við séum eina þjóðin i veröldinni sem notar ósýnilegt blek á skjöl og dómabækur. Aö skrifa sögu íslands er- lendis Allt eru þetta litil dæmi um viöhorf stjórnvalda til skjala- gerðarog geymslu þeirra. Þessi viðhorf hafa m.a. orðið til þess, að islenskur fræðimaöur situr nú erlendis að skrá islenska sögu og verður að styðjast svo til eingöngu við erlendar heim- ildir. Af ritgerð Þórs i Skirni 1976 sést, að hinir erlendu heimildar- menn gefa villandi mynd af vilja islenskra ráðamanna. Kemur þetta i ljós,þar sem hægt er að staðreyna frásagnir bandariska sendiherrans meö þvi að visa i islensk samtima- skjöl. Af heimildaskrá sést hins vegar, að sjaldan tekst Þór að ná i islenskar heimildir. Og hvernig á annað að vera hjá þjóö, sem ekki fékk haldna gerðarbók rikisstjórnar reglu- lega fyrr en 1961. Gleymdist að þakka konunum fyrir baróttu þeirra fyrir byggingu hinnar nýju fœð- ingadeildar Landspítalans: „ÞÆR EIGA SKIUÐ ÞAKKLÆTI FRÁ ÆÐSTU MÖNNUM HEILBRIGÐISMÁLA" — segir Georg Lúðvíksson, framkvœmdastjóri „Vissulega eiga islenskar konur það skilið að þeim sé á veröugan hátt þakkað fyrir þeirra mikla framlag, og það af æöstu mönnum heilbrigðis- mála”, sagöiGeorg Lúðvfksson, framkvæmdastjóri Skrifstofu rikisspitalanna, um nýbyggingu fæöingardeildar Landspitalans við Visi. Það kom fram hjá honum, að hann gat ekki verið viðstaddur, þegar fæðingardeildin var formlega afhenttilnotkunar, en hafði búið sig undir að geta sér- staklega þáttar kvenna i sam- bandi við málið, og eins mikil- vægra áhrifa kvennasamtaka i landinu við aðra stóra áfanga i byggingarsögu Landspitalans. Það vakti nokkra athygli við afhendingu nýbyggingarinnar, að i ræðum manna var litið vikið að hinni miklu baráttu kvenna fyrir framkvæmdum við þá byggingu, en sú barátta varð öðru fremur til þess að ákveðið var að veita gerð þessa húss for- gang umfram aðrar fram- kvæmdir á Landspitalalóðinni. —ESJ Nœstu vikur fylgir myndaalbúm hverri litfílmu er við framköllum viðskiptavinum vorum að kostnaðarlausu Myndaalbúm þessi eru 12 myuéu, kuuéhmg og foro vol í voski Varðveitið minningarnar í varanlegum umbúðum Austurstrœti 7 Sértilboð Týli hf. Afgreiðum jólamyndirnar í albúmum

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.