Vísir - 07.01.1977, Blaðsíða 19

Vísir - 07.01.1977, Blaðsíða 19
ÚTVARP KLUKKAN 22.40: Nýr áfangi íslenskir tónlistarmenn kynntir í þœttinum Áfangar Þátturinn Afangar sem lengi hefur verið á dagskrá á föstu- dögum er nú að breyta litillega um svip. Hingað til hefur ein- göngu verið flutt erlend tónlist i þættinum, en nú hafa þeir As- mundur Jónsson og Guðni Rún- ar Agnarsson, umsjónarmenn þáttarins, ákveðið að gefa meiri gaum að islenskri tónlist. Ekki er hugmyndin að spila allarplötur sem út koma i popp- heiminum, heldur vanda valið, taka viðtöl við bæði leikmenn og tónlistarmenn, og ekki ein- göngu poppara, heldur einnig flytjendur annars konar tónlist- ar. í kvöld verða leikin lög af breiðskifu hljómsveitarinnar Eik, en hún kom út fyrir jólin. Þeir Lárus Grimsson hljóm- borðsleikari hljómsveitarinnar og Haraldur Þorsteinsson bassaleikari koma i heimsókn og ræða um plötuna og starf hljómsveitarinnar. Eik var valin að sögn As- mundar vegnaþess aðþeirhafa nokkra sérstöðu meðal ís- lenskra popphljómsveita. Sömu menn hafa skipað hana i lengri tima en gengur og gerist og þeir eru einnig óháðari hinum ýmsu tónlistarstefnum sem skjóta upp kollinum en gengur og ger- ist. I framtiðinni verða væntan- lega fleiri islenskir tónlistar- menn kynntir i þættinum, svo framarlega sem þeir passa inn i þann ramma sem Asmundur og Guðni Rúnar hafa smiðað um hann. — GA Þeir Guðni Rúnar og Asmundur kynna Islenska hljómsveit I þætti sínum I kvöld. Það er f annað skipti sem það er gert. Fyrir stuttu var ný plata Þokkabótar leikin og rætt við meðlimi flokks- ins. SJÓNVARP KLUKKAN 22.05: Henry Fonda og Claudette Colbert I dramatfsku atriði i myndinni i kvöld. Aldei að víkja er nafnið á bíómyndinni í kvöld Biómyndin sem sjónvarpið sýnir i kvöld er hvorki meira né minna en 38 ára gömul. Hún er bandarisk og var á sinum tima mjög dýr i framleiðsiu, en þeir peningar skiluðu sér, þvi hún öðlaðist ágætar vinsældir. Sagan greinir frá ungum hjónum sem nema land i af- skettum dal. Miklir erfiðleikar verða á vegi þeirra ekki sist indjánar. Mörg ljón eru i vegi þeirra við frumbyggjastarfið, en þó kannski miklu fleiri indjánar, þvi þeir ráðast á bú- garðþeirra, leggja hann í rúst og eyðileggja uppskeruna. Þýðandi myndarinnar er Ingi Karl Jóhannsson. Það eru stórstjörnur sem leika aðalhlutverkin, Claudette Colbert og Henry Fonda, en John Ford er leikstjóri. Claudette Colbert var ein af þekktustu hollywood-leikkonun- um á timabilinu frá 1930 til 1945 og fékk meðal annars Óskars- verðlaunin 1934 fyrir leik sinn i myndinni It Happened One Night þar sem hún lék á móti Clark Gable. Hann fékk einnig sömu verðlaun fyrir sinn leik, og það var lengi vel i eina skipt- ið sem bæði þessi verðlaun unn- ust fyrir sömu myndina, eða allt þar til i fyrra að Gaukshreiðrið hirti þau og fleiri til viðbótar. Claudette var fyrst og fremst gamanleikkona, en henni þótti einnig takast þokkalega upp i alvarlegri hlutverkum. Við sjá- um hana einmitt i einu sliku i kvöld, einmitt þegar hún stóð á hátindi frægðar sinnar. Þess má geta að þessi mynd var tekin i litum, sem þótti ný- næmi i þá daga er myndin var gerð. — GA Orku- og iðnaðarmál og fleira Tvö mál verða tekin fyrir i Kastljósi kvöldsins, sem Guðjón Einarsson sér um. Fyrst munu fyrrverandi og núverandi orkumálaráðherrar þeir Magnús Kjartansson og Gunnar Thoroddsen ræða um stefnuna i orku-og iðnaðarmál- um i ljósi nýjustu áfanga i virkj- unarframkvæmdum, það er Hrauneyjafossvirkjun og Sig- ölduvirkjun. Siðar mun Ómar Ragnarsson sjá um seinni hlutann sem verður um slökkvistarf og eld- varnir. Mikið hefur verið um eldsvoða að undanförnu og mik- iö mætt á slökkviliðinu af þeim sökum. Kveiknað hefur i háhýsi og logað i miðbænum og fleiri stöðum. Talsmaður slökkviliðs- ins mun mæta i sjónvarpssal og væntanlega lýsa framkvæmd slökkvistarfs og svara gagnrýni sem slökkviliðið hefur orðið fyrir. Kastljós hefst klukkan 21.05 og lýkur klukkutima siðar. —GA Föstudagur 7. janúar 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Við vinnuna: Tónleikar. 1430 Miðdegissagan: „Bókin um litla bróður” cftir Gustaf af Geijerstam Séra Gunnar Arnason les þýð- ingu sina (3). 15.00 Miödegistónleikar Victor Schiöler, Charles Senderovitz og Erling Blöndal Bengtsson leika Tió i G-dúr fyrir pianó, fiðlu og selló eftir Haydn. Italski kvartettinn leikur Strengja- kvartetti F-dúr (K590) eftir Mozart. Lesin dagskrá næstu viku 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popphorn 17.30 Ctvarpssaga barnanna: „Vetrarævintýri Svenna I Asi” Höfundurinn, Jón Kr. Isfeld, les (8). 17.50 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Landnámssagnir tslend- inga i ljósi goðsagna Einar Pálsson flytur fyrra erindi sitt. 20.00 Frá tónlistarhátið i Helsinki Sinfóniuhljómsveit útvarpsins i Helsinki leikur. Stjórnandi: Okku Kamu. Einleikari: Oleg Kagan. a. „Egmont”, forleikur eftir Beethoven. b. Fiðlukonsert i d-moll op. 47 eftir Sibelius. 20.45 Myndlistarþáttur i umsjá Hrafnhildar Schram. 21.30 útvarpssagan: „Lausn- in” eftir Arna Jónsson Gunnar Stefánsson les (2). 20.00 Fréttir 22.15 Fréttir 22.15 Veðurfregnir Ljóðaþátt- ur Umsjónarmaður: Njörð- ur P. Njarðvik. 22.40 Afangar Tónlistarþáttur sem Ásmundur Jónsson og Guðni Rúnar Agnarsson stjórna. 23.30 Fréttir. Dagskrárlok. Föstudagur 7. janúar 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Prúðu leikararnir. Skemmtiþáttur hins fjöruga leikbrúðuflokks Jim Hens- ons. Gestur i þættinum er Paul Williams. 21.05 Kastljós. Þáttur um inn- lend málefni. Umsjónar- maður Guðjón Einarsson. 22.05 Aldrei að vikja (Drums along the Mohawk) Banda- risk biómynd frá árinu 1939. Leikstjóri John Ford. Aðal- hlutverk Claudette Colbert og Henry Fonda. Ung hjón nema land i Mohawk-dal i Bandarikjunum. Búskapur- inn gengur vel, þar til indi- ánar ráðast á búgarð þeirra, leggja hann i rúst og brenna uppskeruna. Þyö- andi Ingi Karl Jóhannsson. 23.45 Dagskrárlok.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.