Vísir - 07.01.1977, Blaðsíða 24

Vísir - 07.01.1977, Blaðsíða 24
vfsra Föstudagur 7. janúar 1977 Jólasveinar og forynjur skemmta Eyjamönnum Jólasveinar, Grýla, Leppa- lúöi, álfar og ýmiss konar for- ynjur þrömmuöu um götur i Vestmannaeyjum i gærkvöldi og efndu til gleöskapar. Tóku flestir eyjamenn þátt i gleð- skapnum, bæöi ungir og gaml- ir. bessum sið hefur lengi veriö haldið i Eyjum. Jólasveinar kveðja og i lið með þeim bæt- ast fyrrnefndar persónur. Klukkan rúmlega átta hófst allt með þvi að flugeldum var skotið á loft. Eftir slika sýn- ingu þrammaði öll hersingin að elliheimilinu. baðan var haidið á iþróttavöllinn og kveikt i brennu. Upphófst mikiö fjör viö brennuna og eft- ir dans var haldiö aö sjúkra- húsinu og siðan gegnum bæ- inn. tþróttafélagið Týr stóö fyrir skemmtuninni að þessu sinni. Fór allt vel fram og voru menn hinir ánægðustu með kvöldiö. — EA ÁFENGI OG VINDLING- UM STOLIÐ Brotist var inn f einn klúbbinn á Keflavikurvelli f fyrrinótt. tlr klubbnum sem kallast CPO-kiábburinn var stoliö vindlingum og áfengi. Ekki var ljóst hversu miklu haföi veriö stoliö. t morgun haföi enginn veriö handtekinn vegna innbrotsins. —EA Hefur játað á sig þrjú innbrot — stal ávísanaheft- inu í einu þeirra Pilturinn sem tekinn var fyrir aö falsa 95 þúsund króna ávisun hefur nú játaö á sig þrjú innbrot þar sem tals.'>erö- ar skemmdir voru m.a. unnar. I einu þessara innbrota stal hann ávisanaheftinu sem hann notaöi við fyrrnefnda fölsun. Innbrotin voru upplýst i gærdag hjá rannsóknarlög- reglunni i Hafnarfirði. Að sögn Sveins Björnssonar rann- sóknarlögreglumanns braust pilturinn inn i Langeyri, sem er frystihús, en þar stal hann ávisanaheftinu. Innbrotið var framið 11. nóvember. Siöar braust hann inn i fisk- verkunarstööina Sjólastöðina og skemmdi þar mikið. Var það tæpum mánuði siðar en hann braust inn I Langeyri. Á gamlársdag braust hann inn i Bátalón sem er skipasmiða- stöð og vann þar miklar skemmdir. Braut m.a. hurðir. Pilturinn kveöst hafa staöiö einn að þessum innbrotum, sem öll voru framin i Hafnar- firði. — EA Ríkisstjórnin hefur tekið ókvörðun: Frjáls innflutningur á litasjón varps tœkjum „Rikisstjórnin tók ákvöröun um aö leyfa frjálsan innflutning á litsjónvarpstækjum á þriðju- daginn var, en haföi ekki fyrir þvi aö láta neinn vita um þaö. En viö fengum upplýsingar um þetta i morgun, og fyrstu tækin verða til reiðu hjá okkur eftir hádegiö, sagöi Vilberg hjá Radióstofu Vilbergs & borsteins I viðtali viö Visi I morgun. bað vakti athygli að þeir Vilberg og borsteinn auglýstu litsjónvarpstæki i hljóðvarpinu i morgun, en ástæðan var sem sagt sú, að þeir reyndust fyrstir til aö grafa upp upplýs- ingar um þessa ákvörðun rikis- stjórnarinnar. „Við báðum bankann að at- huga þetta fyrir okkur i gær, og þá kom I ljós, að þessi ákvörðun hafði verið tekin, en hins vegar ekki haft fyrir þvi að láta neinn vita um hana”, sagði Vilberg. -ESJ Krafla HAFNARFJÖRÐUR: Sýruvandamólið ekki úr sögunni „bessi 10 megawött eru a 11- miklu minna en viö vonuöumst til i upphafi, en þaö hefur veriö ljóst siöan i sumar aö holurnar skiluöu ekki þvi sem búist haföi verið við”, sagöi Karl Ragnars ] verkfræðingur hjá Orkustofnun i samtali viö Visi i morgun. Samkvæmt mælingum sem gerðar voru á borholunum við Kröflu i nóvember og desember gefa fjórar holur þar nú 13 megawött, sem gefa i nettó- framleiðslu um 10 megawött. Karl sagði aö vélar Kröfluvirkj- unar ættu að fara i gang i mars- mánuði n.k. samkvæmt fram- kvæmdaáætlun og væri allt útlit fyrir að sú áætlun stæðist. Að- spurðúr sagðist Karl ekki vilja spá neinu um framtiðina. Mikið umrót ætti sér nú stað á svæðinu og þvi ekki hægt að segja um hvort framleiðsla holanna héld- ist óbreytt. Tæringarvandamálin ekki úr sögunni Karl sagði að tæringarvanda- málið vegna kolsýru á svæðinu væri ekki úr sögunni, en nú stæði yfir efnagreining á tær- ingarmætti vatnsins. Tæringar- innar yrði þannig vart að svart- ur blær kæmi á vatnið. Sagðist hann ekki telja að tæringar- skemmdir kæmu i ljós fyrr en eftir nokkur ár, þannig að þær skemmdir sem komið hefðu fram á holum fram til þessa væru af öðrum orsökum. Kolsýrumagnið er mismun- andi eftir holum, en það hefur vaxið mjög á svæðinu eftir eld- gosið. Fyrir þann tima sagði Karl að það hefði verið svipað og á öðrum jarðhitasvæöum.SJ Þorskstofn við Grœn- land dregst saman „Ekki mikils of honum að vœnta", segir Ólafur Karvel Pálsson fiskifrœðingui „Sá þorskur viö Grænland sem aöallega kcmur til álita hér er viö austur-Grænland. En hann er illa farinn og ckki mik- ils af honum aö vænta”, sagöi Ólafur Karvcl Pálsson fiski- fræöingur i samtali viö VIsi. ólafur sagöi að samkvæmt „kolsvörtu skýrslunni” svonefndu heföi stærð þorsk- stofnsins við austur-Grænland minnkað mjög mikið á undan- förnum árum. Ariö 1963 var fjöldi hrygningarþorsks á þeim slóðum 160 milljónir, 1972 var hann orðinn 28 milljónir, 1974 7 milljónir og 1975 21 milljón. bann fyrirvara veröur aö hafa á tölunum fyrir 1974 og 1975 aö þær eru ónákvæmari en hin- arog þó svo aö samkvæmt þeim fari stofninn vaxandi þarf svo ekki að vera. Misheppnað klak og mikil veiði. baö sem veldur þessu er bæöi misheppnað klak og svo mikil veiði. Ekki eru fiskifræðingar á eitt sáttir hvað valdi hinu misheppnaða klaki. Telja sumir þar á meðal höfundar kolsvörtu skýrslunnar að þessu valdi kólnandi sjór. Siðan árið 1963 hefur ekki komið upp almennilegur stírfn, aö heita má, ef frá er taliö árið 1968. bað er eina árið sem stofn- inn hefur náð meðalstærö. borskárgangurinn hér við land árið 1973 var mjög sterkur eins og kunnugt er. Aö sögn ólafs Karvels er talið að hluti hans hafi fariö til Grænlands og gæti komið þar til hrygningar, en þaö yrði þó ekki fyrr en áriö 1980. —EKG bessar rúöur voru m.a. brotnar IHafnarfiröi f gærkvöldi, en þar vill oft koma til óláta á þrettándanum. Brutu um 40 rúður oq skemmdu mikið Talsverö ólæti uröu i Hafnar- firöi i gærkvöldi en þar hefur oft áöur komiö til óláta á þrettánd- anum. Ungmenni söfnuðust saman á Strandgötunni i gær- kvöldi. begar liða fór á tók aö bera á talsverðum ærslum, og kom til þess aö rúöur voru brotnar. Alls voru brotnar um fjörutiu rúður i miðbænum, i verslunum og fyrirtækjum. Flestar eru rúðurnar litlar en nokkrar stór- ar voru einnig brotnar. Brotn- uöu rúðurnar þegár þeir sem þarna voru að verki hentu snjó- boltum i þær. Ekki var látið þar við sitja heldur fengu umferðarmerki lika að kenna á þvi og einnig öskutunnur, sem velt var. Láta merkin að sjálfsögðu nokkuð á sjá eftir. Lögreglan i Hafnar- firði hafði hendur i hári margra ungmenna. I morgun voru fimm enn i gæslu lögreglunnar. beir sem söfnuðust saman og efndu til ólátanna voru flestir talsvert undir tvitugu. Ekki bar mikið á ölvun. Annars staðar virðist þrett- andinn hafa verið rólegur. Nokkuð var um það að flugeld- um væri skotið á loft og á Sel- tjarnarnesi var kveikt i brennu. t Reykjavik var kvöldið sérlega rólegt og var ekki vitað til þess að neitt sérstakt hefði gerst. —EA.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.