Vísir - 20.01.1977, Side 4

Vísir - 20.01.1977, Side 4
Fimmtudagur 20. janúar 1977. vism Umsjón: Guðmundur Pétursson Redford og Loren vinsœlust Sophia Loren og Robert Red- ford voru vinsælustu kvikmynda- stjörnurheims á siöasta ári, sam- kvæmt skoöanakönnun, sem Reuter-fréttastofan geröi fyrir blaöamannafélag Hollywood. Byggöist könnunin á upplýsing- um frá miöasölum kvikmynda- húsa i 56 löndum. Viö sérstaka viöhöfn veröa þessum tveim leikurum afhent „Golden Globe”-verölaunin þann 29. janúar. Þetta veröur i annaö sinn, sem Redford vinnur til þessara verö- launa. Fyrra skiptið var 1974. — Hinsvegar er þetta i fyrsta skipti, sem Sophia Loren vinnur þau. Flóð í Brasilíu Slökkviliðsmenn notuð- ust við báta til þess að bjarga þúsundum íbúa Sao Poulo/ eða öllu heldur þeim hlutum borgarinnar, sem liggja lægst. Fólkið hefur orðið að leita skjóls uppi á húsþökum undan flóðum# sem lagt hafa heilu hverfin undir vatn. Tvær ár i þessum hiuta Brasiliu hafa flætt yfir bakka sina eftir úr- hellisrigningar einnar nætur. Svo mikill hefur vatnagangurinn ver- ið, aö áætlunarbilar og einkabilar eru strandaöir á vegum, sem liggja núna undir vatni. 1 héraöinu Mato Grosso hafa flóöin valdiö usla á nautabúum. Nokkur þúsund nautgripir hafa drukknaö. Klífa fjöll á móforhjólum Fimm spænskir fjallgöngu- menn hafa ráöist á hæsta tind i vesturheimi meö mótorhjól, og hafa raunar þegar slegið hæöar- met þessara farartækja, þvi aö þeir eru komnir langleiöina upp á tindinn. Fréttist af þeim i fyrradag, þar sem þeir voru staddir i 6,400 metra hæö á fjallinu Aconcagua i Argentinu, en þaö er 6,959 metr- ar. — Þessir sömu fjallgöngu- menn áttu eldra hæðamet mótor- hjóla, þvi aö þeir fóru upp á f jalliö Kilimanjaro i Afríku (rúmir 6 þúsund metrar) á mótorhjólum fyrir tveim árum. Þeir nota spænsk 350 cc Bul- taco-torfæruhjól meö nagladekkj- um. Jimmy tekur við Jimmy Carter/ 39. for- seti Bandaríkjanna, flaug i gærkvöldi frá Plains í Georgíu til Washington vegna embættistökunnar/ sem fram fer í dag. Um kl. 17 I dag að ís- lenskum tíma mun Carter sverja embættiseiðinn/ fyrsti suðurríkjamaður- inn í nær heila öld/ sem sest i forsetastólinn. Hann ræddi viö fréttamenn viö brottför sina frá Georgiu i gær og sagöi: ,,Ég trúi, aö viö stefnum nú til mikilfenglegri tima en viö höfuö lifaö áöur.” „Ef ég get staöiö þjóöinni nær og ekki valdiö henni vonbrigð- um, tel ég, aö ég eigi möguleika á þvi aö veröa mikill forseti. — Ég mun gera mitt besta, og ég f dag held, aö ég hafi þaö til aö bera — og i nógu miklum mæli — sem þarf til þess að þjóna banda- risku þjóðinni vel og afreka miklu. — Allur heimurinn vill, aö mér heppnist ætlunarverk mitt og þaö veitir mér öryggi.” Siöasti dagur hans sem óbreytts borgara var likur þeim, sem gengur og gerist hjá fólki fyrir ferðalög. Siöustu verkin heima i Plains lutu aö þvi aö skrúfa fyrir vatn og raf- magn, loka gluggum og læsa dyrum. Eiötakan i dag mun fara fram á tröppum þinghallarinnar, og mun forseti hæstaréttar, Warr- en Burger, taka af Carter eiö- inn. — Carter mun flytja tiu minútna ræöu. Aö lokinni þessari athöfn munu þau Ford fráfarandi for- seti og kona hans, Betty, fljúga burt úr höfuðstaðnum og til Kaliforniu, en Jimmy og kona hans munu aka i skrúðgöngu langleiðina til Hvita hússins, en ganga siðasta spölinn um 200 metra. Þar munu þau standa á sérstökum viðhafnarpalli i garöi Hvita hússins og horfa á skrúögöngu, sem framhjá fer næstu þrjár klukkustundirnar. Eitt af þvi sem Carterfjölskyid- an flutti meö sér til Hvita húss- ins frá heimili þeirra I Georgiu er dúkkuhúsið hennar Amy, dóttur þeirra. „Hrœddur er ég um, að við sœkjum ekki vel að þeim, Cyrus minn! Það er ekki eining innan fjölskyJdunnar." Sadat hœtti við verðhœkkanir vegna óeirða Átök áttu sér enn stað i morgun i sumum út- hverjum Kairó, þar sem óeirðir brutust út vegna óánægju almennings með fyrirhugaðar verð- hækkanir. Óeiröirnar brutust út á þriðju- dag og hefur lögreglan orðiö aö hafa hemil á óeirðarseggjum. — 30 hafa látiö lffið i þessum átök- um. Þetta eru verstu uppþot, sem oröiö hafa i Egyptalandi siðan matvælaóeiröirnar I janúar 1975. Stjórnvöld hafa séö sig tilknúin aö fresta veröhækkunum, en þaö hefur ekkimagnaöað friöa fólkiö. — Lýst hefur nú veriö yfir 14 Það hefur hitnaö i kolunum hjá Sadat, egyptalandsforseta. klukkustunda útgöngubanni i Kairó og Alexandriu og lögregl- unni gefin fyrirmæli um að hika ekki við að beita skotvopnum gegn hverjum þeim sem rýfur friðinn. Chirac borgarstjóri Parísarborgar? Jacques Chirac, fyrrum forsætisráð- herra Frakklands, leiðtogi gaullista, brá öllum að óvörum fæti fyrir áætlanir Giscards D’Estaings forseta i gær, þegar hann lýsti því yfir, að hann ætlaði að bjóða sig fram til borgarstjóraembættis Parisar. Chirac, sem sagöi af sér embætti forsætisráðherra i ágúst I fyrra vegna stefnu- ágreinings viö forsetann, sagöist bjóöa sig fram til þess aö koma i veg fyrir aö höfuö- borgin félli i hendur hinni vinstrisinna stjórnarandstöðu. D’Estaing hefur hins vegar lýst yfir stuöningi viö framboö eins ráöherra sinna, Michel D’Omano, iðnaöarráöherra. Paris hefur veriö borgar- stjóralaus I meira en öld, en borgarstjóraembættið hefur nú verið endurlifgaö. Þykir sá maður, sem gegna mun þvi lik- legur til mikilla áhrifa I stjórn- málalifi Frakklands og margir skoöa þaö sem liklegan stökk- pall I forsetaembættiö sjálft. Chirac etur kappi viö D’Estaing forseta. Hœttuleg vopn Tengdamóðirin, Mar- garet Johnston, til heimilis i Middles- brough á Englandi, var dæmd fyrir að hafa i fór- um sínum stórháskalegt vopn. Nefnilega köku- kefli. Áöur hlýddi dómarinn á skýrslu um, hvernig hún heföi lamið tengdason sinn i höfuöiö meö kökukeflinu, eftir aö hann haföi lent I rifrildi við eiginkonu sina. — Einhvern tima áöur haföi hún brotiö á honum nefið, sömuleiöis meö kökukefli. Þessi fimmtuga skapharöa kona fékk skilorðsbundinn dóm, eftir aö hafa lofað aö gripa aldrei til þessa vopns aftur.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.