Vísir - 20.01.1977, Blaðsíða 24

Vísir - 20.01.1977, Blaðsíða 24
& V 4ÍHU feiiba ’jgj mKS n Fimmtudagur 20. janúar 1977. Höfuðpaurinn i stóra hassmólinu komst úr fangelsinu ó Keflavík- urflugvelli í gœr- kveldi Jökulvatnið veldur tœringu í Búrfellsvirkjun: Skipta um slitfleti á leiðiskóflum í sumar Hasskóng- urinn enn ófundinn Skipt veröur um slitfleti á svonefndum leiöiskúflum í Búr- fellsvirkjun I sumar, og er áætl- aö, aö þaö verk taki um mánaöartima. I viötölum Visis viö Halldór Jónatansson, aðstoöarfram- kvæmdastjóra, og Guðmund Helgason, verkfræðing, hjá Landsvirkjun, kom fram, jökul- vatniö I Þjórsá hefur valdið til- tölulega mikilli tæringu á slit- flötum leiðiskóflanna, sem eru I inntaksrörunum og skammta vatnið inn á vélar virkjunarinn- ar, miöaö við það, sem gerist i virkjunum, þar sem vatnið er hreinna. Vatnið í Þjórsá flytur meö sér mikið af virki, leir og sandi, og tæringin verður af þessum sök- um meiri. „Það var reiknaö með þessu frá upphafi,” sagöi Halldór, ,,en við vissum ekki fyrir vist hversu mörg ár mættu liða þar til endurnýjun þyrfti að fara fram. Nú er slitiö oröið það mikiö, að við höfum ákveðið að fara I skipulagða endurnýjun á slitflötunum i sumar”. Það kom fram hjá Guðmundi, að þessi endurnýjun myndi taka um mánaðartima. Taka verður hverja vél fyrir sig úr vinnslu á meöan endurnýjun fer fram á slitflötum leiðiskóflanna fyrir þá vél, og er slikt viðhald yfir- leitt alltaf unnið á sumrin, þeg- ar álagstiminn er minnstur. —ESJ Bandarikjamaöurinn Christofer Barba Smith, sem var einn höfuöpaurinn i fikni- efnamálinu mikla, sem nýlok- iö er viö aö rannsaka, braust út úr bandarfska herfangels- inu á Keflavikurflugveili I gærkvöldi og gengur enn laus. Aðfarir Barba Smith, sem almennt gengur undir viöur- nefninu „Korkurinn”, við að komast út úr fangelsinu þar sem hann hefur verið eftir aö bandarisk yfirvöld fengu hann lausan úr Siðumúlafangelsinu, minna helst á þær sem maður sér i gömlum kúrekamyndum. Hann fékk landa sinn, sem var fangavöröur til að koma að klefa sinum, þar sem hann yfirbugaði hann og lokaöi hann siöan inni I fangaklefan- um. Or jakkavasa hans tók hann lykla að Toyota Station bil — númer JO 7517 — og á honum ók hann út af flugvell- inum. Lögregluþjónn sem var við hliðið kannaöist við kauða, en er hann ætlaði að ræða við hann, slökkti hann ljósin á bílnum og ók á fullri ferð i gegn. Lýsing af honum og bilnum var send til allra lögreglu- stöðva i nágrenninu, og mjög strangt eftirlit er haft með öll- um flugvélum og skipum, sem eru að fara frá landinu. Mikið var um að vera á lög- reglustöðvum á Stór- Reykjavikursvæðinu I nótt og allir tiltækir bilar og menn úti að leita. Starfsmenn fikni- efnadeildarinnar voru að störfum i alla nótt vegna þessa máls og menn frá herlögregl- unni á Keflavlkurflugvelli voru einnig til staðar, enda er maöurinn talinn hættulegur. -klp- Hár Christofers er styttra i dag en þaö var þegar myndin var tekin. Má segja aö hann sé nú meö dæmigeröa amerl- kanaklippingu. Hann er kom- inn meö alskegg og yfirskegg- iö er styttra. Hann er Hklega ekki meö gleraugun, en hins vegar mun hann hafa hring i eyranu. Myndin er birt I sam- ráöi viö lögregluna. Brottflutningur fró Kröflu gekk samkvœmt áœtlun Páll Bergþórsson veöurfræöingur meö eitt spákortanna. Hann var baöaöur björtu sólskini sem viö höfum fengiö aö njóta nú undanfariö og á kortinu er sumarbltöa nú um hávetur. Ljósmynd Vfsis Jens ’ „Oft leiðínlegra að vera ó vakt" — segir Póll Bergþórsson, veðurfrœðingur, sem spóir góðu veðri ófram „Þaö er oft Ieiöinlegra aö vera á vakt en núna” sagöi Páll Bergþórsson veröurfræöingur er Vísir heimsótti hann á veöur- stofuna I gær þar sem hann vann viö gerö veðurspákorta. „Veöriö er frekar rólegt og viðráðanlegt. En þaö er afar misjafnlega erfitt að spá fyrir um veður. Þaö fer eftir hve lægðir fara hratt og hversu óreglulegar þær eru. Það virðist ætla að veröa skikkanlegt veðurlag og eins og það er, er það stórkostlegt.” Páll sagði veður alls staðar á landinu vera gott um þessar mundir. En á austfjörðum væri nokkur þoka. Hiti er um frost- mark viðast hvar á annesjum, og vindur hægur. „Og útlitið er gott”, bætti hann við. — EKG „Þetta gekk allt samkvæmt áætlun og virðist enginn glund- roöi hafa skapast,” sagöi Guö- jónPetersen framkvæmdastjóri Almannavarna I samtali viö Vfsi I morgun. „Viðvörun um að yfirgefa svæðið kom kl. 00:15 og 15 mfn- útum síðar var skráningarbill- inn á vegamótum Kröfluvegar byrjaöur að vinna. Við höfum miöaö við það I æfingum okkar þarna að brottflutningur ætti að geta verið kominn i gagn á 20 mlnútum, svo þetta var alveg I samræmi við áætlunina.” Um klukkustundu eftir að við- vörunin var gefin voru þvi sem næst allir starfsmenn Kröflu- virkjunar komnir til byggða. Um 50 þeirra héldu áfram til Húsavikur, en 120 gistu I Hótel Reynihlið, Hótel Reykjahliö, i skólum og öðrum stöðum i Mý- vatnssveit. 1 nótt voru um 100 manns viö Kröflu, visindamenn, mælinga- menn, búðastjóri og eftirlits- menn. Guðjón Petersen sagði að enn væri talið hættuástand á svæð- inu, þrátt fyrir að dregið hefði nokkuð úr óróanum. 1 gær var ákveðinn fundur i almanna- varnaráði kl. 11 i dag og sagði Guöjón að nú yrði breytt um fundarefni, þar sem ætlunin hafi verið að ræöa þaö hvort hætta ætti vinnu við Kröflu. Nú yröi umræðuefnið hvort og hvenær eigi að hefja vinnu á ný. Hver afstaöa ráösins verður mun byggjast á áliti jarðvis- indamanna, en fólki veröur ekki að sinni hleypt inn á svæðið. Eitt þeirra mála sem átti að ræöa á fundinum voru tilmæli frá almannavarnanefndinni i Mývatnssveit um framhald á gerö varnargarðsins. —SJ.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.