Vísir - 19.02.1977, Blaðsíða 3
vism Laugardagur 19. febrúar 1977
3
— Rannsóknarstofnun
heimsótt ó
loðnuvertíðinni
hringja verksmiöjurnar til að fá
fréttir af þessu, og þurrefna-
mælingunum.
Skýrslugerðir eru töluveröar
vegna mælinganna. Er verk-
smiðjum, útgerðarmönnum og
Verðlagsráði Sjávarútvegsins
sendar skýrslur um mælingarn-
ar.
Fjórir vinna við mælingar
vegna loðnunnar. Þá eru á úti-
búum Rannsóknarstofnunar
fiskiðnaöarins i Vestmannaeyj-
um tveir, og i Neskaupstað er
einn. Aðrir starfsmenn á
stofnuninni i Reykjavik, vinna
einnig við mælingarnar á kvöld-
in til aöleysa föstu mennina af.
—EKG
Siguröur Pálsson undirbýr þarna mælingar á þurrefnisinnihaldi
loðnunnar.
Þeir sóttu um Sölu varnarliðseigna
Sex drógu nöfn
sín til bakn
Einar Ágústsson utanrikis-
ráðherra hefur nú birt lista með
nöfnum þeirra manna sem sóttu
um stöðu forstjóra Sölu varnar-
liðseigna. Á lista utanrikis-
ráðherra voru aðeins þeir menn
sem ekki höfðu dregið nöfn sín
til baka er staðan var veitt
Alfreð Þorsteinssyni.
Eftirfarandi formála hafði
Einar Agústsson með nafn-
birtingunni.
„Enda þótt ég telji að skiln-
ingur minn á skyldu til birtingar
á nöfnum þeirra manna sem
sóttu um starf forstöðumanns
Sölu varnarliðseigna sé réttur
sé ég enga ástæðu til annars en
að birta nöfn þeirra manna sem
sóttu um og ekki höfðu dregiö
umsókn sina til baka er sett var
I stöðuna. Að þvi er ég best veit
eru nokur dæmi um þaö að nöfn
umsækjenda hafi ekki verið birt
fyrr en um leiö og embættum
hefur veriö ráöstafaö. — Auk
Alfreðs Þorsteinssonar sóttu
eftirtaldir menn um áðurgreint
starf.
Aðalsteinn P. Maack,
forstöðumaöur byggingareftir-
lits rfkisins, Agnar R. Hall-
varðsson vélstjóri, Alvar
Óskarsson skrifstofustjóri,
Björn Stefánsson fulltrúi SÍS,
Friðrik Stefánsson fulltrúi
rannsóknardeildar rikis-
skattstjóra, Franklin
Friðleifsson aðalfulltrúi
Bifreiðaeftirlits rikisins,
Guðmundur Karlsson blaða-
maður, Guömundur Marteins-
son sjómaður, Gunnlaugur M.
Sigmundsson fulltrúi i
fjármálaráöuneytinu, Hrafn
Einarsson verslunarmaður,
Ingi B. Arsælsson fulltrúi i rikis-
endurskoðun, Ingibergur Þor-
kelsson atvinnurekandi, James
A. Wilde framkvæmdastjóri,
Július M. Magnús atvinnu-
rekandi, Kári Guömundsson
heilbrigðisráðunautur, Kristinn
Gunnarsson deildarstjóri I sam-
gönguráðuneytinu, Ólafur
Karvelsson deildarstjóri i inn-
flutningsverslun, Páll Andreas-
son kaupfélagsstjóri, Páll Vida-
lin Valdimarsson deildarstjóri
Sindrastáls, Ragnar Pétursson
sölustjóri SÍS, Siguröur Jónsson
iðnrekandi, Sigurður Orn
Ingólfsson, tæknimaður, Sigur-
jón Guðbjörnsson fulltrúi i Fri-
höfninni á Keflavlkurflugvelli,
Sigurjón Magnússon atvinnu-
rekandi, Sigurjón Friðgeirsson
skrifstofustjóri tollstjóra, Skúli
Ólafs atvinnurekandi, Vilhjálm-
ur H. VilhjálmSson stórkaup-
maður, og Þröstur Sigtryggsson
skipherra.
Þess má geta að I hópi þeirra
sem upphaflega sóttu um starf
forstjóra Sölu varnarliöseigna
var Stefán Skarphéðinsson
skrifstofustjóri fyrirtækisins.
Eins og fram kom i VIsi óskaöi
hann eftir aö fá nöfn umsækj-
enda i hendur en fékk ekki
Stefán dró umsókn sina til baka
áður en formlega var i hana
veitt.
Ekki hefur Stefán þó verið
einn um að draga umsókn sina
til baka áður en staðan var
veitt. Þvi eins og sjá má af list-
anum voru það eingöngu 28 nöfn
sem eru birt, en opinberlega var
búið að gefa út áður að 34 hefðu
sótt um.
—EKG
Hœstiréttur um verðtryggingarákvœði í
byggingarsamningi við BSAB:
í fullu gildi þrátt
fyrir lögin frá 1966
Hæstaréttur hefur staöfest
ddm undirréttar i máli, sem Jó-
hannes Long höfðaði á hendur
Byggingasamvinnufélags at-
vinnubifreiðastjóra (BSAB),
þar sem Jóhannesi voru dæmd-
ar visitöiubætur á framlag sitt
til lbúðakaupa hjá félaginu.
Mál þetta var höfðað meö
stefnubirtri 13.mars 1973, en 21.
nóvember sama ár var dómur
kveðinn upp á bæjarþingi
Reykjavikur. BSAB áfrýjaði
málinu til Hæstaréttar, sem
kvaö upp dóm sinn 1. febrúar
s.l.
Málavextir voru þeir I stuttu
máli, að Jóhannes gekk i BSAB i
febrúar 1972, og gerði samning
um kaup á ibúð, sem félagið ætl-
aði að reisa við Asparfell. Um
sama leyti seldi hann Ibúð, sem
hann átti og greiddi samkvæmt
samningi 647 þúsund krónur til
greiðslu á byggingarkostnaði
þeirrar ibúðar.
Aætlað var þegar hann geröi
samninginn, að húsið yrði
ibúðarhæft á árinu 1973, sem
skipti hann miklu máli, þar sem
hann hafði þegar selt ibúð sina.
Hætti við ibúðakaup
vegna tafa á smiðinni
Brátt kom I ljós, aö mikill
dráttur yröi á byggingafram-
kvæmdum við húsið. Taldi hann
þá augljóst, að hann gæti ekki
staðið fjárhagslega undir um-
ræddri ibúö, þar eð kostnaðar-
verð hennar færi af þeim sökum
sihækkandi vegna sihækkandi
byggingarkostnaöar. Akvaö
hann þviaö segja sig úr félaginu
og geröi þaö með bréfi 22.
nóvember 1972. Óskaði hann
siðan eftir að fá endurgreitt
framlag sitt, 647 þúsund krónur,
ásamt visitöluálagi, en I 8. grein
byggingarsamningsins sagði
um siöastnefnda atriðiö, að ef
samningsaðili drægi sig i hlé áð-
ur en smiði Ibúðarinnar væri
lokið og hann heföi veitt henni
viðtöku, „skal stjórn félagsins
ráöstafa ibúð hans i samræmi
við lög félagsins og endurgreiöa
honum framlag sitt án vaxta, að
viðbættri hækkun samkvæmt
húsbyggingarvisitölu, en að frá-
dregnum umboöslaunum, aug-
lýsingum og öðrum óhjákvæmi-
legum kostnaöi”.
BSAB greiddi að lokum 2.
febrúar 1973 hina innborguöu
upphæð, en neitaði að greiða
visitöluuppbót. Þess vegna var
mál höfðað á hendur BSAB.
Fyrir héraðsdómi geröi BSAB
kröfu um sýknun á þeirri for-
sendu, að ekki bæri aö greiða
visitöluhækkun á byggingar-
framlag, ef framkvæmdarfjár-
magn samkvæmt samningi
stæöi skemur en eitt ár, og jafn-
framt, að báðum aöilum væri
heimilt aö verðtryggja þannig
byggingarsamning vegna á-
kvæða laga frá 1%6 um verö-
tryggingu fjárskuldbindinga.
Verðtryggingin var
heimil
Héraðsdómur visaði báöum
þessum fullyröingum á bug i
dómi sinum. Þar er bent á, aö
lögin frá 1952 um byggingar-
samvinnufélög geri ráö fyrir
þvi, aö söluverð Ibúöa miðist við
stofnverö aö viðbættri verð-
hækkun samkvæmt vísitölu
byggingarkostnaðar. Þessi á-
kvæöi séu i samþykktum BSAB
°g byggingarsamningurinn á
þeim byggður.
Héraösdómur taldi eigi ætl-
andi, að það hafi verið tilgangur
löggjafavaldsins meö lagasetn-
ingunni 1966 aö fella þessi
ákvæöi eldri laga úr gildi og þar
með samsvarandi ákvæði i
samþykktum byggingarsam-
vinnufélaga, þar sem slikt hefði
haft mjög afdrifarikar og ó-
væntar afleiðingari förmeð sér.
Þá var einnig bent á, að ekk-
ert heföi komiö fram, sem gæfi
til kynna, að vandkvæði hafi
verið á þvi fyrir BSAB að ráö-
stafa umræddri ibúð á stofn-
veröi að viðbættri hækkun sam-
kvæmt byggingarvisitölu.
Að öllu þessu athuguðu komst
héraðsdómur að þeirri niöur-
stöðu, að BSAB bæri aö greiöa
Jóhannesi umræddar visitölu-
bætur aö frádregnum kostnaði,
sem aðilar voru sammála um,
en aö viðbættum vöxtum frá 2.
febrúar 1973. Einnig var BSAB
gert að greiða málskostnað.
1 dómi Hæstaréttar er þessi
úrskurður staöfestur og BSAB
einnig gert að greiöa máls-
kostnað.
—ESJ
A mw
fœrum