Vísir - 19.02.1977, Page 5
VJSIR Laugardagur
19. febrúar 1977
Hastings-mótið
Hastings-mótiö i Englandi,
þótti sérlega vel heppnað i ár.
A6 þessu sinni tefldu menn af
hörku um efstu sætin.í stað þess
að skipta þeim bróðurlega á
millisin, eins og stundum hefur
viljað brenna við. Sovétmaöur-
inn Oleg Romanishin setti öðr-
um fremur svip sinn á mótiö og
vann yfirburða sigur með 11 1/2
vinning af 15 mögulegum. Hann
tefildi af frumleik og hug-
kvæmni og hlifði engum. Jafn-
vel Smyslov varð aö sætta sig
viö tap gegn honum i 27 leikjum
og haföi þetta um landa sinn að
segja: „Hann er ungur og teflir
stift til vinnings i hverri skák”.
Að sögn englendinga hafa slik
tilþrif sem Romanishin sýndi i
Hastings, ekki sézt siðan Ana-
toli Karpov tefldi þar 1971-72.
Romanishin átti 25 ára afmæli
meðan á mótinu stóð. Þann dag
tef idi hann viö Kagan, Israel, og
fékk i afmælisgjöf sitt eina tap.
Kagan varð i 2. sæti meö 9 1/2
vinning og sá árangur var stór-
meistaraárangur. Næstir urðu
Tarjan, Bandarikjunum með 9
vinninga, Adorjan, Ung-
verjalandi meö 8 vinninga,
Smyszlov, Sovétrikjunum 8
vinninga, Miles, Englandi 7 1/2
v.
Frammistaöa Miles olli
nokkrum vonbrigðum, en hann
hefur teflt sleituiaust undan-
farið, og eftir að tapa tveim
fyrstu skákunum, náði hann sér
ekki á strik. Farago, Ungverja-
landi átti sér leynivopn. Hann
hljóp einfaldlega yfir einn leik i
bókun sinni, skrifaði t.d. 21
leikinn I stað þess 20.
Damjanovic, Jtigóslaviu fór
flatt á þessu bragði ungverjans.
Hann féll á tima i 40. leik, þvi
hann sá að Farago hafði bókað
40leiki, en varaðist ekkiað inni I
miðri skák var einn leikur
óbókaður.
Smyslov virkaði slæptur eftir
nýlokið Sovetrtieistaramót.
Hann vann þó stystu skák móts-
ins, og jafnframt þá áhugaverð-
ustu.
Hvitt: Smyslov
Svart: Farago
Enskileikurinn.
1. c4 Rf6
2. Rc3 e6
3. e4 d5
(1 skák Raicevic: Matanovic,
Skákþingi Júgóslaviu 1975, var
leikið 3...c5 4. e5 Rg8 5. Rf3
Rc6 6. d4 cxd4 7. Rxd4 Rxe5 8.
Bf4 Rg6 9. Bg3 e5 og hvitum
tókst ekki að sýna fram á rétt-
mæti peðsfórnarinnar.)
4. e5 Rf-d7
5. cxd5 exd5
6. d4 c5
7. Rf3 Rc6
8. Bb5!
(Útilokar 8....cxd4 9. Rxd4
Rdxe5 10. De2 og hvitur er kom-
inn meö unnið tafl.)
8 a6
9. Bxc6 bxc6
10. 0-0 Be7
11. dxc5 Rxc5
12. Rd4 Db6?
(Svörtum likar ekkihinn hæg-
fara leikur, 12. ... Bd7 sem var
þó hinn skásti i stöðunni. Nú
tekur Smyslov stjórnina i sinar
hendur.)
13. Be3 0-0
(Ekki 13. ... Dxb2? 14. Rxc6
Dxc3 15. Rxe7 Kxe7 16. Hcl og
hvitur vinnur manninn aftur
með yfirburöa stöðu.)
14. Hcl Hd6
15. b4! Re4
16. Ra4
(16. Re6 Rxc3 17. Hxc3 Dxb4
18. Hb3 Da5 19. Rxd8 Bxd8 var
ekki nógu sannfærandi.)
16..... Db7
17. Rxc6 He8
og svartur gafst upp án þess
að biöa eftirnæsta leik, 18. Rb6.
Jóhann örn Sigurjónsson
Breiðholf hf. og
Landsbankinn í efstu
sœtunum
Skákkeppni stofnana hófst s.l.
miðvikudag ' með keppni i A-
flokki. Þar tefla 18 sveitir 7
umferöir eftir Monrad-kerfi,
og eftir 1. umferðina eruþessar
sveitir efstar:
1.-2. Breiðholthf. 312v.
1.-2. Landsbankinn 3 1/2 v.
3.-4. BUnaðarbankinn 3v.
3.-4. Saltfiskv. ÓlafsLáruss. 3v.
5.-6.Rafmagnsveitan 21/2v.
5.-6.Hibýlaprýði 21/2v.
Útvegsbankinn sem oft hefur
sigraði i keppni þessari, byrjaði
með 2:2 gegn Eimskip. ómar
Jónsson vann Björn Þorsteins-
son á 1. borði, en á 2. boröi vann
Gunnar Gunnarsson Sigurð
Ólafsson.
Sigur Hibýlaprýöi yfir Orku-
stofnun vakti athygli, og á 1.
borði lagði Jónas P. Erlingsson
Guðmund Pálmason að velli.
NÝTT FORD BR0NC0 NÝTT
Við viljum vekja athygli Ford Bronco eiganda
að við höf um nú fengið jaf nvægisstangir f yrir
Bronco, árgerðir: 1971-1975. Jafnvægisstöng
bætir aksturseiginleika og eykur öryggi að
mun.
Verð með ísetningu kr: 27.500.
Fordumboðið — Sveinn Egilsson hf.
Skeifan 17 — S. 85100.
gefiðblóm
KOMIDAGLRIM
ERÁMORGLA
Komið við og kaupió
blóm
stmxídag
Blómaverslanimar
Á leiÖ frá 3 til 3a. s,-,
Verðlaunasamkeppnin: Fyigjum reglum, forðumst slys.
ÁRMÚLA3 SlMI 38500
Klipptu auglýslnguna út.
hana sem eyöublað undlr svör þfn.
þegar þú hefur leyst alla (3) hluta
verkefnisins. Skilafrestur til 15. mars 1977.
Á lcikfan&ibíl til
Kananejja!
Akir þú bíl þínum klakklaust gegn um verk-
efni samkeppninnar og sendir rétt svör til Sam-
vinnutrygginga fyrir 15. mars n.k. þá átt þú
von í verðlaununum: Kanaríeyjaferð, með Sam-
vinnuferðum h.f. fyrir hinn heppna og tvo ferða-
félaga að auki. Verðmætið nemur kr. 255.000.-
STÓRA LITPRENTAÐA UMFERÐAR-
KORTIÐ hans Jóns gránna þarft þú að hafa til
að geta svarað spurningunum. Það færðu gegn
200 króna gjaldi í næstu afgreiðslu Samvinnu-
trygginga. 1 Reykjavík fæst það einnig á bensín-
stöðvum Esso.
VERKEFNIÐ:
Katrín ekur manni sínum í vinnuna (Merkt: C).
Þau leggja lykkju á leið sína og koma jafnframt
við í pósthúsinu (Merkt.B). Síðan fer Katrín
AthugiO að svara ávallt öllum liöum apurninganna.
2, 1 Er gangandi vegfaranda skylt að taka tillit til
akandi umferðar sem nálgast, sé hann á merktri
gangbraut?
2, 2 Er bláa gangbrautarmerkið leiðbeiningar-
merki?
2, 3 Sé gangandi vegfarandi á gangbrautinni, eða í
þann veginn að fara út á hana, hvort er þá
öruggara að Katrin atöðvi bílinn:
a) Við gangbrautina?
b) 10 metra frá henni?
□ □
□ □
BB
aftur heim (Merkt:A). Atriði eru hverju sinni
talin upp í þeirri röð sem þau koma fyrir á leið
Katrínar.
Á leiÖ frá 1 til la.
Já Nei
1, 1 Ber Katrínu að gefa stefnumerki?
1, 2 Má hún aka hiklaust inn á umferðargötuna?
1, 3 Ber henni að víkja fyrir akandi umferð
frá báðum hliðum?
1, 4 Má hún aka yfir varúðarlínuna?
1, 5 Heitir breiða, brotna linan á móts við biðskyldu-
merkið:
a) Varúðarlina?
b) Markalina?
Á leiÖ frá 2 til 2a.
Já Nei
3, 1 Má Katrín aka hiklaust inn á hringtorgið?
3, 2 Ber henni að vikja fyrir X bilnum sem nálgast
frá vinstri? U I—I
3, 3 Er rétt, miðað við ökuleið hennar, að hún velji _ ___
vinstri akrein á hringtorginu? LJ LJ