Vísir - 03.04.1977, Page 2
2
Sunnudagur 3. aprll 1977. itisib
Þcgar leiguflug I sólarlandaferftir
hófst fyrir um tólf árum varft bylting i
feröamálum okkar. ÞaÖ voru þá ekki
iengur forréttindi rfkisbubba aö fara út-
fyrir landsteinana. Vegna þess aö kerfiö
er eins og þaö er, hafa forréttindi rlkis-
bubbanna I feröamáium aö sjálfsögöu
ekki horfiö. En almenningur á þó yfir-
leitt KOST á þvl aö komast yfir hafiö
núna, þótt landsfeöur viröist sjá ákaf- '
lega eftir aurum I þaö.
Flestir munu nú sammála um aö þaö
séenginn lúxus aö dvelja á sólarströnd I
tvœr til þrjár vikur á hverju ári. Margir
telja þab hreint og beint nauösyn.
Vfst er þaö rétt aö viö komumst af i
margar aldir án þess aö fara 1 sumarfrl
til útlanda. En annars ágætum framför-
um hafa fylgt ýmsir ókostir svo sem of
mikiil hraöi og streita. Sumir læknar
telja streituna meö verri kvillum mann-
kynsins. Tilbreyting, nýtt umhverfi og
hvlld, er oft ofarlega á lyfseöiinum vlö
þessum kvilla. Og flestir hafa þá sögu aö
segja aö Jafnvel þótt hafi verib dansaö
og djammab, hafi menn getaö slappaö
af I sóiinni. Veöriö okkar er llka kapltuli
útaf fyrir sig og kannski næg ástæöa i
sjálfu sér.
Þaö mun vera visindalega sannab aö
vont veöur og myrkur hafi ákaflega
)
slæm áhrif á mannssálina. Stórir
skammtar af sól geta létt iundina I
marga mánuöi.
//SAMEINAÐA FERÐA-
SKRIFSTOFAN?"
Feröaskrifstofurnar telja aö
markaöurinn hér á landí sé milli 15 og 18
þúsund manns. Um þennan markaö
keppa sex feröaskrifstofur. Forstöbu-
mönnum feröaskrifstofanna finnst þetta
of mikib, þótt skiljanlega telji enginn
þeirra SINNI skrifstofu ofaukiö.
Viö samantekt á þessu feröablaöi
kom i ljós ab samstarf er oröiö nokkuö
mikiö milli feröaskrifstofanna, og fer
vaxandi. Þar má sem dæmi benda á
Kanarieyjaferöir, en þar hafa þrjár
feröaskrifstofur samvinnu um aö seija
feröir, ásamt Flugleiöum.
Þótt ekki fengjust beinar yfiriýsingar
þar um, mátti heyra á sumum aö þetta
samstarf yröi enn nánara og næöi til
fleiri liöa áöur en iangt um llöur. Þetta
er liklega eölileg þróun.
Flugfélagiö og Loftleiöir komust aö
þeirri niöurstööu aö markaöurinn hér á
landi væri ekki þaö stór aö hörö sam-
keppni borgaöi sig. Félögin voru þvl
samcinuö og forráöamenn Flugleiöa
láta vel af árangrinum. Þaö er varla viö
aö búast sllkum samruna allra feröa-
skrifstofanna, en nánara samstarf yröi
sjálfsagt aöeins til góös.
En þótt samruni verði hjá einhverjum
þeirra, veröur vonandi aö minnsta kosti
ein þcirra „utangarös” eins og Arnar-
flug er Iflugmálunum. Samkeppni veitir
aöhald og aöhald er nauösynlegt, jafn-
vel þótt góöir menn stjórni einokunar-
fyrirtækjum.
VILTU SELJAMÉR...
Gjaldeyrismálin eru jafnan nokkuö til
umræöu, þegar liöur aö sumarvertlö-
inni. Þaö er ljóst ab sá gjaldeyris-
skammtur sem feröamenn nú fá, nægir
hvergi nærri til þess aö hægt sé að iifa
mannsæmandi lifi i sumarfrlinu.
Þar á móti kemur aö þjóöin á i gjald-
eyriserfiöleikum og einhverja stjórn
veröur aö hafa á hlutunum. Satt aö
segja er ekki alveg ljóst hvernig er fariö
aö þvl aö stjórna sókn I gjaldcyrissjóö-
inn, stundum hefur maöur á tilfinning-
unni aö I þvi rlki hrein óstjórn.
Feröaskrifstofumenn þora ekkert aö
láta hafa eftir sér opinberlega um þetta
mál, af ótta viö aö þeir sem stjórna,
móögist og fari I fýlu. Þeir hafa þó I
einkasamræöum leitt aö þvl rök aö þaö
sé mjög skaölegt aö skammta gjaldeyr-
inn svona naumt.
tsland er ekki Costa del Sol, en þó
flækjast hingaö þó nokkur þúsund út-
lendingar, annaö hvort til aö skoba land
og lýö, eöa I viöskiptaerindum.
Þab hefur sýnt sig aö á tlmum naumr-
ar gjaldeyrisskömmtunar, kemur lltiö
af gjaldeyri þessara feröamanna I
bankana. Ég hef sjálfur oröiö vitni aö
þvi I Landsbankanum aö þar biöu menn
meö stórar summur I vasanum, eftir aö
úttendir menn kæmu inn úr dyrunum.
Ef útlendingarnir leitubu aö gjald-
eyrisskiptiboröinu, svifu þessir menn á
þá og buöust til aö kaupa af þeim gjald-
eyrinn, fyrir kannske tlu prósent yfir
bankagengi. Yfirleitt var erindinu vei
tekib.
HUNDRUÐ MILLJÓNA
I ,/FRYSTU"
Ýmsar aörar leiöir eru til að veröa sér
úti um gjaldeyri, sem ég hiröi ekki aö
nefna hérna, til aö veröa ekki til þess aö
loka þeim. Hitt er staöreynd, og almenn
vitneskja, a'Ö þaö heyrir til undantekn-
inga, ef menn fara I sumarfrf meö gjald-
eyrisskamtinn einan.
Þaö eru sjálfsagt mörghundruö millj-
ónir I gjaldeyri sem þannig eru I
„frysti” hjá einkaaöilum. Og frystir
penlngar gefa ekki af sér arb. Sem dæmi
um almenna gjaldeyriseign, má nefna
þjófinn náttfara, sem reiö hér húsum I
borginni. Þaö var sammerkt meö
fréttum af innbrotum hans, aö hann
krækti sér jafnan I vænan slatta af út-
lendum aurum.
Væri ekki ráö ab skipa nefnd til aö
vega og meta þetta? Ef feröamenn gætu
vcriö vissir um ab fá sómasamlegan
farareyri, yröi þegar i staö hrun á
svarta markaöinum. Peningarnir færu
sina eölilegu leiö i gegnum bankana og
þaö myndi lfklega vega eitthvaö upp á
móti þvi sem aukinn farareyrir tæki úr
gjaldeyrissjóbnum. Allavega myndu 15
til 18 þúsund atkvæöi gleöjast og rikis-
stjórnir hafa þakkaö fyrir minna.
EFTIRLIT MEÐ
LOFORÐAEFNDUM
Svo aö ég hoppi nú úr einu I annað,
langar mig ab vikja aöeins aftur aö
feröaskrifstofunum. Þaö viröist oft sem
litiö eftirlit sé meö starfsemi þeirra
erlendis. Og þá á ég viö þá hlib sem aö
farþegunum snýr, ekki hvort þær séu aö
selja kynnisferöir I blóra viö gjaldeyris-
lög.
Þaö hafa sjálfsagt flestir heyrt sögur
um fólk sem loksins lagöi upp I langþráb
sumarfrl, og fékk svo ekki hóteliö sem
þaö haföi pantaö um áramót. Þaö hefur
jafnvel komiö fyrir, og ekki ósjaldan, aö
hópum hefur veriö sundraö. Fólk sem
hefur veriö saman á leiö I sumarfri, hef-
ur kannske veriö dreift á tveimur,
þremur hótelum.
Þaö kemur fyrir aö farþegar veröa
fyrir þessum og allskonar öörum
óþægindum. En þeir viröast litiö geta
gert til aö leita réttar slns. Þeir hafa jú
ekki I mörg önnur hús aö venda þarna
syöra. Jafnve) þótt þeim takist aö særa
einhverja endurgreiöslu út úr feröa-
skrifstofunum, þegar þeir koma heim,
er þaö Htil huggun fyrir ónýtt sumarfri,
sem mikiö var búiö aö hlakka til.
Þaö skal tekiö fram aö I flestum
tílfellum gera feröaskrifstofurnar allt
sem I þeirra valdi stendur tii aö bjarga
málunum og gera alla ánægöa, þegar
svona kemur fyrir. i flestum tilfellum,
en ekki alltaf.
Þaö skal lika tekiö fram aö þaö eru til
farþegar sem eru nánast óalandi og
óferjandi, og sem myndu gera röfl, hvaö
sem fyrir þá væri gert. Feröaskrifstof-
urnar ættu aö hafa einhverja vernd gegn
slikum gripum.
Gamanlaust, þá eru sólarlandaferöir
orönar háþróaöur iönaöur hér á landi,
sem snertir tugi þúsunda. Þaö væri þvi
mjög eölilegt aö einhver aöili eöa „om-
budsmand” heföi eftirlit meö þvl ab
feröaskrifstofurnar standi viö geröa
samninga.
FRUMSKÓGARMENNIRNIR
Ég get þó ekki skiliö þannig viö feröa-
skrifstofurnar, aö tala bara illa um þær.
Þvert á móti er ástæöa til aö hvetja fólk
til aö leita til ferðaskrifstofu 1 hvert
skipti sem þaö bregöur sér út fyrir land-
steinana. Hvort sem þaö er skyndiferö
til Kaupmannahafnar, eöa hnattreisa.
Ferbamál, sér I lagi þó flugfargjöld,
eru hreinn frumskógur, og þaö þarf sér-
fræöing til ab komast af I þeim frum-
skógi. Þessa sérfræöinga finnur þú á
feröaskrifstofunum.
Sem dæmi um frumskóginn skulum
viö taka fyrirhugað flug Flugleiöa til
Parlsar. Þú getur feröast á sérstöku af-
sláttarfargjaldi. Ef þú ert minnst átta
daga eöa mest 21 dag I feröinni, kostar
fariö kr. 59.590. Ef þú ert hinsvegar
skemur en átta daga eöa lengur en tutt-
ugu og einn, borgaröu „normal” far-
gjald, sem er kr. 86.020”.
Þegar svo er haft I huga ab þaö er
flogiö einu sinni I viku, eöa sem sagt á
sjö daga fresti, veröur dæmiö dálitiö
interessant. LágmarkiÖ næst sem sagt
ekki meö áætluninni. Reyndar væri þaö
nú bara einhver vitleysingur sem vildi
óöur og uppvægur fara frá Paris eftir
átta daga, en þaö er nú annaö mál.
EKKI FLUGLEIÐUM
AÐKENNA
Þetta er ekki svona vegna þess aö þeir
hjá Flugleiöum séu svona miklir skúrk-
ar. Þetta er viötekin venja I flugmála-
heiminum og I allskonar alþjóöasam-
þykktum og reglum.
En allt þetta kunna feröaskrifstofu-
mennirnir á og þekkja oft leiöir I kring-
um.
Eins og venja er aö segja viö svona
tækifæri, þá er þetta litia feröamálablaö
langt frá þvi aö vera tæmandi uppslátt-
arbók. Þaö er rétt aöeins stiklaö á
stærstu atriöunum. En vonandi hafa
menn einhverja ánægju af aö dunda viö
aö lesa þetta yfir heigina, og þaö kemur
þá i staöinn fyrir upplýsingarnar sem
vantar.
—ÓT
VISIR
Ctgefandl.KeykJaprent hf
Framkvvmda»tJórl:Dav(A Guðmundtton
Kititjórar :t>oritelnn Páltton ábm.
ólafur Kagnartaon
Ritttjórnarfulltrúl: Bragi GuAmundsson. Fréttattjóri erlendra frétta: Guömundur Pétursson. Cm-
sjón meA helgarblaði: Arni Þórannsson. BlaAamenn: Edda Andrésdóttir, Einar K. GuAfinnsson,
Elias Sncland Jónsson, Finnbogi Hermannsson, GuAjón Arngrlmsson, Kjartan L. Pðlsson, óli
Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Scmundur GuAvinsson. tþróttlr: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánsson.
Akureyrarrltstjórn: Anders Hansen. Ctlitstelknun: Jón óskar Hafsteinsson og Magnús ólafsson.
Ljósmyndir: Jens Alexandersson, Loftur Asgeirsson.
Sölustjóri: Páll Stefánsson Auglýsingastjóri: Þorsteinn Fr. Sigurösson. Dreifingarstjóri: SigurAur
R Pétursson.
Auglýsingar: SIAumúla 8. Sfmar 11660, 86611. Askriftargjald kr. 1100 á mánuAi innanlands.
AfgreiAsla: llverfisgata 44. Sfmi 86611. VerA ( lausasölu kr. 60 eintakiA.
Kitstjórn: Sföumula 14. Sfmi 86611, 7 Ifnur. Prentun: Blaöaprent hf.
Áskriftarsími Vísis er 86611
Hringið strax og tryggið ykkur eintak
af Vísi til lesturs hvern dag vikunnar
fyrir aðeins 1100 krónur á mónuði