Vísir - 03.04.1977, Side 20
— rabbað við jónas guðvarðsson, fararstjóra
„CÆT/Ð YKKAR
Á SÓLINNI"
Til þess aö fá nokkur almenn,
góö ráð, tókum viö hús á einum
þaulreyndum fararstjóra, Jón-
asi Guövaröarsyni sem hefur
starfaö fyrir úrval á Kanarieyj-
um, Mallorca og viöar, i mörg
ár.
,,Það er best aö byrja á aö
gefa fólki ráö um ýmsa hiuti
sem þaö ætti aö gera, áöur en
það fer að heiman. Og þá vil ég
fyrst nefna tryggingar. Ég vil
eindregið ráðleggja mönnum aö
tryggja sig i bak og fyrir.
Sjúkra- og slysatrygging er
sjálfsögö. Sjúkrasamlagiö tekur
^ aö visu viö töluverðum kostnaöi,
en þóaðeins sem nemur þvi sem
sérfræðingshjálp og sjúkralega
nemur hérna heima. En kostn-
aður þar fyrir utan getur oröiö
töluveröur”.
Ekki of mikið af fötum
,,Þá er einnig sjálfsagt aö
taka farangurstryggingu, þvi
það eru töluverð verðmæti sem
fara forgörðum ef ein ferða-
taska týnist. Menn ættu að at-
huga i þvi sambandi að almenn
farangurstrygging nær ekki yfir
ýmsa dýra hluti sem þeir hafa
með sér i ferðalög”.
„Þar má til dæmis nefna
myndavélar, útvörp, segulbönd
og skartgripi. Allt þetta þarf að
tryggja sérstaklega, ef menn
vilja fá það bætt, verði þeir svo
óheppnir að týna þvi”.
,,Og svo er það þegar menn
eru að búa sig að heiman. Lang-
flestum hættir til að taka alltof
mikið með sér, og þá sérstak-
lega af fötum. Þetta er tilhneig-
ing sem er ákaflega rik i mönn-
um, ég hef staðið sjálfan mig að
þvi að gera þetta, jafnvel eftir
mörg ár sem fararstjóri”.
,,Það er ekki óalgengt að kon-
ur séu með tvo eða þrjá siða
kjóla, og mennirnir með tvenn
eða þrenn jakkaföt. Fyrir hálfs-
mánaðar til þriggja vikna dvöl i
sólinni, er þetta óþarflega mik-
ið”.
„Flestir skemmtistaðimir i
sólarlöndum eru mjög óform-
legir, og i svipinn man ég til
dæmis ekki eftir öðrum stað en
Titos, á Mallorca, sem krefur
menn um hálstau. Menn
skemmta sér kannske eitt kvöld
þannig að þeir þurfi að vera
formlega búnir. Föt þar framyf-
ir eru þvi bara aukakiló sem
ekkert gagn er að”.
Ekki ofkeyra líkamann
„Hinsvegar getur verið gott
að taka með sér ýmsa smáhluti
að heiman, sem koma að veru-
legu gagni. Þar má nefna hand-
klæöi, vekjaraklukku, visku-
stykki, litinn dósahnif, kork-
trekkjara, heftiplástur og snær-
ishönk”.
„Það er hreint ótrúlegt hve
marga vantar snærisspotta þeg-
ar niðureftir er komið, til þess
að nota sem þvottasnúrur, til að
binda aftur töskur og þar fram-
eftir götunum”.
„Ýmislegt af þvi sem ég hef
nefnt hér ætti að vera i ibúðum.
En það vill oft vanta og þótt
spánverjar séu yndislegt fólk
eru þeir. ekki ailtaf snarir i
snúningum. Það getur þvi liðið
hálft sumarfri áður en visku-
stykkið kemur”.
„Eitt það mikilvægasta sem
menn taka með sér i sumarfriið,
er heilsan og hún er stundum
vandmeðfarin i sólarlöndum.
Það er oft talað um að fólk fái
matareitrun og það er lika til i
dæminu. En oft er það lika það
sem við köllum ferðamanna-
veiki”.
„Fólk leggur oft geysimikið á
likama sinn þarna niðurfrá. Hit-
inn er miklu meiri, menn
drekka (i mörgum tilfellum)
miklu meira áfengi en heima,
mataræðið er allt annað, vökur
eru oft meiri”.
„Ef likamanum er freklega
ofboðið, gerir hann uppreisn.
Menn ættu þvi að reyna að gæta
hófs, og taka sér hvild öðru
hverju frá hinu ljúfa lifi annars
getur það eyðilagt mikinn hluta
sumarleyfisins.”
Takið sólina í smá-
skömmtum
„Sólin getur lika verið stór-
hættuleg og það verður ekki
brýnt um of fyrir fólki að með-
taka hana aöeins i smáskömmt-
um til að byrja með. Það virðist
þvi miður vera sama hve mikið
þetta er predikaö, það eru alltaf
einhverjir sem brenna sig á
þessu, i orðsins fyllstu merk-
ingu”.
„Og svo að lokum aðeins aft-
ur, um fjárhagshliðina. Margir
leigja sér orðið bifreiðar til að
geta farið eigin leiðir, og það er
alveg stórfint. Menn ættu þó að
gæta þess vel að taka alltaf full-
ar tryggingar fyrir öllu sem fyr-
ir gæti komið. Þær tryggingar
er hægt að kaupa á bilaleigun-
um. Þá má, geta þess að hjá
spönskum bilaleigum er „Sólar-
hringurinn” tólf timar, en ekki
túttugu og fjórir eins og hérna
heima. Ef menn leigja t.d. bil kl.
9að morgni og skila honum kl. 9
morguninn eftir, eru þeir
rukkaðir um annan dag. Og það
er engin leið út úr þvi”.
„Eftir allar þessar ráðlegg-
ingar mætti ætla að það sé stór-
hættulegt fyrirtæki að fara i
sólarreisu, en það er fjarri þvi.
Ef menn gæta aðeins hófs með
sjálfan sig og sýna dálitla fyrir-
hyggju, leikur lifið viö þá”.óT
öllum er ráðlagt að fara varlega i sólinni
Jónas Guövarðarson, Vlsismynd Jens.
Það er dálitið öfui snúið, en
samt satt, að sólin, sem menn
eru aö sækjast svo mikið eftir i
sumarleyfisferðunum, getur
orðiö til þess að eyðileggja ger-
samlega fyrir þeim friið. Sömu
sögu er að segja um ýmsar aðr-
ar lystisemdir lifsins þarna
syöra.
Ýmsir smáhlutir og arg og
þras geta lika gert mönnum lifiö
erfitt. Það er þvi eiginlega tölu-
verð list að fara I sólarlanda-
ferðir, enda hafa verið skrifaðar
um það bæði handbækur og ieik-
rit.
það er leikur
ð verða brúnn
[ivea sólarvörurnar veita húöinni þá vörn sem hún þarfnast
Igagnvart sólargeislunum. Meö Nivea veröur húöin brún
Sólarlandafarar gleymið ekki
því nauðsynlegasta
Takið með ykkur Nivea
Nivea sólarolíu
Nivea sólarmjólk
Nivea eftir sól.