Tíminn - 20.09.1968, Síða 6

Tíminn - 20.09.1968, Síða 6
 TIMINN í SPEGLITÍMANS Margir menn, sem stunda lífs hættulega atvinnu eiga öryggi sitt og 9ít á tíðum lif sitt að launa manni nokkrum að nafni Leonard Barratt. Leonard þessi er Englendingur, sextíu og þriggsja ára gamall, og heldur um þessar mundir upp á starfs afrnæli, en hann hefur í fimm- BARRATT tóu ár unnið við það að gera skotheld vesti. Leonard, sem lærði þessa iðn af föður sfn- um, ex sennilega eini maður- inn í heimi, sem framleiðir skotheld vesti. Á hverjum degi allt árið í kring er stföðugur straumur viðskiptavina til hans alls stað að að úr heiminum, en hann hefur litla skrifstofu í London. Sumir þessara viðskiptavina hans eru frægir, aðrir fnægir að endemum og svo kemur fólk, sem er þar á milli, og það eru ekki fá bréfin, sem hann fær. Tveir frægir menn, sem allt- af notuðu skotheld vesti voru þeir Farouk Egyptalandskon- ungur og Aga Khan. Barratt segist hafa gert tvö vesti handa Farouk og eitt handa Aga Hhan. en hann var eins og kunnugt er, geysilega feitur. Á hverju ári tók hann á móti þyngd sinni í gulli frá þegn- um sínum og þegar Baratt saumaði á hann vestið, var Aly sonur hans mjög á móti því að hann léti gera þetta. — Þú verður allt of þungur, sagði hann. Faðir hans sneri sér rólega að honum og sagði: — Nokkur kíló til eða frá skipta ekki nokkru máli. En Barratt segist hafa haft fleiri fræga' viðskiptamenn og hann segir að hann geti ekki sagt nöfn þeirra, en svo mikið geti hann sagt, að margir þeirra manna, sem fólk lesi um í blöðum og sjiái í sjón- varpi noti skotheid vesti. En stærstu viðskiptavinir hans eru einræðis'herrar í löndum, sem búa við stöðugar pólitísk- ar erjur. Eitt af vestunum sem hann gerði hefur bjargað lífi Rene Barrientos einræðisherra Bólivíu sjö sinnum. f síðustu árásinni sem gerð var á hann, var skotið á hann úr vélbyssu en skotin sátu öll föst i vest- inu hans. Barratt segir frá þvá að að- eins einu sinni hafi hann furð- að sig á pöntun, sem var gerð hjá honum. í maí 1939, kom til hans maður, ÞjóðVerji eða Austurríkismáður, sem bað hann að gera fyrir sig tuttugu og fjögur skotiheld vesti, og vildi hann fá þau eftir nokkra daga. Hann bjó á hóteli, og þegar Barratt kom til þess að afhenda vestin, beið 'hann í for stofunni. Hann ætlaði að fara frá London þegar í stað og borgaði honum ríflega fyrir vestin. Barratt spurði hann hvernig hann ætlaði að fara með vestin út úr landinu. Mað urinn svaraði því til, að bátur hans biði eftir honum í næstu höfn. Barratt vissi aldrei hver þessi maður var né hverjum þessi vesti voru ætluð, en nokkrum mánuðum síðar lýsti Þýzkaland yfir stríði. Ef til vill voru þessi vesti ætluð Hiíler og aðstoðarmönnum hans. Barratt hefur aðeins einu sinni haft konu, sem viðskipta- vin. Það er frú Chang Kai- shek, sem lét gera handa 6ér skotJhelt vesti, sem verndaði axlir og bringu. ★ Það mæðir mikið á Soraya fyrrverandi eiginkonu keisar- • ans af Persíu. Það er ekki svo ýkja langt síðan að kveikt var i svefnhenbergi hennar, og ★ * ★ ítalska leikkonan Rosana Sohiafino eignaðist fyrir nokkru dóttur, og tók sér í þvi tilefni smáfrí frá kvikmyndaleiknum, en innan tíðar mun hún fara til Suður- Ameríku og leika þar í kvik- mynd, sem nefnist Simón Bolivar. Hér ræðir hún við leik stjórann og manninn, sem teiknar þau föt, sem hún klœð- ist í myndinni. FÖSTUDAGUR 20. sept. 1968 var henni naumlega bjargað. Fyrir fáeinum dögum var hún í innkaupaferð í Róm, og á götu þar í borg véðst á hana fjöldi ítalskra kvenna, sem ásökuðu hana fyrir að stela eiginmönnum þeirra. — Hún eyðileggur heimili okkar, hróp uðu konurnar. Soraya varð skelfingu lostin og hljóp inn í næstu verzlun. Eigandi verzl- unarinnar varð hræddur um að konurnar réðust á verzlunina og kallaði því á lögregluna, sem aðstoðaði Soraya til að komast á hótel sitt. ★ James Thurber, höfundur hins þekkta ævintýris „Mörg tungl“ er fjöllhæfur listamaður, sem leggur jafn gjörva hönd á dróttlist og orðsins list. f for- mála að einni bók sinni „The Thurber Carnival" segir hann um sjálfan sig: „James Tlhur- ber er fæddur illspáa óveðúrs- nótt árið 1894 á Parsons Avenue 147, Oolumlbus, Ohio. Á búsinu, sem stendur enn, er enginn minningartafla eða á- letrun, og það er aldrei sýnt ferðamönnum. Einu sinni, þeg ar móðir Thurbers gekk fram hjá húsinu í fylgd me'ð gamalli konu frá Fostoria, Ohia, sagði hún. „James sonur minn er fæddur hér“, og gamla konan, sem var mjög heyrnarsljó, svaraði: „Líklega með morgun lestinni á þriðjudaginn, ef systir mín verður ekki verri.“ Frú Thuriber lét hér við sitja. Ekki er mikið vitað um fyrstu æviár Thurbers, nema að hann gat gengið, þegar hann var tveggja ára, og gat sagt heiiar setningar, þegar hann var fjögra ára. Frá bernsku- og æskuárum Thurbers (1900 —1913) er fátt frásagnarvert. Ef hann hefur sjálfur vitað, hvað hann ætlaði sér á þess- um árum, er það ekki sýnilegt lengur. Hann var ákaflega dettinn, af því að hann var haldinn þeim ávana áð vera sí- fellt að reka sig á. Það þurfti. alltaf að vera að laga gull- spangargleraugun hans, en þau gáfu honum svip, líkan svip, sem er á manni, er heyrir ein- hvern kalla, en getur ekki greint hvaðan hljóðið kemur. Af því að gleraugun pössuðu svo illa, sá hann, ekki tvennt af öllu, heldur eitt og hálft. Þannig sýndist honum fjórhjól aður vagn ekki hafa átta hjól heldur sex. Bvemig honum tókst áð komast hjá því að láta þessi tvö auka'hjól verða sér til trafala við störf sín, er mér hulin ráðgáta. Fyrsta afrek Thurbers á rit vellinum var svonefnt kvæði, sem ber nafnið „Frænka mín, frú John T. Savage's Gardcn, Fimmtu Suðurgötu 185, Oolum bus, Ohio“. Það hefur ekkert bókmenntalegt gildi, enga þýð ingu, nema að svo miklu leyti, sem það sýnir hið furðulega minni mannsins á nöfn og tölur. Hann getur enn í dag nefnt nöfn barnanna, sem voru með honum í ellefu ára bekk. Hann man símanúmer nokk- urra skólabræðra sinna ur menntaskólanum. Hann man afmælisdaga allra vina sinna og getur talið upp á nvaða mánaðardögum öll börn þeirra voru skírð. Hann getur romsa’ð upp nöfn allra þeirra sem tóku þátt í garðveizlu kvenfélags Frjálslynda safnaðarins í Columbus árið 1907. Vera kann, að þetta samsafn gagns lausra minnisatriða hafi hjálp- að honum í störfum hans. | A VlÐAVANGI Gylfi segist vilja þjóðstjórn Gylfi Þ, Gíslason vill ekki . láta eigna sér það viðlhorf,. sem fram kom í Alþýðumannin um á Akureyri í frásögn af kjördæmisþingi, þar sem sagt var að komið hefði í ljós van trú á þjóðstjórn og yfirlýsing ar um að sömu flokkar ætluðu að stjórna áfram þótt þeir hefðu boðið upp á viðræður. Al- þýðublaðið ber þessar skoðan ir af Gylfa í fyrradag og seg- ir: „f Tímanum í gær var því haldið fram, að stjómarflokkarn ir ætli að stjórna áfram, en við ræðurnar við aðra stjómmála- flokka „blekkingartilraun“ og • „viðræðusjónleikur“. Dregur Tíminn þessa ályktun af frá-' sögn í Alþýðumanninum á Akur ‘ eyri, þar sem sagt er, að á kjördæmisráðsfundi nyrðra hafi komið fram vantrú á að stjóraarandstöðuflokkamir vilji eða geti lagt mikið fram í rík isstjóm. Er þetta kennt Gylfa- Þ. Gíslasyni, sem talaði á fund inum, og fullyrti, að svona hafi hann talað „í trúnaði“ við Al- þýðuflokksmenn á Norður- landi. Þessi túlkun Tímans er alröng. Gylfi talaði alls ekki á þennan hátt, heldur gerði skilmerkilega grein fyrir aðdraganda viðræðn anna og lét í ljós þann vilja stjórnarflokkanna, að þær tækj, ust. Hitt er rétt hjá Alþýðu- manninum, að ýmsir fundar- menn voru vantrúaðir á þjóð stjóm og gagnrýndu þá hng- mynd. Það voru þeirra skoðan ir en ekki ráðherrans." Þetta er gott og blessað að vita, að Gylfi tekur þátt í þess um vciðræðum af heilum hug, hitt er verra, hve hann á litlu fylgi að fagna í flokki sínum, ef rétt er, sem blöð hans segja,, að hann hafi talað vel fyrir víð tækara stjórnarsamstarfi, en flokksmenn hans síðan staðið upp hver af öðrum og andmælt. ÓcSeigur íslendingur íslendingur, blað Sjálfstæð ismanna á Akureyri ræðir um efnahagsvandræðin í landinu og boðar ríflega kjaraskerðingu af þeim sökum. Hann segir í for- ystugrein nýlega: „Við erum því vissulega mis- jafnlega vel undir það búin, að draga saman seglin, þegar það blasir við, að útflutningstekjur þjóðarinnar lækka um nærri TVO OG HÁLFAN MILLJARÐ KRÓNA á milli tveggja ára. Allt um það, hlýtur okkur nú að vera jafn ljós vandinn. Og þar af leiðir, að engum er stætt á öðm en að taka á sig sínar byrðar, þá almennu kjara skerðingu, sem er óhjákvæmi- leg. Það verður ekki meiru skipt en því, sem aflað er. Það hefur minnkað um 40% á tveim árum og því hljóta kjör in að versna í kjölfarið. Þetta þekkir hver og einn úr eiginn barmi." Þannig segir íslendingur það nærri því berum orðum, kjara- skerðing verði að verða jafn mikil og minnkun gjaldeyris- tekna. Það er auðvitað fráleitt, því að svo mikið framleiðir þjóð in enn af því, sem hún þarf að nota. Þetta er hins vegar í góðu samræmi við „viðreisnar“ stefnuna, að öll lífskjör þjóð arinnar séu komin undir við skiptunum við útlönd. Að því hefur verið unnið dyggilega síð asta áratuginn að lama þær Framhald á bls. 15.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.