Tíminn - 20.09.1968, Side 10
w
TIMINN
FÖSTUDAGUR 20. sept. 1968
BREF TIL
BLAÐSINS
Vegna fréttar í blaði yðar 18.
sept. sl., þar sem talað er um
mýlbreyttni og nýjung, sem lengi
ihefur verið beðið eftir hjá Reykja
víkurleiklhúsunum, að því er varð
ar áskriftarkort og gjafakort. í
tilefni af þessum ummælum í
blaði yðar óskast eftirfarandi tek-
ið fram:
Þjóðlcikhúsið hefur um margra
ára skeið haft sMk gjafakort til
sölu. Aðgöngumiðakort voru til
sölu s.l. ár með 20% afslætti, en
í ár eru þau með 25% afslœtti.
Sala slíkra korta er að visu bundið
því skilyrði að viðkomandi kaupi
miða á 6 sýningar og hér sé um
að ræða minnst 50 manna hóp.
Með þökk fyrir birtinguna,
Klemenz Jónsson
Framsóknarmenn
Suðurnesjum
Fundur í Aðalveri. Keflavík, á
sunnudaginn kl. 14. Jón Skafta-
sou mætir á fundinum.
Framsóknarfélögin
UNGA KYNSLÓÐIN
Framlhald af bls 12.
vallaðist á samráði við embætt
ismennina, en ekki við þjóðina,
og stöðu alþingis.
Síðan rseddi hann um ungu
kynslóðina, sem hefði horft á
þessa þróun ísl. stjórnmála með
forundrun. Þetta fólk hefði far
ið til starfa í atvinnulífinu með
mjög nýta menntun, en ekki
hafi borið á henni í stjórnmál
unum. Um þessar mundir sæjust
aftur á móti þess ótal merki,
að stórir hópar æskufólks, sem
á undanförnum árum hafa lítil
eða engin afskipti af stjórn
málum haft, hafi komið fram
og helgað sig endursköpun ís-
lenzkra þjóðfélagsmála, og
ganga þá í stjórnmálaflokkana
með þann tilgang í huga, að
breyta starfsháttum þeirra,
stefnu og stíl. Væri mjög vax-
andi skilningur meðal ungs fólks
um land allt og í öllum starfs-
greinum á því, að því aðeins
væri hægt að rífa sig upp úr
þessu botnlausa feni þjóðmál
anna og handahófskenndu stjórn
unaraðferðum að það sjálft
leggi sig allt fram til að vinna
heilshugar að endurreisnarstarf
inu. Skýrði hann síðan frá starfi
ungra Framsóknarmanna innan
flokksins, og ræddi um forset.a
kosningarnar í vor og þýðingu
þeirra.
í lok ræðu sinnar sagði Bald-
ur:
„Úrslit forsetakosninganna
hafa orðið ungu fólki mikil
hvatning til að láta í ríkari
mæli til sín taka á þjóðmálasvið
inu og ég held að þessar kosn
ingar valdi að því leyti tíma
mótum í íslenzkum stjórnmál
um, að ungt fólk muni staðráðið
í því að láta ekki lengur lítil-
siglda ráðamenn hafa örlög ís-
lenzkrar þjóðar í hendi sér,
heldur helga sig þjóðmálabarátt
unni. Það mun að minum dómi
ganga til þessa leiks með hugar
fari sjálfboðaliðans, sem vill
helga sig framtíðarheill þessar
ar þjóðar, staðráðið í því að
láta gott af sér leiða, en láta
persónulega valdastreitu lönd
og leið.
Unga fólkið mun að mínum
dómi skoða stjórnmálaflokkana
mjög náið, stefnu þeirra og
störf, sögu og samtímayfirlýsing
Útför móður minnar og tengdamóður,
Kristjönu Magnúsdóttur,
frá Ólafsvík, ,
fer fram frá Fossvogskirkju iaugardaginn 21. þ.m. kl. 10,30 f. h.
Þórarinn Þórarinsson,
Ragnheiður Þormar
Við þökkum hjartanlega samúð og vináttu, við andlát og jarðar-
för eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu,
Vilborgar Bjargar Þórðardóttur.
Valdimar K. Guðmundsson,
börn, tengdadóttlr
og barnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför
Gróu Ófeigsdóttur,
Deild, Akranesl,
Vandamenn.
Alúðarþakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og jarðarför
konu minnar,
Jónínu Einarsdóttur,
Flókastöðum, Fl|ótshlið.
Vigfús (sleifsson og aðrir vandamenn.
Þökkum samúð og vinarhug við andlát og útför mannsins míns,
föður okkar og afa,
Hannesar Jónssonar,
Núpsstað.
Þóranna Þórarlnsdóttir, börn og barnabörn
Innilegar þakklr fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför
eigínmanns míns, föður okkar og tengdaföður
Magnúsar Ó. Ólafssonar
stórkaupmanns.
Guðrún Karlsdóttlr,
Sigríður Magnúsdóttir, Pétur Björnsson,
Ólöf S. Magnúsdóttir Guðm. Kr. Guðmundsson
ar, og þá menn, sem leiða flokk
ana og samtök þeirra. Það
mun ekki hlýta þeirri forskrift
forsætisráðherrans, sem hann
gaf í sjónvarpi nýlega, að fólk
eigi að koma í flokkana til
að fylgja þeim og leiðtogunum,
heldur til að hafa áíhrif á stefnu
þeirra og starfsstíl. Það mun
koma til liðs við þann flokk,Sem
það telur, eftir nána skoðuun,
að hafi upp á mesta möguleika
að bjóða til að hrinda í fram
kvæmd þeim róttæku umbötum
sem gera þarf nú þegar.á ís
landi á nær öllum sviðum.
Unga kynslóðin á íslandi mun
að »nínum dómi á næstu miss-
erum skipa sér í fylkingu, sem
á krenddulausan en markviss,
an hátt mun hefja nýja fram
farasókn í þjóðfélaginu .
FYRIR HEJMILI OG SKRIFSTOFVR
DE
L.-UXE1
■ frAbær gæði H
■ FRÍTT STANDANDI H
■ STÆRÐ: 90x160 SM H
H. VIÐUR: TEAK H
H FOLÍOSRÚFFA H
H útdragsplata með H
GLERI A
H SKÚFFUR ÚR EIK H
HÚSGAGNAVERZLUN
REYKJAVÍKUR
BRAUTARHOLTI 2 - SÍMI 11940
Jón Grétar Sipurðsson
héraðsdómslögmaður
Austurstraetl 6
Slml 18783.
TIL SOLU
nýleg þvottavél, m. nýjum
mótor, Singer saumavél,
þvottapottur kolakyntur,
rafmagnshitadunkur, mið-
stöðvarketill, svefnherberg
ishúsgögn eldri gerð, raf-
magnsorgel méð magnara.
Uppl. í síma 33791.
ATHUGID
Piano og orgelstillinga?’ og
viðgerðir
Bjarni Pálmason,
sími 15601. ■ /
Meginverkefni þessarar fylk
ingar er að vinna sigur á hinni
siðferðislegu og fjármálalegu
spillingu, sem hefur helsýkt
þetta þjóðfélag, og því flokks
ræði sem hefur einkennt fjár
mála- og embættiskerfi lands
ins. Að vinna að því að lýðræði
í landinu verði aukið, og styrkt
með virkri þátttöku almennings
í ákvörðunum í lanösmálum,
sveitamálum, félagssamtökum
og fyrirtækjum. Að sporna við
þeirri þróun, að stjórnmálalegt
vald Alþingis færist í æ rík
ara mæli í hendur örfárra emb
ættismanna. Að með markviss
um og skipulögðum áætlunum,
sem unnar verði í samráði við
þátttakendur atvinnulífsins og
undirbúnar með Itarlegum rann
sóknum og opinberum umræð
um, verði mörkuð . endurreisn
íslenzks atvinnulífs. Að athafna
mönnum verði skipuð skilyrði
til að stunda öflugan atvinnu-
rekstur. Að ávaxta íslenzkan
menningararf og skapa vísinda
og listamönnum aðstöðu til að
vinna áhyggjulausir sín störf,
og gefa almenningi kost á að
njóta verka þeirra. Að móta
sjálfstæða utanríkisstefnu, og
taka virkan þátt í alþjóðastarfi.
Framtíðarheill íslenzku þjóð
arinnar er undir því komin hvort
þetta verður að veruleika. Ég
er fyrir mitt leyti trúaður á
það, og ungir Framsóbnarmenn
munu áfram verða merkisberar
í þessari fylkingu unga fólks
ins á íslandi."
HÓTUÐU AÐ FARA
Framhald af bls. 1
' ist eftir því hve margir eru í
salnum, því fötin gleypa í sig
hljóminn, svo að þetta getur
brugðizt til beggja vona, sagði
Gunnar.
Dr. Jordan var væntanlegur hing.
að til lands í kvöld eða á morgun,.
og er meiningin, að hann fylgdist
með æfingum hljómsveitarinnar
næstu morgna og geri þá þær mæl
ingar, sem hann þarf á að halda,
til þess að sjá hver árangur er orð
inn af breytingunum, og svo verð
ur hann væntanlega viðstaddur
fyrstu tónleikana. Getur hann þá
sjálfur dœmt um, hvernig ráð-
leggingar hans hafa gefizt
Nemendasamband
Samvinnuskólans
heldur dansleik í Tjarnarbúð mánudaginn 23. sept.
kl. 21. Hljómsveitin Ernir leika. Allt Samvinnu-
skólafólk er hvatt til að fjölmenna og kveðja
væntanlega nemendur skólans í vetur.
Stjórnin
BIFREIÐAEIGENDUR
k AUSTFJÖRÐUM!
FUNDIR
Á FÁSKRÚÐSFIRÐI OG EGILSSTÖÐUM.
I. Stofnfundur Klúbhsins Öruggur akstur á Fá-
skrúðsfirði verður haldinn í Félagsheimil-
inu Skrúð á Búðum þriðjudaginn 24. sept.
n. Aðalfundur Klúbbsins Öruggur akstur á Egils
stöðum verður haldinn í Félagsheimilinu
Valaskjálf miðvikudaginn 25. sept. n.k.
Báðir fundirnir hefjast kl. 21.!
DAGSKRÁ:
1. Ávarp: Marínó Sigurbjörnsson, verzlunar-
stjóri á Reyðarfirði, formaður Egilsstaða-
klúbbsins.
2. Afhending viðurkenningar- og verðlauna-
merkja SAMVINNUTRYGGINGA 1967, fyrir
5 og 10 ára öruggan akstur.
3. STOFNfundar — AÐALfundarstörf
4. Sameiginleg kaffidrykkja í boði klúbbanna.
5. Umerðarkvikmynd — ef tími vinnst til ! !
Baldvin Þ. Kristjánsson félagsmálafulltrúi og Gunn
ar Sigurðsson afgreiðslustjóri mæta á báðum fund
unum og flytja framsöguerindi.
Hér með er skorað á alla yngri sem eldri
tryggjendur ökutækja hjá Samvinnutrygging
um að mæta á þessum fundum, eftir því sem
við á.
Allt áhugafólk um umferðaröryggismál velkomið!
S AM VINNUTR Y G GIN G AR
Stjórn Klúbbsins
ÖRUGGUR AKSTUR
Á Egilsstöðum