Tíminn - 20.09.1968, Síða 11

Tíminn - 20.09.1968, Síða 11
FÖSTUDAGXJR 20. sept. 1908 4 SLYSAFJOLD- INN INNAN VIKMARKA OÓ-Reykjavík, fimmtudag. Sextándu viku hægri umferðar, vikuna 8. til 14. september, urðu 58 umferðarslys í þéttbýli og 19 á vegum í dreifbýli, eða alls 77 umferðaslys á landinu öllu, þar af urðu 41 í Reykjavík. Samkvæmt reynslu frá 1966 og 1967 eru 90% líkur á því, að slysatala í þéttbýli sé milli 58 og 92, en í dreifbýli milli 10 og 32, ef ástand umferðarmála helzt •dbreytt. Slík mörk eru kölluð vikmörk, eða nánar tiltekið 90% vikmörk, ef mörkin eru miðuð við 90% líkur. Slysatölur voru því milli vik marka bæði í þéttbýli og dreif býli. Af fyirgreindum umferðarslys um urðu 17 á vegamótum í þétt- býli við það, að ökutæki rákust á. Vikmörk fyrir þess háttar slys eru 13 og 32. Á vegum í dreifbýli urðu 11 umferðarslys við það, að bifreið ar ætluðu að mætast. Vikmörk fyrir þá tegund slysa eru 2 og 21. Alls urðu í vikunni 11 umferð arslys, þar sem menn urðu fyr ir meiðslum. Vikmörk fyrir tölu slfkra slysa eru 3 og 14. Af þeim sem meiddust voru 4 ökumenn, 3 farþegar og 5 gangandi menn, eða alls 12 menn. Umferðarslys í Ytri-Njarövík SJ-Reykjavík, fimmtudag. f dag um kl. 14, varð 4ra ára drengur, Hörður Sander, fyrir bif- reið í Ytri-Njarðvik, og slasaðist allmikið. Slys þetta varð á Borg- arvegi i Ytri-Njarðvik, og sá öku- maður bifreiðarinnar, sem er af Moskwitoh-gerð, drenginn að leik við vegkantinn. Hljóp drengurinn síðan að óvörum fyrir bifreiðina. Drengurinn, sem á heima í Ytri- Njarðvík, var fluttur á sjúkrahús- iö í Keflavík, og mun vera lær- brotinn, viðbeinsbrotinn og skrám aður á höfði. 10 ÞÚSUND Framhald af bls. 3. 210 atkvæðaseðlar bárust 83 lesendur töldu eittlhvert kvæði verðlauna vert. Skiptust atkvæði þessara kjósenda á 17 höfunda. 32 kjósendur töldu ekkert kvæð anna verðlauna vert, en 5 atkvæða seðlar voru auðir og ógildir. Greiddi því innan við 14% kaup- enda atkvæði með verðlaunaveit- ingu. 50% þurfti til þess að veita verðlaun. Samkvæmt framansögðu gefa úrslit atkvæðagreiðslunnar ekki tilefni til verðlaúnaveitingar. Hin fyrirhuguðu verðlaun, kr. 10 þús. voru látin renna í hinn nýstofn aða sjóð til styrktar heyrnardauf- um börnum. KAUPA SJÓNVÖRP Framhald af bls. 1 mende, Philips, Blaupunkt og fleiri teg. Ástæðan fyrir þessu framboði á notuðum sjónvarpstækj um er sú, að nú eiga sjónvarps áhorfendur á meginlandi Evrópu kost á að velja milli þriggja til fjögurra sjónvarpsútsendinga. Eldri tæki eru flest aðeins gerð fyrir eina til tvær rásir og nú skipta fjölskyldur í Þýzkalandi sem óðast á gamla sjónvarpstækinu og fjölrásasjónvarpi eða litsjónvarpi. Verksmiðjurnar taka gömul sjón varpstæki upp í ný, yfirfara og endurbæta þau og bjóða svo til kaups á vægu verði. íslendingar eiga aðeins um eina sjónvarpsdagskrá að velja (tvær ef dátasjónvarpið er talið með) svo að einnar rása tæki koma áð fullum notum hérlendis. Tækin sem Gunnar Emilsson ætlar að flytja inn frá Þýzkalandi eru einn ar, tveggja og þriggja rása og fer verð þeirra eftir því, þau eru einnig misgömul. Þegar hafa ver ið pöntuð 100 sjónvarpstæki hjá Gleraugnaverzluninni og von er á fyrstu sendingunni innan 3 vikna. Þá koma tíu tæki, og verði þau velútlítandi og fullboðleg hefur Gunnar Emilsson í hyggju að hefja innflutning af fullum krafti og spara þannig Akureyringum ærið fé. Það skal tekið fram að tölurn ar um væntanlegt verð á þessum tækjum eru ekki endanlegar, þar eð flutningsgjialdið er ekki vitað, hinsvegar er tollur af notuðum tækjum sá sami og af nýjum eða ■75%.,________________________ ATVINNUMÁLANEFND Framhald aí bls. 12. andi aflafengur og markaðstregða og afleiðingar af samdráttarstefnu ríkisstjórnarinnar, og mætti benda á, að veigamikil orsök atvinnu- leysis í fyrra og nú væri það, hvernig ríkisstjórnin hefði leikið iðnaðinn. Hann benti einnig á sam drátt vélbátaútgerðar hér í Fló- anum og í fiskiðnaði hefði verið mikill samdráttur. Hann benti á mörg önnur greinileg merki þess, að við blasti stórfellt atvinnuleysi á komandi vetri, og mætti að verulegu leyti sækja stjórnarvöld til saka fyrir það. A VlÐAVANGI Framihald af bls. 6 iðngreinar, sem framleiða ýms- ar nauðþurftir þjóðarinnar, og það er ein ástæðan til þess, hve gjaldeyrisstaðan er nú orðin hraksmánarleg. Við þurfum að flytja inn miklu meiri nauð þurftir en áður var. BRJÓTAST INN Framhald af bls. 12. ferðamikill peningaskápur var borinn út úr skrifstofu niður stiga og út úr húsinu. Að hinu leytinu eru þessir þjófar ekki eins fimir | að opn-a peningaskápa, eins og að! klifra og stela. Enda hefðu þeir i ekkert haft upp úr krafsinu nema' vonbrigðin, hefði þeim tekizt að' opna skápinn. Þeir hefðu aldrei | getað haft not af þeim verðmæt- j um sem í honum voru. Rannsóknarlögreglain hefur grun; um að þeir sem klifra hátt og i brjótast svo inn leiki þetta aftur í og aftur og að sami hópurinn sé J á ferðinni í þrem fyrrgreindum j byggingum. Vinnubrögðin eru svipuð, en hagnaðurinn af erfiði þeirra er minni en þeir mundu háfa upp úr sér við heiðarlega vinnu. jafnvel þótt ekki væri um! næturtaxta að ræða. • KREFJAST ÍHLUTUNAR- RÉTTAR Framhald af bls. 1 hafsbandalagið þegar í stað taka til gagnráðstafana. Pravda, málgagn rússneska kommúnistaflokksins, tók málið j upp í gær og hélt blaðið því fram að Sovétríkin og aðrar „frið j elskandi" þjóðir væru reiðubúnari að stíga það skref sem þyrfti tilj þess að bæla niður ný-nazisma og hernaðarstefnu í Vestur-Þýzka landi. Pravda byggði þó málflutn ing sinn á Postdam-samningunum.! Fréttaskýrendur í Moskvu benda á að Sovétríkin hafi um langt I skeið beint þeim aðvörunum til | Bonn-stjórnarinnar að af sovézkrii TIMINN hálfu yrði ekki hikað við að grípa til harkalegra ráðstafana væri það álitið nauðsynlegt og réttlætan- legt. í Moskvu er það almennt hald manna að þessi afstaða Sovétrfkj anna hafi ekki í för með sér hættu fyrir Vestur-Þýzkaland eins og stendur. Frekar er hallast að því að með þessu vilji sovézkir ráðamenn reyna að draga úr og eyðileggja hina nýju stefnu Bonn stjórnarinnar gagnvart Austur- Evrópu ríkjunum. Eftir atburðina í Tékkóslóvakíu er Sovétstjórnin sögð óttast mjög austurstefnu Vest yr-Þjóðverja, en þeir hafa lagt áherzlu á góð samskipti við ná- grannalönd sín í AusturEvrópu upp á síðkastið. BANASLYS Framhald af bls. 12. ekkert hefur frétzt nánar um þennan atburð í dag vegna slæms talstöðvasambands við skipverja á Jóni Garðari. Síðast höfðu þeir samband við land kl. 10 í gærkvöldi og var þá allt með felldu um borð. Skipið var á leið á síldarmiðin frá Þýzkalandi. Skipið er nú á leið til lands, og kemur senni- lega til Sandgerðis á næstunni. Víðir Sveinsson hefur verið einn af mestu aflamönnum ís- lendinga í mörg ár. Hann hef- ur verið skipstjóri á Jóni Garð- ari frá upphafi, en skipið er gert út frá útgerðarstöð Guð- mundar Jónssonar í Sandgerði. Víðir lœtur eftir sig konu og börn. BANDARÍKJAMENN Framhald af bls. 7. en það væri sniðið eftir þess- ari tæmandi og þrautkynntu heildarkönnun. Forsetinn hlyti óhjákvæmilega að taka tillit til ábendinga og tillagna ráðs- ins,*enda þótt að honum væri ekki skylt að fylgja þeim. Þingið tæki síðan fjárlaga- frumvarpið til meðferðar eins og nú tiðkast og ákvarðaði um fjárveitingar, skatta og annað j þess háttar í fullri vissu þess, I möguleika og ákvörðunum um j að almenningur hefði átt ríkan j hlut að athugun hinna ýmsu möguleika og ákvörðunum um gangs nyti. ÉG sting upp á þessari að- ferð einfaldlega til þess að ; leggj-a aukna áherzlu á hina brýnu þörf á nýjum stjórntækj um, sem gætu gert okkur kleift ! að losa okkur úr viðjum hins fastmótaða kerfis opinberrar stefnumörkunar i fjármálum, sem tillit til embættisaldurs hefur tröllriðið. Við getum ekki vænzt þess, að okkur takist að vinna bug á þeim mikla þjóðfélagsvanda, sem við okkur blasir, ef við beitum efnahagslegum „hern- aðaraðferðum“, sem mótaðar voru á nítjándu öldinni og. mið aðar við að fullnægja þörfun- um þá. Við verðum að hafa tök á að stuðla að því á allan hátt, að þjóðartekjunum sé af fullri hagsýni varið til þeirra þarfa, sem brýnast er að full- nægja. Frændi apans (The Monkey's Unele) Sprenghlægileg ný gaman- mynd frá Disney. Tommy Kirk Annette. — íslenzkur texti — Sýnd kl. 5, 7 og 9 18936 Cat Ballou Bráðskemmtileg og spennandi ný amerisk gamanmynd með verðlaunahafanum Lee Marvin ásamt Jane Fonda, Michael Cailan. Sýnd kl. 5, 7 og 9 Hin heimsfræga mynd Sound of musik endursýnd kl. 5 og 8,30 en aðeins í örfá skipti. Slmi 11544 Mennirnir mínir sex- (What A Way To Do) fslenzkur texti Viðurkennd ein af allra beztu gamanmyndum sem gerðar hafa verið síðustu árin Shirley McLain Dean Martin og fl. Sýnd kl. 5 og 9 LAUGARAS Slmar 32075. 09 38150 Á flótta til Texas Sprenghlægileg skopmynd frá Universai 1 litum og Tekniscope Aðalhlutverk: Dean Martln Alan Delon og | Rosmary Forsyth Sýnd kL &, 7 og 9 íslenzkur textt Slmi «0184 í sviðsljósi (Career) Bandarísk stórmynd eftir samnefndu Broadway ieikriti Aðalhlutverk: Dean Martin Anthony Franciosa Shirley McLaine — íslenzkur texti — Sýnd kl. 9. Miðasala frá kl. 7. Sími 50249. Barnfóstran með Billy Davis. Sýnd kl. 9. 11 ÞJOÐLEIKHÚSIÐ Fyrirheitið eftir Aleksei Arbuzov Þýðáhdur: Steinuim Briem og Eyvindur Eriendsson Leikstjóri: Eyvindur Eriends- son. Frumsýning laugardag kl. 20 Önnur sýning sunnudag kl. 20 Aðgöngumiðasalan opin frá kl 13.15 til 20, sími 1-1200. á&iinc S^kEYKjAyífoggB Maður og kona Sýning laugardag kl. 20,30 UPPSELT Sýning sunnudag kl. 20,30 UPPSELT Þriðja sýning fimmtudag. Aðgöngumiðasalan f ntaó ei opin frá kl. 14. Simi 13191. T ónabíó Stm: 31182 Khartoum íslenzkur texti Heimsfræg, ný, amerisk ensk stórmynd I litum Charlton Heston Laurence Olivier Sýnd ki. 5 og 9 Bönnuð innan 16 ára. MfíiFMMmm Fjölskylduerjur Fjörug og skemmtileg ný amerísk gamanmynd í litum með Rick Nelson Jack Kelly Kristin Nelson Sýnd kl. 5 7 og 9 41985 1 íslenzkur texti Skot í myrkri Heimsfræg og snilldarvel gerð amerisk gamanmynd í sérflokki Peter Sellers Endursýnd kl. 5,15 og 9 |!||>i ifnffltill ><rr,. f-13-84 — Daisy Clover Mjög skemmtileg ný amerísk kvikmynd í litum og Cinema scope. íslenzkur texti. Nathalie Wood Christoper Pluinmer. Sýnd kl. 5 og 9 *

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.