Tíminn - 24.09.1968, Qupperneq 6

Tíminn - 24.09.1968, Qupperneq 6
TIMINN ÞRIBJUÐAGUR 24. se»t. 1938. FISKIRÆKT í ÁM OG VÖTNUM ER Hið nýja Seint í sn.mar sneri Tíminn sér til Jakobs Hafsteins yngra, sem stundar nú nám í vatna- fiskalíffræði við háskólann í Umeá í Svíþjóð. Spurði blaðið hann ýmislegra spurninga varð- andi námið og viðhorfið til fiskeldismála, bæði hér heima og erlendis. Jakob Hafstein yngri hefur stundað laxveiði, svo að segja frá barnsaldri, og það í einni erfiðustu en jafnframt faliegustu veiðiá landsins, Laxá í Aðaldal. Ræktun ferskfisks er nú mjög á döfinni, og mönnum er smám saman að skiljast, að í því efni er margt ónumið. Það sýnir og þennan vaxandi áhuga, að ungur maður eins og Jakob Hafstein skuli fara utan til náms í þessum fræðum. Okkur mun ekki veita af starfskröftum slíkra mann á næstu áratugum, og von- andi fer þeim fjölgandi, sem leggja þessa þýðingarmiklu námsgrein fyrir sig. Þótt lax- eldi sé kornið á sæmilegan rekspöl, þá er margt eftir ógert, svo sem ræktun fisks í stöðu- vötnum, og auk þess verður óhjákvæmilega um að ræða stöðugt viðhald. Segja má að fiskiræktin sé síðasta stóra landnámið, og það fer v§l á því að ungir menn hafi þar hönd í bagga, og komi með lærdómi sínum til liðs við áhugamennina. | Hvað erfcu búinn að vera lengi i í Svíþjóð? ' Ég fór til Svíþjóðar í septem- ' ber 1967 og lá þá leið mín fyrst til Laxforskningsinsitiutet á Álv karleön skammt frá Gavle, sem er ein af stærstu og fullkomn- usbu klakkynbótaeldis- og rann- sóknarstöðvum Svía, varðandi lax fiskrannsóknir. Þetta var mér af- ar þýðingarmikið og ánægjuleg- ur forleikur að háskólanámi mínu í Umeá í vatnafiskalíffræði. Fyrst og fremst kynntist ég dálítið verklegum rannsóknum og at- höfnum fræðimanna þar í landi á þessu sviði. Var við laxakreist- ingar, fylgdist með starfi þeirra um kynbætur á laxi, var látinn vinna á rannsóknarstofum og yfir leitt mætti miklum skilningi og fyrirgreiðslu. í annan stað var þessi dvöl mín á Alvkarleön mjög þýðingarmikil með hliðsjón af því að komast dálítið inn í sænsk- una áður en háskólanámið hófst og loks í þriðja lagi var dvöl mín nokkurs konar forspil að því verk lega námi, sem ég er staðráðinn í að afla mér um skipulag, rekst- ur og starf í klak- og eldisstöðv- um, eftir að háskólanámi lýkur. Ég tel, að slíkt sé grundvallarat- riði að því, að maður geti gert verulegt gagn hér heima í fram- tíðinni. Visindalærdómur og há- skólanám er hvergi nærri nóg í þessum efnum. Verklega námið er ekki þýðingarminna og okkur skortir menn á því sviði, því að verkefnin eru hér „í hverri sveit“ að mínum dómi, og það þarf að hagnýta þau. Ég hóf svo háskóla- námið við háskólann í Umeá strax upp úr áramótum, undir leiðsögn ágætustu fræðimanna og þar lík- ar mér dvölin afar vel og hygg gott til framtíðarinnar. Hvað er aðallega fengizt við á þeim stað, þar sem námið fer fram? Eins og gefur að skilja um há- skólanám, er eingöngu um bólc- legt nám að ræða, með míkró- skópískum rannsóknarstof-um. Það er gert ráð fyrir því að þetta nám taki 3—4 ár. Að því loknu er svo hægt að taka fyrir verklegt nám, sem á að vera hægt að ljúka á 2 árum. Eins og ég gat um áðan, er það ætlun mín að Ijúka slíku námi í Sviþjóð líka, og vonandi tekst þetta. Hver er meðalstærð á laxinum í Noregi og Svíþjóð? Ég get ekki svarað þessari spurningu þinni til hlítar, er ekki nógu fróður i þessum efnum Hins vegar er mér kunnugt um það, að í einni frægustu laxveiðiá Noregs, Alta-ánni, rniin meðal- þyngdin )áta nærri að vera um 20 pund. í Tana ánni er meðal- þyngdin eitthvað hærri, enda um miklu meira fljót að ræða, en aft ur á móti mun meðalþyngdin vera dálítið lægri í Lærdals-ánni, en þessar þrjár ár eru af mörg- um taldar einna eftinsóttustu lax veiðiár Noregs. í Sviþjóð hygg ég Jakob Hafstein að t. d. Dalaálven muni meðal- þyngdin vera svipuð þeirri, sem er í Alta í Noregi. Af þessu sérðu að í stóránum í þessum tveim ná- grannalöndum okkar er meðal- þyngd laxanna miklu hærri en í okkar ám. Má sjálfsagt ætla, að stærð ánna ráði allmiklu í þess- um efnum. Og hafi maður í huga laxveiðiárnar okkar, þá liggur held ég ljóst fyrir, að meðal- þyngd íslenzka laxins er mest í stærstu ánum, eins og til dæmis í Soginu og í Laxá í Aðaldal. Við þurfum að sjálfsögðu að leggja aðaláherzlu á það í framtíðinni, að varðveita og auka til muna þessa stóru, sterku og verðmiklu laxastofna. Önnur stefna væri nei kvæð og í algeru ósamræmi við stefnu annarra þjóða. sem lengst eru komnar í laxfiskarækt. Nú, en hafa þá Svíar ástundað sérstakar kynbætur á laxi og þá með hvaða árangri? Já, Svíar hafa lagt mikla rækt við kynbæturnár og þeir búast við miklum árangri í þessum efnum, senn hvað liður Aðbúnaðurinn á Laxeldis- og laxrannsóknai’stöðv- um Svía er mjög góður og full- kominn. enda kostaður bæði af ríkinu og rafmagnsveitunum, sem afls njóta og vinna úr fallvötn- unum. Ég mundi ætla, að Svíar væru komnir einna lengst ann- arra þjóða þessum rannsóknum, ásamt Bandaríkjamönnum og þeir leggja alveg geysimikla á- herzlu á framgang þessara mála. Þeir reyna að kynbæta laxin, fyrst og fremst með það fyrir aug um að geta alið upp sterkan, hraustan og vænan laxastofn, því að í slflcu felast að sjálfsögðu mest þjóðarverðmæti samhliða því að þjóna þrá og löngun sportveiði- mannsins, því að „okkur dreym ir alla um þann stóra“, ekki satt? Hér má heldur ekki gleyma því, að Svíar leggja þunga áherzlu á að finna og ala upp snemmgeng- inn laxastofn. Stóri laxinn gengur líka þar, eins og hér alltaf fyrst. Hvaða áherzlu leggja Svlarnir á vatn og fæðu í klak- og eldis- stöðvunum? Grundvallaratriði er að þeirra dómi það, að vatnið sé gott, að í því séu engin þau efni, er skað- að geta hrogn, eða ungfiska og svo að sjálfsögðu, að alltaf sé fyr- ir hendi yfrið nóg vatn og eng in hætta á að það þverri eða að til vatnsskorts geti bomið. Þeir nota aðallega þurrfóður og Svíar eru framarlega, ef ekki fremstir þjóða J því að framleiða þetta fiskafóður, einkum Evos fóðrið Þeir gera líka tilraunir með fram leiðslu blautfóðurs, en hvernig þau mál standa nú, er mér ekki kunnugt um f hvaða stærðir ala Svíar laxa- seyðin, áður en þeim er sleppt í árnar? Ég veit ekki til þess að Svíar sleppi nokkru, sem nemur af kvið pokaseyðum í áraar eða vötnin Þeir leggja aðaláherzluna á að ala seyðin upp í sjógöngustærð. þ. e. niðurgönguseiði, eins og við köllum þau hér oft á tíðum. Rann sóknir hafa sýnt, að endurheimt þessara seiða í fullvaxna laxa er bezt. Einnig leggja þeir mikla á- herzlu á sumarlin seiði og af kynbættum laxi virðist árangur- inn af endurheimtun þessara seiða fara batnandi. Hér er líka mikið í húfi fyrir Svía, því að þeir þurfa að geta haft við hinni gífurlegu veiði á laxinum í sjón um við strendur landsins, en þar er um 85% af laxinum veiddur, sem fæst í Svíþjóð. Ef Svíar gætu ekki unnið á móti þessari geig vænlegu netaveiði í sjónum, með ræktun og eldi. er fyrirsjáanlegt að laxinn mundi ganga til þurrð ar í Svíþióð og að lokum hverfa Jakob V. Hafsfein jr. við gamla veiSiheimilið á Laxamýri með „gæðalax" úr Brúarhyl. Hvernig standa laxeldismálin hjá okkur í ljósi þeirra vinnu- bragða, sem þú hefur kynnzt í Svíþjóð í þessum efnum? Ég verð að játa það hreinlega, að til þess að svara þessari surn ingu tæmandi, er ég hvergi nærri nógu fróður en í þessum efnum, hvorki um laxeldismálin hér né í Svíþjóð. Það hefur verið skrifað töluvert um þessi mál hjá okkur síðustu árin, og hefi ég að sjálf- sögðu fylgzt allvel með þeim skrif um. Þetta virðast vera ákaflega við kvæm mál hjá okkur — og sann- ast sagna skil ég ekki hvers vegna svo ætti að vera. En áhuginn er greinilega vaknaður um þessi þýð ingarmiklu mál hér heima. Merk- asta áfangann nú upp á' síðkastið álft ég stofnun Félags áhuga- manna um fiskrækt. í þeim fé- lagshópi þekki ég marga ágætis menn, sem eru brennandi í áhug anum á skynsamlegum fram- gangi og þróun þesara mála og er það vel. Við getum slegið þvi föstu, að Svíar eru meðal fremstu þjóða í þessum málum. Þess vegna hlýtur samanburður við þá að verða óhagstæður fyrir okkur. En af þeim getum við líka lært margt og mikið. Hins vegar held ég, að ekki sé ósanngjarnt að segja, að klak, eldi og kynbætur á laxi og silungi sé á byrjunar- stigi hjá okkur, ef miðað er við ýmsar aðrar þjóðir. Þessar þjóðir hafa áratuga reynslu fram yfir okkur, sem við ættum að hag- nýta okkur miklu betur en gert hefur verið. En mikilvægi þessara mála er nú sem betur fer greini- lega að opna augun á ráðamönn- um þjóðarinnar og þeim, sem veiðihlunnindin eiga — bændun- um — og sannast sagna álít ég, að blaðaskrif undanfarinna ár hafi í þessum efnum leitt gott af sér. „Snemma beygSist krókurinn" Hvað segir þú svo um kynbæt- ur á íslenzka laxinum? Er hæg að kynbæta hann? Vissulega er hægt að kynbæta íslenzka laxinn. Ég veit hins veg- ar ekki til þess, að neinar rann- sóknir eða tilraunir hafi enn verið gerðar í þá átt. Það er mik- il furða, að slíkt skuli ekki enn hafa átt sér stað hér hjá okkur. Þetta er raunar ekki annað en rétta náttúrunni svolitla hjálpar hönd, gera henni léttara fyrir í verki sínu, svo að sterkari, stærri og öflugri stofnar verði ráðandi. í þeim felast mestu verðmætin, sérstaklega ef við miðum við mark aðsmöguleika erlendis fyrir slíka útflutningsframleiðslu. Smálax- inn, sem sumir nefna hinu skemmtilega ,skopheiti“ — stór smálax — er illseljanlegur á er- lendan markað, nema þá á mjög lágu verði. líku og er á silungi.. Þetta gera m.a. reykingarmögu- leikarnir eins og þú sennilega veizt. Um mismunandi kyn á íslenzka iaxinum beld ég að sé varla og alls ekki að ræða. Allur íslenzki laxinn er af sama kyni — salmo salar — en kynstofnarnir eru geysimargir og misjafnir að gæð 03 um, bæði að þvi er varðar stærð áhuglnn fyrir fiskræktinnl vaknaði 0g sv0 styrkleika í veiSiferðum I Laxá i Aðaldal. Grundvöllurinn sem margar Rætt við Jakob Hafstein yngra um fiskrækt og framtíð hennar

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.