Tíminn - 24.09.1968, Blaðsíða 14
TIMINN
ÞRIÐJUDAGUR 24. sept. 1968.
14
NÝR SKÓLASTJÓRI
Framhalö aí Dls. a
kennslu í söng, og er þess að
vænta, að söngfólk í Kópavogi
noti þetta góða tækifæri til
söngnáms.
Undirbúningsdeild verður
starfrækt vdð skólann fyrir
böm á aldrinum 7—9 ára.
Markmið þeirrar kennslu er að
búa nemendur undir frekara
tónlistarnám. En deildin þjón
ar einnig öðrum tilgangi, að
vekja áhuga barna á tónlist og
þroska tilfinningar þeirra fyr-
ir henni.
ÞJÓFNAÐARFARALDUR
Framhald af bls. 16.
gær náðust þjófarnir í Reykjavík,
en þeir voru tveir að verki. Ekki
fundust á þeim nema 28 þúsund
krónur og héldu þeir að upphæð
in sem þeir stálu hafi ekki verið
nema um 40 þúsund krónur, en
eigandi verzlunarinnr lækkaði upp
hæðina sem stolið var niður í 50
þúsund krónur og heldur fast við
að í skápnum hafi verið að
minnsta kosti sú upphæð, en
hvernig sem þjófarnir leituðu 1
vösum sínum, eftir að þeir voru
bandteknir fuudu þeir ekki nema
28 þúsund krónur samanlagt. Um
afganginn vita þeir ekkert enda
héldu þeir rösklega upp á vel
heppnað innbrot.
Innbrotsþjófarnir tveir voru á
dansleik ásamt þrem kunningjum
sínum, í féiagSheimilinu að Minni
Borg á laugardagskvöld. Fóm þeir
austur í bíl sem einn þeirra átti.
Eftir dansleikinn dvaldist þeim
eitthvað á staðnum og svo fór að
piltar urðu sígarettulausir. Tveir
þeirra lo.fuðu að bæta úr þvf og
yfirgáfu félaga sína. Brutust þeir
auðveldlega inn í verzlunina og
fundu fljótilega tóbakið og eins
og áður er sagt lykil að peninga
skápnum. Komu þeir bráðlega til
félaga sinna aftur með tóbakið,
en sögðu ekki frá hvar þeir höfðu
fengið það og því síður minntust
þeir á lukkupottinn sem þeir
duttu í. Komu piltar til Reykjavík
ur að morgni sunnudags.
Þjófarnir héldu áfram drykkju
eftir að þeir komu í bæinn enda
eru menn ekki að hætta svoleíðis
með fulla vasa af peningum. í
hádeginu brugðu þeir sér á vín
veitingahús , voru á barnum bar
til lokað var kl. 14.30. Fóru þeir
þá heim til annars þeirra og
skiptu með sér því sem eftir var
af peningunum. Fékk annar þeirra
um 20 þúsund krónur og hinn 17
til 18 þúsund krónur, og skildu
síðan.
Kl. 15 handtók rannsóknarlög-
reglan annan þjófinn og hinn
þrem tímum síðar. Gátu þeir litla
grein gert fyrir þeirri peningaupp
hæð sem á vantaði. Eitthvað voru
þeir búnir að kaupa af áfengi og
aka um í leigubílum en voru ekki
vissir um hvað þeir höfðu þvælzt
eða með hverjum.
Rannsóknarl’ögreglan hefur náð
í þjófinn sem brauzt inn í veitinga
húsið Sigtún fyrir helgina. Eins
og sagt var frá í Tímanum var
stolið þaðan 20 flöskum af áfengi
nokkrum kjúklingum og aligæs.
Lögreglumaður varð var við grun
samlegan mann sem rogaðist með
þunga tösku að næturlagi, kann-
aðist iögregluþjónninn við mann
inn og þótti ferðúr hans grunsam
legar og fylgdi honum eftir. Fór
maðurinn með töskuna inn í hús
nokkur-t og voru fleiri menn þar
fyrir. Rannsóknarlögreglan kom
fljótlega á staðinn og faun í hús
inu þrjá menn, áfengisbirgðir, ali
gæs kjúklinga og einnig fannst
þar útvarpstæki og rafmagnsrak-
vél, sem stolið var fyrir helgi úr
mótorbát sem liggur í Reykjavik
uhhöfn.
FÆR AÐ BÍÐA ...
Framhald af bls. 1
þrasi milli lögreglumanna og
sauðfjáreigenda fram eftir kvöldi
og vildu fjáreigendur ekki láta
sig og vildu inn með fé sitt hvað
setn hver sagði. Voru komnir 11
lögreglumenn í hliðið þegar leikur
inn stóð sem hæst. Þar kom að
flestir fjáreigendur fóru með fé
sitt aftur. Flestir ráku það aftur í
Lögbergsrétt, en aðrir slepptu
fénu lausu. Nokkrir munu hafa
komið kindum sínum til Grinda
víkur til slátrunar.
Einn fjáreigandi vildi ekki gefa
sig fyrr en í fulla hnefana. Var
það Ólafur Dýrmundsson. Á hann
um 30 fullorðnar kindur og í rétt
unum í gær átti hann nokkur lömb
og stóð hann í alla nótt yfjr 17
kindum, sem voru i kerrum við
hlið Fjárborga. Sagði Ólaíur í
dag að hann myndi ekki fara með
kindurnar á annan stað en í fjár
hús sitt innan hins vaktaða hliðs
Ólafur benti á að á túni Bústaða
sem einnig er i borgarlandinu
væri fjöldi sauðfjár og hreyfði
enginn hönd eða fót til að reka
það burtu. Einnig kvað hann fé
vera á fleiri stöðum í borginni,
en löggæzlumenn virtust ekki
hafa skipanir um annað en sjá
svo um áð engin kind fœri inn í
Fjárborgir.
Fjáreigendur höfðu í gær og í
dag samfoand við ráðamenn borgar
innar til að reyna að fá deiluna
leysta, vildu þeir fá að hafa fé
sitt í húsunum fram yfir sláturtíð.
Einnig höfðu þeir samband við
formann Dýraverndurnarfélagsins
og yfirdýralækni til að leita rétt
ar síns og bentu á að þótt sauð
fljárhald væri bannað i borgar-
landinu yrðu þeir þó að hafa
sláturfé sitt einhvers staðar með
an það biði slátrunar og varð það
úr eins og áður er sagt áð kindurn
ar fá aðvera í Fjárborgum þar til
Hins vegar verður fjárhald ekki
þær verða leiddar í sláturhúsið.
leyft þar í vetur.
KEÐJUBRÉF
Framhald aí bls. 16
lífláti. Er 1 því sambandi bent
á dauða hershöfðingja nokk-
urs, sem á að hafa látið lífið
á Filippseyjum af því hann
„sleit keðjuna."
Bréf þetta hefur farið víða,
og m. a. um Bretland. Er skýrt
frá bréfinu í brezka blaðinu
„News of the World“ í gær. Er
þar bent á, að hér sé um hið
mesta dellubréf að ræða, og
upplýst m. a. að hvergi sé að
finna upplýsingar um hershöfð
ingja með því nafni, sem nefnt
er í bréfinu. Er hann því vænt
anlega tilbúningur eins og senni
lega allt annað í þessu óvið-
kunnanlega bréfi.
NÁTTFÖTIN
Framihald af bls. 1
hugasemdir mínar? Að það er gott,
að alls konar gagnrýni fæst birt
í frjálsu landi. Það verða auðvitað
alltaf einstaklingar, sem ekki lík
ar hatturinn minn, eða bindið eða
skyrtan, eða blómið í hnappagat-
inu, eða skórnir mínir eða náttföt
in mín — þótt ég telji ósennilegt,
að nokkur þeirra hafi séð þau.
I framtiðinni mun ég vafalaust
einnig gefa gagnrýnednum mörg
tækifæri til að rita óvirðulega um
mig. Fólk má hafa þá skoðun
sem það vill. og skrifa það sem
það vill skrifa,“ sagði Henrik að
lokum.
Ekstra Bladet ritar um þessi
| ummæli að það sé athyglisvert,
að Henrik brjóti á þennan hátt þá
venju dönsku konungsfjölskyldunn
ar, að ræða ekki opinberlega það,
sem opinberlega er sagt um hana
i blöðum eða annars staðar. Jafn-
framt sým ummæli hans, að hann
hafi ekki skilið grundvailaratriði
þeirrar gagnrýni, sem fram hafi
komið i Ekstra Bladet — þau hafi
vissulega ekki snert klæðaburð
prinsins.
Ekstra Bladet skýrir frá þvi, að
grein blaðsins í síðustu viku um
Henrik prins hafi vakið mikla at
hygli, einkum í Finnlandi og Svi
þjóð og verið mikið um greinina,
og ríkisarfahjónin skrifað í því
sambandi
RÍKISRÁÐSFUNDUR
Framhald af bls. 16.
sömu, sem oss er öllum falin, að
vinna að heill og hamingju lands
og þjóðar, hver á sínu sviði og
sameiginlega."
Forsætisráðherra, dr. Bjarni
Benédiktsson, þakkaði fyrir hönd
ríkisstjórnarinnar ummæli for-
seta og árnaði honum heilla í hinu
virðulega embætti og óskaði eftir
sem beztu samstarfi milli rfkis
stjórnarinnar og forseta.
Gefið var út forsetabréf, er
kveður reglulegt Alþingi 1968 til'
fundar fimmtudaginn 10. október
n. k. Þá var Jón G Maríasson, fyrr
verandi bankastjóri, endurskipaður
formaður orðunefndar, Agnar Kl.
Jónsson, ráðuneytisstjóri, skipað'
ur í nefndina og Friðjón Skarp-
héðinsson, yfirborgarfógeti, skip
aður varamaður í nefndinni. For
seti féllst á, að lagt yrði fyrir
Alþingi frumvarp til laga um
breytingu á lögum nr. 63/1968,
um tollskrá o. fl„ og frumvarp til
laga um breyting á lögum nr. 86/
1963, um stofnun happdrættis fyr
ir ísland.
Þá voru staðfestar á fundinum
ýmsar afgreiðslur, sem farið
höfðu fram utan ríkisráðsfundar.
Ríkisráðsritari, 21. sept. 1968
Birgir Thorlacius.
ENGAR FRÉTTIR
Framhald af bls. 1
fundum á næstunni. Það sé fyrst
þegar gagnasöfnun og athugunum
er lokið, að séð verður, hvort
grundvöllur sé til samkomulags
eða ekki.
Fréttatilkynningin fer hér á eft
ir í heild:
„Fulltrúar stj órnmálaflokkanna
hafa nú haldið allmarga fundi til
að ræða efnahagsmálin. Eins og
fram var tekið í fréttatilkynningu
eftir fyrsta fundinn, hinn 3. sept
emfoer 1968, var þá þegar ljóst að
taka mundi nokkrar vikur þang
að til sýnt yrði, hvort samkomu
lag næðist, m. a. vegna þess tíma
sem naúðsynleg gagnaöflun krefð
ist. Nú hefur margvíslegra gagna
verið aflað og málin hafa veru
lega skýrzt vegna þeirra og við
umræður, sem átt hafa sér stað
og einungis hafa fjallað um sjálf
efnahagsmálin. Hins vegar er enn
unnið að frekari gagnaöflun og
þarf margt nánari athugunar við,
svo sem með samanburði á þeim
úrræðum, sem helzt koma til
greina. Fyrr en þessum athugun
um er lokið verður ekki sé'ð, hvort
grundvöllur er til samkomulags,
og má ekki búast við neinum sér
stökum fréttum af hverjum ein-
stökum viðræðufundi.
23. september 1968.“
TÓKU 380 ÞÚS.
Framhald af bls. 1
lægra var ekki slík takmörkun.
Tíminn veit ekki um ástæðuvn
ar fyrir því að veiðiréttarhafar
skyldu taka svo miklu lægra-
boði í ána, en blaðið hefur-
frétt, að þeir sem vildu sam
þykkja hærra tilboðið, hafi
lýst yfir vanþóknun sinni á
sambykkt fundarins, og lýst.
ábyrgð á hendur meirihlutans.
Var jafnvel haft við orð að
meirihlutinn myndi verða lát
inn standa skil á mismuninum,
hundrað og áttatíu þúsund krón
um.
Þá verður boðað til nýs fund
ar í féiaginu til að ganga endan
lega frá samningum og undirrit
un þéirra.
Frá skólum gagnfræöa-
stigsins í Kópavogi
Gagnfræðaskólinn
verður settur 1 Félagsheknilinu miðvikudaginn 2.
okt. n.k. IV. bekkur, landsprófsdeildir og II. bekk-
ur komi kl. 2 e.h. Almennur III. bekkur og I.
bekkur komi kl. 3.30 e.h.
Nemendur hafi með sér ritföng og veri viðbúnir
að taka á móti námsbókum, sem úthlutað verður
að skólasetningu lokinni.
Kennarafundur verður mánudaginn 30. sept. kl.
2 síðdegis.
Unglingadeildir Kórsnesskóla
verður sett miðvikudaginn 25. sept. n.k. kl. 3 síð-
degis í samkomusal skólans.
Fræðslufulltrúi
ÞAKKARÁVÖRP
m
Hjartans þakklæti mitt til skyldra og vandalausra sem
glöddu mig með nærveru sinni, með skeytum og gjöfum
á 90 ára afmæli mínu 17. sept. s.l. Guð blessi ykkur öll.
Steinunn Sigurðardóttir
Syðri Kvíhólma
Eyjafjöllum
Móðir mín, tengdamóðir og amma
Guðríður Þorsteinsdóttir
ancíaðist aðfaranótt mánudags 23. þ. m. í Landsspítalanum.
Sonja Valdimarsdóttir,
Erlingur Herbertsson
og barnabörn.
Systir okkar
Jakobína Biörndóttir,
kennslukona
andaðist í Borgarsjúkrahúsinu aðfaranótt sunnudagsins 22. septem
ber.
Ólöf Björnsdóttir,
Unnur Björnsdóttlr,
Indriði Björnsson.
Þökkum af alhug öllum fjær og nær sem auðsýndu samúð við g
andlát og jarðarför konu minnar, móður, ömmu og tengdamóður
Mekkinar Sigurðardóttur. j&
Sérstaklegar þakkir færum við læknum og starfsfólki sjúkrahúss tí
Akraness fyrlr frábæra umönnun og góðvild, sem henni var sýnd
I velkindum hennar.
Guð blessl ykkur öll.
Lýður Jónsson,
börn, barnabörn og fengdadóttir.
Útför
Guðrúnar Guðbrandsdóttur
frá Sunnuhlíð, Vatnsdal
fer fram frá Undlrfellskirkju miðvikudaginn 25. sepf. kl. 14,30 e. h
Börn og tengdabörn.