Tíminn - 31.10.1968, Blaðsíða 7
Sitl'-: 03
FIMMTUDAGUR 31. október 1968.
TIMINN
Myndin var tekin er bátnum var
rennt í sjóinn.
45 TN. BÁTUR
SMÍÐAÐUR í
STYKKISHÓLMI
KBG-Stykkishólmi, mánudag.
Á laugardaginn var sjósett-
ur hér í Stykkisliólmi 45 lesta
eikarbátur hjá Skipavík h.f.,
og er það annar af tveim bát-
um, sem smíðaðir eru fyrir
Stokkseyrarhrepp og frystihús
ið á Stokkseyri.
f fyrravetur var gerður samn
ingur á milli Stokkseyrarhr.
og frytrdhússins á Stokkseyri
annarsvegar og Skipavíkur h.f.
og Vélsmiðju Kristjáns Rögn-
valdssonar í Stykkishólmi hins
vegar um smíði á tveim 45
lesta vélbátum. Verki þessu
hefur miðað vel áfram, og var
fyrri báturinn sjósettur í fyrra
dag. Þetta munu vera fyrstu
bátai'nir, sem smíðaðir eru úr
þurrkaðri eik hér á landi, en
það á að koma í veg fyrir
þurrafúa. Hér í Stykkishólmi
er ekki fyrir hendi yfirbyggð
dráttarbraut, og eru bátarnir
því byggðir í stóru húsi
(bragga) út við svo nefnt
Grunnasund, og rennt þar á
sliskjum til sjávar.
Er skipið var sett út, var
því nafn gefið á viðeigandi
hátt, og stefni þess vætt með
kampavíni. Þá athöfn fram-
kvæmdi kona væntanlegs for-
manns á bátnum, frú Ingibjörg
Jónasdóttir. Hlaut skipið nafn-
ið Hásteinn og ber einkennis-
stafina ÁR 8.
Mikil atvinnubót er að smíði
þessara tveggja báta hér í
kauptúninu, og telur skipa-
smíðastöðin sig geta afgreit.t
skip af þessari stærð á 3%
—4 mánuðum, miðað við að
stöðugt sé unnið að smíðinni,
og hver smíðaaðili taki við af
öðrum.
STUTTAR FRÉTTIR
Svissneskur styrkur
Svissnesk stjórnarvöld bjóða
fram styrk handa íslendingi til
háskólanáms í Sviss háskólaár-
ið 1969—1970. Ætlazt er til að
umsækjendur hafi lokið kandi
datsprófi eða séu komnir langt
áleiðis í háskólanámi. Þeir, sem
þegar hafa verið mörg ár í
starfi, eru eldri en 35 ára,
koma að öðra jöfnu ekki til
greina við styrkveitingu. Styrk
fjárhæðin nemur 550—600
frönkum á mánuði fyrir stúd-
enta, en allt að 700 frönkum
t'yrir kandidata. Auk þess hlýt '
ur styrkþegi nokkra fjárhæð
til bókakaupa og er undanþeg-
inn kennslugjöldum. Þar sem
kennsla í svissneskum háskól-
, um fer annaðhvort fram á
frönsku eða þýzku, er nauðsyn
legt að umsækjendur hafi nægi
lega þekkingu á öðru hvoru
þessara tungumála. Styrkþega,
sem áfátt kann að reynast í
því efni, verður gert að sækja
þriggja mánaða málanámskeið
í Sviss, áður en styrktímabilið
hefst.
Umsóknum um styrk þennan
skal komið til menntamálaráðu
neytisins, Hverfisgötu 6, eigi
síðar en 10. desember 1969.
Sérstök umsóknareyðublöð fást
í menntamáalráðuneytinu.
(Frá menntamálaráðun.)
12 sjúkraliðar útskrifaðir
Eftirtaldir 12 sjúkraliðar
luku námi frá Landspítalanum
nýlega: Anna Kristín Björg-
mundsdóttir, Kirkjubóli, Mos-
vallahreppi, V-ís., Birna Björns
dóttir Lövdal, Reykjavík, Bryn-
hildur Rósa Jónsdóttir, Hafnar-
firði, Brynhildur Vilhjálmsdótt
ir, Möðrudal, Jökuldalshreppi,
Guðný Sigurgísladóttir, Kópav.,
Kristín Jakóbína Gísladóttir,
Skáleyjum, Breiðafirði, Kristín
Erla Stefánsdóttir, Reykjavík,
Málfríður Jónsdóttir, Kópavogi.
María Guðrún Loftsdóttir,
Reykjavík, Rósa Guðmundsdótt
ir, Kópavogi, Vilborg Jóhannes
dóttir, Ilafnarfirði, Vilborg
Elín Kristjónsdóttir, Gilsbakka,
Ilellissandi.
Skyndihappdrætti
Sjómannadagsráös
Nýlega var dregið í skyndi-
happdrætti sumardvalarheimil-
is Sjómannadagsráðs. Þessi
númer komu upp:
Myndsegulbandstæki ásamt
upptökutæki nr. 56235. —
Gúmbátur með utanborðs-
hreyfli nr. 43754. — Vélsleði
nr. 13082. — Vimninga má vitja
til Guðmundar II. Oddssonar,
skipstjóra.
(Frétt frá Sjómannadagsráði)
Námsstyrkir til Banda-
ríkjanna
Eins og mörg undanfarin ár,
hefur íslenzk-ameríska félagið
milligöngu um útvegun náms-
styrkja til Bandaríkjanna. Er
hér um tvenns konar styrki að
ræða:
Annars vegar eru námsstyrk-
ir fyrir íslenzka stúdenta til
náms við bandaríska háskóla,
á vegum Institute of Internatio
nal Education. Styrkir þessir
eru veittir af ýmsum háskólum
í Bandaríkjunum, og eru mis-
munandi, nema skólagjöldum
og/eða húsnæði og fæði o.s.frv.
Styrkirnir eru eingöngu ætlaðir
námsmönnum, sem eru að hefja
háskólanám. Þess skal getið, að
nemendur, er ljúka stúdents-
prófi á vori komanda og hyggj-
ast hefja háskólanám næsta
haust, er heimilt að sækja um
þessa styrki.
Hins vegar eru námsstyrkir
úr Thor-Thors-sjóðnum fyrir
íslendinga, sem eru í háskóla
námi í Bandaríkjunum, en hafa
ekki lokið próíi. Eru þetta 3
—4 eitt þúsund dala styrkir.
Nánari upplýsingar um þessa
námsstyrki verða veittar á skrif
stofu íslenzk-atneríska félagsins
Austurstræti 17 (sími 1-3536),
þriðjudögum og fimmtudögum
kl. 6—7 e.h. Umsóknir (um
I.I.E.-styrki) skulu sendar skrif
stofu félagsins fyrir 20. nóv.
n.k. Umsóknir um styrki úr
Thoi'-Thors-sjóðnum skulu hins
vegar hafa borizt fyrir 20. des.
næstkomandi.
20 hjúkrunarkonur
útskrifaSar
Tuttugu hjúkrunarkonur ut-
skrifuðust frá Hjúkrunarskóla
íslands 22. október s.l. Nöín
þeirra fara hér á eftir.
Anna Sigurlaug Stefánsdótt-
ir, Dalvík. Álfhciður Ólafsdótt
ir, Reykjavík. Ásta' Bryindís
Þorsteinsdóttir, Reykjavík. Ást
ríður Karlsdóttir Tynos. Þor-
Mkshöfn. Systir Bente, Ilafnar
firði. Brynja Guðjónsdóttir,
Reykjavík. Elísabet Eria Krist-
j'ánsdóttir, Reykjavík, Elsa
Bjarney Georgsdóttir. Reykja-
vík. Gunmþórunn Jónasdóttir.
Revkjavík Hafdís Adolfsdóttir
Hafnarfirði. Helga Þóra Kjart-
ansdóttir, Patreksfirði. Ilrönn
Þórðardóttir. Vestmamnaeyjum
Jóhanna Jóhannesdóttir. Ileið.r
bæ. Jónína Lilja Guðmunds
dóttir, Akrane.si. Linda Níra
Page Guðmundsson. Keflavík
urflugvelli. Magnea Kristmunds
dóttir, Reykjavík. Margrét Ing
varsdóttir, Reykjavík, Sigrún
Ingibjartsdóttir, Akureyri. Sig-
rún Jóma Jónsdóttir, Reykja
vík. Þorbjörg Skarphéðinsd ótt-
ir, Reykjavik.
Skógarskóli settur
AJ-Skógum. mánudag
Skógarskóli var settur sunnu
daginn 13. okt. sl. Aðalsetning-
arræðuna hélt hinn nýi skóla
stjóri, sr. Sigurður Sigurðssolí^
Einnig fluttu ræður, sr. Hall
dór Gunnarsson í Holti, fyrr
verandi skólastjóri, Jón lt
Hjálmarsson og formaður skóla
nefndar, Björn Fr Björnsson
alþm. í skólanum í vclur verða
115 nemendur í fjórum bekkj-
ardeildum. Sú breyting verður
á starfi skóians í ár. að fyrsti
Eramhaid a bls* 15
SJÓNVARPSTÆKI KEYPT
FYRIR NOTUÐ FRÍMERKI
Frímerkjanefnd Geðverndarfé-
lagslns hefur unnið óeigingjarnt
starf við söfnun innlendra sem
erlendra frímerkja, Ilefur frí-
merkjanefndin látið vinna merkin
— með aðstoð öryrkja og annarra
góðviljaðra aðila — pakkað merkj
unum og síðan selt þau, og hefur
orðið Geðverndarfélaginu allnokk
ur tekjustofn.
Fyrir skömmu færði frímerkja
nefndin framkvæmdastjóra félags-
ins þrjú sjónvarpstæki af vönduð-
ustu gerð, og er ætlazt til, að
sjónvarpstækin verði notuð í vist
mannahúsum þeim, sem Geðvernd
arfélagið er nú að láta reisa að
Reykjalundi, samkvæmt bygginga
og rekstrarsamningi við SÍBS.
Þá er enn nokkurt fc, sem safn
azt hefur fyrir ofangrcind frí-
merki, á bankabók til ráðstöfunar
ivegna framkvæmaa télagsms.
Öllum þeim, sem gefið hafa
Gcðverndarfélaginu notuð frí-
i merki, ber að þakka, og má sjá,
I að verðmæti merkjanna hefur vel
ráðstafazt.
Þess skal einnig getið, að frí-
merkjasöfnunin heidur áfram,
og má senda öll notuð frímerki,
j íslenzk sem erlend, til félagsins
j í pósthólf 1308, ef menn vildu
styrkja þetta framtak.
Geðverndarfélag íslands er eina
félagið innan Ör.vrkjabandalags ís
lands, sem ekki nýtur neins ákveð
ins tekjustofns, en margir hafa
hugsað vel til þessa málefnis —
langstaersta öryrkjahópinum til
heilla.
Menn munu þó væntanlega minn
ast þess, að mun betur má gera,
ef duga skal.
\
FRIMERKJASÝNING
ÞÝZKRA OG ÍSLENZKRA
UNGLINGA HALDIN HÉR
22. nóvember hefst á vegum
LancUsambandsins samsýning
þýzkra og Islenzkra unglinga á frí
merkjum að Fríkirkjuvegi 11.
Þetta er fyrsta frímerkjasýningin,
sem haldin er hér á landi með e>
lendri þátUöku og er bein afleið
ing af þátttöku íslands í alþjóða
, samstarfi frímerkasafnara, en eins
og kunnugt er var Landsambandið
tekið í „Federation International
de Philatelic'' F.I.P. á þingi þess
i Prag á sl. 1. sumri.
Frímerkasýningin sem stend
ur frá 22. — 29. nóvember ber
heitið „DIJEX — ‘68“ en það er
skammstöfun fyrir „Deustch Is-
landisher Jugend Exposition1' Þátt
taka í sýningunni er opin fyrir
þýzka unglinga frá 13 — 21 árs.
þýzka .unglinga frá Bayern og ís-
lenzka unglinga 13—21 árs. Verð-
iaunaskjöl veröa gefin fyrir, silf
ur, silfrað brons, brons, diplom og
þátttökuskjal. Auk þess verða
svo margskonar sérstök verðlaun
veitt, t. d. bækur og munir. Þýzkir
unglingar hafa þegar fyllt pláss
það sem þeim er ætlað á sýning
unni, eða 25 rnmma og eru söfn
þeirra vænlanleg til landsins þann
15. nóvember. Islenzkir unglingar
úr meðlimaklúhbum Landssam-
bandsins hafa þegar tilkynnt þátt
töku í 7 römmum, en auk þess
verða sýnd þarna 2 söfn er hlotið
hafa> viðurkenningar á tveim al-
þjóðlegum sýningum á þessu ári.
Þá verður sýnt á sýningunni hvern
ig nota má frímerkið, sem hjálp
argagn í skólum. Auk alls þessa
verða svo kynningar frá þýzku
og íslenzku póststjórninni.
íslenzka póststjórnin mun láta
gera sérstimpil fyrir sýningu þessa
sem verður í notkun á pósthúsi
sýningarinnar alla dagana. Stimpill
þessi mun m. a. bera áletrunina
Evrópsk æska, sem fellur inn í
tegundasafn Evrópustimpla. Þess
má geta að Þjóðverjar létu á s.
1. ári gera slíkan stimpil er ís-
lenzkir unglingar voru i heimsókn
þar. Fellur hann undir tegunda
safnið, sem á þýzku nefnist „Europ
ische Jugendtreffen". Þá munu ís
! lenzkir unglingar taka þátt í sams
! konar sýningu í Múnchen á næsta
: vori og verður þar þá enn sér-
! stimpill helgaður íslandi.
i Þetta verður einskonar frum-
. vnun unglinganna á íslandi og í
Bayern fyrir alþjóðlegu unglinga
■ sýninguna „JUVENTUS 1969“
! sem haldin verður í Luxemborg á
I næsta vori eða nánar tiltekið 3.—
; 8. apríl 1969. Verðlaunasamkeppni
; meðal ungmenna um allan heim.
i uni frímerki fyrir þá sýningu, lauk
i með því að verðlaun hlutu: Betty
| Verdrengh frá Belgíu, Andre Cha
vaiilas frá Sviss og Johannese
Wolfgang frá Austurríki. Verða
teikningar þessar notaðar á frí
merkjaörk. sem gefin verður út
ií tilefni sýningai'innar.
í framkvæmdanefnd sýningar-
innar eru: Sigurður H. Þorsteins
son, Aðalsteinn Sigurðsson, Sigurð
i ur Ágústsson, Sigtryggur Eyþórs
! son, Jón Halldórsson, Þór Þor
1 steinsson og Bolli Davíðsson. I
dómnefnd sýningarinnar eru Sig
urður H. Þorsteinsson, en hann
hefir nýlega verið útnefndur al-
þjóðlegur dómari, Magni Reynir
Magnússon og Björn Gunnarsson,
en fyrir tegundasöfn sérstaklega,
Sigui'ður Ágústsson.
Tilkynningar um þátttöku verða
að berast franikvæmdanefndinni
sem allra fyrst og eigi síðar en
10. nóvember og skal stíla þær
tii: Landssambands íslenzkra frí
merkjasafnara, pósthólf 1336,
Reykjavík og mei-kja umslögin
„DIJEX — 68“. Dómnefndin hef
Framhald a bls. 15
...
it «(uoritAuc# ' .^wuiu ' 4
Teikningarnar, sent verðlaun hlutu, og verða notaðar á frímcrki,
sem gefin verða út í tilefni af sýningunni.