Tíminn - 31.10.1968, Blaðsíða 13

Tíminn - 31.10.1968, Blaðsíða 13
S1. oktttber 1968. SÞRÓTTiR TÍMINN ÍÞR07TIR 13 Heimsmeis koma til Islands! AM Reyk^avík. — Tékkn- esk» h**msmeistaramir í handknattlerk eru værvtanleg- ir fH fsiands í janóar n.k. og nmw lefka tvo landsleiki. Fékk stjórn HSÍ staSfestingu á því í gær, aS Tékkarnir myndu koma, en þeir verSa á keppnisferSalagi í janúar og munu þá m.a. heimsækja SvfþjóS. Aðdragandinn að því, að sam- komuiag náðist við Tékkana, má rekja til þess er HSÍ-fulltrúarnir á alþjóðaþinginu í Amsterdam buðu Tékkunum að koma hingað og leika. Þetta alþjóðaþing leyst ist hálfvegis upp vegna ákvörð unar þingsins að fella niður Evr- ópubikarkeppni og fresta heims- meistarakeppninni til næsta árs. Var það vegna Tékkóslóvakíu-máls ins. Nutu Tékkar mikillar sam- úðar á þessu þingi og urðu fleiri þjóðir til þess að bjóða þeim landsleiki. Og nú hafa Tékkarnir þegið boð HSÍ og koma hingað 12. janúar, en landsleikimir við ísland fara fram mánudaginn 13. janúar og miðvikudaginn 15. janúar. í Sví þjóð leikur téíckneska landsliðið 8. og 10. janúar. Það er vissulega fagnaðarefni 'að fá þessa frægu gesti í heim- sókn. Þeir hafa áður komið hingað og unnið hylli íslenzkra áhorfenda, sem kunna að meta góðan hand knattlei'k. Birgir Björnsson Þeir stóru mætmi í Alf-Reykjavík. — Það er í kvöld fimmtudagkvöld, sem leikur FH og Fram fer fram í íþróttahús inu á Seltjamamesi. Hefst leikur inn kl. 20.30, en á undan fer fram forleikur á milli Gróttu og Víkings í 2. flokki kvenna. í hálfleik keppa íþróttafréttamenn, sem sjá um þetta'V'' leikkvöld, við úrvalslið kvenna í reiptogi. Margir bíða spenntir eftir leik FH og Fram, enda eru leikir þess ara félaga jafnan mjög spennandi og tvísýnir og er ekki að efa, að svo verður einnig nú. Eru Birgir Björnsson FH og Sigurður Einars Framarar f skell í töpuðu óvœnt fyrir Val, 5 : 8. íslandsmeistarar Fram máttu Síta í það súra epli að tapa fyrir Val í gærkvöldi í Reykjavíkur- mótinu í handknattleik, en leikn- am lauk meS 3ja mavka sigri Vals S:5, sem voru mjög sanngjörn úr- ?lit. Leikurinn var æsispennandi illan tímann, sérstaklega í síSari nálfleik, en þá gerðu Framarar árangurslausar tilraunir til að lafna. Það er sannarlega hægt að hrósa Vals-liðinu fyrir gott keppnisskap I gærkvöldi. Hver einasti maður ’.iðsins virtist staðráðinn i að ^era sitt bezta frá upphafi. Og nezt af öllum gerði Jón Breið- fjörð í markinu. Hvílík mark- varzla! Hvað eftir annað varði hann linuskot Fram-leikmannanna 3g er þó ekki heiglum hent að stöðva þau. Jón var maður kvölds ins í gær, maðurinn á bak við ninn óvænta Vals-sigur, sem þýðir nafi. að nú verða Vatur og Fram að leika aukaleik um Reykjavíkur íitilinn. Annars var Fram-liðið ólíkt sjálfu sér í gær. Einhvern veginn hafði maður það á tilfinningunni, að þeir væru of sigurvissir. E.t.v. hafa þjálfarar liðsins einnig verið pað, a.m.k. tefldi Fram ekki sínu Iterkasta liði fram, t.d. stóð Guð jón Jónsson og nokkrir af yngri . Ieikmönnum, sem sannað hafa getu sína, fyrir utan. Þetta getur reynzt Fram dýrt spaug. | , í leiknum í gærkvöldi höfðu ; Valsmenn skorað 2 mörk, áður en Fram komst á blað, en í hálfleik stóðu leikar 5:2 Val í hag. Léku Valsmenn mjög yfirvegað og flön uðu ekki að neinu. Jaðraði við i leiktafir. Strax í síðari hálfleik . skoraði Björgvin Björgvinsson fyr ! ir Fram og skildu þá tvö mörk á milli. Virtist liggja í loftinu, að Fram jafnaði bilið, en Vals- menn voru ekki á þcim buxunum . að gefast upp. Hermann Gunnars- son sendi hnitmiðað á línuna til Jóns Ágústssonar, sem skoraði 6:3. Og litlu síðar skoraði Her- mann 7:3. Þá voru 10 mínútur eftir og ljóst að hverju stefndi. Það var aðeins formsatriði að Ijúka leiknum, Vals-sigur í höfn. Lókatölur urðu 8:5. Eins og fyrr segir áttu allir leikmenn Vals góðan leik. sérstak- lega þó Jón Breiðfjörð. Ólafur Jónsson og Jón Karlsson voru einnig atkvæðamiklii', en minna bar á Bergi Guðnasyni en oft áðuv. Skoraði hann ekki eitt einasta i mark, sem er mjög óvenjulegt. En t raaimui a oit lo | son Fram báðir sannfærðir um það en við spjölluðum lítilshátt ar við þá. „Þetta verður áreiðanlega spenn andi leikur“, sagði Birgir Björns- sorí. „Síðast, þegar við lékum við Fram varð jafntefli og voru það sanngjörn úrslit. Ég álít, að FH- liðið sé í betra formi nú og hef því trú á, að við getum sigrað í kvöld. Annars er bezt að spá sem minnstu, en hins vegar vil ég nota tækifærið og lýsa yfir ánægju minni með þetta nýja íþróttahús á Seltjarnarnesi. Það var vissulega tímabært, að svona hús risi í ná grenni Reykjavíkur." Sigurður Einarsson, Fram, hafði þetta að segja: „Ég hugsa að þessi leikur verði jafn og spenn- andi eins og fyrri leikir Fram og FH. Bæði liðin stóðu sig vel á móti sænsku og dþnsku meistur unum þegar þeir voru hér á ferð fyrr í haust. FH-ingar stóðu sig þó öllu betur og það verður sennilega erfitt fyrir okkur að sigra þá í kvöld. En við skulum sjá hvað setur.“ Þess má að lokum geta, að for sala aðgöngumiða stendur yfir í bókav. Lárusar Blöndal í Vestur veri og Skólavörðustíg, én sala aðgöngumiða í íþróttahúsinu _á Seltjarnarnesi hefst kl. 19.30. Á- stæða er til að benda fólki á að tryggja sér miða í tíma, því að upplagið er takmarkað. SkautaféBagið 30 ára í dag er Skautafélag Reykja- víkur 30 ára. Fyrsti formaður fé lagsins var Kristján Einarsson, framkvæmdastjóri, en núverandi formaður er Sigurjón Sigurðsson. Að sjálfsögðu hefur það háð starfsemi félagsins, ad hér er eng in skautahöll. en áhugi fólks á skautaíþróttinni er mikill og væri eflaust enn meiri, ef viðunandi aðstaða væri fyrir hendi. Þess má geta að félagsmenn í Skauta félagi Rvíkur hafa mikinn áhuga á íshokkí og hefur farið fram keppni milli þeirra og Akureyr- inga í þessari íþróttagrei'n. íþróttahúsið á Seltjarnarnesi. Þar mun leikur Fram og FH fara fram í kvöld. ÍBR lætur frá sér heyra Eftirfarandi athugasemd hef- ur íþróttasíðunni borizt frá íþróttabandalagi Reykjavíkur: „Vegna blaðaummæla í sam- bandi við leik þann, sem iþrótta fréttamenn standa að í íþrótta- húsinu á Seltjarnarnesi fimmtu- daginn 31. október, um, að þeim hafi verið neitað um af- not Laugardalshallarinnar fyrir leikinn, viljum vér vekja at- hygli á eftirfarandi: Um árabil hafa verið í gildi fastar reglur um niðurröðun íþróttamóta innan samtaka íþróttafélaganna í péykjavík. Fjáröflunarleikir einstakra fé- laga og heimsóknir erlendra handknattleiksliða og knatt- spyrnuliða fara eftir reglum, sem sérráðin set.ia, en niður- röðun á daga er háð samþykki f.B.R. í lögum ÍSÍ er hverju héraðssambandi falið að sjá um niðurröðun íþróttamóta í sínu béraði, og innan hverrar íþróttagreinar hefur viðkom- andi sérráð yfirstjórn hennar innan þeirra takmarka ,sem lög heildarsamtakanna setja þeim. Þegar fréttamenn sóttu um afnot Laugardalshallarinnar fyrir handknattleikskeppni milli Fram og FH var þeim vísað til Handknattleiksráðs Reykjavíkur. Stjórn H.K.R.R. synjaði um leyfi fyrir leiknum, m a. vegna þess að úrslitaleik- ir Reykjavíkurmótsins áttu að fara fram miðvikudaginn 30. október og H.K.R.R. hafði sjálft ætlað að efna til fjár- öflunarleiks sunnudaginn 3. nóvember vegna fyrirhugaðrar bæjakeppni í handknattleik í febrúar n.k. í Kaupmannahöfn. Það kom því ekki til að fréttamönnum yrði synjað um afnot Laugardalshallarinnar, enda eru afnot hennar opin fyrir þau íþróttamót, sem þar geta farið fram samkvæmt regl um hallarinnar og þeim sam- þykktum, sem íþróttahreyfing in í Reykjavík hefur sjálft sett um skipulagningu sinna mála. íþróttabandalag Reykjavíkur Sigurgeir Guðmannsson. ATHUGASEMD Jafnvel þótt yfirlýsing ÍBH, sem birtist hér að framan, sé aldeilis furðuleg, þá ber þó að fagna því, að eitthvað skuli heyrast frá þessu stóra banda- lagi, sem sofið hefur værum Þyrnirósarsvefni undanfarin ár. Mætti ÍBR láta heyra oftar frá sér og þá um stærri mál. ÍBR hefur að nr.örgu leyti vanrækt skyldur sínar við íþróttirnar í Reykjavík og hefur ekki verið sá aflvaki, sem það ætti að vera. En það er önnur saga> og gefst væntanlega tækifæri til að taka það mál fyrir síðar, Svo við víkjum að yfirlýs- ingu ÍBR, þá liggur í augum uppi, hvers vegna íþróttafrétta menn Ieituðu til íþróttahússins á Seltjarnarnesi. Það var vegna þess, að þeir fengu ekki inni í Laugardalshöllinni, eins og raunar kom fram í yfirlýsingu ÍBR. Um það, hvort það brjóti f bága við einhverja reglugerð, að Samtökum íþróttafrétta- manna sé Iéð Laugardalshöll- in, skal látið ósagt, en þó mun ÍBR hafa gefið fordæmi I þessu, því að í eina tíð fengu íþróttafréttamenn gamla Há- logalandshúsið lánað í sama skyni. Það væri svo óskandi, að ÍBR sneri sér að háleitari verk efnum en að vernda einhver ímynduð réttindi Reykjayíkur félaganna í tíma og ótíma. _ alf. Laugardalshöllin — hefur nú fengið samkeppni. Valsstúlkurnar sigr- uðu fimmta árið í röð Alf-Reykjavík. — Valsstúlkurn- ar urðu Reykjavíkurmeistarar í handknattleik í gærkvöldi, er þær! sigruðu Ármann 11:3. Er þetta 5. árið í röð, sem Valur verður Rvíkunneistari í kvennaflokki. Þjálfari liðsins er Þórarinn Ey- þórsson og liefur haun þjáll'að liðið öll sigurárin. | Yfirburðir Valsstúlknanna í gær kvöldi voru miklir, þrátt fyrir lélega bjTjun, en hvorugu liðinu tókst að skora fyrstu 5 mínúturn- ar. í síðari hluta fyrri hálfleiks tókst Val að skora fjögur mörk. Og í síðari hálfleik voru Vals- stúilkuinar svo sannarlega 1 essinu Framhald á bls. 14. i

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.