Vísir


Vísir - 16.07.1977, Qupperneq 24

Vísir - 16.07.1977, Qupperneq 24
VÍSIR gftiiftfiftiMfc BÍLASALA Lykillinn aó góðum bílakaupum n P. STEFÁNSSON HF. « SÍÐUMÚLA 33 SÍMI 83104 83105 sparar 1 rfc. AVELING BARFORD ÞUNGAVINNUVÉLAR W OLL OKUTÆKI SMÁOG STÓR i, P.STEFÁNSSONHF. HVERFISGÖTU 103 SÍMI 26911 tö Innlán í kerfinu stórlega banka- hafa minnkað Mjög hefur dregiö úr spari- innlánum i bankakerfinu undanfarnar vikur. „Það hefur oröiö veruleg breyting á þróun spariinnlána i júnimánuði i öllu bankakerf- inu”, sagöi Jönas Haralz, Landsbankastjóri, þegar Visir innti hann eftir þessari þróun i innlánsmálum bankanna. „Hins vegar er of snemmt að draga af þvi neinar ályktanir — og frekari þróun veröur að skoöa i ljósi þeirra viðnámsað- geröa, sem gripið verður til af rikisvaldinu” — sagöi Jónas ennfremur. Bankamenn hafa undanfarið haft af þvi miklar áhyggjur, hve jafnvægi i inn- og útlánsmálum væri litið, og þeirri óvissu, sem rikt hefur i sambandi viö að- gerðir af hálfu rikisvaldsins til að stemma stigu við verðbólgu- þenslu i kjölfar samninganna. Vist er, ' að miklir fjármunir hafa streymtút úr bönkunum aö undanförnu, enda mun flestum þykja vænlegra að koma fjár- munum sinum i eitthvað arö- bærara en sparifé, sem óða- verðbólgan étur. H.L. Vísisbíó er í dag Vfsisbió verður idag klukkan 15 i Laugarásbiói. Þá verður sýnd myndin Sigurvegarinn með Paul Newman i aðalhlutverki. Þetta er hörkuspennandi kappakstur- mynd i litum og með íslenskum texta. Allir sem borið hafa Visi út eða selt hann aö undanförnu eru vel- komnir. Loðnuskip fó ekki leyfi til síldveiða Loðnuveiðiskip fá ekki að stunda síldveiðar I haust, sam- kvæmt upplýsingum Matthiasar Bjarnasonar sjávarútvegsráð- herra. Umsóknarfrestur um sild- veiðarnar rann út I gær, en ekki er enn Ijöst hve mörg skip sóttu um. Leyfi veröur gcfiö til að veiða tuttugu og fimm þúsund tonn. Astæöa þess að loðnuveiöiskip- in fá ekki að fara á sildveiðar, er sú, að aflakvótinn er hreinlega ekki til skiptanna, sagði ráö- herra. Kemur svo lika það til, að loðnuveiðar standa nú mun leng- ur yfir en áður, og reiknað meö að þau skip sem nú hafa hafiö veiöarnar geti verið á þeim allt til áramóta. Þau skip sem fá sfldveiðileyfi, verða eingöngu á stærðarbilinu 105 til 350 tonn. Er lægra markið miðað við, að skip þar fyrir neöan fengu leyfi til humarveiða. —AH Guðmundur Þorbjörnsson skorar sfðara mark Vals og kemur fyrrverandi félagi hans Sigurður Haraldsson i marki tBV engum vörnum við. Ljósmynd Einar Gunnar. Valur krœkti sér í tvð dýrmœt stig — sigraði Vestmannaeyjingq 2:0 ó Laugardalsvellinum í gœrkvöldi Vaismenn unnu þýðingarmik- inn sigur í 1. deild tslandsmóts- ins I knattspyrnu í gærkvöldi, þegar þeir sigruðu Vestmanna- eyinga 2:0 á Laugardalsvellin- um. Akurnesingar hafa þó enn forystuna, þeir eru með 19 stig, en Valur sem leikið hefur einum leik minna hefur 18 stig. Leikurinn i gærkvöldi var hinn skemmtilegasti, mikill hraði og fjöldi marktækifæra á báða bóga. Valsmenn léku undan snarpri golu i fyrri hálf- leik og voru þá mun meira I sókn. Þeir náðu forystunni með marki Atla Eðvaldssonar á 23. minútu, Þá reyndi Bergsveinn Alfonsson skot á markið á ská utan við vitateig. Hann hitti boltann illa sem barst fyrir markiö —■ og þar kom Atli eins og hann hefði dottið niöur úr skýjunum og sendi boltann i netið á meðan varnarmenn Eyjamanna horfðu agndofa á. Strax i byrjun siðari hálfleiks skoraði Guðmundur Þorbjörns- son annað mark Vals, hann fékk þá stungusendingu inn fyrir vörn Eyjamanna, snéri af sér varnarmann og sendi sfðan boltann i markið með föstu skoti. Lagiega gert hjá Guð- mundi. Ekki urðu mörkin fleiri I leiknum en bæði liöin áttu fjölda tækifæra sem fóru forgöröum, þó sérstaklega hjá Valsmönn- Staðan í 1. deild tslandsmóts- ins I knattspyrnu er nú þessi: Akranes Valur Víkingur Keflavik ÍBV Breiðablik FH Fram KR Þór 139 1 3 23:17 19 12 8 2 2 21: 9 18 13 6 5 2 16:11 17 13 6 4 3 18:16 16 13 6 2 5 16:12 14 12 5 2 5 16:16 12 13 4 2 7 17:24 10 13 3 4 6 14:21 10 13 2 2 9 18:24 6 13 2 2 9 14:29 6 BB Kvótafyrirkomulag hefði verið betra" — segir varaformaður Sjómannasambandsins „Ég vil nú litið um þetta mál segja, annað en það, að ég hef alltaf verið inn á þvi, að best hefði verið að koma á kvóta- skiptingu til skipanna, og það hefði átt að gera strax um sið- astliðin áramót”, sagði Guð- mundur M. Jónsson, varafor- maður Sjómannasambands ts- lands, í samtali við Visi i gær. Sagðist Guðmundur einnig gjarna vilja fá svör viö þvl, hver ætti að greiða það tap, sem sjó- menn óhjákvæmilega yröu fyrir með tilkomu þessarar nýju reglugerðar. „En ég vil undirstrika það, að langbesta lausnin út frá þjóð- hagslegu sjónarmiði hefði verið að koma á aflakvótafyrirkomu- lagi”, sagði Guðmundur aö lok- um. — AH „Þessar aðgerðir síst of miklar" — segir Kristjón Ragnarsson, formaður Landssambands útgerðarmanna „Við styðjum þessar aögerðir, og teljum þær nauðsynlegar, en þær eru sist of miklar”, sagði Kristján Ragnarsson, formaður Landssambands islenskra út- gerðarmanna i samtali við Visi i gærkvöldi, er hann var infftur eft- ir áliti hans á hinum nýju reglu- gerðum um aflatakmarkanir á þorski. Sagði Kristján, að þetta væri liöur I þeirri viöleitni, að halda þorskafla landsmanna undir tvö hundruð sjötiu og fimm þúsund lestum á árinu. En útgerðarmenn heföu þegar lýst sig samþykka þvi megin sjónarmiði að aflinn færi ekki yfir það mark. Þá sagði Kristján ennfremur, að sá þorskur sem væntanlega slyppi við netin vegna þessara nýju reglugerða, væri mest milli- þorskur. Það væri þvi betra að leyfa honum aö stækka, og verða að hrygningarþorski. „Viö erum siöur en svo að missa af-honum þó við veiðum hann ekki strax”, sagöi Kristján. — AH

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.