Vísir - 18.07.1977, Qupperneq 5
VISIR Mánudagur 18. júli 1977
C
D
Þessi timatakmörkun kemur
sér nú enn verr en ella þar sem
stúdentarnir þurfa aö vinna
meö náminu og þaö tekur
töluvert af þeim tima sem
annars væri hægt aö nota viö
lestur.
Verður ný stúd-
entauppreisn
í V-Þýskalandi?
Barátta
vinstri
Vindur byltingarinnar eru
aftur teknir aö gnauöa um
ganga háskólanna i Vestur-
Þýskalandi og vekja upp óþægi-
legar minningar frá stúdenta-
óeiröunum áriö 1968. Þaö hef-
ur komiö til „verkfalla” I nær
hverjum einasta háskóla lands-
ins og eins og 1968 er þaö Jþerlin
sem hefur forystuna, þar hafa
fimmtiu þúsund stúdentar tekiö
þátt i verkföllunum.
Til þessa eru margar ástæöur,
ein er alvarlegt atvinnuleysi
meöal „akademikera”. Þó er
kannske þyngra á metunum aö
kjör stúdenta fara versnandi.
Opinberir styrkir tii náms-
manna nægja þeim nú ekki
lengur til viöurværis og um 95 af
hundraöi hafa þvi þurft aö leita
sér aö vinnu til aö stunda meö
náminu.
Þessu til viöbótar er svo
nýbúiö aö setja iög sem tak-
marka námstimann i háskólun-
um viö fjögur til fimm ár. Áöur
var þaö ekki óalgengt aö menn
væru viö háskólanám i fimm til
sex ár.
gegn
mönnum
Pólitik kemur einnig töluvert
við sögu. Um þriðjungur
stúdentanna tilheyrir einhverj-
um vinstri hópum og stjórnend-
ur háskólanna eru litt hrifnir af
þvi að þessir menn fái eitthvað
að segja i stjórn skólanna.
En þátttaka i stjórn skólanna
var einmitt eitt af þvi sem
stúdentarnir fengu i gegn i fyrri
óeirðum. Ýmsir stúdentanna
hafa reynt að koma vinstri filó-
sófiu sinni inn i skólastjórnina
en þvi hefur verið mætt með
mestu hörku, sem ekki er til að
bæta úr skák.
Töluverö vinstri sveifla er nú
að gera vart við sig meðal
stúdentanna eftir langt hlé.
Þetta hlé má rekja beint til
Baader-Meinhof samtakanna,
sem urðu alræmd um allan
heim fyrir morö og önnur
hryðjuverk.
Samtökin ætluðu sér meöal
annars að framlengja stúdenta-
byltinguna með aögerðum sin-
um, en þær höfðu þveröfug
áhrif. Meðal almennings I
Þýskalandi nutu þessir morð-
ingjar litilla vinsælda og vinstri
sinnuöum stúdentum var oft
gert lifið leitt.
Þeir voru settir undir sama
hatt og þessi óþjóðalýöur , þótt
margir þeirra hefðu andstyggð
á Baader-Meinhof og færu ekki i
felur með það. Það var ekki
bara almenningur sem sýndi
þessu fólki andúð, stjórnvöld
fylgdust vel með hinum róttæk-
ari meöal þeirra og hindruðu til
dæmis að þeir kæmust i opin-
berar stööur.
Morðið gladdi þá
Það hefur heldur ekki oröið til
að auka álit almennings á
vinstri sinnuðum stúdentum, að
þeir fögnuðu þvi opinberlega
þegar Sigfried Bubak, rikissak-
sóknari var myrtur á götu úti i
april.
I blaði stúdenta i Göttingen
sagði þannig að þeir fengju ekki
leynt gleði sinni yfir aö þessi
maður skyldi myrtur. Fleiri
stúdentablöð tóku upp þennan
þráð sem flestum öðrum en
vinstri mönnum fannst heldur
óhuggulegur.
Nú eru sumarfri i skólum
Vestur-Þýskalands og þvi allt
rólegt. En margir óttast að það
sé lognið á undan storminum.
Vestur-þýskir stúdentar á mótmælafundi.
Æviiitijraléröir
tíl næstu nágtanna
Giænland
Ferö til Grænlands - þó stutt sé - er engu lík. í
Grænlandi er stórkostleg náttúrufegurð og sér-
kennilegt mannlíf, þar er aö finna hvor tveggja í
senn nútíma þjóðfélag eins og viö þekkjmn þaó -
og samfélagshætti löngu liðins tíma.
Stórskemmtilegar feröir
sérstaklega fyrir fjölskyldur - starfshópa
og félagasamtök.
Spyrjið sölufólk okkar, umboðsmenn eða
ferðaskrifstofurnar um nánari upplýsingar.
Færeyjnr
Það sem gerir Færeyjaferð að ævintýri er hin
mikla náttúrufegurð, ásamt margbreytilegum
möguleikum á skemmti- og skoðunarferðum um
eyjarnar, og síóast en ekki síst hið vingjamlega
viðmót fólksins.
Ef þú ert einhvers staðar velkominn erlendis - þá
er það í Færeyjum.
F,í^ínL^c lOFWIBIR
ISLANDS
■ i
..