Vísir - 18.07.1977, Side 12

Vísir - 18.07.1977, Side 12
Mánudagur 18. júli 1977 VISIR Vulkswagen Derby: lær fljúgandi start I Þýskaiandi. Séð útundan sér... ...aðmargir aka með opna glugga i ryki á þjóðvegum i þeirri trú, að við það komi meira af fersku lofti inn i bilinn, og rykið verði múma. Þetta er rangt, frumskilyrði þess að losna við ryk inni i bilnum er að liafa alla glugga lokaða og miðstöðvarviftuna á fullutil þess að skapa hærri loftþrýsting inni i bílnum en utan við hann. Meira um þetta á næstu bilasiðu , undir kjörorðinu: „Rektu rykið út” ...að Volkswagen Derby, nýjasta gerðin hjá Volkswagenverk- smiðjunum helur fengið mjög góðar viðtökur kaupenda, og er framleitt þrefalt meira af honum en Póló, gerðinni, sem Derby er soðinn upp úr. Derby er af „venjulegri gerð”, með „skotti” og tveimur dyrum og er ætlað að keppa við Ford Escort og Opel Kadett. ...að á mörgum verkstæðum er kvartað yfir slæmri meðferð á kúplingum bila. Margir virðast nota þærsem fóthvilu, og standa á rómar Ragnarsson skrifar um bíla. ^mmmmmmmmmmmmmm^^mmmmm^rnmm^mm^^ þeim við umferðarljós, og ekki gera sér grein fyrir þvi sliti, sem röng notkun veldur á kúplingunni. ...að nú er hægt að fá aflmeiri vél i Renault 20 101 DIN-hestöfl. • • Okukennsla t Meiri kennsla - minna gjald Orion er ökuskóli sem að norskri og sænskri fyrirmynd hefur með stórlega betur skipu- lagðri fræðilegri kennslu tekist að fækka æfingatimum og að auki búa fólk betur undir akstur í umferðinni. Skólinn hefur yfir að ráða fullkomnari kennslugögnum en nokkur annar aðili hérlendís. ORION útvegar öll gögn sem þarf til öku- prófsins og annast fræðilega kennslu og æfingaakstur á bíl og mótorhjól. Markmið okkar er: Bœtt umferðarmenning — Hœfari og ábvraari ökumenn Verið velkomin NJÁLSGÖTU 86 — SÍMI 29440 MANUDAGA-FIMMTUDAGA KL. 17.00-ia.uu Þúsund gamlir Rollsar til heiðurs drottningu. Þúsund gamlir Rolls Royce-bílar á einum stað Drottningin, Bitlarnir, Wembley, Rolls-Royce. Ætli þetta séu ekki þau nöfn, sem fólk setur helst i samband við Bretland. Þar var þess vegna vel til fundið hjá félagsskap eig- enda gamalla Rolls-Royce bila að safna þeim saman við Winds- or-kastala i vor, þegar drottn- ingin og þegnar hennar héldu hátiðlegt 25 ára afmæli krýning- ar hennar. Það er ekki út i bláinn, sem Rolls-Royce hefur verið tálinn besti bill heims. Það sást ljós- lega, þegar litast var um meðal hinna þúsunda gömlu Rolls- Royce bila, sem komnir voru til Windsor frá ýmsum löndum. Meðal annars gat þar að lita Rolls-Royce-bila, sem komnir voru frá Kanada og Bandarikj- unum, m.a. einn alla leið frá Kaliforniu. Það var árið 1907, eða fyrir sjötiu árum, sem Rolls-Royce ávann sér viður- kenningu sem besti bill heims, og gerðin, sem þótti svona frá- bær, hét Silver Ghost, og dró nafn sitt af silfurlituðum létt- málminum, sem notaður var i þennan bil. Þessi gerð var framleidd frá 1907 tii 1925. Árið 1907 var billinn knúinn sjö litra sex gata vél, sem af- kastaði 48 hestöflum við aðeins 1200 snúninga á minútu og náði 90 kilómetra hraða, sem var ofsahraði i þá daga. Þegar árið 1906 var framleiddur Rolls- Royce meö V-8 vél, og á árunum 1936-39 var framleidd gerð með V-12 vél. Fáir bilar hafa haldið svip- mótinu jafnvel og Rolls-Royce. Vatnskassahlifin með stytt- unnni „Flying Lady” setur mark sitt á þá alla, hvort sem árgerðin er 1907 eða 1977. Nýtiskulegasti Rollsinn er Camargue, og miðað við verð hans f nágrannalöndunum, myndi slikur bill vart kosta minna hér á landi en 50 milljónir króna. Verksmiðjurnar hafa ekki og hafa raunar aldrei ann- að eftirspurn, og sem dæmi um sérkenni þessa bils má nefna, að ekki er gefinn upp fjöldi hest- afla i Rolls-Royce-bilum, og hið eina, sem verksmiðjan fæst til að segja um aflið er að það pé „nóg”. Rolls Royce Silver Ghost 1907: jafn stórkostlegur i dag og fyrir sjö- tiu árum, „still going strong.”. Dæmigert enskt. Bretinn með yfirskeggið að fægja gljáandi, fjöru- tiu ára gamlan Rolls Royce, sem Montgomery marskálkur ók i forðum tið. P

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.