Tíminn - 15.11.1968, Side 1

Tíminn - 15.11.1968, Side 1
Vantraus TK-Reykjavík, fimmtudag. — Á mánudaginn verður lögð fram á Al- þingi tillaga til þingsályktunar um vantraust á ríkisstjórnina. Flutn- ingsmenn tillögunnar eru þeir Ólafur Jóhannesson, formaður Fram- sóknarflokksins, og Lúðvík Jósefsson,'formaður þingflokks Alþýðu- bandalagsins. Um tillögu til þingsályktunar fer fram útvarpsumræða samkvæmt ákæðum þingskapa. Enn er ekki ákveðið, hvenær umræð- unni um vantraustið verður útvarpað. (Jerizt áskrifendur að Tímanum. Hringið í síma 12323 Auglýsing í Tímanum kemur daglega fyrir augu 80—100 þúsund lesenda. 249. tbl. — Föstudagur 15. nóv. 1968. — 52. árg. Ræða umsókn- ina á Vínar- fundinum Á fundi EFTA-ráðsins í Genf gær var ákveðið, að umsókn fslands um aðild að EFTA skyldi tekin á dagskrá ráð- herrafundar samtakanna, sem kemur saman í Vínarborg 21. nóvember n. k. Frétt frá viðskiptaráðun. Fulltrúar launþega í Verðlagsnefndinni gengu af fundi í gær: AÐGERÐIR STJÖRNARINNAR BRIGÐ A L Miðstjórn tékkneskra kommúnista á fundi: Ræða framtíö arstefnuna NTB-Prag, fimmtudag. Miðstjórn tékkneska kommún istaflokksins, en í henni eiga sæti um 270 leiðtogar komm- únistaflokksins, situr nú á fund um í Prag. Miðstjórnin hefur nú loks verið kvödd saman til fundar, en því hefur verið skot- ið á frest hvað eftir annað. Alexander Dubcek, flokksleið- togi, Ludvig Svoboda, forseti og Josef Smrkovsky, forseti þjóð- þingsins, eru í forsæti á fundi miðstjórnarinnar en talið er að umræður snúizt aðallega um pólitíska framtíðarstefnu lauds ins. Ef allt hefði verið með feildu í Tékkóslóvakíu, ætti fyrir löngu að vera búið að halda miðstjórnarfund tékkóslóvaska kommúnistaflokksins, en nú þegar flokksforustan hefur loks ins séð sér fært að kveðja inið stjórnina saman er talið að þar verði reynt að marka sameigin- lega framtíðarstefnu í innan- landsmálum sem í utanríkismál um. Ungur Tékki brennir fána Sovétríkjanna á götu í Prag á dögunum. EJ-Reykjavík, fimmtudag. Á fundi Verðlagsnefndar í morgun lögðu fulltrúar launþegasam- takanna, ASÍ og BSRB, fram sérstaka bókun, þar sem því er m.a. lýst yfir, að með ákvæðum laga um ráðstafanir vegna nýja gengisins, sé „verðlagsnefnd svipt öUu því valdi, sem hún lögum samkvæmt hefur haft til verðlagsákvarðana vegna gengisbreytingarinnar". Vísuðu nefndarmenn til bréfs, sem stjórnir ASÍ og BSRB sendu viðskiptamála- ráðlierra á þriðjudaginn, en þar er bent á, að ákvæði laganna séu brot á því samkomulagi, sem gert var við launþegasamtökin um verð- lagsnefndina í nóvember í fyrra. Er launþegafulltrúarnir, þeir Björn Jónsson, Svavar Helgason, Hjalti Kristgeirsson og Jón Sigurðsson, höfðu lagt fram bókun sína, gengu þeir af fundi, og munu launþega- fulltrúarnir því ekki taka þátt í verðlagningu og verðlagsákvörðunum vegna gengisbreytingarinnar. Bókun þeirra Björns, Svavars, Hjalta og Jóns er svohljóðandi: „f sambandi við verðlagsákvarð anir, sem nú leiða af nýgerðri gengisbreytingu, vilja undirritaðir fulltrúar ASÍ og BSRB í nefnd- inni taka fram eftirfarandi: Með 2. málsgrein 2. greinar laga um ráðstafanir vegna ákvörðunai' Seðlabanka íslands um nýtt gengi íslenzkrar krónu, er verðlagsnefnd svipt öllu því valdi sem hún lög- um samkvæmt hefur haft, til verð lagsákvarðana vegna gengisbreyi- ingarinnar. Að lögum þessum sam þykktum, teljum við okkur ekkert erindi eiga með þátttöku í verð- lagningu og verðlagsútreikningum að því leyti sem nefnd grein tekur til, vegna gengisbreytingarinnar, og lýsum allri ábyrgð í þeim efn- um á hendur ríkisstjórninni. Til frekari skýringa á framan- greindri afstöðu okkar visum við til bréfs ASÍ og BSRB, dagsett 12. þessa mánaðar, til viðskiptamála- ráðherra. — Björn Jónsson, Svavar Helgason, Hjalti Kristgeirsson, Jón Sigurðsson". Þá barst blaðinu í dag eftirfar- Framhald á bls. L4 FLODIN ERU I RENUN - TUGMILLJÓNA TJÓN OÓ-Reykjavík, fimmtudag. Flóðin á Austurlandi eru nú heldur í rénum, en flestir vegir eru enn ófærir og er unnið að bráðabirgðaviðgerð, þar sem bægt oj- að koma tækjuni við. Viðgerð arflokkar Vegagerðarinnar hafa víða unnið að því að koma á vega sambandi milli byggðarlaga en vatu flæðir yfir fjölda vega og ræsi eru eyðilögð. Tjónið af flóð- unum nemur tugmilljónum króna en ekki er hægt enn sem komið er að kanna það til fulls. Ekki er unnt að gera við vegina í vetur áherzla verður lögð á að koma á vegasambandi til bráðabirgða, en fullnaðarviðgerð verður víðast hvar að bíða vorsins. í dag tókst að gera fært milli Egilsstaða og ESkifjarðar. Flóðið í Lagarfljóti rénaði svolítið í dag og er fært stórum bílum yfir brúna. Lokað er frá Eskifirði á Norðfjörð, frá Reyðarfirði er lok að allt suður að Lónsheiði. Stærri brýr fyrir austan hafa ekki orðið fyrir miklum skemmdum, hinsveg ar hefur viða flætt yfir vegfyll- ingar að brúm og grafið frá brúm. Verður ekki hægt að gera við þessar skemmdir fyrr en vatnið sjatnar enn meir. Ræsi eru mjög víða eyðilögð og sums staðar hefur þeim sópað burt. Jón Kristjánsson á Egilsstöð- um sagði í dag, að heldur hafi sjatnað í Lagarfljóti síðari hluta dags. í morgun var með öllu ófært Framhald á bls. j.4 Tillagan um efnahagsað- stoð við ísland: Afgreidd á NATO-þing- inu í dag FB-Reykjavík, fimmtudag Eins og skýrt hefur ver- ið frá var borin fram tillaga á fundi í stjórnmálanefnd þingmannasambands NAT 0 urn að aðiidarríki veittu íslandi ©fnahagsaðstoð vegna þeirra örðuglei'ka, sem nú steðja að. Samkv. upplýsingum, sem blaðið fékk hjá Níels P. Sigurðs- syni sendiherra íslands hjá NATO, verður málið vænt anlega afgreitt á morgun á fundi þingsins sjálfs. Níels sagði, að hér væri ein ungis um að ræða tillögu á vegum þingsins og þmgmann- anna, og ekki viðkomandi NATO-ráðinu sjálfu á þessu stigi mólsins. Sagði hann, að búast mætti við, að tillagan Framhald á bls. 14

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.